Þjóðviljinn - 13.07.1990, Blaðsíða 14
Kvennabarátta
Framhald af bls. 9
gjörbreytt samfélag og bregst
ekki við kröfum kvenna um frelsi
og val verður Kvennalistinn og
kvenfrelsisbaráttan á dagskrá.
Kvennalistinn þarf þó eins og
kvennahreyfmgamar erlendis að
skerpa pólitískar línur og bregð-
ast við breyttum heimi. Við höf-
um náð því marki að breyta um-
ræðunni um stöðu kvenna hér á
landi verulega. Við höfum hvatt
konur til dáða og við höfum haft
þau áhrif að konum hefur ijölgað
verulega á þingi og í sveitar-
stjómum. Það dugar auðvitað
skammt ef þær konur sem þangað
komast beita sér ekki í þágu ann-
arra kvenna. En við eigum líka
margt ógert. Þar blasir fyrst og
fremst við staða kvenna á vinnu-
markaðnum sem ef eitthvað er
hefur versnað. Þar hefur ekki tek-
ist að finna leiðir til breytinga,
enda er það mín skoðun að
einmitt þar séu hin gömlu lögmál
niðumegld og lítill vilji til að
breyta því.
Laun og staða á vinnumark-
aði móta að hluta til sjálfsímynd
karla og þeir em því miður fáir
meðal þeirra sem einhverju ráða
sem virðast fylgjandi því að störf
kvenna verði endurmetin til launa
eða að launakerfinu verði stór-
lega raskað. Hugmyndin um karl-
manninn sem fyrirvinnu lifir enn
góðu lífi (líka í hugum kvenna),
það þekkja menntaðar konur vel
sem sjá karlmenn taka á rás á
dansstöðum þegar þeir slysast til
að reyna við konu sem við nánari
kynni reynist vera verkfræðingur
eða læknir.
Hvað sem öllum hugleiðing-
um líður um markmið og leiðir
verður ekki fram hjá því horft að
kvennahreyfingin er ein merkasta
félagshreyfing síðustu alda. Ef
við nútímakonur hugsum til for-
mæðra okkar sem hér lifðu í
moldarkofum oft á hungurmörk-
um, horfandi upp á bömin sín
deyja hvert á fætur öðru, réttlaus-
ar og sífellt stritandi, verður okk-
ur ljóst að margt hefur breyst. Við
eigum baráttukonum gömlu
kvenréttindahreyfmgarinnar mik-
ið að þakka, svo og öllu því fólki
sem barðist fyrir bættum kjömm,
félagslegu réttlæti og mannsæm-
andi lífi. Þeirra vegna, okkar
vegna og framtíðarinnar vegna
verðum við að halda áfram. Enn
sem fyrr er það frelsið og réttlæt-
ið sem er í húfi og því til viðbótar
kemur ábyrgðin á framtíð jarðar-
innar sem við byggjum.
Heimurinn þarfnast mýktar,
umhyggju og virðingar við allt
sem lífsanda dregur, ekki síst
hina aumu mannskepnu sem
heldur sig vera eftirmynd guðs.
Við megum engan tíma missa,
leiðin liggur aðeins áfram og nú
reynir á konur að kreijast og karla
að koma til móts og gefa eftir.
Verkefnisstjóri
Starf verkefnisstjóra norræns verkefnis um iaun
kvenna og karla er laust til umsóknar.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist
Jafnréttisráði, pósthólf 5423, 125 Reykjavík,
fyrir 25. júlí næstkomandi.
ALÞÝDUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Skrifstofa ABR
verður lokuð frá 16. júlí til 16. ágúst vegna sumarfrís starfsmanns.
Á sama tíma verður hægt að hafa samband við formann ABR
Sigurbjörgu í síma 77305, varaformann ABR Ástráð í síma
672307 og gjaldkera ABR Árna Þór í síma 625046. - Stjórn ABR.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Gróðursetningarherferð í Heiðmörk
Laugardaginn 14. júlí
verður farið í Heiðmörk og
plantað í skógræktarreit
Alþýðubandalagsins.
Aliir velkomnir.
T akið með fjölskylduna og
nesti. Plöntur og áhöld
verða á staðnum.
Við hittumst við bæinn
Elliðavatn kl. 14. (Ekið í
gegnum Rauðhóla.)
