Þjóðviljinn - 13.07.1990, Side 19
Millisvæðamótið fyrir síðustu umferð
Jóhann vann Agdestein
Jóhann Hjartarson vann nor-
ska stórmeistarann Simen Agde-
stein í tólftu og næstsíðustu um-
ferð millisvæðamótsins í Manila á
Filippseyjum og hefur hlotið 7
vinninga. Síðasta umferðin verð-
ur tefld á laugardaginn og verður
Jóhann að vinna til að eiga von á
sæti í áskorendakeppninni. Sú
von er að vísu veik því jafnvel
þótt Jóhann vinni verða önnur
úrslit að ganga nákvæmlega eftir
til að hann hreppi eitt af sætunum
ellefu sem um er keppt. Greinar-
höfundur fékk það staðfest hjá
FIDE í gær að einungis 11 skák-
menn komast áfram og ef ein-
hverjir verða jafnir að vinningum
ferekki fram aukakeppni, heldur
verður heildarstigatala and-
stæðinga hvers og eins iátin ráða
en stigalægsti keppandinn er
undanskilinn. Þarna stendur Jó-
hann illa að vígi.
Jóhann hefur tekið sig veru-
lega á í síðustu umferðum og
hlotið 5 vinninga af sex mögu-
legum. Hann byrjaði afar illa og
hafði aðeins hlotið 2 vinninga úr
sex skákum en síðan verið nær
óstöðvandi. Ekki er vitað við
hvern hann teflir í síðustu umferð
en möguleikar hans byggjast
mikið á því að hrein úrslit fáist í
einhverjum skákanna á toppnum
og síðan verði jafntefli í sem flest-
um skákum þeirra sem eru með 7
vinninga. Til nánari glöggvunar
birtist hér staða þeirra sem eiga
möguleika á sæti í áskorenda-
keppninni:
1. Með 8 Vz vinning: Ivantsjúk
2. -3. Með 8 vinninga: Gelfand og
Anand
SKÁK
4.-11. Með 7 V2 vinning: Gurev-
itsj, Kortsnoj, Dreev, Short, Hii-
bner, Sax, Ehlvest og Judasin
12.-19. Með 7 vinninga: Jóhann
Hjartarson, Khalifman, Ljuboje-
vic, Shirov, Adams, Ki, Georgi-
ev, Rechiis og Damljanovic.
Þeir ellefu sem komast áfram
bætast við Timman, Jusupov og
Speelman og verða þá háð sjö
einvígi. Síðan bætast við Karpov
eða Kasparov, þ.e. sá sem tapar
einvíginu um heimsmeistaratitil-
inn sem hefst í New York í októ-
ber n.k.
Um frammisstöðu þeirra Jó-
hanns og Margeirs er það að
segja að Jóhann er að rífa sig upp
úr miklum öldudal og er greini-
lega að finna sitt gamla form.
Frammistaða Margeirs Péturs-
sonar veldur vonbrigðum en
hann hefur aðeins hlotið 5 vinn-
inga sem er mun lakari árangur
en búast hefði mátt við.
Efsti maður, Vasilij Ivantsjúk,
er maður framtíðarinnar í sov-
ésku skáklífi. Hann lagði Khalif-
man að velli í 12. umferð eftir að
hafa gert fimm jafntefli í röð að
afloknum miklum spretti, fimm
sigrum. Frammistaða Anand er
athyglisverð og verður skáklífi
Indverja væntanlega mikil lyfti-
stöng. „Sláturhúsið hraðar hend-
ur“, eins og hann hefur verið
nefndur teflir ekki eins hratt og
áður. Hann gerði sér lítið fyrir og
lagði Mikhaíl Gurevitsj að velli í
12. umferð og hefur þá væntan-
lega gulltryggt sæti sitt í áskor-
endakeppninni.
Úkraínumaðurinn Vailij Iv-
Helgi
Ólafsson
antsjúk er tvímælalaust maður
þessa móts og birtast hér tvær
skákir hans. Önnur þeirra birtist í
Morgunblaðinu en var slíkum
villum skreytt að ég get ekki
ímyndað mér að nokkur maður
hafi komist í gegnum það dæmi.
