Þjóðviljinn - 21.04.1990, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 21.04.1990, Blaðsíða 6
Menntamál Bömin skapa heiminn Svavar Gestsson menntamála- ráðherra kynnti í gær átak sem ráðuneyti hans er að hefja á sviði barnamenningar og um- hverfismenntar en það á að standa yfir í eitt ár. Meðal þess sem átakið felur í sér er lenging skólatíma 6, 7 og 8 ára barna, þátttaka listamanna í skólastarf- inu og þátttaka skólabarna í land- græðslu og skógrækt. Yfirskrift átaksins er „Börnin skapa heiminn" og í tilefni af því hefur verið gert veggspjald með teikningu fimm ára stúlku á barnaheimilinu Marbakka í Kóp- avogi. f>ar var átakið kynnt fyrir fréttamönnum í gær. Að sögn Svavars var staðurinn ekki vaiinn af handahófi heldur vegna þess að þar fer fram athyglisvert upp- eldisstarf. Hann sagði að til- gangur átaksins væri að koma list og menningu á skipulegan hátt á framfæri við börn og ala þau upp í því að gera þessa þætti að hluta af daglegu lífi og starfi. Margvísleg verkefni Til þess að undirbúa átakið var skipuð sex manna nefnd í byrjun þessa árs undir forystu Þórunnar Sigurðardóttur leikstjóra og hef- ur hún gert ýmsar tillögur um að- gerðir. Meðal helstu verkefna eru þessi: í haust verður skóladagur 6, 7 og 8 ára barna lengdur um 1-2 tíma á dag og verður lengingin einkum fólgin í aukningu á list- fræðslu og skapandi starfi. 40-50 miljónum króna verður varið til þessa verkefnis á þessu ári en það helst í hendur við ákvæði í frum- varpi til grunnskólalaga sem nú liggur fyrir alþingi um að lengja skólaskylduna um eitt ár og hefja hana við sex ára aldur. Á næstu dögum fá allir skóla- stjórar, forstöðumenn dagheim- ila og lista- og menningarstofnan- ir bréf þar sem gerð er grein fyrir átakinu og hvatt til þátttöku í verkefnum þess. Unnið verður með Skógrækt- arfélagi Reykjavíkur og Skóg- rækt ríkisins að verkefnum sem tengjast skógrækt og landgræðslu með nýjum hætti. Bandalag íslenskra listamanna hefur verið beðið að stuðla að auknu samstarfi einstakra lista- manna og skólanna og hefur þeirri beiðni verið vel tekið. í byrjun september verður haldið málþing um listþörf og sköpunarþörf barna og er því ætl- að að virka hvetjandi á þá sem starfa með börnum í upphafi skólaárs. Stefnt að samfelldum skóladegi Svavar Gestsson vitnaði á fundinum til viðhorfskönnunar meðal skólafólks um brýnustu verkefni á sviði skólamála sem gerð var í fyrravetur en hún leiddi í Ijós að lenging skóladagsins er langbrýnasta verkefnið. Sagði hann að skoða bæri lengingu á skólatíma yngstu barnanna sem skref í áttina að samfelldum skóladegi. Það hefði verið ákveð- ið í ráðuneytinu að allt það fé sem er á lausu á hverju ári skuli notað til að nálgast það markmið. f haust yrðu ráðnir 70-80 kennarar til að annast þessa auknu kennslu yngstu barnanna. Hins vegar sagði hann að skortur væri á kennurum, ekki síst í listgrein- um, og því gæti reynst örðugt að standa við það sums staðar á landsbyggðinni að öll aukningin færi í listfræðslu og skapandi starf. Anna Jeppesen varaformaður íslenska - fyrir útlendinga 4 vikna byrjendanámskeið hefst 26. apríl. Kennt verður á mánudögum og fimmtudögum klukkan 18 - 19.30. Innritun fer fram í símum 12992 og 14106. Kennari: Brynjar Viborg. Kennsla fer fram í Miðbæjarskólanum. Kennslugjald. kr. 3000.