Þjóðviljinn - 13.07.1990, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 13.07.1990, Blaðsíða 15
OT7T A ¥> 1\ /íí71VTl\J¥lVr^ HVT ii iLi^ljAJtvlVI HFN IM Ji> viln Ríki og borg lögðu saman í kaup á húsi Islandsbanka í portinu við Vatnsstig 3b, þar sem Nýlistasafnið opnar á ný eftir árs lokun á morgun. Listamenn að störfum, þeir Kess Visser og Níels Hafstein í hlutverkum iðnaðarmanna við lagfæringar á Nýlistasafninu. Nýtt Nýlistasafn Listelskendur bæjarins, og þá sérstaklega þeir nýjungagjörnu, hafa eflaust saknað Nýlista- safnsins við Vatnsstíg, nú geta menn tekið gleði sína á ný því að á morgun opnar safnið aftur eftir stækkun, hækkun, breikkun, bætur og lagfæringar. Nýlega tókst samkomulag ríkis pg borgar um kaup á húsnæði íslandsbanka við Vatnstíginn, þar sem safnið var áður til húsa, en starfsemi þess hefur legið nið- ur í ár. Formleg afhending á safn- inu fór fram í gær. Níels Hafstein: Byggingin má ekki skyggja á listina Bjartsýnis- fyrirtæki Kees Visser og Níels Hafstein sýndu blaðamanni Nýs Helgar- blaðs húsakynnin. Nýlistasafnið hefur nú um 550 fermetra til um- ráða. Á fyrstu hæð eru tveir stórir sýningarsalir, smíðahús og fleira. Á annarri hæð er listaverkag- eymsla, lítill sýningarsalur, skrif- stofa, bókasafn og tækjasalur, þar sem listamenn sem vinna með myndbandstækni og slíkt geta fengið aðstöðu. Og á þriðju hæð er stór sýningarsalur sem áður var Gallerí SUM. Þótt stutt sé í opnun virðist enn margt ógert, Níels Hafstein for- maður Nýlistsafnsins sest niður með blaðamanni og segir að safn- ið eigi að vera fremur hrátt, og auk þess sé endurbótum og breytingum ekki lokið enn og hefur endanleg mynd safnsins ekki verið njörðuð niður. Níels segir félagsmenn hafa hafið starfsemi að nýju vegna þess að það var þrýstingur á þá vegna Listahátíðar f Reykjavík. Við vildum vera með, segir hann. Og til þess að sýna að við værum ekki aiveg dauð á þessu tímabili þá skipulögðum við sýninguna Fyrir ofan garð og neðan, en þurftum inniaðstöðu líka. Þá fengum við leyfi hjá bankanum til að fara strax inn, enda var þá búið að gera bindandi samning við bankann um kaupin hvort sem var. Hvernig hefur vinnan verið? Það hafa aðallega verið við Kees Visser sem höfum unnið hérna, svo fengum við auðvitað pípara og rafvirkja svo allt væri nú löglegt. Einnig tóku margir fé- lagsmanna þátt í vinnunni við endurbæturnar. Hvernig félagsskapur er Ný- listasafnið? í félaginu eru nálægt því hundrað félagsmenn. Það var stofnað 1. janúar 1978, og þá höfðu farið fram undirbúnings- fundir og geysileg vinna með lög- fræðingum til að gera skipulags- skrá. Þetta var náttúrlega bjartsýnisfyrirtæki og er enn. Ný- listasafnið var stofnað til að ýta SÚM-salurinn gamli fær uppreisn æru í Nýlistasafninu, og að sögn Níelsar Hafstein eru gamlir Súmarar ánægöir með breytingarnar sem hafa verið gerðar á salnum. Myndir: Jim Smart. við því sem okkur fannst alveg steingelt og staðnað ástand í ís- lenskum myndlistarmálum, sér- staklega opinbera geiranum, og beindum við þá spjótum okkar nokkuð að Listasafni íslands. Þar hafa menn síðar viðurkennt að þetta hafi verið svolítið högg og hróflað við þeim þar. Við lögðum