Má þetta ágæta blað muna sinn
fífil fegri hvað varðar frásagnir af
skákviðburðum.
Englendingurinn Murray
Chandler sigraði Ivantsjúk glæsi-
lega í fyrstu umferð en Úkraínu-
maður sá rautt og vann þá fimm
skákir í röð:
I. umferð:
Chandler - Ivantsjúk
Frönsk vörn
1. e4 e6
2. d4 d5
3. Rc3 Bb4
4. e5 c5
5. a3 Bxc3+
6. bxc3 Re7
7. Rf3 Bd7
8. a4 Da5
9. Bd2 Rbc6
10. Bb5 0-0-0
11. 0-0 c4
12. Bcl!
(Sterkur leikur. Hvítur kemur
biskupnum fyrir á skáklínunni a3
- f8 þar sem hann lamar allt
athafnafrelsi svörtu mannanna.
Að vísu getur svartur tekið peðið
á c3 en þá hefur hvítur jafntefli í
hendi sér með 13. Bd2 Db2 14.
Hbl Da3 15. Hal o.s.frv. Einnig
kemur til greina að leika 14. c3 og
freista þess að fanga svörtu
drottninguna sem er illa á vegi
stödd.)
12. .. f6
13. Del IlheS
14. Ba3 Kb8
15. Bxc6 Rxc6
16. De3 Ka8
17. Hfbl Bc8
18. Bd6 Hd7
19. Hb5 Dd8
20. a5 g5
21. Bc5
(Með hverjum leiknum bætir
hvítur sóknina.)
21. .. g4
22. Bb6!
22. .. Hc7
(Ivantsjúk ákveður að láta
skiptamun af hendi. 22. .. axb6
kom ekki til greina vegna 23.
axb6+ Kb8 24. Dcl ásamt 25.
Da3 með mátsókn.)
23. Rel fxe5
24. dxe5 Bd7
25. Dc5 He7
26. a6 bxa6
27. Hxa6 Be8
28. Bxc7 Hxc7
29. Dd6!
(Knýr fram drottningaruppskipti
og tryggir sigurinn í endatafli.
Ivantsjúk á ekki mikla möguleika
í framhaldinu þrátt fyrir góða til-
burði.)
29. .. Dxd6
30. exd6 Hb7
31. Hxb7 Kxb7
32. Hal Kc8
33. Hbl a5
34. f3 h5
35. Kf2 Kd7
36. h3 gxf3
37. g4 Kxd6
38. Rxf3a4
39. Rd4 e5
40. Rxc6 Kxc6
41. Ke3 Kc5
42. Kd2 Kd6
43. Hb6+ Kc5
44. Hf6 Kb5
45. Hc6
- og Ivantsjúk gafst upp.
í fimmtu umferð mætti Ivant-
sjúk Júgóslavanum Nikolic sem
hóf mótið með þrem sigrum:
Nikolic - Ivantsjúk
Hollensk vörn
1. d4 f5
2. g3 Rf6
3. Bg2 g6
4. c3 c6
5. Bg5 Bg7
6. Rd2 d5
7. Rh3 0-0
8. 0-0 De8
9. c4 Re5
10. Rxe4 dxe4
11. f3 exf3
12. exf3 Df7
13. Hel Dxc4
14. Bxe7 He8
15. Khl Ra6
16. Bfl Df7
17. Rg5 Dd5
18. Dcl b5
19. Bg2 Bb7
20. f4 Dxd4
21. a4 Hab8
22. axb5 cxb5
23. Hxa6 Bxa6
24. Dc6 h6
25. De6+ Kh8
26. Rf7+ Kh7
27. Re5 Bxe5
28. fxe5 Dc4
29. Df6 Bb7
30. e6 Hg8
31. h4 Bxg2+
32. Kxg2 Dd5+
33. Kh3 Hhc8
34. h5 g5
35. De5 g4+
36. Kh4 Hc2
- Nikolic gafst upp. Hann á enga
haldgóða vörn gegn hótuninni
37. .. Hh2 mát.
Stórkostlegur sigur
Islenska kvennalandsliðið varð
Norðurlandameistari 1990, á mótinu
sem spilað var í Færeyjum í síðustu
viku. Liðið hlaut 192 stig úr 10
leikjum. Vann 8 leiki en tapaði 2.
