Þjóðviljinn - 13.07.1990, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 13.07.1990, Blaðsíða 7
Níkaragva Verkfalli lokið Verkfallinu í Níkaragva, sem staðið hafði í tíu daga, lauk í gær með samningi ríkisstjórnar Violetu Chamorro og verkalýðs- samtaka þeirra, sem að verkfali- inu stóðu, en þau eru tengd flokki sandinista. Fjórir menn a.m.k. biðu bana í átökum í sambandi við verkfallið og um 50 særðust. Verkfallið lamaði atvinnulíf og samgöngur í landinu að mestu og kom illa við efnahag þess, sem var nógu bágur fyrir eftir áratugs stríð við kontra, uppreisnarmenn sem Bandaríkin vopnuðu og fjármögnuðu gegn stjóm sandin- ista, og efnahagslegar þvingunar- aðgerðir Bandaríkjanna. I samn- ingnum heitir stjórn Chamorro verkamönnum 43% launauppbót í júlí til að vega upp á móti óða- verðbólgu og að stöðva ráðstaf- anir til að leigja fyrri eigendum jarðir, sem stjórn sandinista gerði upptækar. Ekki er í samningnum minnst á kröfu verkfallsmanna um að hætt sé við áform um að þjóðnýta ríkiseignir. Báðir aðilar hrósa sigri, en talið er að með verkfall- inu hafi aukist spennan milli sandinista og harðlínumanna í flokkabandalagi því er stendur að stjóm Chamorro. Pöhl-telursighafaefniáaðtaka orðaskaki breska ráðherrans með stillingu. mÞýskaland hendur yfirþjóðlegum stofnun- um Evrópubandalagsins. Ekki er laust við að togstreita þessi, sem virðist hafa valdið þessu fremur ódiplómatíska upphlaupi Ridleys, hvort sem hann nú var þá allsgáður eður ei, endurspegli aldagamlar hefðir hlutaðeigandi ríkja í Evrópu- stjórnmálum. Bæði Frakkland og Þýskaland urðu sem ríki til á vík- ingaöld upp úr risaveldi Karla- magnúsar, sem tók í arf frá Róm- aveldi hugmynd um allsherjarríki og vildi teljast yfirkonungur Evr- ópukristninnar. Á tímum Lúð- víks 14. og sérstaklega Napó- leons mikla reyndu Frakkar í krafti þessa draums um samein- aða Evrópu að leggja hana undir sig, og sá draumur var ekki fjarri de Gaulle þegar hann reyndi að stemma stigu við bandarískum áhrifum í Evrópu og gera Frakk- land að leiðandi ríki hennar vest- an sovéska áhrifasvæðisins. Annað hlutverk Nató í krafti nefndrar rómverskrar hugmyndar um allsherjarríki vildu keisarar fyrra þýska keisar- adæmisins, sem í samræmi við þá hugmynd kallaðist heilagt og rómverskt, teljast yfirkonungar Evrópukristninnar. Hitler, sem reyndi á sinn hátt að sameina Evrópu, hefur varla verið ósnort- inn af þeirri hefð. Sú hefð var mikilvæg grunnorsök styrjalda Frakka við Habsborgara og Austurríkismenn frá upphafi ný- aldar til Napóleonstímans, ef ekki lengur. Hefðbundin stefna Bretlands í Evrópumálum hefur hinsvegar verið að koma í veg fyrir að álfan sameinaðist, að nokkurt einstakt meginlandsstórveldi legði hin ríkin þar undir sig eða tæki for- ustu fyrir þeim. En nú stefnir í það að Evrópa sameinist með efnahagsmátt Þýskalands sem leiðandi afl. Þetta hefur einnig komið við og kemur við sögu Atlants- hafsbandalagsins. Haft er eftir stjórnmálamönnum í einkavið- ræðum að hlutverk Nató hafi ver- ið tvíþætt: að halda Sovét- ríkjunum burtu og Þýskalandi niðri. í sambandi við viðleitni vesturveldanna til að halda Þýskalandi í Nató eftir að austurríki þess hefur runnið sam- an við vesturríkið - sem nefndir bandamenn Þjóðverja virðast vera öllu áhugasamari um en þeir sjálfir - er á kreiki það viðhorf að þetta sé nauðsynlegt til að geta haft hemil á Þýskalandi. Margar- et Thatcher lét nýlega að þessu liggja í ræðu. Endel Lipp- maa: Staoan er tvísýn og samningar liggja niðri. Ljosm. Kristinn. Eistland Moskva afturkall ar efnahagslegt sjálfstæði okkar segir eistneskur ráðherra sem hér er á ferð Sjálfstæðismál Eistlands og þá annarra Eystrasalts- landa eru í hörðum hnút, ekki síst vegna þess að Moskvu- stjórnin