Þjóðviljinn - 13.07.1990, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 13.07.1990, Blaðsíða 9
HELGARUMRÆÐAN „...nú loks eftír 200 ára baráttu eru konur komnar á það stig að geta breytt þjóðfélaginu, vegna þess að við höfum öðlast þekkingu og skilning á hinum aldagömlu lögmálum, skiljum hverjar við erum, hvar við stöndum og við hvað er að fást. En hvemig eigum við að ná fram breytingum?" spyr Kristín Ástgeirsdóttir meðal annars í þessarí grein. Nú um stundir fer fram mikil umræða innan kvennahreyfínga í heiminum um markmið og leiðir í kvennabaráttu. Miklar breytingar eiga sér stað í stjómmálum og efnahagsmálum, enn meira er framundan. Þessar umbreytingar munu hafa mikil áhrif á stöðu kvenna og ffamtíð. Hugmyndakerfi hrynja og heimsmyndin er að breytast. Því er þörf á umræðu og nýsköpun. Hér á landi vakti léleg útkoma Kvennalistans í nýaf- stöðnum sveitarstjómarkosningum nokkra athygli eftir mikla sigurgöngu í alþingis- kosningum og skoðanakönnunum. Hér er því einnig spurt um framtíð kvennabarátt- unnar og „hina íslensku leið” sem vakið hefur mikla athygli og vonir kvenna víða um heim. Á langri leið í átt til kvenfrelsis hafa mörg skref verið stigin. Kvennahreyfmgin hefur rétt eins og aðrar slíkar risið og hnig- ið, náð árangri og tapað. Þannig reis kröft- ug kvennahreyfíng upp í frönsku stjómar- byltingunni, náði nokkrum árangri en var síðan lamin niður með lögum. Kvenrétt- indahreyfíngin á síðari hluta 19. aldar og fyrri hluta þeirrar 20. setti sér það markmið öðmm fremur að ná fram kosningarétti kvenna, tókst það, en náði ekki að fylgja sigrinum eftir. Kvennahreyfmgin sem reis upp með látum á sjöunda áratugnum leitaði í ýmsar áttir. Hún krafðist jafnréttis, sagði rótgrónum hugmyndum stríð á hendur, fékk lögum breytt, hóf miklar rannsóknir á stöðu kvenna og þjóðskipulagi karlveldis- ins og beindi endalausum hvatningarorð- um til kvenna um að láta til sín taka og breyta heiminum, laga hann að þörfúm kvenna, gera hann kvenlegri. Nú 27 ámm eftir útkomu bókar Betty Friedan The Feminine Mystique sem jafnan er talin marka upphaf nýrrar lotu í kvennabaráttunni, finnst mörgum sem kvennahreyfingar heimsins standi á kross- götum. Þá er ekki aðeins verið að miða við þann heimshluta sem við tilheyrum, heldur beinast sjónir ekki síður í austurátt, þar sem hugmyndakerfi sem þrátt fyrir allt hafa tryggt konum viss réttindi hrynja. í Austur- löndum þar sem Múhammeð spámaður kallar fólk til bæna hefur heittrúarmönnum vaxið fiskur um hrygg og þeir ætla konum ekki stóran hlut. Fátækt, styrjaldir, arðrán og kúgun marka líf kvenna enn sem fyrr í stórum hluta heimsins. Þrátt fyrir slökun milli stórveldanna, samninga um afvopnun og fall kúgunarstjóma víða um heim virðist takmörkuð ástæða til bjartsýni hvað varðar aukið kvenfrelsi í heiminum. Hvaó gerist í Evrópu? í kjölfar breytinganna í A-Evrópu ótt- ast konur þar versnandi hag. Þar eru ftjáls- ar kvennahreyfmgar að stíga sín fyrstu spor, en lengi hafa ríkisreknar kvenna- hreyfmgar þjónað stjómvöldum mun dyggilegar en konum. I fyrstu kosningun- um sem fram fóm í Sovétríkjunum eftir að breytingaskeiðið hófst fækkaði konum á þingi. Konur í V-Þýskalandi standa ver að vígi hvað varðar félagslega þjónustu en systur þeirra austan meginn (hér er miðað við magn, en ekkert mat lagt á gæði), en þess er vænst að hið vesturþýska ástand verði ríkjandi eftir sameiningu og að þar með versni staða austurþýskra kvenna. Það þarf vart að nefna hve kjör kvenna tengjast framboði á félagslegri þjónustu og á það jafnt við um öll iðnríki heims. Hópur kvenna í A-Þýskalandi