Þjóðviljinn - 27.07.1990, Qupperneq 3
Hólmavík
Lífleg afmælis-
hátíö framundan
Hundrað ár eru liðin frá því Hólmavík fékk verslunarréttindi.
Óvenjuleg afmælishátíð verður um helgina
- Ég er kominn til Hólmavíkur
til þess eins að gera allt vitlaust,
sagði Örn Ingi Gíslason mynd-
listarmaðurfrá Akureyri, en hann
er framkvæmdastjóri mikillar af-
mælishátíðar sem verður á
Hólmavík um helgina í tilefni þess
að hundrað ár eru liðin frá því
staðurinn fékk verslunarréttindi.
- Grunnhugmyndin er sú að að
skapa öðru vísi stemmningu á
svæðinu en gengur og gerist á
svona hátíðum. Það gerum við
helst með því að gefa ekki allt
upp fyrirfram, og einnig með því
að stilla ekki fólkinu fyrir framan
eitt svið, heldur höfum tvö svið,
eitt á landi hitt á sjó. Fremra svið
er terta 70 fermetra að stærð. Allt
sem fer fram á því sviði verður
eins konar tertuskreyting. Svo
verðum við með 100 tonna bát út
á höfninni fyrir skemmtiatriði og
rokktónleika, sagði Örn og bætti
við að þegar gestir koma í bæinn
Loks kom hetjan
[ vísnaþætti í blaðinu Skinfaxi,
málgagni UMFÍ, kemur það
fram, að nýráðinn bæjarstjóri í
Kópavogi, Sigurður Geirdal
framsóknarmaður, leggur
nokkra stund á vísnagerð.
Sigurður, sem um árabil var
framkvæmdastjóri hjá UMFÍ,
verður þar við áskorun um að
senda seinnipart við vísu.
Þegar báðir partar eru saman
komnir er útkoman þessi:
/ Grímsey hann fæddist og
flæktist víða
nú farínn er loksins í pólitík.
Já, mikið var þjóðin búin
að bíða
að byðist í framboð hetja slík.
Vísan hefur reynst spá-
jdómsleg. Eins og kunnugt er
byrjaði Sigurður hetjuskap
sinn sem yfirvald í Kópavogi í
samvinnu við Sjálfstæðis-
flokkinn á því að hækka
bæjarstjóralaunin um fjórð-
ung eða svo. Og mega allir
vita að þetta er einungis gert
til þess að Kópavogsbúar viti
að mikill vandi fylgir þeirri veg-
semd að stjórna þeim og mun
meiri en að stjórna Reykvík-
ingum, sem eru miklu nískari
á laun við sinn borgarstjóra.
ÁVALLT
ÁLAGER
Stálrör -
heildregin og rafs.
Suðuflansar
Suðufittings
Rennilokar
Kúlulokar
Stálprófílar
Vinkil- og flatstál
Þakpappi
Bræðslupappi
Asfalt
L/ND/N HF.
Bíldshöfða 18. Sími 8 24 22
fái þeir kort þar sem getið er um
hvað eina annað sem er í gangi.
Við viljum að gestir gangi um bæ-
inn, upplifi ýmislegt óvænt,
jafnvel í portum og lokuðum
verksmiðjum og á götum úti.
Þetta á að gerst meðfram venju-
legri og óvenjulegri dagskrá sem
við stillum upp á sviði sagði Örn
Ingi.
- Við verðum með gríðarlega
veislu á laugardaginn, tónleika
og markaðstorg. Þetta grær allt
saman, það eru engin samskeyti á
þessu. Á markaðstorginu verð-
um við með tjald þar sem við
bjóðum upp á þjónustu sem ekki
er venjulega hér til staðar, t.d.
hárskurð, nudd, spádóma, lög-
fræðiaðstoð og sálfræðiaðstoð.
Síðan er ætlun að stilla prestum
upp á svið og gefa út tilskipun um
að þeir vinni öll þau prestsverk
sem til falla s.s. að skíra börn,
gifta fólk, einnig er til í dæminu
að þeir flýti eða seinki skilnuð-
um. Ég geri mér vonir um gift-
ingu, sagði Örn Ingi.
- Sunnudagurinn er meira
hefðbundinn Forsetinn kemur í
heimsókn. Nokkir bæir senda
ekki skeyti heldur fólk sem mun
færa íbúum árnaðaróskir í list-
rænu formi. Þannig kemur t.d.
strengjasveit frá Akureyri. Her-
legheitin enda svo með revíu sem
hlotið hefur nafnið Hundrað ára
Hólmavík, sagði Örn Ingi.
Hann sagði að von væri á fjölda
manns víðs vegar að til að taka
þátt í þessari hátíð. í tilefni af-
mælisins hafa Raufarhöfn og
Hólmavík bundist vinabæjar-
böndum.
- Það er von á um 100 manns
frá Raufarhöfn en það er rúmur
fjórðungur íbúa þar. Þá er einnig
gert ráð fyrir fjölda manns frá
Hvammstanga, auk þess er búist
við að stórum hópi sem tengist
átthagafélagi Strandamanna.
Allir þessir hópar hafa látið
prenta boli, þannig að hver og
einn ber utan á sér hvaðan hann
er, sagði Örn og bætti við að það
auðveldi þegar etja eigi hópunum
saman í leiki.
- Auk þeirra gesta sem koma á
sjálfa hátíðina hafa verið hér góð-
ir gestir sem hafa hjálpað okkur
við að undirbúa afmæliðhátíð.
örn Ingi sagði að fyrir sig væri undirbúningur að afmælihátíð á Hólma-
vík gott framhald á afmælishátíð sem hann hefði stjórnað á Hvamms-
tanga fyrir tveimur árum.
Fjórir myndlistarmenn hafa dval-
ið hér í nokkra daga og málað
myndir af mönnum og náttúru.
Nokkrir félagar í leikfélögum hér
á Norðurlandi hafa líka lagt sitt af
mörkunum, sagði hinn glaðbeitti
framkvæmdastjóri Örn Ingi, sem
var hæst ánægður með samstafið
við afmælisnefndina og þó sér-
staklega formann hennar, Björk
Jóhannesdóttur.
-sg
Guðmundur stakk
uppá Sveinbirni
Deilurnar á meðal fornleifa-
fræðinga hafa vart farið fram-
hjá neinum. Sveinbjörn
Rafnsson formaður fornleifa-
nefndar hefur gagnrýnt harð-
lega ýmis störf fornleifafræð-
inga og viljað setja mun harð-
ari reglur en hingað til hafa
tíðkast. M.a. hefur Sveinbjörn
gagnrýnt störf Guðmundar
Olafssonar deildarstjóra forn-
leifadeildar Þjóðminjasafns-
ins og dregið í efa lögmæti
ráðningar Guðmundar. En
fyrir tilstilli hvers ætli
Sveinbjörn hafi verið ráðinn
formaður fornleifanefndar?
Jú, mikið rétt. Það mun hafa
verið Guðmundur Ólafsson
sem stakk upp á Sveinbirni.
KIVTT HPI rSADRI AFl — RÍFIA 1
AUGLÝSING
UMINNLAUSNAFSVERÐ
VEFÐTRYGGÐRA
SPARISKlFTTEINA RlKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 10.000,00
1984-1. fl. 01.08.90-01.02.91 kr. 47.475,68
‘Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs ferfram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, júlí 1990
SEÐLABANKIÍSLANDS