Þjóðviljinn - 21.04.1990, Qupperneq 27

Þjóðviljinn - 21.04.1990, Qupperneq 27
Sæt angan vel- gengninnar Þaö hefur verið frekar hljótt um hljómsveitina The Stranglers sem kom hingað á Listahátíð um árið. Frá því síðasta plata með nýju efni kom frá hljómsveitinni eru liðin tæp þrjú ár. Stranglers átti stóran þátt í bresku nýbylgjunni og þeim fersku vindum sem blésu á þeim tíma sem hún var upp á sitt besta. f upphafi var tónlist þeirra hrá og hörð og textarnir í grófari kantin- um og hegðun fjórmenninganna var ekki alltaf sú ákjósanlegasta að mati yfirvalda hér og þar um veröldina. En það er með Strang- lers eins og flest annað, þeir hafa róast með tímanum. Stærsta stefnubreytingin hjá hljómsveitinni varð þegar hún sendi frá sér plötuna „Feline" 1982. Þar blandaði Stranglers rómantískum tregatónum við rokkið og útkoman varð hin bestu lög eins og „Midnight Summer Dream“ og „European Female“. I kjölfarið sigldi platan „Aural Sculpture" sem á margan hátt var lík hinni fyrri en þó tölu- vert rokkaðri. Á nýjustu plötu Stranglers, „10“ sem kom út fyrir skömmu, má greina nokkurt afturhvarf hljómsveitarinnar til hennar fyrstu platna. Fyrsta lag plötunn- ar „Sweet Smell Of Succes", minnir gamla Strangles aðdáend- ur vafalítið á gömul lög eins „Nice'n Sleazy" og „No More Heros“, hvað taktinn áhrærir en þegar vel er hlustað heyrist að ýsmu smálegu hefur verið bætt við í útsetningum sem ekki hefur verið á plötum hljómsveitarinnar áður. Sumir myndu sjálfsagt kalla þetta afturhvarf Stranglers aftur- för, en slíkt væri einföldun að mínu mati. Plötur Stranglers hafa yfirleitt verið seinteknar, ekki hvað síst vegna frekar mónótón- ísks söngs Hugh Cornwells. En undir niðri liggja venjulega lúmskar melódíur sem mynda góða heild með söng Hughs og þann hljóm sem er einkennandi fyrir Stranglers og fáir aðrir hafa náð að mynda. Þrátt fyrir að Stranglers séu að gera mjög líka hluti á „10“ og þeir hafa gert áður, má finna brot þar á. Það kveður til að mynda við algerlega nýjan tón í laginu „In This Place“, frekar rólegu lagi og skemmtilega fjölrödduðu. Þá notast hljómsveitin meira við trompeta en mig rekur minni til að hún hafi gert áður. í heildina kemur „10“ þeim sem þekkja til Stranglers engu að síður lítið á óvart. Það er ekki þar með sagt að „10“ sé vond plata, þvert á móti. Kröfunni um „eitthvað nýtt“ er oft ruglað saman við framfarir. Hins vegar er Stranglers í dálítið sérkennilegri stöðu á þessum tímapunkti. Hljómsveitin var framarlega í nýbylgjunni sem kastaði flestu því sem áður var gert fyrir róða en nú er tónlistar- andinn frá sjöunda áratugnum The Stranglers á sínum velmektarárum. aftur kominn í náðina og þær hljómsveitir sem eru að gera það ferskasta um þessar mundir eru í þeim stflnum. Stranglers er því að vissu leyti tónlistarlegt sögufyrir- bæri, sem þó hefur haft og hefur enn áhrif á aðrar hljómsveitir. Það má til dæmis heyra áhrif frá Stranglers hjá einni björtustu von Manchester um þessar mundir, Inspiral Carpets. En tíminn er ekki lína heldur hringur. AUt kemur, fer og kem- ur aftur þó umgjörðin kunni að breytast eitthvað lítilega. „10“ er góð plata hvað sem tímahringn- um líður. -hmp Hip hop og Sykurmolar [ gærkveldi hófst enn ein innrás breskra tónlistarmanna og