Þjóðviljinn - 21.04.1990, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 21.04.1990, Blaðsíða 15
Jim Springer og fjölskylda: Tvíkvæntur keðjureykingamaður í lögregl- unni, giftur konu sem heitir Betty og á hund sem heitir Toy og tvíbura- bróður sem heitir Jim Lewis. Jim Lewis og fjölskylda: Tvíkvæntur keðjureykingamaður í lögreglunni, giftur konu sem heitir Betty og á hund sem heitir Toy og tvíburabróður sem heitir Jim Springer. Römm er sú taug sem tvíbura tengir... Tvíburar sem alist hafa upp hvor í sínu lagi hafa furðusvipaðar venjur og skoðanir Bandarískir vísindamenn hafa rannsakað af mikilli nákvæmni meir en hundrað pör tvíbura, sem eiga það sameiginlegt að hafa ekki alist upp saman - og oft reyndar við gerólíkar aðstæður. Árangurinn þykir mjög koma á óvart og benda til þess að eiginleikar sem menn taki í arf séu mun fleiri og sterkari en haldið hefur verið. Fræðimenn hafa lengi glímt við það, hvernig hægt sé að komast að því, hvert sé hlutfallið milli erfða og uppeldis - hve mikið ein- staklingarnir mótast af því sem þeir fá í vöggugjöf og hve mikil áhrif er hægt að hafa á þá með uppeldi og innrætingu. Á seinni árum hafa flestir hallast að því, að leggja sem mestar áherslur á áhrif umhverfisins, þau hefðu mun meir að segja en erfðastofn- arnir. Margt líkt með skyldum Það héldu líka sumir þeirra bandarísku fræðimanna sem hafa sýslað með rannsóknir á tvíbur- unum sem fóru hvor sína leið vegna aðstæðna hjá foreldrum þeirra. En þeir standa uppi með niðurstöður sem benda í allt aðra átt - og þykja grafa mjög undan hugmyndum um möguleika manna á að móta menn í uppeldi og með markvissri leiðsögn eða innrætingu. Þetta birtist í stóru og smáu. Frægt er dæmi um bræður tvo sent vissu ekki hvor af öðrum í 39 ár: Samt höfðu þeir báðir gift sig tvívegis, í fyrra skipti konum sem hétu báðar Linda, í annað skipti Bettyum! Þeir voru báðir keðju- reykingamenn, voru báðir í að- stoðarlögreglunni, áttu báðir hund sem þeir kölluðu Toy! Slík- um dæmum er auðvelt að fjölga. En mestu varðar, að skyldleikinn nær einnig til lífsviðhorfa, hæfi- leika og fleiri slíkra meginþátta. Trúhneigð er arfgeng Niðurstöður fyrrgreindra rannsókna eru í stuttu máli sam- an dregnar með þessum hætti hér: Það kemur í ljós, að trúhneigð, hneigð til pólitískrar róttækni eða þá til umburðarlyndis gagnvart kynferðislegum minnihlutahóp- um eru að mjög verulegu leyti meðfæddir eiginleikar. Þá eru hæfileikar til tiltekinna starfa og hneigðir í starfsvali í miklu sterk- ari mæli en menn höfðu gert ráð fyrir tengd erfðum en síður um- hverfisáhrifum. Möguleikar til að hafa áhrif á greind og námsgáfur með uppeldi eru takmarkaðir. Einn þeirra sem rannsókninni stjórnaði, Thomas Bouchard, hefur tekið svo djúpt í árinni, að um helmingur allra eiginleika sem innt var eftir virðast arf- gengir - þar á meðal námsgáfur, greind og trúhneigð... áb byggði á Spiegel. Jafnt mót Eins og kunnugt er af fréttum urðu liðsmenn sveitar MODERN Iceland fslandsmeistarar í sveitakeppni 1990. Sveitina skipa: Magnús Ólafsson fyr- irliði, Páll