Þjóðviljinn - 13.07.1990, Blaðsíða 5
Launakjör
10% kaupmáttarrýmun á einu ári
Kaupmáttur mánaðartekna skrifstofukvenna hefur rýrnað mest eða
um 17.7%. Allt að 58% munur á launum kvenna og karla
Könnun sem Kjararannsóknar-
nefnd hefur gert leiðir í ljós að
kaupmáttur greidds tímakaups
landverkafólks innan Alþýðu-
sambands íslands hefur rýrnað
um 10% frá fyrsta ársfjórðungi
ársins 1989 til fyrsta ársljórðungs
i ár. Á þessu tímabili hækkaði
greitt tímakaup um 10% en fram-
færsluvísitalan hækkaði um
22%. Enn er mikill munur á
launum karla og kvenna og hafa
skrifstofukarlar til dæmis að
meðaltali 58% hærri mánaðar-
tekjur en skrifstofukonur.
I fréttatilkynningu frá Kjara-
rannsóknamefnd eru ma. birtar
töflur yfir þróun tímakaups,
vinnustunda og viku- og mánað-
arlauna. Par kemur fram að
meðalfjöldi vinnustunda er
nokkurn veginn óbreyttur frá
fyrsta ársfjórðungi 1989 til fyrsta
ársfjórðungs 1990. Það vekur
hins vegar athygli að kaupmáttur
mánaðarlauna skrifstofukvenna
hefur rýmað mest, eða um
17,7%. Þar á eftir hefur
kaupmáttur verkakarla rýrnað
um 11,8% og verkakvenna um
10,2%. Kaupmátur mánaðar-
launa afgreiðslukarla hefur rým-
að minnst, að meðaltali um
7,4%.
Mánaðartekjur skrifstofu-
kvenna vom á fyrsta ársfjórðungi
þessa árs að meðaltali 78,083.kr.,
meðaltekjur verkakarla vom
90,466.kr., verkakvenna
70,562.kr. og meðalmánaðar-
tekjur afgreiðslukarla vom
101.689. kr. Eins og sést á þess-
um tölum er enn mikill munur á
tekjum karla og kvenna, þar sem
tæplega tuttugu þúsund króna
munur er á meðalmánaðartekj-
um verkakvenna og verkakarla.
Munurinn á launum skrifstofu-
kvenna og skrifstofukarla er þó
enn meiri, eða 45.121. kr. Kon-
urnar höfðu að meðaltali
78.083.kr. á mánuði í heildar-
tekjur en karlarnir 123.204.kr.
Þessi munur samsvarar tveggja
vikna heildarlaunum afgreiðsluk-
arla, samkvæmt könnun Kjara-
rannsóknamefndar. í prósentum
er munurinn 58%.
-hmp
Landsmótið
Mikið um dýrðir
Opnunarhátíð í kvöld
kvöld fer fram opnunarhátíð á
I Landsmóti umgmennafélag-
anna en í gær var þar sérstök há-
tíðadagskrá jafnframt því sem
keppni er hafin í frjálsíþróttum
og handbolta. Mótið er haldið að
þessu sinni í Mosfellsbæ á nýjum
og glæsilegum Varmárvelli.
Hörður Óskarsson í Lands-
mótsnefnd segir að framkvæmd
og skipulag mótsins hafi til þessa
gengið mjög vel og dagskráin afar
fjölbreytt. Af mörgum spennandi
keppnisgreinum á mótinu em
væntingarnar einna mestar til
spjótkastskeppninnar á sunnu-
dag. Þar munu leiða saman hesta
sína fremstu spjótkastarar heims
með fyrrum heimsmeistara í far-
arbroddi og íslendingarnir Einar
Vilhjálmsson og Sigurður Einars-
son. í körfuboltanum keppa
sterkustu lið landsins og nægir
þar að nefna lið Njarðvíkinga og
Grindvíkinga svo einhver séu
nefnd.
Búist er við mikilli aðsókn
áhorfenda á mótið enda haldið i
við bæjardyr höfuðborgarinnar
og því stutt að fara. Það fer síðan
eftir því hyernig viðrar hvað
margir munú\síðan leggja leið
sína í Mosfellsbk;. Á morgun og á
sunnudag verður Sjónvarpið svo .
með beinar útsendingar frá mót- 1
inu. Alls hafa um tuttugu og níu
héraðssambönd skráð sig til leiks
á mótinu sem er með þeim stærri
íþróttahátíðum sem haldnar eru
hérlendis. Landsmót ungmenn-
afélaganna eru haldin á fjögurra
ára fresti en það var síðast haldið
á Húsavík árið 1986.
-grh i
Á hátíðadagskrá Landsmótsins í gær voru gróðursett um 40 tré í væntanlegan skrúðgarð þeirra Mosfellinga
við Hlégarð. Þar var margt manna saman komið í blíðviðrinu þó svo að sólin hafi ekki látið sjá sig þá
stundina. Mynd; Jim Smart.
Rauð strik
Gengishækkun út úr myndinni
Steingrímur Hermannsson: Ríkisstjórnin mun leggja sittað mörkum
til að slá á hœkkunframfœrsluvísitölunnar. Aðrir aðilar sem ráða
verðlagi verða einnig að vera með
Nýtt álver
Framsókn vill
gult Ijós
Steingrímur Hermannsson: Þingflokk-
urinn vill að ríkisstjórnin samþykkilOO
milljónir til Landsvirkjunar. Restin eftir
að staðarákvörðun álvers liggur fyrir
Rflrisstjórnin fór yfir stöðu
verðlagsmála með tilliti til
rauðu strikanna í kjarasamning-
um Alþýðusambandsins og
Vinnuveitendasambandsins, á
fundi sínum í gær. Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
segir ríkisstjórnina sammála um
að leggja til þeirra mála citthvað
sem um muni, en vill ekki rekja
nánar hvað felist í þessum vilja
rflrisstjórnarinnar.