bauð fram sérstak- an kvennalista við fýrstu fijálsu kosning- amar þar í landi svo mjög fannst þeim brýnt að standa vörð um rétt sinn. I vesturhluta Evrópu spytja konur sig margra spuminga. Framundan er samein- ing Evrópubandalagsríkjanna í eitt mark- aðssvæði sem hefúr í for með sér samræm- ingu á löggjöf sem m.a. varðar vinnumark- aðinn. Hvað þýðir þetta fyrir konur? Um það em skiptar skoðanir. Bent hefúr verið á að í stofnunum EB ríkir mikið og miðstýrt karlveldi. Kvenfrelsiskonur i suðurhlutan- um binda nokkrar vonir við samræmda löggjöf og norræn jafnréttisáhrif, en konur á norðurjaðri bandalagsins, þ.e. í Dan- mörku hræðast hin suðrænu viðhorf til kvenna og óttast að dönsku velferðarkerfi verði settur stóllinn fyrir dymar sem muni bitna harðast á konum. Eru konur að nálgast hættusvæði? Vestur í Ameríku hafa konur háð harða baráttu til vamar löggjöf um frjálsar fóstur- eyðingar. Þar er talað um bakslag, áhuga- leysi og þreytu. Vestra hafa miklar rann- sóknir verið gerðar og kenningar smíðaðar en nú er rætt um stöðnun og þörf alþjóð- legrar umræðu um nýjar leiðir í kvennabar- áttunni. Bandaríski sagnffæðingurinn Gerda Lemer segir að í raun hafi stofnanir karlveldisins ekki þurft að hopa eitt hænu- fet þó að konum á Vesturlöndum hafi verið tryggð almenn mannréttindi. Þjóðfélags- gerðin hefur ekki breyst, karlar halda enn um taumana og „they take the half for the whole” (karlar líta svo á sem þeirra sýn á veröldina sé sú eina sem til er). Það sem hefúr gerst segir Gerda Lemer, er að nú loks eftir 200 ára baráttu em konur komnar á það stig að geta breytt þjóðfélaginu, vegna þess að við höfum öðlast þekkingu og skilning á hinum aldagömlu lögmálum, skiljum hverjar við emm, hvar við stöndum og við hvað er að fást. En hvemig eigum kveðinn „status” og núverandi staða kvenna tryggir aðgang að lágt launuðu vinnuafli, auk þess sem sjálfsmynd flestra karla mótast mjög af hugsun um yfirburði gagnvart konum sem margirþeirra sýna ofl á heldur ógeðfelldan hátt. Á móti tryggja karlar flestum konum öryggi, en því fylgir jafhan valda- og áhrifaleysi innan samfé- lagsins. Enn skal undirstrikað að þessi lýs- ing á alls ekki við um alla karlmenn. Það tek ég fram vegna þess að ég veit að mörg- um körlum sámar mjög hvemig ofbeldis- hneigð og karlrembu er stöðugt troðið upp á þá. Samkvæmt feminiskum skilningi snýst spumingin um ffelsi kvenna ekki um framamöguleika einstaklinga, heldur um baráttu í þágu allra kvenna. Því er sá reginmunur á feministum og öðrum konum sem tækifæri hafa til að beita sér t.d. á þjóðþingum, innan verkalýðshreyfinga eða annars staðar, að feministar setja kvenna- baráttuna efst á blað, meðan aðrar konur fóma hagsmunum kvenna því miður iðu- lega á altari eiginhagsmuna eða flokksins mismunandi reynsla kvenna sem mótast t.d. af litarhætti, kjörum, búsetu og félags- mótun hefúr ekki mótað umræðuna. Litróf- ið allt með ungar konur og gamlar, hvítar og svartar, giffar og ógiftar, með böm og bamlausar, lesbíur, fatlaðar konur, heima- vinnandi o.s.frv. hefúr ekki notið sín. Allt á þetta sér eðlilegar skýringar, en eigi konur að stíga fleiri skref fram á við þarf að opna dymar og hleypa öllum konum inn, það eitt er í anda kvenfrelsisins. Annað sem ég vil nefna er það hvemig konur skilgreina sig sjálfar. Það hefúr löng- um verið bent á að úti í þjóðfélaginu er tal- að um konur sem dætur feðra sinna, eigin- konur manna sinna, mæður bama sinna o.s.frv., en lita konur ekki þannig á sig sjálfar? Hvar standa þær sem einstakling- ar? Það var eitt af því sem Henrik Ibsen var að velta fyrir sér