Valdimarsson, Valur Sig- urðsson, Sigurður Vilhjálmsson og Einar Jónsson. Sigur þeirra félaga kom í raun lítið á óvart. Fyrir mótið spáði umsjónar- maður því, að þetta yrði óvenju jafnt mót og einar 6 sveitir kæmu til með að ógna titlinum. Pað kom á daginn þótt möguleikar 3 efstu sveita væru mestir er dró að lokum spilamennsku. Fyrir síðustu umferð var staða efstu sveita: Verðbréfin 109, Modern 103, Flug- leiðir 101. Sveitir í fyrsta og þriðja sæti áttust við í lokaumferð, á sama tíma og Modern glímdi við neðstu sveitina, Ásgrím Sigurbjörnsson. Með góðum sigri f24-6) mátti sjá fyrir æsispennandi átök í hinum leiknum. Enda áttu Fiugleiðamenn gott fors- kot í hálfleik og miðað við þá tölur var staðan: Modern 122, Flugleiðir 120 og Verðbréfin 120. Verðbréfin sneru síðan síðari hálfleik við og sigruðu í leiknum 17-13 og hefðu raunar unnið mótið en lukkan snerist á sveif með Modern, sem tók sitt á móti Ásgrími. Er upp var staðið var Iokastaðan þessi: 1. MODERN Iceland 127 2. Verðbréf íslandsbanka 126 3. Flugleiðir 114 4. Samvinnuferðir/Landsýn 113 5. Ólafur Lárusson 105 6. Tryggingamiðstöðin 102 7. Símon Símonarson 82 8. Ásgrímur Sigurbjörnsson 67 Jafnhliða úrslitakeppninni var reiknaður út Butler-árangur allra pa- ranna í mótinu og niðurstaðan varð athyglisverð, svo ekki sé meira sagt. Af pörunum urðu efst: Ragnar og Rúnar Magnússynir 12.8, Sigurdur Vilhjálmsson - Valur Sigurðsson 10.85/10.00 og Bragi Hauksson - Sig- tryggur Sigurðsson 8.11. Þessar tölur eru meðalárangur paranna í sko- ruðum plúsimpum í hálfleikjum. Þeir bræður Ragnar og Rúnar eru liðs- menn í sveit Flugleiða, sem undir lok- in átti möguleika á sigri, með hag- stæðum úrslitum. Að mfnu mati er þetta eitt jafnasta fslandsmót í sveitakeppni sem spilað hefur verið nú hin síðari ár. Úrslitin undirstrika frekar þá skoðun mína, að hvaða sveit sem er getur sigrað hvaða mót sem er hér á landi séu rétt- ar aðstæður fyrir hendi. Sá „toppur“ sem við höfum búið að í mörg ár, eldist og þreytist. Önnur markmið sækja á og sífellt yngri menn eru að taka að sér hlutverk okkar bestu spil- ara. Bræðurnir ungu frá Siglufirði, Ólafur og Steinar Jónssynir í sveit frænda síns Ásgríms, eru teikn á lofti. Með þessum sigri er hrundið þeirri áralöngu einokun örfárra sveita að íslandsmeistaratitlinum, sem við höf- um búið við. í framtíðinni spái ég því að verulega breytt mynstur verði á skipan þeirra sveita sem koma til með að skipa flokk þeirra allra bestu hér á landi. Mótið fór afar vel fram undir styrkri stjórn Agnars Jörgenssonar, en honum til aðstoðar var Kristján Hauksson, sem jafnframt sá um út- reikning para. Nokkuð var um áhorf- endur, en minna en oft áður. Mætti gera mun betur í þeim málum en gert er. Umsjónarmaður ítrekar hamingju- óskir sínar til liðsmanna MODERN. Undanrásir fslandsmótsins í tví- menningskeppni eru settar á skv. mótaskrá um aðra helgi. Líklega BRIDGE Ólafur Lárusson verða þær spilaðar í Gerðubergi. Mótið er öllum opið og komast 23 efstu pörin (24) áfram í úrslita- keppnina auk 8 svæðispara, alls 32 pör í úrslitakeppni. Þegar