Þjóðviljinn - 21.04.1990, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 21.04.1990, Blaðsíða 18
Dagur jarðar „Við getum bætt heiminn“ Á morgun, sunnudag 22. apríl verður haldið upp á „Dagjarðarinnar“ hjá rúmlega 100 þjóðum sem helgajörðinni og umhverfismálum einn dag ár hvert. Fjölskylduganga hefst í Öskjuhlíð kl. 14, útiveisla haldin og hátíðafundur í Borgarleikhúsinu kl. 17 Sunnudagurinn 22. apríl 1990 verður um allan heim sérstakur dagur jarðarinnar. Aðilar í meira en 100 þjóðlöndum hafa gerst aðilar að heimsátaki sem miðar að því að fræða fólk og hvetja til umhverfisverndar. Þótt ísland sé enn ekki formleguraðili að „Earth day“, hefur borgarstjórn Reykja- víkur að frumkvæði minnihluta- flokkanna í janúar ákveðið að efna til fjölbreyttrar dagskrár á morgun til að vekja borgarbúa til umhugsunar og aðgerða í um- hverfismálum undir yfirskriftinni „Við getum bætt heiminn". Fyrsti „Dagur jarðar" var hald- inn 1970 í Bandaríkjunum og hafði mikil áhrif. Meðal annars var bflaumferð bönnuð um helstu breiðgötu New Y ork borgar þann dag og 600 þúsund manns söfnuð- ust saman. Hátíðahöldin erlendis Náttúruverndarsamtök í Bandaríkjunum hafa um marera mánuða skeið undirbúið „Dag jarðar“. Smám saman hafa fleiri samtök og þjóðir slegist í hópinn. Aðgerðir eru mismunandi eftir löndum. Farið verður í kröfu- göngur, haldnir verða fjölda- fundir, sýningar og tónleikar, auk þess sem kennsla fer fram. í Vestur-Bengal á Indlandi verður efnt til fjöldahjólreiða, skólabörn á eynni Máritíus planta trjám og fjallgöngumenn frá Sovétríkjunum, Bandaríkjun- um og Kína ætla að klífa tind Everest-fjalls og hreinsa þaðan rusl sem fyrri leiðangrar hafa skilið eftir. Áætlað er að yfir 100 milljónir manna taki beinan þátt í „Degi jarðar“ á morgun. í Kanada verður m.a. plantað 100-200 þúsund trjám á vegum skólabarna og á Bahamaeyjum er líka efnt til skógræktarátaks. Kínverjar efna til mikillar sýning- ar í Náttúrugripasafni Peking- borgar og sjónvarpa beint þaðan um allt ríkið á morgun. í Tékk- óslóvakíu ráðast 10 þúsund skólanemar í endurplöntun í skógi við borgina Most, en þar hefur súrt regn valdið usla. Víða í Indlandi verður plantað trjám, í Róm og Mflanó á Ítalíu verða mótmæli gegn umferðarslysum og mengun frá bflum. í Japan og fleiri löndum eru opnaðar glæsi- legar sýningar og efnt til fjölda- funda, tónleika og annarra hát- íða. í Mexíkó verður hreinsunar- átak kringum hús og híbýli, skát- ahreyfingin í Kenýa byrjar feiknarlegt átak í skógrækt, þar sem planta á miljón trjám á ári fram til 1995. Á Nýja-Sjálandi hefst formlega „The New Zea- land Tree Program“, plöntunar- átak sem umhverfisráðuneytið gengst fyrir. í Póllandi verða meðal annars mótmæli gegn stórlega mengandi koksverksmiðju sem Tékkar ætla að reisa fáum kflómetrum frá landamærunum, en þetta orku- ver, Czech Stolawa, mun gefa frá sér 500 sinnum meiri mengun en leyft er samkvæmt pólskum stöðlum. í Bretlandi vekja „Friends of the Earth" sérstaka athygli á ástandi regnskóga jarðar, kvenn- ahreyfingin „Womens Environ- ment Network" skorar á konur að haga innkaupum eins og venjulega en rífa allar ónauðsyn- legar umbúðir utan af vörunum og afhenda verslunarstjórum í mótmælaskyni. „Glastonbury Earth Link“ heldur heila „Jarðarviku“ frá 15.