í Brúðuheimilinu fyrir 111 ámm, rétt eins og ýmsar konur sem þá vom í rithöfundastétt. Hver var sjálfsskilningur- inn? Hvar vom landamæri hins persónu- lega ftelsis? Nora Ibsens gekk út í leit að frelsinu og skildi aumingja manninn sinn Kvennabarátta ' I----"x__ s krossgotum ■ við að ná fram breytingum? Það er búið að reyna margt á undan- fomum ámm og vissulega hafa konum opnast ýmsir möguleikar. Konur á Vestur- löndum hafa sótt fram menntaveginn, kliftað nokkuð upp valdabrekkuna og hasl- að sér völl á þeim áður ókunnum ökmm. Þar hafa þær plægt, sáð og uppskorið, en nú þegar uppskeran dugar ekki lengur er eins og ekki fáist meira land. Em konur að komast inn á hættusvæði? Em þær að nálg- ast hin helgu vé karlveldisins um of? Er verið að hækka virkisveggina? Svo mikið er víst að mörgum konum finnst sem að í öllum áttum rísi ósýnilegir veggir, eða ef við höldum okkur við kross- götumar: eftir göngu um krókótta stigu em vegvísar engir. Vegir liggja til allra átta, en þetta er ókunnugt land. Engin okkar hefúr komið hingað áður. Við emm loksins komnar fram hjá vörðunni þar sem kvenna- göngunni lauk í lok fyrri heimsstyrjaldar- innar. Nú verðum við að feta okkur áftam, reynsla gömlu kvennanna dugar ekki lengra en þetta. Hvert skal halda og hvert er erindið? Tvenns konar kvennahreyfingar Þótt okkur sem verjum miklum tíma í kvennabaráttuna hætti til að tala um konur og kvennahreyfingar sem eina heild er það staðreynd að hreyfingar kvenna em margar og markmiðin mismunandi. I grófúm drátt- um má segja að annars vegar sé um að ræða hreyfingar sem miða að þvi að gera konum kleift að njóta sin innan ríkjandi skipulags, sem sagt gamla krafan um „að koma konum að” og þá skiptir ekki öllu máli hvað konur aðhafast, bara að þær séu sýnilegar. Hins vegar er um að ræða hreyf- ingar sem líta svo á að markmið kvenna- baráttunnar sé kvenfrelsi, frelsi allra kvenna til að velja lífi sínu farveg á eigin forsendum. Slíkt ffelsi verður þá loks til staðar þegar búið verður að afnema hið aldagamla karlveldi, gjörbreyta hugsunar- hætti og tryggja jafna möguleika beggja kynja til áhrifa, valda og mannsæmandi lífs. Kvenfrelsiskonur vilja val, virðingu og völd. Munurinn á þessum tveimur megin- straumum kvennabaráttunnar liggur í því að kvenfrelsishreyfmgamar (feministamir) líta svo á að konur séu í glimu við ákveðið hugmynda- og valdakerfi sem hefur ávinn- ing af því að halda konum á ákveðnum bás. Ávinningurinn er auðvitað völd í samfélag- inu, aðgangur að ákveðinni þjónustu kvenna við karla, konur veita körlum á- síns. Því má ekki gleyma að þær konur em margar sem engu vilja breyta. Þær kallast á ensku „traditional women” (konur sem em hefðbundnar í hugsun), þær sætta sig við hlutverk sitt og óbreytt þjóðfélag og þjóna karlveldinu jafnvel dyggilega. Því skiptir meginmáli fyrir kvennabaráttuna hvaða konur komast þangað sem ráðum er ráðið og hveijar hugsjónir þeirra em. Sjónarhornió er of þröngt Ef við föllumst á það sjónarmið að kvennahreyfingar séu nú á krossgötum, er skýringanna að leita bæði innan hreyfing- anna sjálfra og utan þeirra. Það er gömul saga og ný að efúahagsástand, friður/ófrið- ur, ffjálslyndi/íhaldssemi hefur mikil áhrif á líf og stöðu kvenna rétt eins og karla. Hverjar sem skýringamar kunna að vera hafa íhaldsstraumar leikið um strendur undanfarin ár, kannski sem viðbrögð við fijálslyndi og róttækni áratugsins eftir 1968. Alls konar heittrúarhreyfmgar (byggðar á fúndamentalisma) sem jafnan em mjög andvígar frelsi kvenna hafa látið til sín taka, hvort sem litið er til Bandaríkj- anna, ísrael eða