Nánari upplýsingar gefur
Árni Þór í síma 625460.
Stjórn ABR
Neðansjávarspenna
Háskólabíó
Leitin að Rauða október (The Hunt
for Red October)
Leikstjóri: John McTiernan
Handrit: Larry Ferguson & Donald
Stewart, eftir samnefndri skáldsögu
Tom Clancy
Aðalleikarar: Sean Connery, Alec
Baldwin, Scott Glenn, Sam Neill,
James Earl Jones.
Leikstjórinn John McTiernan
sem er helst þekktur fyrir spenn-
umyndina Die Hard, er nú farinn
af fimmtugustu hæð og kominn
niður á fimmhundruð metra dýpi
til að kvikmynda metsölubók
Tom Clancy, Leitin að Rauða
október. Bókin kom út 1984 og
gerist litlu fyrr, í lok stjórnartím-
abils Chernenko þegar Rússar
voru ennþá „Grýlan" og Glas-
nost bara draumur. Þetta er sem
sagt fyrsta kaldastríðsnostal-
gíu-myndin, hverjum hefði dott-
ið í hug að hún kæmi svona
snemma?
Sean Connery leikur Rússann
Marko Ramius sem er skipstjóri
á splunkunýjum sovéskum kjarn-
orkuknúnum kafbáti, Rauða okt-
óber. Þetta er súperkafbátur, ris-
astór drápsvél sem gengur fyrir
alveg sérstökum útbúnaði sem
næst ekki á radar. Rússar geta
siglt óséðir alla leið inná Times
Square þessvegna og sprengt
Bandaríkin margsinnis í tætlur
áður en þeir komast til að þrýsta á
hnappinn. Andstyggileg hug-
mynd. En allar áætlanir Rússa
fara í vaskinn því að Ramius skip-
stjóri tekur þá ákvörðun að flýja
til Bandaríkjanna og taka kafbát-
inn með sér. Rússar senda þá út
allan flotann sinn til að leita að
honum og segja Könum að Rami-
us sé brjálæðingur sem ætli að
senda kjarnorkusprengju á Was-
hington. Þannig að Kanar fara
líka að leita að honum. Útlitið er
sem sagt svart fyrir manninn sem
talar rússnesku með skoskum
hreim. Þá kemur til sögunnar
CIA-maður sem hitti hann einu
sinni í partíi og veit þessvegna al-
veg hvað hann er að hugsa: hann
ætli að flýja en ekki tortíma
neinu.
Þetta gerist allt á fyrstu tíu mín-
útunum og þá eru tveir tímar
eftir.
Ég las einhversstaðar að öll
neðansjávaratriði væru tekin inni
í stúdíói og reykur notaður í stað-
inn fyrir vatn. Kannski það sé
þessvegna sem mér finnst þau
svona óraunveruleg og kafbát-
arnir líkari leikföngum en mörg-
hundruð metra löngum apparöt-
um, þar sem þeir snúast hver um
annan undir kórtónlist.
Atriðin inni í kafbátunum eru
mun magnaðri, þar eru allskonar
tæki og ljós sem blikka og alvar-
legir menn að skipa fólki fyrir í
gegnum síma. En enginn leik-
stjóri hefur, að mér finnst, náð
jafn vel tilfinningunni að maður
sé lokaður inni á mjög afmörk-
uðu svæði og Wolfgang Petersen í
myndinni Das Boot.
Samt tekst McTiernan það sem
hann ætlar sér. Leitin að Rauða
október er skemmtileg og hröð
spennumynd, og skartar Sean
Connery í aðalhlutverki ásamt
hinum nýlega Alec Baldwin, sem
er víst á leiðinni að verða súper-
stjarna.
Þá sem finnst efni myndarinn-
ar, kalda stríðið, orðið dálítið úr-
elt vil ég minna á að ekki er svo
langt síðan því lauk - ef því er þá
alveg lokið. Víetnamstríðinu
lauk fyrir fimmtán árum og núna
fyrst er það háð af fullri hörku á
hvíta tjaldinu.
Sif
Horfur á laugardag og sunnudag. SA-átt. Vætusamt um landið sunnanvert og á
Austfjörðum, en þurrt og sumstaðar léttskýjað um landið norðanvert Híti 10-14 stia
sunnanlands, en allt að 20 stig i innsveitum Norðanlands.