Þjóðviljinn - 21.04.1990, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 21.04.1990, Blaðsíða 8
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson Rltstjórar: Ámi Bergmann, Ólatur H. Torfason Umsjónarmaður Helgarblaðs: Ólafur Gíslason Fréttastjórl: SigurðurÁ. Friðþjófsson Útllt: Þröstur Haraldsson Auglýslngastjórl: Olga Clausen Afgreiðsla: © 68 13 33 Auglýsingadelld: © 68 13 10- 68 13 31 Sfmfax:68 19 35 Verð: í lausasölu 150 krónur Setnlng og umbrot: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Málgagn sósíallsma, þjóðfrelsls og verkalýðshreyfingar Síðumúla37,108 Reykjavík____________________________ Dagur jarðar Á morgun, 22. apríl, grípur fólk víöa um lönd til aðgerða vegna „Dags jarðar", sem fjölmargiraðilarhelga umhverfis- vernd. Að frumkvæði minnihlutaflokkanna í borgarstjórn Reykjavíkur hefur Umhverfismálaráð borgarinnar skipulagt sams konar viðburði í tilefni dagsins. Meðal annars verður þar kynnt áætlun um trjáplöntun í höfuðborginni. í Ijósi þess að nú fer um ísland skógræktarvakning á mörgum vígstöðvum, er athyglisvert að sjá hve þær þjóðir sem við álítum oft búa betri skilyrði í þeim efnum leggja nú ríka áherslu á skógræktina. Bæði er þar um að ræða táknrænar athafnir eins og „friðarskóginn" sem verður plantað á morgun á gömlu landamærunum milli Austur- og Vestur-Berlínar og beina endurheimt landgæða. Ástralir gróðursetja á morgun 100 þús. tré og ætla sér að hafa plantað einni milljón trjáa fyrir árið 2000.1 El Salvador fer af stað skógræktaráætlun um 900 þús. tré. Og Jórdanir byrja frá og með morgundeginum að láta hverju fæðingar- vottorði fylgja landgræðsluskóga-vottorð, þar sem stjórnvöld skuldbinda sig til að gróðursetja á svæðum í uppblásturshættu eina trjáplöntu til heiðurs hverju barni sem fæðist. í 18 löndum verður á morgun byrjað á mismunandi viða- miklum verkefnum og munu sum þeirra standa í mörg ár. Næsti áratugur er helgaður umhverfismálum. Víða er nú hafin skipulögð barátta stjórnvalda og áhugafólks til að bæta fyrir þær skemmdir sem súrt regn hefur valdið og ógnvænlegt er að kynnast tölum um það, hve mikið af skógi Evrópu hefur skemmst undanfarna áratugi. Nú er til dæmis talið að aðeins 29% af skógum Tékkóslóvakíu séu ó- skemmdir og jafnvel í Noregi er ekki nema helmingur skó- garins í því ástandi sem æskilegt er. Enn er ekki vitað, hve drjúgur sá sjóður verður, sem hérlendis safnaðist í af tilefni sextugsafmælis forseta ís- lands, Vigdísar Finnbogadóttur, en úr honum verða frá og með næsta ári veitt framlög til plöntunar á vegum skólanem- enda. Framundan er hins vegar stærsta átakið sem gert hefur verið í landgræðsluskógum á íslandi, „Átak 1990“. Skipu- lögð hafa verið útplöntunarsvæði um allt land, birkifræ hafa verið húðuð til sáningar í miklu magni og plöntur eru í uppeldi til gróðursetningar strax í sumar. Erlendir aðilar láta síðan fé af hendi rakna til „vinaskóga“. Forseti íslands er verndari „Átaks 1990“, en það er sú aðgerð sem mest mun að líkindum marka skógrækt og endurheimt landgæða á íslandi í ár. Leitað verður á næst- unni til þjóðarinnar um kaup á „grænu greininni" til stuðn- ings Átakinu, og er vonandi að einstaklingar, fyrirtæki og stofnanir komi rösklega til liðs við þessa gróðurfarsbyltingu. Sumum finnst ef til vill, að átaksverkefni í skógrækt og landgræðslu séu að verða býsna mörg, jafnvel um of. Það er rangt. Við vitum vel, að óhemju mikils átaks er þörf á marg- víslegum vettvangi til að endurheimta