Múhameðstrúarheimsins, svo dæmi séu nefnd. Sú mynd sem dregin er upp af konum í tískuheiminum dregur mjög dám af kvenímyndinni sem ríkjandi var á ámnum kringum 1960.margar hveijar útivinnandi. Það hefúr sem sagt verið í gangi nokkurt andóf gegn kvenfrelsisbar- áttunni, meðvitað og ómeðvitað. Heyrt hef ég þá kenningu að á leiðinni sé meiri háttar áætlun um að koma konum aftur inn á heimilin, til að rýma til á vinnu- markaðnum og treysta hin gömlu lögmál. Eg dreg reyndar í efa að svo sé, svo mjög hefur verið fjárfest í menntun og vinnuafli kvenna, en - það em ekki nema 45 ár síðan síðast var söðlað um og heimilin gerð að þessum líka unaðsreit ilmandi ofnrétta og opins faðms elskandi, bíðandi eiginkonu sem annaðist böm og bú með bros á vör. Sú mynd brotnaði í þúsund mola 20 ámm síð- ar. Sé leitað inn á við eftir skýringum að meintri stöðnun kvennabaráttunnar beinast sjónir mínar fyrst að því sem ég kalla sjón- arhorn kvennabaráttunnar, þ.e. um hvaða konur er verið að tala? Svarið er: að- allega hvítar, menntaðar, útivinnandi konur milli þrítugs og fimmtugs, í sambúð og með böm. Sjónarhomið hefur að mínum dómi verið of þröngt og þar með orðið til að einangra kvennabaráttuna um of. Kröf- umar hafa miðast við ákveðinn hóp með sameiginlega reynslu og þarfir, meðan hin eftir. Allar kannanir á vorum dögum sýna að flestar konur setja hagsmuni fjölskyldu sinnar ofar eigin hagsmunum. Liggja fjötr- amir ekki einmitt þar? Einstaklingar sem em öðmm háðir um líf og afkomu em öðr- um ólíklegri til að krefjast sjálfstæðis og frelsis. Þurfa konur ekki að tileinka sér hugarfar Nom? I það minnsta að skynja rétt sinn til að ganga út? Komumst við lengra fyrr en konur fara almennt að líta á sig sem sjálfstæða einstaklinga og gera kröfúr til sín og annarra í samræmi við það? Þriðja atriðið sem ég vil hér tiltaka er sú spuming hvert konur beina kröfúm sín- um. Eg fæ ekki betur séð en að f raun séu konur alltaf að tala hver við aðra. Það er að vísu nauðsynlegt meðan verið er að byggja upp samstöðu og skilgreina vandann. En er ekki löngu tímabært að snúa umræðunni að körlum? Þegar borgarastéttin í Evrópu hóf baráttu sína fyrir mannréttindum og stjóm- málaáhrifúm beindust kröfúr hennar fyrst og fremst að afnámi forréttinda aðalsins, enda búið að skilgreina náttúruréttinn og frelsið. Þess var krafist að aðallinn léti af sínu, ella mundi illa fara. Þurfúm við konur ekki að fara eins að, gera kröfúr á hendur aðli nútimans, karlveldinu, nú er komið að því að láta af forréttindum sínum, hvort sem því er það ljúft eða leitt. Hin íslenska leið Það er rætt um leiðir. Mörgum konum hefúr orðið starsýnt á hina íslensku leið, þ.e. íslenska Kvennalistann sem mörgum hefúr fúndist eitt veraldarundur. Kvenna- listinn hefúr átt velgengni að fagna og náð ótrúlegum árangri. Þótt ekki hafi blásið byrlega í síðustu sveitarstjómarkosningum er langt í frá að einhvem bilbug sé á okkur að finna. Ef eitthvað er em sóknarmögu- leikar Kvennalistans vemlegir ef rétt verð- ur haldið á spilunum. Stjómmálakerfið er í upplausn, ef einhvem tíma hefur verið þörf á siðbót innan þess er það nú. Það er hlut- verk sem Kvennalistinn hefur frá upphafi ætlað sér. Staða kvenna gefur ekki tilefni til hvíldar og fjarvista frá kvennabaráttunni og ekki trúi ég öðm en að þeim konum sem vilja breyta þjóðfélaginu og bæta hag kvenna finnist þörf frekara átaks. Meðan þjóðfélagið neitar að horfast í augu við Framhald á bls. 14 Krístín Ástgeirsdóttir er sagnfræðingur og fram- haldsskólakennari. Föstudagur 13. júlí 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.