Þjóðviljinn - 13.07.1990, Blaðsíða 24

Þjóðviljinn - 13.07.1990, Blaðsíða 24
Dóri sér um sína Um helgina fær Halldór Ámason forstöðumaður Ríki- smats sjávarafurða lausn frá starfi þar sem hann mun þann 1. september n.k. taka við verkefnisstjórn í gæðaátaki í sjávarútvegi sem sjávarút- vegsráðuneytið stendur fyrir. Þessu starfi gegndi áður Eirík- ur Hilmarsson sem fyrir nokkru síðan var sagt upp störfum fyrirvaralaust og án nokkurra skýringa enda ekki tengdur sjávarútvegsráð- herra á nokkurn hátt. Það er hinsvegar Halldór Árnason. Sjálfstætt smygl Sjálfstæðismenn í Vest- mannaeyjum hafa ekki fundið fyrir öðrum eins titringi innan sem utan sinna raða síðan í gosinu, þegar það fréttist að nýkjörinn bæjarfulltrúi þeirra Goggi á Klöpp hafði verið gripinn glóðvolgur í Þorláks- höfn með fullan sendiferðabíl af smygluðu áfengi. Eitthvað stóð það í Gogga að kalla inn varamann fyrir sig í bæjar- stjórnina og herma fréttir úr innsta hring íhaldsins að hann hafi ekki gefið sig fyrr en eftir mikinn þrýsting frá félögum sínum. Enginn vill í Víkina Fyrir skömmu rann út sá frestur sem dómsmálaráðu- neytið hafði gefið þeim lög- lærðu til að sækja um stöðu bæjarfógeta í Bolungarvík. Víkurum til mikillar furðu en öðrum ekki, sótti enginn um. Bolvíkingar verða þó ekki án yfirvalds því Hjördís Hákonar- dóttir mun gegna stöðunni fram til 1. ágúst. Ekki er vitað til hvaða bragða Óli og félagar í dómsmálaráðuneytinu munu grípa til en málið mun vera í athugun þar á bæ. Þó er næsta víst að ekki dugir ann- að en að þangað vestur fari yfirvald með sterk bein í nef- inu. En eins og alþjóð veit komst bæjarfógeti þeirra (s- firðinga að ýmsu misjöfnu þegar hann fór að róta til í skúffum embættisins fyrr í sumar þegar hann var þar yfirvald í stuttan tíma. Meðal þess sem þar var að finna voru bunkar af ölvunarsektum sem höfðu ekki verið inn- heimtar og margt fleira í þeim dúr. ÁVALLT Á LAGER Stálrör - heildregin og rafs. Suðuflansar Suðufittings Rennilokar Kúlulokar Stálprófílar Vinkil- og flatstál Þakpappi Bræðslupappi Asfalt LINDIN HF Bíldshöföa 18. Sími 8 24 22 Tíu þúsund fyrir sigur Ýmsar sögur ganga um hinar og þessar greiðslur sem leikmenn í Hörpudeildinni í fótbolta fá nái þeir að sigra andstæðinginn. Séu sögurn- ar bornar undir forráðamenn félaganna neita þeir því stað- fastlega enda eru leikmenn áhugamenn í orði kveðnu þó það sé álitamál í verki ef marka má það sem sagt er. Nýlega fréttist að eitt Reykja- víkurliðanna greiðir liðs- mönnmum sínum allt að tíu þúsund krónur fyrir sigur og þá ekki aðeins þeim ellefu sem inná vellinum eru heldur og einnig þeim sem sitja á bekknum. Þetta er gert til að halda leikmönnunum við efn- ið og hvetja þá til dáða. Hvers eiga Króksarar að gjalda Feykir sem er óháð frétta- blað á Norðurlandi eystra greinir frá því í síðasta tölu- blaði að bæjarráð Sauðár- króks treystir sér ekki til að setja á fót jafnréttisnefnd fyrr en handbók jafnréttisráðs kemur út, en hún er væntan- leg seint á árinu. Virðist þó engu skipta þó að bæjarfull- trúi Framsóknarflokksins hafi undir höndum upplýsingar um störf jafnréttisnefnda í hinum ýmsu bæjarfélögum vítt og breitt um landið. Tíminn og landafræðin Landafræðiþekkingu Tímans virðist hafa hrakað því í út- síðufrétt íTímanum í gær virð- ast Balkanlöndin hafa flust norður að Eystrasalti. Rætt er við sovétmálaráðherra Eist- lendinga í fréttinni, en sam- kvæmt blaðamanni Tímans er erindi hans hingað til lands að leita stuðnings við stefnu Balkanríkjanna hjá íslenskum stjórnvöldum. Einum sex sinnum er minnst á Balkanrík- in í fréttinni en ekki einu orði um Eystrasaltsríkin. Hinsveg- ar má lesa út úr samhenginu að Eistland, Lettland og Lithá- en séu þessi Balkanríki sem blaðamanni Tímans er svo tíðrætt um. Koparinn og snærið Fyrir nokkrum misserum varð uppvíst aö nokkir skipverjar á vestfirskum togara tóku ófrjálsri hendi koparvír sem Póstur og sími hafði skilið eftir í hirðuleysi inni í ísafjarðar- djúpi. Nú er dómur fallinn í þessu umsvifamikla sakamáli og fengu skipverjarnir skil- orðsbundið fangelsi í tvo mánuði. Margir freistast til að bera þetta stórmál við annað mál miklu minna, þe. Haf- skipsmálið, þar sem þeir Björgólfur Guðmundsson fyrrum forstjóri skipafélagsins hefur nýlega hlotið fimm mán- aða skilorðisbundinn fangels- isdóm og Páll Bragi Kristjóns- son fyrrum fjármálastjóri tveggja mánaða skilorðs- bundinnfangelsisdóm. Rifjast nú upp sagan um þjófnaðinn og snærið og þykir Ijóst að þeir Hafskipsmenn hafa verið beittir miklu ranglæti. DAIHATSU APPLAUSE Á fráh Verði fráV*‘ §84.000. na Fáanlegur fimm gíra eða sjálfskiptur Brimborg hf. Faxafenl 8 • S: 68 58 70 LAUNAGREIÐENDUR _ EINDAGI STAÐGREIÐSLUFJÁR ER 15. HVERSMÁNAÐAR Launagreiðendum ber að skila afdreginni staðgreiðslu af launum og reiknuðu endurgjaldi I hverjum mánuði. Með gírókerfi staðgreiðslu er unnt að greiða I öllum bönkum, sparisjóðum og pósthúsum. Eindagi staðgreiðslufjárer 15. hvers mánaðar. Munið að gera skll tímanlega! RSK RlKISSKATTSTJÓRI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.