Þjóðviljinn - 21.04.1990, Qupperneq 19
Norrænir bændur og umhverfismál
Á formannafundi Norrænu
bændasamtakanna NBC (Nord-
iske Bondeorganisasjoners
centralrád) nýlega var samþykkt
að skora á Alþjóðasamband bú-
vöruframleiðenda að beita sér
fyrir stofnun alþjóðlegar um-
hverfismálastofnunar á næsta
aðalfundi þess sem haldinn verð-
ur í Noregi í júní nk.
Á fundinum kom eftirfarandi
fram:
* Of lítil matvælaframleiðsla,
umhverfismengun og önnur nátt-
úruspjöli eru þau vandmál sem
blasa við mannkyninu á þessari
öld og næstu. Þetta er ekki ein-
göngu knýjandi vandamál ein-
stakra ríkja sem eru háð innflutn-
ingi á matvælum, heldur allra,
ekki síður vestrænna iðnríkja.
* Mannkyninu fjölgar stöðugt.
Talið er að því muni fjölga um
tæpan miljarð á tíunda áratugn-
um. Geta mannsins til að
brauðfæða sig minnkar af þessum
sökum stöðugt og aukin mengun
getur spillt gæðum fram-
leiðslunnar.
* Umhverfisvandamál heimsins
hrannast upp. Jarðvegseyðing
sökum rangrar landnýtingar,
mengun af völdum ofnotkunar á
áburði, eyðing skóga og upp-
þornaðar ár eru aðeins örfá dæmi
því til vitnis. Ljóst er að enn hefur
ekki verið tekið á þessum vand-
amálum af alvöru. Það er því
brýnt að myndaður verður al-
þjóðlegur vettvangur þar sem ríki
heims geta tekið höndum saman
um að komast fyrir rót vandans.
Hann verður ekki leystur með
öðrum hætti.
* Fólk er knúið til rányrkju á
náttúrunni um heim allan. Þar
sem sulturinn sverfur að láta
menn hverjum degi nægja sína
þjáningu. Það er þó sérstaklega
umhugsunarvert að í löndum þar
sem velferð er almenn og næg
þekking er til staðar, hafa menn
sofið á verðinum gagnvart
spjöllum í náttúrunni og naumri
matvælaframleiðslu í heiminum.
* Það skýtur skökku við að í sama
mund og rannsóknir benda ein-
dregið til að matvælaskortur sé
yfirvofandi víða, með alvarlegum
afleiðingum fyrir heimsbyggðina
alla, er í fullri alvöru verið að
ræða um offramleiðslu á matvæl-
um innan alþjóðlegra stofnana,
til dæmis OECD og GATT.
* Norrænu bændasamtökin
hvetja til að stofnuð verði alþjóð-
leg samtök sem mætti- nefna
Organization for Environment
and Sustainable Growth eða
OESG. Þar geta allar þjóðir unn-
ið að björgun vistkerfa heimsins,
jafnframt því að ná jafnvægi milli
mannfjölgunar og matvælafram-
leiðslu, á sama hátt og þær hafa
unnið saman að hagrænum mark-
miðum með árangursríkum hætti
í til dæmis G ATT, OECD og EB.
um það að gera nú meira átak í
skógrækt en áður. Til sanninda
um þá miklu áherslu sem lögð er
á trjáplöntun víða um heim eru
hér talin önnur þau lönd sem efna
til slíks í sambandi við „Dag jarð-
ar“ á morgun:
Ástralía, Bahamaeyjar, Bel-
ize, E1 Salvador, Egyptaland,
Guatemala, Jamaica, Jórdanía,
Kenýa, Indland, Líbería, Hol-
land, Perú, Sri lanka, Thailand,
Úganda, Vestur-Þýskaland.
I Berlín verður plantað 9999
„friðartrjám“ á gömlu landamær-
alínunni milli borgarhlutanna og
á þetta að tákna vaxandi frið milli
austurs og vesturs. Bæði í Bonn
og Frankfurt verða einnig tón-
leikar og fundahöld.
Hér hefur verið stiklað á stóru í
upptalningunni um það sem
menn finna sér að gera í tilefni af
„Degi jarðar". Mjög víða verður
farið í fjöldagöngur, en annars
setja plöntunarverkefni, tón-
leikar og sjónvarpsþátttaka mik-
inn svip á aðgerðirnar víða.
Reykjavík:
Ganga,
veisla, fundur
Stutt skemmtiganga um
Öskjuhlíð hefst við nýja útsýnis-
húsið kl. 14 á morgun. Farin
verður hringferð um hlíðina
undir leiðsögn göngustjóra frá
Skógræktarfélagi Reykjavíkur og
garðyrkjudeild borgarinnar. Síð-
an verður veisla við útsýnishúsið,
boðið upp á grillaðar pylsur og
gosdrykki, farið í leiki og leikin
tónlist. Útsýnishúsið sjálft verður
einnig opið til sýnis fyrir almenn-
ing þennan eina dag.