áherslu á það á sín- um tíma, 1978, að það vantaði tuttugu ár inn í listasögu þjóðar- innar á Listasafni íslands, og væri það sögufölsun, einhver varð að taka í taumana. Verk lágu undir skemmdum í alls konar geymslum, jafnvel voru menn farnir að taka í sundur verk til að nota í nýrri verk! Safnið er bara skel Við hóuðum saman 20-30 manns, sem síðan stofnuðu Ný- listasafnsfélagsskapinn. Starf- semin jókst svo smátt og smátt, og verkum í eigum safnsins fjölg- aði. Menn hafa verið að gefa verk, vilja sem sagt að verkin séu hérna og þá náttúrlega sýnd. Erlendir listamenn sem við höfum fengið til landsins í gegn- um tíðina gefa oft eitt til þrjú verk eftir stærð og umfangi þegar þeir fara. Við höfum síðan fengið sendingar að utan því að margir' félagsmenn eru útlendingar, og er t.d. sérstök klausa í skipulags- skrá sem rekur rétt og skyldur þeirra. í gegnum sambönd við íslend- inga erlendis og útlenda meðlimi höfum við byggt upp mikil sam- bönd út um allan heim. Ég held ég fari rétt með að eftir að við stofnuðum þetta safn þá er stofn- að safn í New York með svipaða stefnuskrá. Það eru listamennirn- ir sjálfir sem taka sig saman um að safna verkunum í stað þess að láta listsafnfræðinga eða ein- hverja aðra í söfnum um þá hlið mála. Sífellt hafa bæst nýjar félagar við, og í ár gengu fjórtán í félagið. Nú þegar starfssemi safnsins er að aukast og breytast þá kviknaði áftur áhugi á því að vera meðlim- ur í félaginu. Það var á tímabili að unga fólk- ið fór utan til náms og var oft lengur en þeir sem eldri eru, og menn voru lítt spenntir fyrir fél- agsmálum og hópstarfi lista- manna. Menn hugsuðu um það eitt að slá í gegn, en eru nú að átta sig á því að það er ekki gangurinn í þessu. Samstaða er það sem gildir í listinni held ég, segir Ní- els. Við inngönguna eru engar hömlur lagðar á menn, það eru engin inngönguskilyrði, nema þau að menn þurfa að afhenda safninu verk við inngöngu og síð- an eitt verk á fimm ára fresti. Þetta er sjálfseignastofnun rekin af félagi Nýlistsafnsins, og við lítum á þetta fyrst og fremst sem eign þjóðarinnar, sem á að vaxa og dafna undir ábyrgðarfullri stjórn. Við tökum hlutverk okkar mjög alvarlega; það að móta ein- hverja stefnu og hafa áhrif á gang mála. Við reynum ekki aðeins að safna verkum heldur einnig að vera alltaf í fararbroddi við það að kynna það sem er nýjast og ferskast, þótt það eigi engan hljómgrunn annars staðar. Við erum brautryðjendur. Húsnæðið skiptir ekki öllu máli, heldur það eitt að fólk sé skapandi og tilbúið til að starfa, safnið er bara skelin. Efnið í byggingunni skiptir engu máli, verkin sjálf eru aðalatriðið, segir Níels að lokum. Á morgun verða opnaðar þrjár sýningar í nýuppgerðum sölum Nýlistasafnsins. I sölum fyrstu hæðar verður einkasýning franska listamannsirfs Bauduin, á annarri hæð verður einkasýning Níelsar Hafstein, og á þriðju hæðinni verður safnsýning. þar sem sýnd verða verk Ástu Olafs- dóttur, ívars Valgarðssonar, Rúnu Á. Þorkelsdóttur og Þórs Vigfússonar. Safnið er opið alla daga frá kl. 14-19, og sýningarnar standa til 29. þessa mánaðar. Föstudagur 13. júli 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.