Forsætisráðherra sagði Þjóð-
viljanum í gær að mjög mikil
áhersla væri lögð á það innan
ríkisstjórnarinnar að kaupmenn,
innflytjendur og allir aðrir sem
einhverju réðu um verðlag,
leggðu ekki síður sitt að mörkum.
Ekki væri eingöngu hægt að vísa
málinu á ríkissjóð, það væri fár-
ánlegt.
Gengishækkun virðist vera út
úr myndinni sem leið til að vega
upp á móti hækkun framfærslu-
vísitölunar. Forsætisráðherra
sagðist aldrei hafa talið gengis-
hækkun koma til greina við nú-
verandi aðstæður. Hækkunin
yrði kannski upp á 1,5% og hann
teldi óvíst að hún kæmi fram í
verðlagi. „Hver ætlar að tryggja
það, ég hef engan hitt sem
treystir sér til þess,“ sagði
Steingrímur. Hann sagði sjávar-
útvegi og fiskvinnslu heldur ekki
veita af að ná vopnum sínum,
eins og stundum væri sagt. En
hann hræddist þær hættulegu
yfirborganir sem orðið hefðu á
hráefni og spilltu fyrir fiskvinnsl-
unni. Þá sagði forsætisráðherra
ákvörðun hafa verið tekna um að
beita verðjöfnunarsjóði og ekki
væri sanngjarnt að beita hvoru
tveggja, gengishækkun og inn-
heimtu í verðjöfnunarsjóð.
Margir telja að sá hluti hækk-
unar framfærsluvísitölunnar sem
er fram fyrir rauð strik og ríkis-
stjórnin dekkar ekki með aðgerð-
um sínum, fari út í verðlagið og
þar af leiðandi komi til einhverra
kauphækkana þann 1. október.
Steingrímur sagðist vita að mjög
ákveðinn vilji væri fyrir því hjá
verkalýðshreyfingunni og Vinnu-
veitendasambandinu að ná settu
marki samninganna. Þessir aðilar
hefðu fundað mikið með sínu
fólki að undanförnu.
-hmp
ingflokkur Framsóknar-
flokksins fundaði í gær og
sendi þau skilaboð til rflrisstjórn-
arinnar, að hún samþykki að
Landsvirkjun fái heimild til að
taka 100 milljónir að láni af þeim
300 milljónum sem Alþingi hefur
samþykkt að fyrirtækið verji til
undirbúningsframkvæmda vegna
virkjana í sambandi við nýtt ál-
ver. Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra sagði að lokn-
um fundi, að þetta ætti að nægja
Landsvirkjun til að framkvæma
þann undirbúning sem nýttist
hver sem staðarákvörðun verði í
sambandi við nýtt álver.
Forsætisráðherra sagði þetta
auðvitað einungis álit þingflokks
Framsóknarflokksins, það væri
ríkisstjórnarinnar að taka loka-
ákvörðun. Hann vonaðist þó til
þess að hinir stjórnarflokkarnir
væru svipaðrar skoðunar.
Steingrímur sagði það álit þing-
flokksins að skoða bæri hvenær
Landsvirkjun fái afganginn, 200
milljónir, eftir því sem álmálinu
miðaði áfram. Ymislegt væri eftir
óafgreitt, eins og endanlegt sam-
komulag um orkuverð, skatta og
staðsetningu, sem væri stóra mál-
ið í þessu öllu.
Þingflokkur Framsóknar-
flokksins eyddi miklum tíma
fundar síns í gær í umræðuna um
staðsetninguna, að sögn forsætis-
ráðherra. Sjónarmið manna þar
hefðu ekki farið leynt. Meirihluti
væri fyrir því í þingflokknum af
byggðaástæðum, að álver verði
reist í Eyjafirði eða Reyðarfirði.
„Eftir því sem mér hefur skilist
vill Atlantsálshópurinn skoða
alla þá staði sem koma til greina,
þannig að ég get ekki séð að það
hafi verið lokað á neinn,“ sagði
Steingrímur Hermannsson.
Þingflokkur Alþýðubanda-
lagsins fundar ma. um þetta mál á
mánudag.
-hmp
StÖð 2
Mönnum hrókerað
Páll Magnússon gerður aðframkvœmda-
stjóra þjónustusviðs. SigurveigJónsdóttir
tekur við fréttastjórn
Ee hef tekið að mér fram-
kvæmdastjórastöðu sem er ný
hér á Stöð 2 um sex mánaða
skeið. Samkvæmt nýju skipuriti
sem stjórn stöðvarinnar samþyk-
kti á fundi sínum nýverðið hefur
fyrirtækinu verið skipt upp og
deildir sameinaðar, sagði Páll
Magnússon sem verið hefur
fréttastjóri stöðvarinnar frá upp-
hafi, en við starfi hans tekur Sig-
urveig Jónsdóttir sem verið hefur
aðstoðarfréttastj ór i.
Páll sagði að þessi nýja deild
hefið fengið nafnið þjónustudeild
og annaðist hún allt sem birtist á
skjánum, og alla vinnu sem því
fylgi s.s dagskrárgerð, val á er-
lendu efni og alla tæknivinnu.
Þá hefur afgangnum af fyrir-
tækinu verið skipt upp í sölu-
deild, deild sem annast fjármál
og deild fæst við rekstrarmál.
Páll sagði að enn væri óráðið
hverjir myndu veita þessum
deildum forstöðu, og að sér væri
ekki kunnugt um hvort einhverjir
af stofnendum stöðvarinnar
fengju þær stöður.
-sg
NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 5