Þjóðviljinn - 12.04.1990, Side 23

Þjóðviljinn - 12.04.1990, Side 23
DÆGURMÁL HEIMIR MÁR PÉTURSSON Hingað og síðan aftur í mörkina Miövikudaginn 18. apríl verða einstæöirtónleikará Hótel Borg en þá mun Malímaðurinn Ali Far- ka Toure syngja og leika við ann- an mann eigin tónlist. Ferill Ali Farka er á margan hátt mjög sér- stakur og maðurinn sjálfur er einnig hinn merkilegasti. Hér á dægurmálasíðunni hefuráður verið sagt frá því að Ali Farka ætli að hætta öllu tónlistarvafstri á þessu ári þegar hann verður fimmtugurog snúasérafturað nautgripum sínum og kornökrum í mörkum Malí. Hann hefur strengt þess heit frammi fyrir Alla og slík heit rjúfa menn ekki að gamni sínu. Tónleikarinir á Borg- inni verða því með hans allra síð- ustu tónleikum. Ali Farka var ekki ætlað að stunda tónlist. Fjölskylda hans í Malí telst til aðalsins en upphaf- lega komu forfeður hans frá Mar- okkó og voru flestir stríðsmenn eða hershöfðingjar. í Malí eru hlutunum líka þannig háttað að þar hafa ákveðnar fjölskyldur séð um allan tónlistarflutning í ald- anna rás og ekki er til þess ætlast að aðrir stundi þá iðju. í stað stéttarfélaga eru það fjölskyldu- bönd sem ráða því hvað fólk má leggja sér fyrir hendur. En Ali Farka braust gegn öllum hefðum og byrjaði að læra á „gurkel“, sem er afrískur gítar með aðeins einum streng. Svo undarleg þótti tónlistarár- átta Ali Farka að fjölskyldan sendi hann til (galdra)læknis til að athuga hvort ekki mætti særa þessa þráhyggju úr manninum, en allt kom fyrir ekki. Það var um 1950 sem tónlist- arferill Ali Farka hófst. Það hafði mikil áhrif á hann að sjá landa sinn Keita Fodeba á tónleikum 1956, en Fodeba var á þeim tíma einn besti gítarleikari Malí. Ali Farka ákvað á þeirri stundu að gítarinn væri hans hljóðfæri og gekk í hljómsveit sem spilaði bræðing afrískrar og evrópskrar tónlistar þar sem Charles Azna- vor var ríkur áhrifavaldur. Flljómsveitin var vinsælust á meðal unglinga í Timbuctoo, heimabæ Alis Farka Niafunke og Gundum og Dire. Eftir að land hans hlaut sjálf- stæði árið 1960 snéri Ali Farka um hríð baki við tónlistinni og hóf störf á sjúkrabáti í heimabæ sínum. Menningarlíf í Malí lifn- aði við sjálfstæðið og menningar- hópar voru myndaðir í hverri sýslu og þannig fór að Ali Farka var falið að fara fyrir slíkum hópi í sínu héraði. Hann samdi tónlist fyrir hópinn, spilaði á gítar ásamt því að æfa bæði söngvara og dans- ara hópsins, sem í voru um 100 manns, bæði tónlistarmenn, íþróttamenn og leikarar. f keppni sem menningarhóparnir héldu á milli sín á hverju ári náði hópur Ali Farka að sigra í ekki færri skipti en 16 sinnum. Honum var því falið að taka að sér stjórn Út- varpshljómsveitar ríkisins sem hann stjórnaði þangað til stjórnvöld ákváðu án skýringa að leggja hana niður. A þeim árum sem Ali Farka var í menningarhópnum urðu fé- lagar hans uppnumdir af amer- ískri tónlist þar sem Ray Charles, John Lee Hooker, Otis Reading, Albert King og Jimmy Smith voru aðaláhrifavaldar og dáðir mjög. Svo harmi slegnir voru Ali Farka og félagar þegar Otis Rea- ding kvaddi þennan heim að þeir léku enga tónlist í heila viku. John Lee Hooker var sá sem hafði mest áhrif á Ali Farka sjálf- an og bæði í Evrópu og Afríku er hann kallaður John Lee Hooker Afríku. Árið 1974 ákvað Ali Farka að hætta að spila með hljómsveit- um. Hann ferðaðist einn um Afr- Ali Farka Toure heldur eina af sínum síðustu tónleikum á Borginni þann 18. apríl. Síðan tekur sveitasælan á Malí við. íku og lék eigin tónlist en aðeins þegar hann mátti sjá af tíma sín- um frá nautgripum og kornrækt. í kring um 1980 hætti hann alveg að koma fram og snéri sér alger- lega að búrekstrinum en þegar