plötu- snúða í Tunglið við Lækjargötu í Reykjavík. Hip hop sveitirnar Kiss AMC og Ruthless Rap Assassins komu fram ásamt plötusnúðunum Paul Oakenfold og Tim Jeffry. Gengi þetta verður aftur á ferðinni í kvöld ásamt Sykurmolunum sem verða með sína síðustu tónleika á íslandi í nokkra mánuði en molarnir eru á leið í tónleikaferð til Ástralíu og Austurlanda fjær. Sykurmolarnir stefna enn að heimsyfirráðum eða dauða og eru á leiðinni til Ástralíu og Austurlanda fjær. Kiss AMC er rappsveit tveggja blökkukvenna frá Manchester. Það er Pakkhús Postulanna sem sér um uppákomurnar í Tunglinu en sá félagsskapur hef- ur heldur verið að sækja í sig veðrið og staðið fyrir æ metnað- arfyllri skemmtunum. Aðal- sprauta Pakkhússins, Þorsteinn Högni, hefur til að mynda nýlega átt viðræður við Johny Brown söngvara hinnar stórgóðu hljóm- sveitar The Band Of Holy Joy og bendir allt til þess að hljómsveitin komi hingað til tónleikahalds upp úr miðjum júní. En Band Of Holy Joy kom hingað í febrúar í fyrra og hélt stórgóða tónleika í Tunglinu og hrifust hljóm- sveitarmeðlimir mjög af landinu, sérstaklega vetrarveðrinu en tónleikagestir féllu fyrir tónlist- inni. Af þeim sem koma fram í Tunglinu í kvöld er það að segja QÆGURMÁL er sagt að sveitin flytji hinn eina sanna hljóm svartra í Bretlandi. Þar segir einnig að nýjasta breið- skífa þeirra, „The Killer“ hafi að geyma besta hip hop kveðskap sem birst hafi á plötu í Bretlandi og kannski eina kveðskap þeirrar tegundar, þar sem flestar hljóm- sveitir af þessu tagi hafi látið eins og þær ættu uppruna sinn hinum megin Atlantsála, nefnilega í Brooklyn í New York. Plötusnúðurinn Paul Oaken- fold er eftirsóttur skífuþeysir. Hann hefur snúið plötum á Ibiza undanfarin sumur en er núna á tveimur vinsælli næturklúbbum Lundúna, The Land Of Oz og The Future. Oakenfold blandar saman hip hop tónlist, house, raggí og rokki en hann átti sinn þátt í að gera lög Happy Mondays aðgengilegri með því að endur- blanda nokkur þekktustu laga þeirra. Tim Jeffry er aðstoðarritstjóri tónlistartímaritsins Record Mirr- or. Hann fylgdi Happy Mondays hingað til lands á dögunum og skrifaði forsíðugrein í blað sitt um ferðina og tónleikana í Menntaskólanum við Hamra- hlíð. Jeffry hefur sérhæft sig í skrifum um danstónlist og mun væntanlega leika gott úrval slíkr- ar tónlistar í Tunglinu í kvöld. Fólk með fiðring í fótunum ætti því að leggja leið sína í Tunglið og njóta í leiðinni tónleika Sykur- molanna sem ætla meðal annars að leika nýtt efni sem ef til vill fer á næstu breiðskífu sveitarinnar. Það verður forvitnilegt að heyra hvort einhver stefnubreyting hafi átt sér stað hjá molunum? -hmp að Kiss AMC sló í gegn á síðasta ári með laginu „A Bit Of U2“, en þar samplaði Kiss AMC „New Yars Day“ lag írsku hljóm- sveitarinnar U2, með samþykki íranna, sem er nýtt í þess háttar viðskiptum. Hin hip hop sveitin sem kemur fram í kvöld er Ruthless Rap Ass- assins sem kemur frá Manchester eins og Kiss AMC. Ruthless Rap... er talin vera það ferskasta sem er að gerast í hip hopinu á Bretlandseyjum um þessar mundir og í tímaritunu The Face HEIMIR MÁR PÉTURSSON Laugardagur 21. apríl 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 27

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.