landaæði og hefta þá öfugþróun sem enn er í gangi í lífríki okkar. Islendingar geta líka litið til þeirra þjóða sem virðast eiga þokkalegustu frum- skóga að okkar mati, en telja samt nauðsynlegt á morgun að hefja sérstök verkefni í skógrækt. Skógurinn bindur jarðveg, breytirveðurfarsáhrifum, hefurbeint notagildi og eykuryndi. Við eignumst seint of mikið af honum. í þessu sambandi getur verið hollt fyrir baráttufólk í um- hverfisvernd, - og jafnvel í stjórnmálum almennt, - að hug- leiða, hver virðast örlög „grænna" flokka í stjórnmálum í Evrópu. Þrátt fyrir að þeir hafi víða náð mönnum á þing, til dæmis 41 fulltrúa í Vestur-Þýskalandi og talsverðum fjölda á Evrópuþingið, hallar nú undan fæti hjá þeim í ýmsum skiln- ingi. Flokkadrættir og sundrung hafa einkennt hreyfinguna hvarvetna. Deilan stendur yfirleitt milli hófsamari arma, sem eru reiðubúnir til samningaviðræðna og samstöðu með öðr- um stjórnmálaflokkum til að hafa áhrif á gang mála, og öfgahópa sem finna sér mýmörg tækifæri til þrefs undir því yfirskini að hugsjónirnar leyfi engar málamiðlanir eða sam- starf. ÓHT Listamiðstöðin í Straumi Straumhvörf í Straumi Listamiðstöðin í Straumi var opnuð með viðhöfn á miðvikudag IL_________E_________E_________E Horfur á sunnudag: Minnkandi SV-átt með éljum Sunnanlands og vestan og á annesjum Norðurlands en léttskýjað á Austurlandi. Listamiðstöðin Straumur var formlega tekin í notkun 18. apríl. Var listamönnum og velunnurum þeirra, þar á meðal bæjarstjórn Hafnarfjarðar og menntamála- ráðherra, boðið að skoða húsið í tilefni að opnuninni. Áð uppbyggingu og rekstri list- amiðstöðvarinnar stendur hópur myndlistarmanna, hugsjónafé- lagið Straumur, og Hafnafjarðar- bær. Listamiðstöðin er til húsa í svo- köliuðum Straumshúsum sem voru í eigu Hafnafjarðarbæjar. Hugsjónafélaginu var vel tekið af bæjarstjórninni þegar þeir föluð- ust eftir húsi til listiðkana, sagði Sverrir Ólafsson í ræðu sinni við opnunina. Listamennirnir unnu að mestu sjálfir að lagfæringum á húsinu, en nutu fjárstuðnings Hafnarfjarðarbæjar, mennta- málaraðuneytisins og nokkurra fyrirtækja. Straumshús voru teiknuð af Guðjóni Samúelssyni en voru í niðurníðslu þegar listamennirnir tóku til við að gera þau upp. Hús- in hafa hýst margvíslega starfs- semi, m.a. hænsna- og svínabú. Listamiðstöðin sem nú kemst í gagnið er aðeins hluti af þeim vinnustofubæ sem Hugsjónafé- lagið er með áform um. Er ætlun- in í framtíðinni að komið verði á fótgrafíkverkstæði, bronssteypu, trésmiðju, steinsmiðju og fleiri verkstæðum fyrir listamenn sem vinna verk sem erfitt er að koma fyrir og vinna að í litlu húsnæði. Ætlunin er að listamenn skipt- ist á um að nota aðstöðuna sem er í boði og afhenti bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Guðmundur Arni Stefánsson, Magnúsi Kjart- anssyni listmálara lykilinn að vinnustofunni við athöfnina. Magnús fær afnot af aðstöðunni næstu þrjá mánuði en síðan mun stjórn Straums í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ velja annan Hstamann úr hópi umsækjenda. Listamiðstöðin er hugsuð sem vinnuaðstaða fyrst og fremst en Burstabær Guðjóns Samúelssonar fær nýtt hlutverk. Listamiðstöðin í Straumi var opnuð með viðhöfn nýlega. Mynd — Jim Smart. ekki sem sýningarhúsnæði. Al- á að skoða húsnæðið í dag og á menninei eefst hins veear kostur moreun kl. 14-17. np Helgarveðrið 8 SÍÐA — NYTT HELGARBLAÐ Laugardagur 21. apríl 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.