Glæsilegur árangur. Liðið skipuðu:
Esther Jakobsdóttir, Valgerður
Kristjónsdóttir, Anna Þóra Jónsdótt-
ir, Anna Þóra Jónsdóttir og Hjördís
Eyþórsdóttir. Fyrirliði var Sigmund-
ur Stefánsson.
Landsliðið í Opnum flokki hafnaði
í 4. sæti af 6 þátttökuþjóðum, sem
verður að teljast afar slök útkoma. Þó
var mjótt á mununum á milli 2.-4.
sætis, og með smáheppni hefði liðið'
hæglega náð 2. sæti. Efsta sætið var
hins vegar frátekið fyrir spænsku
spilarana, sem höfðu tryggt sér sigur
fyrir síðustu umferðina, að segja má.
I sigurliðinu voru stórspilarar á borð
við Hans Göthe og Anders Morath,
sem hafa verið sigursælir með af-
brigðum undanfarin 10-15 ár. Orðið
Evrópumeistarar í tvígang og verið
fulltrúar Evrópu á heimsmeistara-
mótinu.
Frændur okkar Færeyingar stóðu
sig vel í skipulagningu og undirbún-
ingi mótsins, sem þótti takast með
afbrigðum vel.
Fullyrða má, að þessi sigur kvenn-
anna okkar á Norðurlandamótinu sé
einn hinn stærsti í sögu bridge á fs-
landi. Esther Jakobsdóttir á litríka
sögu að baki í bridgehreyfingunni.
Fastamaður í landsliði um árabil og
almennt talin sú besta í þeim flokki í
dag. Félagi hennar er Valgerður
Kristjónsdóttir, en þær hófu félags-
skap fyrir um 6-7 árum og verið afar
sigursælar saman. Valgerður er gift
Birni Theódórssyni, fv. forseta
Bridgesambandsins. Áður en Val-
gerður hóf félagsskap sinn á móti Est-
her, höfðu þau hjónin lítillega haft
afskipti af opinberri keppni. Anna
Þóra Jónsdóttir er dóttir Estherar.
Greinilegt er að eplið hefur ekki fallið
langt frá eikinni, en nokkuð er um
það að spilamennska „erfist“ milli
ættliða. Sambýlismaður Önnu er
Ragnar Hermannsson, sem hefur get-
ið sér ágætt orð við græna borðið.
Hjördís Eyþórsdóttir, félagi Önnu, á
einnig litríka sögu að baki í kvenna-
spilamennskunni, og raunar bridge-
sögunni. Þrátt fyrir þá staðreynd, að
innan við 3 ár eru síðan stelpan hóf
keppnisspilamennsku, er Hjördís trú-
lega með þeim skæðari á Norður-
löndum í dag. Geysimikið efni þar á
ferð.
Til hamingju með glæsilegan ár-
angur.
Evrópumót landsliða í yngri flokki
(spilarar 25 ára og yngri) hófst í Ne-
umúnster í Þýskalandi sl. laugardag.
Um 20 þjóðir taka þátt í mótinu. Lið
íslands skipa: Matthías Þorvaldsson,
Hrannar Erlingsson, Sveinn R.
Eiríksson, Steingrímur G. Pétursson,
Ólafur og Steinar Jónssynir. Fyrirliði
er Björn Eysteinsson.
Eftir 9 umferðir var liðið í 6. sæti,
sem er afar góður árangur. Mótinu
verða gerð skil í næsta þætti.
Sveit Jóns Hjaltasonar sigraði sveit
Trésfldar frá Reyðarfirði í 1. umferð
Bikarkeppni BÍ, og lék síðan í beit við
Ólafur
Lárusson
sveit Sigurðar Sigurjónssonar í 2. um-
ferð, en sú síðamefnda vann þann
leik og er þar með komin í 3. umferð,
fyrst allra sveita. Sveit Sigurðar
skipa, auk hans: Júlíus Snorrason,
Ómar Jónsson og Guðni Sigurbjama-
son. Sveit Einars Vals Kristjánssonar
ísafirði, sigraði sveit Sigfúsar Árna-
sonar Reykjavík í 1. umferð. Og dag-
inn eftir léku vestanmenn við sveit
Delta Reykjavík. Delta-menn sigr-
uðu þann leik, en áður höfðu þeir
slegið út sveit Jóhannesar Sigurðs-
sonar Keflavík í 1. umferð. Sveit
Delta er því önnur sveitin til að
tryggja sér sæti í 8 sveita úrslitum.
