Þjóðviljinn - 01.06.1990, Blaðsíða 26

Þjóðviljinn - 01.06.1990, Blaðsíða 26
Ásmundarsalur, Dagrún Magnús- dóttir, Guðr. Nanna Guðmuridsdóttir, íris Ingvarsdóttir og Þórdís Elín Jóels- dóttir, sýning á grafíkverkum. Opið dagl.kl. 14-18. Til4.6. Djúpið, kjallara Hornsins, Róbert Róbertsson opnar sýn. lau. Opið alla frákl.11. FÍM-salurinn, Garðastræti 6, Sig- urður Sigurðsson opnar málverka- sýningulau kl. 16-18. Opið kl.14-18 virkadaga, til 19.6. Gallerí 8, Austurstræti, Alda Sveinsdóttir opnar sýn. á lau, oplð hvítasunnu kl. 14-18. Gallerí Borg, Austurstræti 3 og Síðu- múla32, grafík, vatnslita-, pastel- og olíumyndir, keramikverk og módel- skartgripir, opið lau 10-14. Gallerí 11 Skólavörðustíg 4a, Hreinn Friðfinnsson opnar sýningu á lau kl. 15. Opið alla daga frá kl. 14-18. Til 21.6. Gallerí Sævars Karls Bankastræti 9. Edda Jónsdóttiropnarsýn. lau. Opið á verslunartíma, til 24.6. Hafnarborg, Einfarar í íslenskri myndlist opnar lau kl. 16. Opið alla daganemaþrikl. 14-19, til 24.6. Hlaðvarpinn við Vesturgötu, Sig- ríður Elfa opnar sýn. í kjallara og hæð, málverk og uppstilling áfö. kl. 17. Til17.6. Kjarvalsstaðir, íslensk höggmynda- list 1900-1950 opnar lau kl. 14. Opið daglegafrákl. 11-18. Lelrllstarfélaglð, Epal Faxafeni 7, opnar sýninguna Leir og blóm á lau kl. 14. Opið á verslunartíma virka daga og kl. 14-18 um helgar. Listmálarafélagið, Listahúsi að Vesturgötu 17 opnar sýn. 8 lista- manna lau kl. 16. Opið 14-18 alla dagatil20.6. Listasafn Einars Jónssonar opið helgar 13.30-16, höggmyndagarður- innalladaga 11-17. Llstasafn ASÍ, sýn. Grafíklist frá Frakklandi opnar lau kl. 17. Opin virkadagakl. 16-19ogum hegarkl. 14-19, má lokað. Til 1.7. Guttomnur Jónsson Stöðlakot, Bókhlöðustíg 6, Guttorm- ur Jónssonopnarsýn, lau kl. 14. Opið dagl.kl. 13-18, til 17.6. Llstasafn íslands, André Masson 1896-1987, sýn.opnun su, opið hvít- asunnu og um helgar kl. 12-22, virka daga kl. 12-18. Til 15.6. Llstasafn Sigurjóns Ólafssonar, sýn. á andlitsmyndum Sigurjóns opn- arásukl. 15. Opið lau og su kl. 14-18, má, þri, mi og fi kl. 20-22. Menntamálaráðuneytið, Daníel Magnússon sýnir fígúratívar og ge- ómetrískar lágmyndir. Mlnjasafn Rafmagnsveitunnar, húsi safnsins v/ Rafstöðvarveg, su 14-16. Norræna húslð, kjallari og anddyri: Hernám og stríðsár, Ijósmyndasýn- ing frá stríðsárunum á íslandi 1940- 45. Opin 14-19 daglega, til 24.júní. Nýhöfn, Hafnarstræti 18, Magnús Tómasson opnar sýn. lau kl. 14-16. Opið daglega kl. 10-18 virka daga nema má, og kl. 14-18 um helgar. Til 20.6. Nýlistasafnlð, Fyrirofan garðog neðan, sýning í Þingholtunum opnar iau kl. 16 m/dagskrá í Hallargarðinum við Fríkrikjuveg. Safn Ásgríms Jónssonar, Berg- staðastræti 74, eldgosa- og flótta- myndirÁsgríms. Til 17.6. Opið alla daga nema má kl. 13:30-16. Sjóminjasafn Islands, Vesturgötu 8 Hf. Opið alla daga nema má kl. 14- 18. Slunkaríkl ísafirði, Tryggvi Ólafsson, málverk, opið fi-su 16-18. Til 10.6. Þjóðminjasafnið, opið 15.5-15.9 alla daga nema má kl. 11 -16. TÓNLIST Andrei Gavrilov, m/Sinfóníu- hljómsveit fslands í Háskólabíói lau kl. 17. Stj. Jacek Kaspszyk. Vínardrengjakórinn í Háskólabíói suogmákl. 