Þjóðviljinn - 21.04.1990, Page 16
Andrés Kristiánsson
■ m B ■ r ■
Ritstjori
FœddurlO. sept. 1915-Dáinn 9. apríll990
Bekkjarfélagar Andrésar
Kristjánssonar úr Kennaraskóla
íslands, sem luku ásamt honum
kennaraprófi vorið 1938, hafa
lengi fylgt þeirri reglu að koma
saman einu sinni á ári, í vikunni
fyrir páska. Þar var Andrés jafn-
an hrókur alls fagnaðar. Mið-
vikudaginn 11. þessa mánaðar
áttu bekkjarsystkini Andrésar
sameiginlega kvöldstund. En þá
var orðið skarð fyrir skildi. Við
það tækifæri minntist einn úr
hópnum, Gils Guðmundsson,
Andrésar Kristjánssonar með
svofelldum orðum:
Kæru bekkjarsystkini.
Það er sérstök tilfinning, sem
ég veit að gnpur okkur öll, þenn-
an litla hóp, sem hér er saman
kominn í kvöld. Á þessari stundu
beinist hugur okkar, hvers og
eins, að frábærum vini og félags-
bróður, Andrési, sem nú liggur á
líkbörum.
Mig langar til að endurtaka
þau tvö orð, sem fyrst koma fram
í hugann, þegar Andrésar er
minnst. Það eru orðin vinur og
félagsbróðir. Mér finnst þau lýsa
viðhorfi okkar allra til þessa góða
drengs, sem við kveðjum nú með
djúpu þakklæti fyrir allt það, sem
hann var okkur og veitti okkur af
auðlegð hjarta síns.
Þegar við á þessari stundu
lítum til baka yfir 55 ára kynni af
Andrési, kemur mörg svipmynd-
in fram í hugann. Að sjálfsögðu
er okkur ljúft að minnast þess,
hversu fágætlega snjall Andrés
reyndist á ritvellinum og afburða
traustur og vel verki farinn lista-
maður á ýmsum mikilvægum
sviðum þjóðlífsins. En þó er okk-
ur nú efst í huga, hve hjartahlýr
hann var og ljúfur í allri um-
gengni. Frá fyrstu kynnum til
hinna síðustu, sannaðist í einu og
öllu, að þar sem Andrés var, fór
góður drengur, sem öllum vildi
vel. Nú minnumst við þess, að
bæði á árlegum páskasamkomum
okkar og öllum stærri afmælum
bekkjarins, var hann ævinlega
hinn ljúfi og glaði félagi, sem átti
manna auðveldast með að rifja
upp gamlar skólaminningar og
bregða yfir þær ýmist ljúfum eða
gamansömum blæ — en ætíð var
frásögn hans græskulaus og
elskuleg.
Á slíkum stundum endurminn-
inganna kom einatt í ljós, hversu
prýðilegur sögumaður Andrés
var.
Á þessari stundu verður And-
rés vinur okkar mér og okkur
fleirum þó hvað eftirminnilegast-
ur frá stuttri stund um páska-
leytið í fyrra, þegar við bekkjar-
systkinin komum hingað á þenn-
an stað til árlegs samfundar okk-
ar. Við vissum að Andrés hafði
verið á sjúkrahúsi og gengist þar
undir erfiða augnaðgerð, og enn
væri borin von, hvernig til hefði
tekist. Ekki datt mér í hug, að við
myndum sjá hann að því sinni,
þegar svo var ástatt. En Andrés
kom, þótt ekki gæti hann verið
með okkur allt kvöldið — heim-
sótti okkur með reifað auga og
höfuð, og lék eins og fyrr á als
oddi þá stund, sem hann var í
okkar hópi. Það hefðu fáir gert
undir slíkum kringumstæðum.
En atvikið sýnir ef til vill betur en
flest annað, hvílíkur kjarkmaður
og öndvegisfélagi Andrés var.
Ég átti töluvert saman við
Andrés að sælda síðustu árin,
meðal annars vegna útgáfunnar á
kvæðum Freysteins, okkar ást-
sæla skólastjóra. ÖIl var sú sam-
vinna einstaklega ánægjuleg.
Mér er fullkunnugt um það, að
Andrés beinlínis hlakkaði til þess
að vera hérna með okkur í kvöld.
Hann var að undanförnu mjög
með hugann við það, að við gæt-
um við það tækifæri gert grein
fyrir niðurstöðum í sambandi við
útgáfu Freysteinskvæða. Dregist
hafði úr hömlu að við fengjum
fullnaðarskil frá umboðsaðila.