- 22.apríl og „Cooperation Survi- val“ er alþjóðahreyfing sem hef- ur frumkvæði að samstarfi við umhverfisverndarhópa í Sovét- ríkjunum og Austur-Evrópu. Frakkar beina athyglinni að uppblæstri og gróðureyðingu í háfjöllum og kynna áætlanir til vamar. í Sovétríkjunum hefur „Stofn- un félagslegra nýjunga" umsjón með samstarfi margra hópa sem sjá um ólíkustu atburði í Moskvu á morgun. Sjónvarpssendingar, tónleikarnir „Rokk fyrir hreinu vatni" og fleira er þar nefnt til. í Leningrad verður áherslan lögð á slæmt ástand í drykkjarvatnsmál- um. Á vegum Sameinuðu þjóðanna er það UNEP, Umhverfismálaá- ætlunin, sem annast hátíðasam- komu í sal Allsherjarþingsins. Þar mæta 44 geimfarar sem gera grein fyrir hugmyndum sínum um jörðina, eftir reynslu sína í geimnum. Grænfriðungar kaldir — 18 þjóðir planta Alls konar aðilar taka þátt í „Degi jarðar", Dalai lama sendir út ávarp á vegum Búddista, tveir Grænfriðungar ætla að kasta sér til sunds í vök við Suðurskauts- landið og senda að því loknu skeyti til Bush Bandaríkjaforseta með tillögur að Heimsgarðinum á Suðurskautslandinu. Alþjóðasamtök neytenda og umhverfismálaráðherrar fjölda landa leggja átakinu lið á morg- un, auk fjölda aðila sem of langt er hér upp að telja. Og íslendingar eru ekki einir Verslunarmannafélag Suðurnesja Aðalfundur Verslunarmannafélags Suðurnesja verður haldinn að Hafnargötu 28, Keflavík, mánudaginn 30. apríl n.k. kl. 20.00. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf. 2. önnur mál. Stjórnin Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu Ólafíu S. Einarsdóttur Frá Svínabökkum i Vopnafirði Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á sjúkradeild Sundabúðar á Vopnafirði fyrir góða umönnun. Guðlaug Björnsdóttir Metúsalem Björnsson Sigurður Björnsson Arnþór Björnsson Halldór Björnsson Þórarinn Sigurbjörnsson og barnabörn Rúrik Sumarliðason Guðrún Þorbergsdóttir Ólöf Heigadóttir Helga Valborg Pétursdóttir Margrét Þorgeirsdóttir Sólveig Arnórsdóttir Sigríður Asgrímsdóttir Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför Hauks Þorleifssonar fyrrv. aðalbókara Rauðalæk 26, Reykjavík Sérstakar þakkir til Guðjóns Lárussonar læknis og starfs- fólks á deildum 1A og 2A á Landakotsspítala fyrir frábæra umönnun. Ásta Björnsdóttir Gunnar Már Hauksson Þorleifur Hauksson Halla Hauksdóttir Nanna Þórunn Hauksdóttir og aðrir vandamenn Framboðsfrestur til borgarstjórnarkosninga í Reykjavík 26. maí 1990 rennur út föstudaginn 27. apríl n.k. Yfirkjörstjórn tekur á móti framboðslistum þann dag, kl. 15.00 til 16.00 og kl. 23.00 til 24.00, í fundarsal Borgarstjórnar Reykjavíkur, Skúla- túni 2. Reykjavík 17. apríl 1990 Yfirkjörstjórn Reykjavíkur; Guðmundur Vignir Jósefsson, Arent Claessen, Guðríður Þorsteinsdóttir. 18 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.