reynir að draga í land og m.a. afturkalla efnahagslegt sjáifstæði Eistlands, sem lögfest var í fyrra. Svo mælir Endel Lippmaa, ráðherra í stjóm Eistlands sem fer með samskiptin við miðstjómina i Moskvu á blaðamannafundi í fyrradag. En hann er hingað kom- inn til að kynna íslenskum ráða- mönnum stöðu mála og vekja at- hygli þeirra á eðlilegri og nauð- synlegri samstöðu smáþjóða. Háskaleg tilskipun Ráðherrann hafði sérstakar á- hyggjur af tilskipun sem út var gefin af Voronín, aðstoðarforsæt- isráðherra Sovétrikjanna, nú i byrjun júli. En samkvæmt henni er stofnuð mikil samsteypa i Eist- landi sem lntegral nefhist - eiga undir hana að falla öll fyrirtæki sem áður íyrr heyrðu undir mið- stjómarráðuneyti í Moskvu. Gæti meira að segja svo farið að skólar og rannsóknastofnanir á eistnesku landi heyrðu undir þetta nýja mið- stýringarbákn. Ekki bætir það úr skák að tilskipunin gerir ráð fyrir því að stjómarformaður Integral sé skipaður með samþykki stjóm- arinnar í Moskvu. Stjóm Eistlands hefur mót- mælt þessari gerrðæðislegu til- skipun og telur hana ganga gegn mörgum samningum og sam- þykktum og þá lögum sem Æðsta ráðið í Moskvu samþykkti í nóv- ember í fyrra um efnahagslegt sjálfstæði Eistlands, Lettlands og Litháens. Sjálfur telur Lippmaa þessa ráðstöfun helst minna á ný- lendupólitík með skipun land- stjóra og fleiru í þeim dúr. Engir samningar Staða sjálfstæðismálanna er yfir höfuð mjög flókin, sagði ráð- herrann. Við höfum fallist á það að um umþóttunartíma verði að ræða, m.a. vegna þess hve erfitt það er í framkvæmd að láta eist- nesk lög koma í stað sovéskra á öllum sviðurn. Við viljum samn- ingaviðræður, en þær hafa engar farið fram síðan i febrúar. Það er útbreidd rangtúlkun í samhengi við rás atburða í Lit- háen, að þar og í okkar landi sé nú í gildi affurköllun á sjálfstæðisyf- irlýsingu landanna - gegn aflétt- ingu viðskiptaþvingana. En eins og Landsbergis forseti Litháens hefur tekið skýrt fram, þá verður sjálfstæðisyfirlýsingin þá tyrst „fryst” í hundrað daga, að raun- verulegar viðræður við Moskvu- stjómina um tvihliða samskipti séu hafin. Fyrr ekki. Og við höf- um sömu afstöðu. Endel Lippmaa leist bersýni- lega best á Boris Jeltsin, forseta Rússlands, af sovéskum ráða- mönnum. Við höfum þegar hafið viðræður við hann um þegnrétt, sagði hann. Hluti rússneskumæl- andi íbúa Eistlands styður sjálf- stæði landsins. Við höfum ekkert á móti því að veita rússneskumæl- andi fólki þegnrétt, en það verður þá að velja - vera annaðhvort eist- neskir þegnar eða þá t.d. rússnesk- ir (með þá atvinnuleyfi eftir sam- komulagi eins og gengur og gerist í heiminum). En það þarf að út- rýma tvískinnungi eins og þeim, að sovéskir hermenn hafa verið látnir kjósa þar sem þeir em staddir - þetta má misnota, hafa áhrif á kosningar með herflutn- ingum. Raunsæi og stuðningur Endel Lippmaa var að því spurður hvort Eystrasaltsþjóðir hefðu ekki orðið fyrir vonbrigð- um, hvort þær hafi ekki búist við meiri stuðningi á Vesturlöndum við sjálfstæðisbaráttu sína en þær fengu. Nei, sagði hann. Við höfum fengið þann siðferðilega stuðning sem raunsætt mat gat við búist. Maður getur ekki búist við miklu meira i heiminum eins og hann er. Hann kvaðst hafa rætt hér við forsætisráðherra og utanrikisráð- herra og sýndist sér að íslendingar væm vel upplýstir um stöðu mála í Eistlandi og skildu hana vel. Þótt smáþjóðir séu í mjög misjafnri að- stöðu, sagði hann, kemur það held ég á daginn að tilvistarvandamál þeirra em keimlik og einatt tengd við togstreitu stórvelda. Eg vona að íslendingar beri gæfu til að gera jafnan það sem í hag kemur smáþjóðum og þar með þeim sjálfiim. áb Fösfudagur 13. júlí NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.