17. Abraham og ísak, kirkjuópera í Há- teigskirkju má kl. 21. Francoise Choveaux, píanótón- leikar í Listasafni fslands su kl. 15, aðg. ókeypis. fslenska óperan, Listahátið Garða- bæjar, tónleikar með ungum tón- listarmönnum lau kl. 13:30. Og Kirkjuhvoli Garðabæ má kl. 13:30. LEIKLISTIN Eldhestur, Eldhesturá ís e/Elísabetu Jökulsdóttur má kl. 20 á Litla sviði Borgarleikhússins. Fantasía, fmyndunarveikin e/ Moliére, Skefunni 3c má kl. 21. Leikfélag Akureyrar, Fátækt fólk. Aukasýn. fö og lau kl. 20:30, síðustu sýningar. Leikfélag Kópavogs, Félagsheim. Kópav. Virgill litli. (s. 41985). Leikfélag Reykjavíkur, Borgarleik- húsið, Litla sviðið, Sigrún Ástrós. ekki um helgina. Nemendaleikhúsið Lindarbæ, Glat- aðir snillingar e/W.Heinesen. í kvöld kl. 20, allrasíðustu sýningar. Lilla Teatern. Leikhús Nikíta gæslu- manns, fslensku óperunni su og má kl. 20:30. Norræna húslð, kabarettsýning: “Þeir héldu dálitla heimsstyrjöld...", flytjendur Edda Heiðrún Backman, Hvað á að gera um helgina? Sigríður Stefánsdóttir bæjarfulltrúi á Akureyri Það er alveg óvíst vegna þess að ég stend í viðræðum um myndun meirihluta í bæjarstjóm. Ef ekkert óvænt gerist fer mikill tími í þær, en ég vonast þó til þess að geta farið og hlustað á Vínardrengjakórinn á laugardaginn. Ef viðræðum lýkur um helgina geri ég ráð fyrir að fjölskyldan skreppi í Mývatnssveit. Egill Ólafsson, Jóhann Sigurðarson og Ása Hlín Svavarsdóttir, ásamt Jó- hanni G.Jóhannssyni. Aukasýn. í kvöld og lau kl. 21. Þjóðlelkhúslð í leikför m/Stefnumót. HITT OG ÞETTA Hana-nú í Kópavogi, samvera og súrefni á morgun lau, lagt af stað frá Digranesvegi 12kl.10. Molakaffi. Norræna húslð, kvikmynd um and- spyrnuhreyfinguna í Danmörku, Den osynlige hær, lau kl. 16, aögangur ókeypis. Félag eldri borgara, Göngu-Hrólfar hittast á morgun lau kl. 10 að Nóatúni 17. Lokað (Goðheimum. Ferð i Skagafjörð 13.-15. júni, uppl. áskrif- stofunni. Finnlandsferð 14.-21. júní. Samræður um llst á Listahátíð, má kl. 16 í Lögbergi Hf stofu 101. Trú og list, hr. Sigurbjöm Einarsson. Útlvlst, fjórar fjögurra daga ferðir, brottför í allar ferðirnar i kvöld kl. 20 frá Umfmst. bensfnsölu. I. Þórsmörk- Goðaland. II. Snæfellsnes- Snæfellsjökull. III. Breiðafjarðareyjar-Helgafellssveit. IV. Skaftafell-Oræfajökull. Sunnu- dag: Kirkjuvogsbás-Blásíðubás, brottför kl. 13 f rá Umfmst. bensín- sölu. Mánudag: Bergtegundaferð, Hofsvík-Kjalarnestangar. Brottförí báðarferðirkl. 13 Umfmst. bensín- sölu. Napur en næðingur Þótt segja megi að á Islandi sé fremur milt eyjaloftslag, þá er það fyrst og fremst rétt í því sam- hengi að hér er milt veðurfar MIÐAÐ við breiddargráðu. Og raunar á einkunnin „milt“ fyrst og fremst við láglendi til stranda og ýmis hitameðaltöl því um leið og menn skyggnast til hálendis eða skoða einstaka daga þá er veðurlag mun nær heimskauta- loftslagi en hinu milda úthafs- loftslagi. Á miðhálendinu er loftslag vissulega mjög nálægt skilyrðum heimskautaloftslags (subarctic á ensku) enda jöklar, sífreri (túndra) og gróður til sanninda- merkis um það. í loftslagsflokk- unarkerfi Köppens telst ísland falla í tvo flokka, flokk C (tem- prað loftslag og rakt) og flokk E (heimskautaloftslag). Það er því ekkert skýtið að öfgar til beggja átta ef svo mætti segja, eru al- gengir ef horft er til tiltekins stað- ar. Með þessu verða íslendingar að lifa meðan ekki verða veru- legar breytingar á