En fyrir réttri viku, síðastliðinn
miðvikudag, gat ég skýrt Andrési
frá því í síma, að uppgjörið væri
komið og mætti teljast nokkuð
hagstætt. Hann var afar ánægður
og sagði við mig í lok símtalsins.'
Jæja, Gils minn. Þetta er ágætt.
Við getum þá skýrt frá árangrin-
um, þegar við hittum bekkjar-
systkinin á miðvikudaginn kem-
ur.
Ég er þess fullviss, að ekkert
okkar á annað en ljúfar og góðar
minningar um Andrés Kristjáns-
son. Með sárum söknuði kveðj-
um við elskulegan félagsbróður
og vin.
Kveðja
frá Norræna félaginu
í Kópavogi
Andrés Kristjánsson var alla
ævi maður mikils starfs sem náði
langt út fyrir þau mörk sem
kennsla, blaðamennska eða
önnur föst vinna krafðist. Rit-
störf hans og afköst við þýðingar
voru með ólíkindum, sé þess gætt
að þau voru hjáverk lengi framan
af. En því fer þó fjarri að þar með
sé allt talið, því að Andrés var
örlátur, bæði á gáfur sínar og
góðvild, og einatt reiðubúinn að
hlaupa undir bagga þar sem átaks
var þörf til styrktar góðu málefni.
Mér segir svo hugur að það hafi
verið honum eðlislægt, en jafn-
framt í fullu samræmi við þá
félagshyggju- og samvinnuhug-
sjón sem hann kynntist ungur í
átthögum sínum og veitti jafnan
það lið er hann mátti.
Andrés tók þátt í stjórnmálum,
bæði á landsvísu og innan
þrengra hrings. Hann var vara-
bæjarfulltrúi, fræðsluráðsmaður
og fræðslustjóri í Kópavogi um
skeið, en þar átti hann heima á
fjórða tug ára. Félög, nefndir og
ráð nutu starfskrafta hans og
áhuga, þeirra á meðal stéttarfé-
lög blaðamanna og rithöfunda,
Þingeyingafélagið í Reykjavík,
Skógræktarfélag íslands og Nor-
ræna félagið í Kópavogi.
Á aðalfundi þess og vorvöku í
síðasta mánuði sá ég Andrés síð-
ast, glaðan og hressan eftir atvik-
um. Hann var kjörinn varafor-
maður í fyrstu stjórn Norræna
félagsins í Kópavogi við stofnun
þess í árslok 1962 og var formað-
ur þess 1967-71. Hann var vinur
þeirrar hugsjónar sem það var
stofnað til þess að styðja í upphafi
og bar hlýjan hug til þess alla tíð.
Fyrir það kunnum við honum
þakkir sem þar störfum nú og
sendum ástvinum hans samúðar-
kveðjur. í hugum okkar leikur
birta um minningu Andrésar
Kristjánssonar.
Ég sem þessar línur set á blað
kynntist honum fyrst þegar ég
kom tvítugur til Reykjavíkur og
gerðist þar blaðamaður um
skeið, m.a. undir stjórn Andrés-
ar. Norðlenskur uppruni beggja
og sameiginleg áhugamál tengdu
okkur saman. Síðar áttum við
ýmislegt saman að sælda vegna
starfs míns hjá útvarpinu, því að
þar var Andrés lengi vinsæll gest-
ur, einkum í þættinum „Um dag-
inn og veginn“. Hann var ræktun-
armaður lands og lýðs í gömlum
og góðum skilningi. Hann var
drengur góður. Og honum var
lagin sú list að láta skynsemi og
tilfinningar vega salt í dagfari
sínu, skoðunum og skiptum við
aðra.
Nú eru mér efstar í huga þakkir
fyrir hið hlýja þel sem ég og
margir samferðamenn Andrésar
Kristjánssonar fengu að njóta
meðan hann var okkur nær. Þess
verður ætíð gott að minnast.
Hjörtur Pálsson
Aðalfundur íslandsdeildar Amnesty International Aöalfundur íslandsdeildar Amnesty Internatio- nal veröur haldinn laugardaginn 5. maí n.k. í veitingahúsinu Litlu-Brekku við Bankastræti. Dagskrá: Lagabreytingar, venjuleg aöalfundar- störf og önnur mál. Stjórn íslandsdeildar Amnesty International