Þjóðviljinn - 27.07.1990, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 27.07.1990, Qupperneq 6
Vondir eins og villidýr Af 135 aðspurðum tíu ára börnum í skólum í Varsjá, höfuð- borg Póllands, reyndust aðeins fjögur vera vinsamleg grannþjóð- inni Þjóðverjum. Helmingur barnanna svaraði að Þjóðverjar væru grimmlynd fúlmenni, Austur-Þjóðverjar þó heldur verri en þeir sem vestar búa. Einn nemandi svaraði: „Þjóðverjar eru vondir eins og villidýr. Svo- leiðis þjóð ætti alls ekki að vera til. Og ofan á allt ætla þeir nú að sameinast." Til skýringar á meintri illsku Þjóðverja héldu sum barnanna því fram að þeir tryðu á djöfulinn. Mannblót í Gabon 30 manneskjur hafa verið handteknar í Mið-Afríkuríkinu Gabon, grunaðar um hlutdeild að morði á lögreglukonu, sem Flavienne Nzoua hét. Lét hún lífið við innvígsluathöfn hjá Bwiti, þarlendum trúflokki sem hún sjálf var í. Við athöfnina var neytt ofskynjunarlyfja og fóma átti þremur dýrum. Að sögn á- kvað þá prestur safnaðarins að lögreglukonan skyldi koma í stað eins dýranna. í janúar var þekktur Bwiti- prestur dæmdur tii dauða eftir að hafa verið fundinn sekur um að hafa drepið einn safnaðarmeð- lima sinna á fórnarhátíð. Lagði söfnuðurinn hinn látna sér síðan til munns. Þetta getur orðið al- varlegt mál í stjórnmálunum í Gabon, þar eð þó nokkrir menn í ríkisstjórninni og kringum hana eru í trúflokki þessum. Málaferli út af þrælaverslun Shaka Zulu Assegai, banda- rískur blökkumaður sem býr í Keníu, hefur höfðað meiðyrða- mál gegn Peter Okondo, atvinnu- málaráðherra landsins, sökum þess að ráðherrann kallaði bandaríska blökkumenn negra (negroes). Sagði ráðherrann við þetta tækifæri að Bandaríkja- mönnum færist ekki að prédika mannréttindi fyrir öðrum, þar eð negroes og indíánar þarlendis væru ekki frjálsir enn. Assegai segir orðið negro hafi verið fundið upp til að niðurlægja „Afríkumenn þá, sem afrískir bræður þeirra og systur seldu í þrældóm“. Hann telur kenísku stjórnina samábyrga um þræla- söluna frá Afríku forðum tíð og hefur höfðað gegn henni annað mál út af því. Vill hann hafa af stjórninni kenískan ríkisborgar- arétt og 16 hektara lands í bætur. Allir kvenhatarar Michele Andre, kvenréttind- amálaráðherra Frakklands, sagði í sjónvarpið þar fyrr í vikunni að enginn franskur karlmaður væri laus við kvenhatur. Jafnframt gaf hún í skyn að að þau Pierre Joxe, innanríkisráðherra, töluðust með minna móti við þessa dagana. Andre kvað sér hafa mislíkað við Joxe að hann hefði ákveðið, án þess að ráðfæra sig við hana, að til þess að verða teknar í lögregl- una yrðu konur að vera a.m.k. 166 sentimetra háar. Áður hafði lágmarkshæð franskra lögreglu- kvenna verið 163 sentrimetrar. Göróttur drykkur 15 menn hafa látist og tveir misst sjónina síðustu daga í Santa Amaro í Bahiafylki, Brasilíu, eftir að hafa drukkið heima- bruggað romm, kallað cachaca, sem bannað er með lögum að framleiða og selja. Margir í við- bót hafa veikst alvarlega. Yfir- völd telja að rommið hafi verið blandað tréspíritus. Lögregla leitar manns, sem seldi cachaca þar um slóðir, en hann er horf- inn. LeiðtogarsjöauðugusturíkjaheimsáleiðtogaráðstefnunniíHouston. Mörgum þykir nú sem Kohl gnæfi yfir alla hina, og ekki einungis líkamlega. Kákasíska undrio Með samningiþeirra Gorbatsjovs og Kohls var rutt á brottsíðustu meginhindruninni í vegi sameiningar Þýskalands og hafið tímabil náinnar samvinnu Þýskalands og Sovétríkjanna efnahagsmálum ístjórn-og Samkomulag þeirra Míkhaíls Gorbatsjovs, Sovétríkjafor- seta, og Helmuts Kohls, sam- bandskanslara Vestur- Þýskalands, er farið að ganga undir nafninu „kákasíska und- rið“ eftir ZheIeznovod.sk, hress- ingarstað þeim á heimaslóðum þess fyrirnefnda þar sem þessi sögulegi samningur þeirra var gerður fyrr i mánuðinum. Segja má með sanni að þeir höfðin- gjarnir hafi tekið Nató á orðinu, cftir að leiðtogafundur þess á dögunum lýsti því yfir að banda- lagið skoðaði Sovétríkin ekki lcngur sem andstæðing sinn, og fellt formlega úr gildi það fjand- skaparástand á milli ríkja sinna, sem hófst með innrás Þjóðverja í Sovétríkin fyrir 49 árum og var áfram við lýði út kalda stríðið. Stórlega var að vísu farið úr því að draga með Ostpolitik Willys Brandts og síðustu árin hefur það ástand aðeins verið formið eitt. „Kákasíska undrið" kom sem sé ekki eins og þjófur úr heið- skíru lofti, heldur átti það sinn aðdraganda sem kominn var til sögunnar þó nokkrum árum fyrir tíð þeirra Gorbatsjovs og Kohls sem heimsstjórnmálamanna. Og sá aðdragandi spratt ekki heldur úr engu. Katrín mikla og Ostpolitik Með hliðsjón af heimsstyrjöld- unum, sérstaklega þeirri síðari, þegar Rússar og Þjóðverjar hlóðu ofurháa valkesti hvorir úr öðrum, er mönnum tamt að hugsa sér þá sem erfðaóvini. Sanni nær er að lengst af hafi ver- ið til þess að gera gott á milli þeirra, að fráfaldri öldinni okkar, og meira að segja á henni hafa þeir stundum verið bandamenn. Allt frá því á miðöldum, þegar Hansasambandið verslaði mikið við furstadæmið Novgorod, hafa samskipti þjóðanna verið tals- verð og oft mikil. Pétur mikli sóttist eftir þróunaraðstoð frá þýsku ríkjunum, þau samskipti jukust á tíð eftirmanna hans, ekki síst Katrínar miklu, sem sjálf var þýsk. Þýsk-baltnesku aðals- mennirnir gegndu mikilvægu hlutverki í Rússlandi 18. og 19. aldar sem stjórnmálamenn, emb- ættismenn í stjórnsýslu, herfor- ingjar og stjórnarerindrekar. Fjöldi Þjóðverja fluttist búferlum til Rússlands. Þessi samskipti í aldaraðir, ásamt með þeirri ein- földu staðreynd að þjóðirnar búa ekki ýkja langt hvor frá annarri, hafa gert að verkum að Rússland hefur aldrei verið fjarlæg og dul- arfull grýla í augum Þjóðverja á sama hátt og Vestur- Evrópumanna og síðar einnig Norður-Ameríkumanna. Með hliðsjón af þessu þurfti ekki á óvart að koma að Þjóð- verjar ættu frumkvæði að því af hálfu vesturlandaríkja að draga úr kaldastríðskuldanum í sam- skiptunum við Sovétríkin og Austur-Evrópuríki. Frumkvæðið að því átti Willy Brandt, fyrrum leiðtogi vesturþýskra jafnaðar- manna og sambandskanslari Vestur-Þýskalands. Með Ostpo- litik Brandts, eins og þetta nýja viðhorf austur á bóginn var nefnt, tókst að draga talsvert úr spenn- unni milli Vestur-Þýskalands og ríkjanna undir stjórn kommún- ista. Mestu máli skipti að líkind- um í því sambandi að Brandt viðurkenndi Austur-Þýskaland formlega. Það leiddi til síaukinna samskipta þýsku ríkjanna og sí- aukin kynni við Vestrið, sem þeim samskiptum fylgdu, urðu ásamt með öðru aðdragandi að hruni alræðisins í Austur- Þýskalandi s.l. ár. Af öllum stjórnmálamönnum jarðarinnar nýtur Kohl líklega mestrar aðdáunar eins og sakir standa. í bandaríska blaðinu New York Times, sem að vissu marki hefur tileinkað sér tor- tryggnisafstöðu gagnvart Þýska- landi, stóð fyrir skömmu: „Vera má Gorbatsjov sé maður níunda áratugar, en nú lítur út fyrir að Kohl verði efstur á blaði á þeim tíunda." Ekki verður annað sagt en að þetta sé nýtt fyrir Kohl. Þessi nú sextugi leiðtogi hefur verið allur í stjórnmálum frá því að hann komst til þroska og jafnan sýnt drjúg klókindi við að halda sér uppi og hækka smátt og smátt. Hann er af millistéttarfólki kom- inn og hefur reynst einkar laginn við að átta sig á hugarfari