veðurfari. Sambýlið við veðrið snertir okkur á marga vegu. Hér verður aðeins fjallað um einn þátt: Vind- kælingu og fáein atriði varðandi klæðnað ferðamanna. Því er nefnilega þannig varið að lofthiti er eitt og hitastig á húð útivið annað. Orsökin er auðvitað sú að logn er sjaldgæft á Islandi og allir vita að loft á hreyfingu við mannshúð framkallar kælingu miðað við lofthitann, sem mæld- ur er inni í mæliskýli. Vindurinn fjarlægir loftlagið sem hitnar í sí- fellu næst okkur og „sýgur“ þann- ig varmann úr húðinni. Til er tafla (fylgir með) sem byggð er á úteikningum sem hlýta reynslubundinni líkingu (eða jöfnu) sem kennd er við Siple / Passel. Hún sýnir áhrif vindkæl- ingar á nakta húð og segir um það bil til hve hás frosts í logni tiltek- inn lofthiti og tiltekinn vindhraði (í vindstigum) svara. Sem dæmi má nefna að sé 3 stiga frost í logni þá finnst manni sem lofthiti sé -14 stig ef 4 vindstiga vindur blæs en -23 stig ef vindur er kominn upp í 7 vindstig. Engan skal því undra rauð nef, tilfinningalaus eyru og munnherkjur á venjulegum vetramæðingsdegi. Hátt til fjalla, í lofthita um -12 stig, em áhrif 6 vindstiga þau að manni finnst vera 35 stiga frost á berri húð! Þá er kalhætta orðin mikil og voðinn vís ef menn kunna ekki að klæða sig eða bregðast rétt við ofkæl- ingu. Af dæmunum og töflunni ætti að vera augljóst að ferðaklæðn- aður er afar mikilvægur vilji 26 SfÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 1. júní 1990 13 ÚR RÍKl NÁTTÚRUNNAR ARI TRAUSTI GUÐMUNDSSON SKRIFAR menn halda heilsu og hafa fullt þrek við útiveru. Hitaeinangrar- ar hvers konar, nýjustu gervi- efnapeysur, ullaífatnaður og ein- angrunarefni ættuð úr geimvís- indastofnunum em mikilvægar vamir gegn kulda. En jafn mikil- vægar og stundum mikilvægari en hitaeinangraramir em svo vindh- lífar; jakkar með hettum, stakk- ar, hettur úr silki, vindheldir vett- lingar ofl. Svonefnt Goretex efni eða önnur skyld em þess eðlis að þau em þjál (og vatnsheld), hleypa í gegnum sig uppgufunar- raka frá líkamanum og em vind- held. Efni þessi em mjög góð og reyndar em ýmis nælonefni vel brúkleg en þau hleypa að vísu ekki raka út frá líkamanum. Margs kyns dúnúlpur sameina kosti góðs einangrara og vindhlíf- ar, en nú orðið komast Goretex- jakkar með gerviefnaeinangmn (stundum eins konar álefni að hluta) nálægt bestu dúnúlpum, en þær eru nú til með Goret'ex- ytrabyrði. Hér er ekki rúm til þess að leiðbeina mönnum ná- Kvæmlega um klæðaburð. Hér verður ábendingin um mátt vindsins hvað kælingu varðar látin duga. Gegn henni duga ýmis ráð og verða menn að kynna sér og reyna að meta væntanlegan vind á sínu ferðasvæði hverju sinni, taka með nægan fatnað og gæta þess að eiga vindheldan fatnað frá hvirfli til ilja. (Tekiöeftir AraT. Guðmundssyni og Magnúsi Guðmundssyni, Fjallamennska, 1983). Vindkæling Vindstig Vindhraði Lofthiti m/s 2 3 4 6 5 9 6 12 7 15 8 18 9 21 10 24 Taflan sýnir hvernig kæling á beru hörundi eykst með vaxandi vindhraða og lækkandi hitastigi. Farið er eftir svonefndri Siple-Passel jöfnu. Klæðnaður breytir auðvitað tölunum. Ef kalhætta er miðuð við -15°C frost, er skyggða svæðið innan þeirra marka. Neðan við -30°C er kal- hættan geysimikil (dekkra svæðið).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.