-. Myndbandagerð - vídeó Nýtt námskeið er að hefjast. Innritun 23. og 24. apríl n.k. í síma 12992 og 14106. Um er að ræða 6 vikna námskeið frá 25.04 - 30.5. 1990. Kennt er tvö kvöld í viku 4 kennslustundir í senn og eina helgi. Megin áhersla er lögð á: Kvikmyndasögu, mynduppbyggingu, eðli og notkun myndmáls í kvikmyndum, handritsgerð auk æfinga í með- ferð tækjabúnaðar ásamt upptöku, klippingu og hljóðsetningu eigin myndefnis nemenda. Kennari: Ólafur Angantýsson. Kennsla fer fram í Miðbæjarskólanum. Kennslugjald: kr. 7.600.-. nefndarinnar um átakið sagði á fundinum að ætlunin væri að reyna að samþætta listfræðsluna þeim greinum sem fyrir eru. Þar skorti hins vegar kunnáttufólk því kennarar eru ekki menntaðir til þess. Þess vegna væri brýnt að koma á góðu samstarfi við lista- menn og stofnanir á sviði lista og menningar. Á sunnudaginn sem er Dagur jarðarinnar verður átakið form- lega gangsett með opnunarhátíð í Borgarleikhúsinu og hefst hún kl. 14. Þar verður ma. flutt lag eftir 14 ára Bolvíking, Jónatan Einars- son, sem hann samdi sérstaklega fyrir átakið. Forseti íslands mun ávarpa gesti og boðið verður upp á margskonar listsköpun barna og unglinga, tónlist, ljóð, leiklist og verðlaun afhent í tilefni af Degi jarðarinnar. -ÞH Fertugt leikhús. Á sumardaginn fyrsta átti Þjóðleikhúsið fertugsafmæli. Af því tilefni efndu leikarar og annað starfslið leikhússins til skrúðgöngu frá Austurvelli upp að leikhúsinu þar sem almenningi var boðið til skemmtunar í salnum sem búið er að loka. Fjölmenni var á þessari hátíð og ekki annað að sjá en allir skemmtu sér hið besta, enda Kári ekki farinn að hrella mannfólkið eins og hann gerði síðar um daginn. Mynd: Jim Smart. HAGSTOFAN FLYTUR Hagstofa íslands opnar mánudaginn 23. apríl í nýju húsnæði að Skuggasundi 3. Um leið tengist Hagstofan skiptiborði Stjórnarráðsins (sími 60 90 00), en það gefur möguleika á beinu innvali til einstakra deilda og starfsmanna. Eldri síma- númerum verður lokað, þ.m.t. öllum beinum línum. Helstu símanúmer verða: Afgreiðsla/skiptiborð upplýsingar um vísitölur, húsaleigu o.fl. 60 98 00 Þjóðskrá upplýsingar um kennitölur, heimilisföng o.fl. fyrir einstaklinga og fyrirtæki 60 98 50 Afgreiðsla hagskýrslna, Hagtíðinda o.þ.h. 60 98 65 eða 66 Bókasafn 60 98 79 Gistináttaskýrslur 60 98 15 Inn- og útflutningur 60 98 20 eða 23-25 Mannfjöldaskýrslur 60 98 95 eða 96 Nemendaskrá 60 98 11 Neyslukönnun 60 98 35 Skráning fyrirtækja 60 98 61 eða 75 Sveitarsjóðareikningar 60 98 12 Vísitölur 60 98 34 eða 35 Hagstofustjóri 60 98 44 Staðgengill hagstofustjóra 60 98 45 Skrifstofustjóri hagskýrslusviðs 60 98 33 Skrifstofustjóri þjóðskrár 60 98 73 Faxnúmer Hagstofunnar verða: Hagstofustjóri - hagskýrslusvið 62 88 65 Þjóðskrá og fyrirtækjaskrá 62 3312 Hagstofa íslands Skuggasundi3 150 Reykjavík

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.