Fundur um umhverfismál hefst
kl. 17 í Borgarleikhúsinu. Þar
flytja ávörp og erindi Davíð
Oddsson borgarstjóri, Matthías
Johannessen skáld og ritstjóri og
Hulda Valtýsdóttir, formaður
Skógræktarfélags íslands. Sigfús
Halldórsson flytur lög eftir sjálf-
an sig ásamt Elínu Sigurvinsdótt-
ur söngkonu og skólakór Árbæj-
arskóla syngur. Stjórnandi dag-
skrárinnar er Elísabet Þórisdótt-
ir.
Á morgun verður tilkynnt um
átak í trjáplöntun í hverfum
Reykjavíkur og opnaður hug-
myndabanki um umbætur í um-
hverfismálum.
Aðstandendur „Dags jarðar“
leggja sérstaka áherslu á að allar
ákvarðanir opinberra aðila og
einkaaðila verði teknar með fullu
tilliti til umhverfissjónarmiða.
Aðeins með því móti verði unnt
að bjarga jörðinni úr augljósri
hættu, sem virðir engin landa-
mæri og ógnar lífi á láði, í lofti og
Við getum bœtt heiminn!
Um allan heim er haldið uppá 22. apríl 1990 sem „Dag jarðar". Tilgangurinn með því er einfaldur: Að vekja athygli á því að
mengun og eyðilegging, sem virðaengin landamæri, ógna lífi allstaðar á jörðinni. Því ástandi ernauðsynlegt að breyta. Allar
ákvarðanir um framkvæmdir, smáar og stórar, þarf því að taka með tilliti til umhverfissjónarmiða. Þetta á við á íslandi jafnt
og annarstaðar. Hver þjóð hefur sinn hátt á aðgerðum í tilefni dagsins. Hér á íslandi hefur Borgarstjórn Reykjavikur sam-
þykkt að efna til dagskrár til að vekja borgarbúa til umhugsunar og aðgerða í umhverfismálum.
FJÖLSKYLDUCANCA
UM ÖSKJUHLÍD
Sunnudaginn 22. apríl klukkan 14:00
Hressandi skemmtiganga, fyrir alla fjölskylduna um eina af perl-
um höfuðborgarsvæðisins, öskjuhlíðina.
• Gangan hefst klukkan 14:00, við nýja útsýnishúsið á Öskju-
hlíð. Farin verður skemmtileg hringferð um hlíðina undir leið-
sögn „göngustjóra" frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur og garð-
yrkjudeild borgarinnar.
• Að lokinni útiverunni verður haldin veisla við nýja útsýnishúsið í
öskjuhlíð. Boðið verður uppá grillaðar pylsur, farið í leiki og
flutt tónlist.
• öllum er velkomið að virða fyrir sér stórkostlegt útsýnið úr nýja
útsýnishúsinu.
Petta er kjörið tækifæri fyrir borgarbúa til að njóta útiveru saman
og sýna um leið í verki stuðning við baráttuna fyrir bættu
umhverfi.
TRÉGRÓÐURSETT
UM ALLA B0RGINA
í tilefni af „Degi jarðar" hefur umhverfismálaráð Reykjavíkur
ákveðið að leggja til fjölda trjáa, eða ígildi 20 þúsund græðlinga,
sem íbúasamtök og hverfafélög munu gróðursetja víðsvegar um
borgina þann 9. júní í samráði við garðyrkjudeild Reykjavíkur-
borgar.
DAGSKRÁ UM UMHVERFISMÁL
Í BORGARLEIKHÚSINU
Sunnudaginn 22. apríl klukkan 17:00
• Tónlist Skólakór Árbæjarskóla syngur undir stjórn Áslaugar
Bergsteinsdóttur
• Ávarp Davíð Oddsson, borgarstjóri
• Erindi Hulda Valtýsdóttir, formaður Skógræktarfélags íslands
• Tónlisf Sigfús Halldórsson og Elín Sigurvinsdóttir flytja lög eftir
Sigfús
• Erindi Matthías Johannessen, ritstjóri
Elísabet Þórisdóttir stýrir dagskránni.
Allt áhugafólk um umhverfismál er velkomið í Borgarleikhúsið
HUGMYNDABANKINN
ER ENN OPINN!
Með hugmyndabankanum sem umhverfismálaráð opnaði fyrir
nokkru, er leitað eftir jákvæðum og framsæknum hugmyndum
um hvaðeina sem bætt getur umhverfi okkar. Nú þegar hafa bor-
ist margar góðar hugmyndir en þær verða aldrei of margar. Hug-
myndabankanum verður ekki lokað fyrr en eftir helgi. Sendið inn
ábendingar!
Dagur jarðar
Hugmyndabanki
Skúlatún 2
105 Reykjavík
TÖKUMÞÁTT
Eitt höfuöverketni mannskyns á næstu öld verður aö bjarga jörðinni úr augljósri
hættu - hættu sem virðir engin landamæri og ógnar lífi á landi, í lofti og í hafinu. Sýn-
um umhyggju okkar í verki og tökum þátt I „Degi jarðar" I Reykjavík 22. apríl 1990.
Umhverfismálaráð
NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 19