Þjóðviljinn - 21.04.1990, Blaðsíða 9
Fljúgandi
furðuhlutir
Sigurður Örlygsson listmálari opnar sýningu
á Kjarvalsstöðum í dag
Ég haföi mjög gaman aö sög -
um Jules Verne þegar ég var
strákursegir SigurðurÖrlygsson,
sem opnar málverkasýningu á
Kjarvalsstöðum.
Loftbelgir, hjólhestar, fljúg-
andi menn, gervihnettir og fleiri
furðuhlutir blasa við þegar
gengið er inn í salinn á Kjarvals-
stöðum þar sem Sigurður sýnir
nokkur stór verk.
Þótt andi Jules Verne, Leonar-
do da Vinci og annarra fornra vís-
indahyggjumanna svífi yfir
vötnum vill Sigurður alls ekki
einskorða verk sín við einhvern
sérstakan tíma. Afstæði tímans er
það sem heillar mig, segir hann.
Ég vil að menn sjái það sem þeir
kjósa að sjá í myndum mínum
þess vegna gef ég þeim nöfn al-
gerlega út í bláinn, ég vil ekki að
nafnið gefi of mikið upp og
þrengi þannig hugarflug áhorf-
andans.
Þessi sýning er einskonar fram-
hald á sýningu þeirri sem Sigurð-
ur hélt á Kjarvalsstöðum fyrir
tveimur árum. Hann segist fyrst
halda sýningar á minni útfærslum
af verkunum, “prufusýningu“,
áður en hann ræðst í gerð og sýn-
ingu stóru verkanna.
Verkin á sýningunni eru öll
unnin á síðustu 12 mánuðum,
með akrýl og olíulitum á striga.
Furðuhlutirnir sem stinga sér út
úr myndunum er unnir úr timbri,
pappa og trémassa. Sigurður
ljóstraði því einnig upp að fljúg-
andi fígúrurnar væru málaðar
barbídúkkur.
Sigurður Örlygsson útskrifað-
ist úr Myndlista- og handíðaskóla
íslands 1971. Hann hélt þá til
Danmerkur í Det Kongelige
Danske Kunstakademi, þar sem
hann stundaði nám í eitt ár. Eftir
það lá leiðin vestur um haf til
Nýju Jórvíkur. Þar var hann í eitt
ár í Art Students Leage of New
York.
Sigurður hefur haldið fjölda
sýninga víða um land og á
Norðurlöndunum. Hann hlaut
Menningarverðlaun DV fyrir
sýningu þá sem hann hélt á Kjar-
valsstöðum 1988.
Sýningin sem opnuð verður kl.
14 í dag stendur til 6. maí.
BE
Sigurður örlygsson og forn eða fútúr vísindamaður, sem stingur höfðinu út úr einu verkanna á sýningunni á
Kjarvalsstöðum. Mynd: Kristinn
EG E-R MEfe ÚrBLOT EFTÍR.
NEÐANjAR&ARKÍARNORKLL-
SÞRENGÍNOAfe. ASMA AF LflFT-
mengun. magakveísu. AF
MENGUPU VATNÍ OG HAU5~
\|ERK EFTÍR SIÐUSTU YFÍR-
LÝSÍN6AR dLAFS RA6NARS...
Laugardagur 21. apríl 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 9