heimstónlistin fór að njóta hylli í Bretlandi fóru menn að leita Ali Farka uppi sem tókst að lokum og hann féllst á að koma til Bret- lands til að taka upp plötu árið 1987, sem sló rækilega í gegn. Þegar platan, sem einfaldlega bar nafn Ali Farka, kom út voru gagnrýnendur sammála um að þarna væri á ferðinni einstakur blúsari, sem blandaði þjóðlegum tónlistarhefðum Malí saman við blúsinn eins og hann hafði þróast á Vesturlöndum. Alí Farka gæti haft það ágætt með því að ferðast um heiminn og leika tónlist og myndi sjálfsagt hafa meira upp úr því en bústörf- unum heima í Malí. En hann hef- ur gefið Alla heit sitt um að hætta í ár og frá þeirri ákvörðun verður ekki hvikað. Enda segir Ali Far- ka tíma til kominn að hætta öllum fíflagangi þegar menn séu orðnir fimmtugir. Áhugafólk um blús og fram- andi tónlist ætti því að mæta á þessa einstæðu tónleika á Borg- inni eftir viku. Eins og áður segir kemur einn aðstoðarmaður með Ali Farka. Sá spilar á slagverk og syngur en á það einnig til að grípa í gítarinn með Ali Farka. -hmp skraut rokklag sem hefur yfir sér töff- aralegan blæ. Önnur lög eins og „Waiting For The Night“ og „The World In My Eyes“ eru miklu ljúfari og henta betur undir svefninn. Það lag plötunnar sem hefur náð mestum tökum á mér er „Enjoy T'ne Silence". Þar finnst mér karaktereinkenni Depeche Mode njóta sín best, í göldróttri melódíu sem er framkölluð með lágum tónum undir niðri með svuntuþeysum og „samplerum“ og söngur Gahan er eins og hann gerist bestur. Þetta er poppað- asta lag plötunnar en er popplag sem hvaða hljómsveit gæti verið hreykin af, jafnt Sykurmolamir sem og átrúnaðargoð þeirra Abba og Boney M. „Violator" er tekin upp í Dan- mörku og í Mflanó. Útsetningar og öll upptökuvinna er hin besta og mættu margir taka þessi vinn- ubrögð sér til fyrirmyndar. Því þrátt fyrir alla tæknina sem Dep- eche Mode styðst við er hvergi ofhlaðið heldur yfirleitt unnið með einfalda hluti. Lögin eru ekki flókin að uppbyggingu og ekkert gert til að fela það með útflúri og óþarfa skrauti. Tónlist Depeche Mode nær þó áfram að vera dálítið framandi miðað við flest það sem verið er að gera í rokki og poppi og verður að telj- ast nokkuð gott hjá hljóm- sveitinni að ná að halda því yfir- bragði. -hmp Ekkert óþavfa Depeche Mode hefur aldrei verið í neinu sérstöku uppáhaldi hjá mér, þótt vissulega hafi mað- ur sperrt eyrun annað slagið í gegnum árin við einstökum lögum. Á meðan nýbylgjan tröllreið öllu var Depeche Mode að fást við hluti sem kenndir voru við nýrómantík í rokkinu, þótt hljómsveitin hafi heldur ekki átt fyllilega heima í þeim flokki. hljómsveita sem helst voru merktar þeirri stefnu. Nýjasta plata Depeche Mode, „Violator", er töluvert frábrugð- in fyrri plötum hljómsveitarinn- ar. Hún er á köflum rokkaðri en einnig að sumu leyti fágaðri. Depeche Mode hefur hingað til ekki notast við gítarinn í sinni tónlist. Aðaleinkenni tónlistar- innar hafa verið svuntuþeysar af öllum fáanlegum sortum og tónar hafa verið galdraðir fram með hjálp „samplunar“, en Depeche Mode er í hópi ákaflegra fárra sem hafa farið vel með þessa tækni og náð að skapa með henni tónlist sem virðist vera mennsk, en slíkt heyrir frekar til und- antekninga. Á „Violator“ bregður Depec- he Mode út af vananum og notast lítillega við gítar í laginu „Person- al Jesus“, en það er annað tveggja laga plötunnar sem náð hafa hlustum fólks með afgerandi hætti undanfarnar vikur. Þetta lag er reyndar sér á báti miðað við restina af plötunni, kröftugt Depeche Mode vaxa í áliti. Fimmtudagur 12. apríl 1990INÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 23

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.