Þjóðviljinn - 01.06.1990, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 01.06.1990, Qupperneq 3
L Betty Friedan í Reykjavík Bandaríski kvenrcttindafröm- uðurinn Betty Friedan er væntan- leg í fyrirlestrarferð til íslands um miðjan júní n.k. i boði Kven- réttindafélags íslands. Tilefnið er 75 ára afmæli kosningaréttar fs- lenskra kvenna, en þess verður minnst með ýmsum hætti. Betty Friedan heldur fyrirlest- ur í Háskóla íslands 18. júní, og hún ávarpar hátíðarsamkomu, sem K.R.F.Í. efnir til í íslensku óperunni 19. júní, á hátíðardegi íslenskra kvenna. Þá gengst K.R.F.Í. fyrir fundi 21. júní að Holiday Inn, en þar flytur Betty Friedan fyrirlestur og svarar fyrirspumum. Eftír Betty Friedan liggja þijár bækur. „The Feminine Mystiq- ue“ (Þjóðsagan um konuna) kom út árið 1963, vakti feikna athygli og hefur löngum verið skoðuð sem tímamótaverk og einn helsti hvati að kvennahreyfingu nútím- ans. Þá kom bókin „It Changed my Life“ (Þáttaskil) út árið 1976, og árið 1982 kom út bókin „The Second Stage“ (Annar þáttur). Allar hafa bækur þessar hlotíð mikla útbreiðslu og verið þýddar á mörg tungumál. Fjórða bók Betty Friedan „The Fountain of Age“ er í þann veginn að koma út. í för með Betty Friedan til ís- lands verður hópur níu kvenna, sem tóku sig saman um að fylgja henni hingað til lands á eigin kostnað, einkum tíl að kynna sér stöðu íslenskra kvenna á sviði stjómmála og tíl að sjá hvemig hér er staðið að dagvistar og skólamálum og fleiri atriðum er varða fjölskyldu og atvinnulíf. Konur þessar hafa sumar starf- að með Betty Friedan um langt skeið, og meðal þeirra em virtir fræðimenn og stjómendur á sviði uppeldismála og heilbrigðismála, auk blaðakvenna, en aliar hafa konur þessar látið að sér kveða í baráttu fyrir jafnréttí og bættum aðstæðum kvenna og bama vest- anhafs._________________ Styrktarfélag vangefinna Kökubasar í Kringlunni Heimilisfólk í sambýlum Styrktarfélags vangefínna í Víði- hlíð 5 og 7 verður með kökubasar í Kringlunni í dag. Basarinn hefst kl. 10 og stendur þar til verslanir loka í Kringlunni. Ágóða af kökubasamum ætlar heimilis- fólkið að nota til að fjármagna utanlandsferð. Kópavogur Eldri bngarar til Akraness Félag eldri borgara í Kópavogi fer í stutta ferð tíl Akraness laugardaginn 9. júní. Farið verð- ur af stað frá Sparisjóði Kópa- vogs kl. 13. Þátttaka tilkynnist fyrir miðvikudagskvöld í símum 41564 (Stefán), 41566 (Anna) og 41359 (Sveinn). Myndlist 69. sýning Steingríms Steingrímur St.Th. Sigurðsson Lang stærsti hluti myndanna er listmálari opnar 69. einkasýningu málaður á þessu ári og allmargar sýna í Staðarskála í Hrútafirði nú í vor í Húnavatnssýslum. Þetta laugardaginn 2. júní kl. 17:00. er önnur sýning Steingnms í hér- Þessi fyrsta myndlistarsýning á aðinu, en hann bjó á Skagaströnd staðnum er haldin þarna að ósk 1980. bræðranna Magnúsarog Eiríks Gíslasona, ítilefniaf þvíaðnúeru Sýningu Steingríms í Staðar- 30ársíðanþeirhófuveitinga- skála lýkur fimmtudaginn 14. rekstur sinn í Staðarskála. júní kl. 23:30. Steingrímur Stefán Thomas málar á Skagaströnd vorið 1990. Viltu geta gripið til sparnaöar með litlum fyrirvara? Sparileið 1 er mjög aðgengileg ávöxtunarleið þegar þú vilt ávaxta sparifé þitt í skamman tíma, minnst þrjá mánuði. Með því að velja Sparileið 1 tryggirðu þér greiðan aðgang að sparifé þínu. Á Sparileið 1 geturðu náð 3,25% vöxtum umfram verötryggingu. Leiðarvísir liggur frammi á öllum afgreiðslustöðum bankans. ISLANDSBANKI 4 takt við nýja tíma! Sparileiðir íslandsbanka - fyrir fólk sem fer sínar eigin leiðir í spamaði! Aðgengileg ávöxtunarleið! YDDA F26.29 / SÍA

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.