Þjóðviljinn - 13.07.1990, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 13.07.1990, Blaðsíða 2
SKAÐi SKRIFAR Eg berst gegn lágkúru laganna Mér, Skaða, fmnst fólk eitthvað svo smá- smugulegt orðið og lítið í sér og hangandi eins og aumingjar aftan í lögum og reglum eins og kannski má vænta í þessu ósjálfráða hálfkrata- samfélagi sem breiðir sig yfir alla manndáð hér á landi. En sem betur fer eru ekki allir þessu smán- armarki brenndir. Enn er til reisn og sjálfstæði einstaklinga í þessu landi. Eg man til dæmis, að þegar þessi Haf- skipsvitleysa öll fór af stað, þá var Gísli út- gerðarmaður, frændi minn og flokksbróðir, eitthvað áhyggjufullur yfir því, að nú ætti að fara að sekta og tukta ffamkvæmdasama unga menn og duglega í heiminum og hér á landi. Eg sagði við hann, ég man það svo vel sem það hefði skeð í gær: Blessaður vertu ekki að þessu væli frændi. Dettur þér í hug að þessir framsóknarkratar í dómskerfinu komist upp með að refsa mönn- um fyrir fijálsa verslun, lántökur og viðskipti í landinu? Nei lagsi, það verður ekkert af því. Þeir verða sýknaðir allir sem einn. Já en Skaði, sagði Gísli áhyggjufullur, það er nú heill miljarður gufaður einhvemveginn upp í loftið bara si sona, það verður einhvem- veginn að gera grein fyrir honum og svoleiðis. Til hvers? spurði ég. Heldurðu kannski að honum hafi verið stolið þessum skitna milj- arði þínum, sem er ekki nema svona skipti- mynd í alminnilegu fyrirtæki á heimsmæli- kvarða. Heldurðu að einhver hafi stungið hon- um í vasann og keypt fyrir hann golfkúlur úr gulli eða eitthvað svoleiðis? Oekkí minn herra. Svona miljarður er ekki annað en á- hættuþóknun sem þessi þjóð verður að greiða fyrir að hafa frelsi en ekki einkvum kommún- isma eins og hjá Ceaucescu eða hvað veit ég. Ég reyndist sannspár eins og fyrri daginn og allir blaðalesendur hafa nú frétt. Og eitt- hvað var ég að hugsa um þetta gamla dæmi nú um daginn þegar Hróbjartur frændi minn, Framsóknarlúsablesinn í fjölskyldunni, ætlaði að fara að stríða mérá einhverju skitnu smygl- máli í Vestmannaeyjum. Það var nú bæjarfulltrúinn ykkar Sjálf- stæðismanna sem var aðaldriffjöður og dræver í því máli, sagði Hróbjartur. Tólf hundmð pottar, maður guðs! Og hvað með það, sagði ég. Öfundarðu manninn kannski, þú sem aldrei tímir að kaupa brennivín þótt þig dauðlangi í það? Nei, Skaði, ég öfunda sko ekki þennan elsku vin þinn. Og svo var hann bara dreissug- ur þessi skratti þegar upp komst og sagði: aldrei skal ég segja af mér í bæjarstjóm! Að sjáifsögðu, sagði ég. Menn segja ekki af sér i bæjarstjóm nema þeir hafi gert eitt- hvað sem striðir gegn siðgæðisvitund þjóðar- innar. Og síðan hvenær hefur það strítt gegn traustum móral Islendinga að reyna með hug- viti og útsjónarsemi að snúa á þetta helvítis ríki sem okrar svo á brennivíninu að lamba- kjötssalan dregst saman stórlega? En þetta er nú lagabrot, Skaði... Lagabrot og lagabrot. Lagabrot standa á leirfótum frændi, sagði ég. Þau horfa þangað sem maður snýr þeim. En einstaklingsvitund- in í þjóðinni blífur. Já, en svo kom frétt um það í gær að hann hefði nú samt sagt af sér karlhólkurinn, sagði Hróbjartur. Veit ég vel, sagði ég. En bara til bráða- birgða, bara til óákveðins tíma. Maður á ekki að vera að gera einhverja vitleysu sem ekki verður aftur tekin. Svo getur það líka verið sniðugt á sinn hátt að segja af sér ef menn lenda í einhveri lágkúmlegri öfund sam- borgaranna í brennivínsmálum. Þetta sagði forseti Hæstaréttar af sér þegar öfund lágkúr- unnar skall yfir hann, sárasaklaus maðurinn, enda fékk hann miklu betra embætti úti í lönd- um fyrir bragðið. Fyrir bragðið? hváði Hróbjartur með hálf- an skilning í röddinni. Já ég sagði það. Ég held þér að segja að minn maður í Eyjum stefni á að verða bæjar- stjóri. Ef ekki heima hjá sér þá í einhvetju enn merkilegra plássi. kjararýrnun að undanförnuH T u —d I Það verður að ö. I \'É I stytta hana. \ bá f \\ íux UiiJS 2 SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 13. júlí 1990 VIÐ HEFÐUM BET- UR S/ETT OKKUR VIÐ HARALD HÁRFAGRA Norðmenn eru ánægðastir með lífið og tilveruna en Islend- ingar eru hins vegar hundóá- nægðir. DV LÁTUM HANN ETA LOÐDÝRIN! Verð á ánamaðki er með hæsta móti þessa dagana og hef- ur DV heimildir fyrir því að verðið fari í allt að 60 krónur stykkið. DV SIGUR ÞYNGDAR- LÖGMÁLSINS Annars er fróðlegt að fylgjast með skítkasti þeirra sem halda enn að listin sé að rífa vestræn þjóðfélög niður. Þar metast skallapopparamir um hver þeirra sé vambsíðastur... Tíminn FYRR MÆTTI NÚ ROTA... Ég er enginn Þorsteinn Páls- son, sagði Ólafúr Ragnar. Alþýóublaóió MIKILVÆGI SKÓLAKERFISINS Það er víst öllum ljóst sem hafa gengið í gegnum kyn- fræðslu í bamaskóla að það þarf tvo til þegar bam er búið til. DV LÍFIÐ ER LOTTERÍ... Hrikaleg fjárhagsstaða Stöðvar 2 kemur eigendunum á óvart. Tíminn ÞEIM HEFÐI VERIÐ NÆR AÐ TAPA STRAX Það mætti segja að velgengni norska laxeldisins hafi valdið því að það riðar nú til falls. Morgunblaöiö NÝMÆLI í HEILSUFARI Heppilegra að vera ekki til- fínningalegt taugabúnt. Fyrirsögn í Morgunblaöinu HELVÍTI ER HIÐ NÆSTA OSS Hæstiréttur hafnaði því að S. ætti rétt á bótum... Samkvæmt þessu er það ekki skýr og ótví- ræð uppsögn að segja starfs- manni sínum að fara til andskot- ans! Morgunblaöió KOMIÐ ÞANGAÐ SEM FJÖRIÐ ER! Það þyrfri léttklikkaðan ffamúrstefhuhöfúnd, og það helst á sviði þeirra bókmennta sem kennd em við ævintýri í geiminum, til að setja saman þá margflóknu heljarslóðaromistu sem vemleikinn yrkir nú, mánuð eftir mánuð, í Alþýðubandalag- inu. Morgunblaóiö

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.