nánar er gluggað í Butler-út- reikning fslandsmótsins, og skoðað hverjir eru að spila vel (saman) kem- ur allt önnur útkoma í ljós heldur en þeir opinberu. Raunveruleg úrslit í Butler eru: Björn Eysteinsson - Helgi Jóhannsson 14.83 (6), Ólafur Lárus- son - Júlíus Sigurjónsson 13.00 (7), Eiríkur Hjaltason - Sverrir Ár- mannson 12.75 (4), Ragnar Magnús- son - Rúnar Magnússon 12.80 (10), Sigurður Vilhjálmsson - Valur Sig- urðsson 10.83 (12), Hermann Lárus- son - Jakob Kristinsson 10.60 (5) og Páll Valdimarsson - Einar Jónsson 10.60 (5). Tölur innan sviga tákna fjölda hálfleikja hjá viðkomandi pörum. Lítum á eitt spil úr viðureign tveggja af ofangreindum pörum: Þú heldur á: Á76 D854 D86 Á93 Og átt út eftir þessar sagnir: (þú situr í Austur) Suður 1. spaði 2 tíglar Vestur Austur pass pass pass Allir pass Norður 1 grand 3 grönd Ólafur Lárusson og Júlíus Sigur- jónsson sátu í A/V á móti Sverri Ár- mannssyni og Eiríki Hjaltasyni, sem í þessu tiiviki var sagnhafi. Austur hitti á spaðasjö út og blindur lagði upp: KG982 - ÁG972 754 og Eiríkur hélt á móti þessu: 53 ÁKG2 K1053 KG6 Eiríkur lét gosann, sem Vestur tók á drottningu. Þá kom laufatvistur frá Vestri, gosi frá Eiríki, drepið á ás og spaðasexa um hæl. Eftir yfirlegu bað Eiríkur um níuna, tfan frá Vestur og laufadrottning lá á borðinu innan fárra andartaka. Eiríkur hristi höfuð- ið, fann síðan tíguldrottningu og fór einn niður. 100 til sveitar Ólafs, sem tók inn 13 stig á spilinu, því á hinu borðinu voru spiluð einnig 3 grönd, en þar kom út hjarta frá Austri og 11 slagir voru niðurstaðan. Leikurinn endaði 22-8 fyrir sveit Ólafs. Ein „harðasta" slemman á mótinu var eftirfarandi spil: S: 6 S: 952 H: K8 H: ÁG10 T: KDG742 T: Á1095 L: ÁK42 L: G98 Hjá Karli Sigurhjartarsyni og Sæ- vari Þorbjörnssyni gengu sagnir þannig: Pass Pass 1 tígull Pass 2 tígiar Pass 4 grönd Pass 5 hjörtu Pass 6 tíglar Pass hjá öllum Félagi „fann“ ekki spaðaútspilið, heldur spilaði út smáu laufi. Karl stakk upp gosa, drottning og tekið á ás. Tekinn tfgullinn og sá sem átti drottninguna í laufi, hendir smáu laufi í annan tígulinn. Hvað nú? Karl varð nú að treysta á hjartað. Hjarta- kóngur lagður niður og meira hjarta og gosa svínað. Hann hélt. Þá ásinn og spaða hent í að heiman. Laufið síðan toppað og gefinn slagur á það. 920 til Verðbréfanna, því á hinu borð- inu voru spilaðir 5 tíglar. Hvað ann- að? Nokkuð ósanngjörn slemma í húsi, eða var eitthvað vitað um laufa- stöðuna í spilinu? M Fóstrur U5 til Egilsstaða Forstöðumaður og fóstra óskast til starfa við leikskólann og dagheimilið Tjarnarland Egils- stöðum frá 1. ágúst eða jafnvel fyrr eftir nánara samkomulagi. Fyrir á dagvistarheimilinu eru 4 fóstrur auk ófaglærðs starfsfólks. Góð vinnuað- staða. Nánari upplýsingarveitirforstöðumaðurí síma 97-12145 eða undirritaður í síma 97- 11166. Félagsmálastjóri Lynghálsi 12 700 Egi.lsstöðum Auglýsið í —HIII!IJI Þjóðviljanum 0 6813 33 -------------------—-—yt---------------,___i Laugardagur 21. apríl 1990 NÝTf HELGARBLAÐ - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.