Þjóðviljinn - 21.04.1990, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 21.04.1990, Blaðsíða 2
SKAÐI SKRIFAR Ég heyri deilt um Áburðar- verksmiðjuna Enn fór ég í fermingarveislu meö mínu fólki og hlaut að snúa þaðan eins og snúið roð í hund, hvað sem líður mínu æðruleysi í við- ræðum. Fyrst var nú það, að þessi fjandi sem þeir kalla kransæðakökur eða ég veit ekki hvaö, hann fór upþ í mig og límdi saman góm og tungu og tönnur og mátti ég ekki hélt mæla þegar þessir æðikollar, frændfólk mitt, fóru að rífast. Að þessu sinni var rifist um eldinn sem varð laus í Áburðarverksmiðj- unni. Þetta var fínt mál, sagði Gulli blaðamaður og reri fram í gráðið, það munaði ekki nema hársbreidd að ammóníakið spryngi eins og í alvörustríði og þá hefðum við legið fréttalega í því, dauðir skrokkar út um allt í þúsundum, flott stoff í sjónvarpsfréttir út um allan heim og hefði sett ísland á blað enn betur en fundur- inn í Höfða! Hvurslags rugl og móðursýki er þetta, sagði Þorri Framsóknarmaður. Ég hef fyrir satt að þessi svokallaði bruni hafi aldrei verið annað en eins og eldspýta í roki og sagði ekki almannavarnastjórinn að það hefði gerst í versta falli að íbúar í Grafarvogi hefðu þurft að taka fyrir nefið í kortér eða svo vegna vondrar lyktar. Skynsamur maður Guðjón Petersen: hann sagði líka að aðalhættan hefði verið sú að menn færu að trúa á hættu, þá hefði voðinn fyrst orðið vís þegar allir hefðu rokið upp í bíla sína og ekið burt í ofboði og þá náttúrlega hver á annan. Eg segi nú ekki annað en það, sagði Villa litla frænka mín úr Kvennó, að það er karlremba og mannhatur mestan part að hafa fabrikkur í borg, sem geta sprungið hve- nær sem er eins og blöðrur og drepið konur og börn. Hvað er þetta manneskja, sagði Þorri, viltu ekki að við búum til áburð til að lömbin komist á fætur og landið grænki milli fjalls og fjöru? Svei þeirri efnafræði og freku ráðskarl- mennsku yfir nátturunni, sagði Villa. Ég segi þér satt Þorri, að menn eiga ekki að hafa stærri tún en svo að sá eini sanni náttúrulegi áburður dugi á þau sem menn geta ausið upp undan sínum kömrum. Þetta kalla ég nú skítarómantík, sagði Gulli blaðamaður. En það hefði hann ekki átt að segja því Villa gerði sér litið fyrir og henti rjómapönnuköku beint í augað á honum með vel völdum orðum: Mundu það, vesæll blaðasnápur, að kona hefur löðrungað þig... Nú var allt að komast á suðupunkt og ég gat loksins skorið sundur kransakökulím- tægjurnar milli minna góma og þá sagði ég með minni sáttfýsi: Var þessi bruni ekki bara svona misskiln- ingur eins og stóð í einu dagblaðinu? Misskilningur, sagði Þorri. Nei Skaði frændi, svo grænir erum við ekki. Ég tel víst að allt þetta hafi verið með ráðum gjört. Með ráðum gjört? hváði ég og fleiri voru hissa. Já. Haldið þið að svona atburður, eldsvoði með stórum lífsháska, sem er þó alls ekki stór lífsháski, haldið þið að hann gerist af tilviljun og misskilningi? Nei, elskurnar mín- ar, hér er um útsmogna fréttahönnun að ræða. Og hver hannar slíkt? spurði ég hneykslaður. Hver hannar slíkt? Það ætti nú að liggja í augum uppi. Þetta er náttúrlega kosninga- brella hjá íhaldinu þínu, svo Davíð geti komið fram eins og Batman og gert Áburðarverk- smiðjugeyið að stórveldi hins illa og tortímt því með gauragangi. Kjaftæði er þetta maður, sagðí ég. Held- urðu að Davíð þurfi á svona trikkum að halda, gulltryggður með sinn meirihluta? Segðu það ekki, Skaði, segðu það ekki, sagöi Þorri frændi minn. Davið er frekjuhund- ur oq mikið vill meira og þvi þarf hann rétt hannaðan lífsháska fyrir borgarbua til að vekja á sér athygli, fyrst aðrir gera það ekki. Nei heyrðu nú... Ég heyri hvorki það né annað, sagði Þorri Éq bara veit mínu pólitíska viti. Og ég skil það vel að Davíð sé svekktur á því, að enginn tekur eftir honum í fjölmiðlum fyrir and- skotans látum í Allaböllum og Nýjum vettlingi og krötum í fýlu og ekki fýlu og svo fynr hinum qlæsilega lista okkar Framsóknarmanna i Reykjavík. í svoleiðis stöðu verður sjalfs höndin hollust fyrir stjómmálamann: Lofi eg mig ekki sjálfur, hver mun það þa gera? segir í helgri bók. I ROSA- GARÐINUM 2 StÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Laugardagur 21. apríl 1990 ÞAÐ HAFA FLEIRI GERT Maður hefði getað verið steindauður og ennþá að skrifa í Alþýðublaðið. Alþýdublaöið AÐ VERA EÐA EKKI... Svo er mál með vexti að við hjón- in stundum kynlíf, eða er það kannski klám? Lesendabréf í DV MAÐURINN EINN EREINEMA HÁLFUR Drukkinn knapi kom syngjandi á hesti inn í stofu. Fyrírsögn í DV KROSSBERIRÍS UPP Á PÁSKUM Ég get sagt það alveg hreint út að ég fór þarna í smáfýlu, en nú er hún farin, sagði Bjarni P. Magn- ússon, sem hefur ákveðið að taka þriðja sæti á lista Nýs vettvangs við borgarstjórnarkosningarnar í næsta mánuði. Þjóðviljinn NÚ MÁ UMHVERFIÐ FARA AÐ VARA SIG Ég hefi náttúrlega áhuga á að keyra hér um og skoða umhverfi landsins. Ég mun skoða það eftir því sem ég hefi tíma og mögu- leika til, sagði Júlíus Sólnes um- hverfisráðherra í samtali við Tím- ann. Ráðherrann fór á skírdag í skoðunarferð á skíðasvæði í ná- grenni Reykjavíkur en svo illa vildi til að ráðherrabfll hans valt skammt frá Litlu kaffistofunni. Tíminn Á FLÓTTA UNDAN ATKVÆÐUNUM? Ég fór aðeins upp í Bláfjöllin en það var nú svo mikið af fólki þar. Síðan fór ég upp í Hamragil að skoða mig um, sagði Júlíus. Tíminn Æ, HVARERNÚ KARLMANNS- LUNDIN? Páll (Pétursson) segist ekki ætla að láta vísa sér vegabréfslausum á Gúlagið í Sovétríkjunum. Tíminn ÞAÐERVANDIAÐ VERA TIL Til dæmis hefi ég enn ekki fundið fallegt orð sem mér finnst þægi- legt að nota yfir kynfæri kvenna. Á meðan þetta orðahallæri varir hef ég kosið að nota orðið „píka“ en fæ alltaf léttan sting fyrir hjart- að. Pressan LANGRÆKNI ER ÞETTA! Sigurður A. Magnússon gagn- rýndi Platón harkalega í umræð- um. Morgunblaðið

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.