Sveit Sveins R. Eiríkssonar Reykja-
vík sigraði sveit Baldurs Bjartmars-
sonar Reykjavík, nokkuð örugglega.
Sveit Ásgríms Sigurbjömssonar
Siglufirði sigraði sveit Alfreðs Krist-
jánssonar Akranesi í 1. umferð. Á
miðvikudaginn áttust svo við sveitir
Þrastar Ingimarssonar Kópavogi og
Karls Karlssonar Sandgerði. Sveit
Þrastar vann leikinn, sem var jafn.
Einnig áttust við sveitir Fjólu
Magnúsdóttur og sveit M.L. Refimir
í sveit Fjólu (áður Modern Iceland/
Flugleiðir) mörðu leikinn nokkuð ör-
ugglega, og mæta Þresti Ingimarssyni
í 2. umferð.
Landsmót ungmennafélaganna
hófst sl. miðvikudagskvöld í Mos-
fellsbæ. Meðal greina á mótinu er bri-
dge, en það er í fyrsta skipti sem
keppt er í þeirri grein á landsmóti.
Um 16 sveitir taka þátt í mótinu, sem
spilað verður eftir Monrad-
fyrirkomulagi, alls 9 umferðir. Spilað
er í samkomuhúsinu. Skemmtileg
keppni þar á ferð. Áhorfendur vel-
komnir.
Kostnaður við kaup á spilagjafar-
vél liggur nú fyrir. Vélin sjálf kemur
til með að kosta um 175 þús. krónur
og 1500 spilabakkar með um 115 þús.
krónur. Samtals því um 300 þús.
krónur. Mikil fjárfesting þar á ferð-
inni.
hjá konum
I síðasta þætti sáum við dæmi um
mögulega þvingun hjá sagnhafa, gegn
okkar hendi (spilum). Lítum á svipað
dæmi í dag:
Norður
S: G1084
H: KG5
T: 763
L: Á 103
Vestur
S: D93
H: 8643
T: G
L: KG874
Sagnir hafa gengið:
Suður Vestur Norður Austur
1 hjarta pass 1 spaði 2 tíglar
3 hjörtu pass 4 hjörtu pass
pass pass
Við sitjum í vestur og hefjum
leikinn á tígulogosa. Félagi yfirtekur
kóng, síðan tígulás og þriðja tígulinn,
sagnhafi lætur drottningu og við
trompum. Hvað nú?
Hvað getur sagnhafi átt fyrir stökk-
sögn sinni íhjarta? óhjörtu, 3 tígla, ás
og kóng í spaða og mögulega laufa-
drottningu. Hann á því9 slagi á toppi,
af þeim sem eftir eru. Sá tfundi kemur
sjálfkrafa á þvingun á okkur, því við
höldum á dömunni í spaða auk
laufakóngs. Hver er þá lausnin?
Hvað ef sagnhafi á Iaufadömuna
staka? í raun er það eina vömin og
ætti að finnast hjá flestum bridgespil-
urum, að spila laufakóng. Með þeirri
vörn rýfur þú fyrirsjáanlega þvingun
gegn eigin hendi (spilum) og sagnhafi
neyðist til að taka spaðaíferðina.
Hendi saghafa er:
S; ÁK6
H: ÁD10972
T: D54
L: D
Glæsilegt dæmi um fullkomna
vörn.
(Tekið úr Vígreif Vörn.
Þýðandi Þórarinn Guð-
mundsson.)
Nýbakaðir Norðurlandameistarar kvenna. Frá vinstri eru: Sigmundur Stefáns-
son fyrirliði, Esther Jakobsdóttir, Valgerður Kristjónsdóttir, Hjördís Eyþórsdóttir
og Anna Þóra Jónsdóttir.
Föstudagur 13. júlí 1990 NÝrr HELGARBLAÐ - SÍÐA 19