milli- stéttarþjóðverjans og haga segl- um stjórnmálanna eftir vindum þaðan. Öðrum stjórnmálamönn- um og enn frekar blaðamönnum þykir á hinn bóginn að hann skorti fágun, að hann sé ekki laus við að vera fljótfær og klaufskur. Er þá gjarnan minnt á ýmislegt, sem upp úr honum hefur hrokk- ið, eins og þegar hann líkti Gor- batsjov og Göbbels saman sem áróðursmönnum. Þá þykir ekki nógu gott að sambandskanslar- inn er ekki vel mæltur á aðrar tungur en móðurmálið. Genscher skildi öðrum fyrr hvað klukkan sló Hann nýtur þess bæði heima- fyrir og erlendis að síðan hann tók við kanslaraembætti 1982 hefur Vestur-Þýskaland orðið ennþá meira stórveldi í fjár- og efnahagsmálum en áður var. Ár- legur hagvöxtur hefur tvöfaldast og þýska markið er orðið jafnvel enn harðari gjaldeyrir en svissneski frankinn. Gífurlegur efnahagsstyrkur Vestur- Þýskalands gerir því ekki einung- is fært að innlima Austur- Þýskaland, þótt það komi til með að kosta Vestur-Þjóðverja býsn, heldur og að rétta Sovétríkjunum efnahagslega hjálparhönd svo um muni. Allar horfur eru á að þau samskipti ryðji braut þýskum ítökum, bæði efnahagslegum og pólitískum, vítt og breitt um austantjaldsheiminn sem einu sinni var. Annar vesturþýskur framá- maður hefur þó ef til vill stuðlað enn meira en Kohl að því, sem nú er fram komið. Sá er Hans- Dietrich Genscher, aðalmaður- inn í stjórnun utanríkismála Vestur-Þýskalands s.l. tvo ára- tugi. Hann er leiðtogi frjálsdem- ókrata, miðjuflokksins í vestur- þýskum stjórnmálum sem verið hefur til skiptis í stjórnarsam- starfi með jafnaðarmönnum og kristilegum demókrötum, flokki Kohls. Genscher tók í arf línuna frá Ostpolitik Brandts og sem utanríkisráðherra hefur hann frá 1987 verið óþreytandi við að reyna að sannfæra bandamenn Vestur-Þýskalands um að Gor- batsjov vildi í alvöru sættast. Hann lagði sig svo fram við það að ekki einungis Reaganstjórnin bandaríska þykktist við, heldur og Kohl. S.l. ár var það Gensc- her, sem fékk Kohl til þess að þvertaka fyrir að í stað Lance- flauga Bandaríkjamanna í Vestur-Þýskalandi yrðu settar þar niður nýjar eldflaugar, sem miðað yrði sumum hverjum á skotmörk í Austur-Þýskalandi. Út af því lá við klofningi í Nató, en vesturþýska stjórnin hafði sitt fram. Það féll í góðan jarðveg í Moskvu, og einnig meðal austur- þýsks almennings. Álfurinn glöggskyggni Nú er sú deila gleymd og Genscher, sem þá var í Washing- ton og Lundúnum kallaður „linur gegn kommúnismanum“, hlýtur þar nú hrós fyrir glöggskyggni og framsýni. Genscher, sem í útliti er stund- um sagður minna á álf úr Grimmsævintýrum, virðist hafa allra vestrænna stjórnmála- manna best áttað sig á ástandinu í Austur-Þýskalandi. Hann er það- Hætta á átök r Iskýrslu frá Páfagarði segir að hætta sé á átökum milli ka- þólskra manna og múslíma í Afr- íku og fari sú hætta vaxandi. Skýrslan var tekin saman fyrir sérstakt kirkjuþing á vegum Vat- íkansins fyrir Afríkulönd, sem stendur til að haldið verði 1993. I skýrslunni stendur að líkur séu á vaxandi útbreiðslu kristninnar í suðurálfu. En mús- límar þar leggi einnig allt kapp á að snúa sem flestum til sinnar trú- ar. Ennfremur sé um að ræða við- leitni til að endurmóta afrísk þjóðfélög í anda íslams og breyta lögum, menningu og fjármála- stofnunum að því skapi. Þar sem bæði kaþólskir menn og múslím- ar leggi sig fram við boðun trúar ■ sinnar, sé hætta á að samkeppni milli þeirra leiði til alvarlegra árekstra. Þá er því haldið fram í skýrsl- unni að brögð séu að því í löndum, þar sem íslam er ríkj- 6 SÍÐA - NÝTT h'ELGARBLAÐ

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.