Þjóðviljinn - 27.07.1990, Qupperneq 19

Þjóðviljinn - 27.07.1990, Qupperneq 19
Saklaust fórnarlamb sprengjutilræðisins í jámbrautarstöðinni (Bologna 2. ágúst. 1980. Alls létu 85 manns lífið í sprengjutilræðinu. rædda var ekki komin frá Þýska- landi, heldur höfðu fyrrgreindir yfirmenn í öryggislögreglu ítalska hersins komið henni fyrir til þess að villa um fyrir dómsrannsókninni. Þessi staðr- eynd, sem viðurkennd er í endan- legri dómsniðurstöðu sem óumd- eilanleg, nægir þó ekki til þess að sanna að mati dómsins að um beina hlutdeild að verknaðinum hafi verið að ræða. Forsendur dómsins hafa enn ekki verið birt- ar, en um þetta atriði málsins segir í. leiðara dagblaðsins La Repubblica: „Það er eins og dómstóllinn vilji segja okkur að afvegaleiðsla dómsrannsóknar- innar, sem gengur svo langt að setja tösku fulla af sprengiefni um borð í járnbrautarlestina Taranto-Mflanó, hafi verið ti- lefnislaus verknaður, að einhver hafi vaknað einn góðan veðurdag og hugsað sem svo: við skulum búa til alþjóðlega samsæriskenn- ingu, þannig getum við rétt þess- um ungu hryðjuverkamönnum hjálparhönd, sem annars gætu lentu í ógöngum fyrir að hafa skipulagt þetta fjöldamorð.“ Moldviðrið og aurinn sem þyrl- að hefur verið upp í sambandi við þetta mál á undanförnum 10 árum takmarkast ekki við þenn- an vafasama þátt öryggislögreglu hersins. En þáttur hennar skiptir meginmáli, þar sem hann er það eina sem eftir stendur af allri dómsrannsókninni. Vert er að minna á annað atvik sem átti sér stað síðastliðið sumar: einn af saksóknurum hins opinbera í málinu á leynilegan fund með Licio Gelli skömmu áður en áfrýjunarréttarhöldin hófust, og lýsir því síðan yfir opinberlega eftir fundinn að hann hafi skipt Sprengjutilræði án sökudólga Dómsúrskurður í Bologna grefur undan tiltrú á ítalska réttarríkinu Miðvikudagurinn 17. júlí var svartur dagur í sögu ítalskra dómsmála. Eftirdómsrannsókn og málaferli sem staðið hafa yfir í rétt 10 ár vegna sprengjutil- ræðisins á járnbrautarstöðinni í Bologna þann 2. ágúst 1980 kvað áfrýjunarrétturupp endan- legan dóm í málinu. Niðurstaðan var sú, að hinir ákærðu voru sýknaðir af nær öllum ákærum og þar með dæmd ómerk öll sú vinna sem lögð hefur verið í rann- sókn þessa alvarlegasta hryðju- verks sem f ramið hefur verið í Evrópu frástríðslokum. Eftirsitja með sárt ennið aðstandendur 85 einstaklinga, sem staddir voru á járnbrautarstöðinni kl. 10.25 um- ræddan morgun og létu lífið í sprengingunni. Og þeir200 einstaklingar sem hlutu sár og ör- kuml af sömu völdum. Eftir sitja með sárt ennið allir þeir einstak- lingar sem leitað hafa sann- leikans íþessu máli ífullu trausti þess að Italía sé réttarríki sem leitt geti sannleikann í Ijós þegar öryggi þegnanna er ógnað af hin- um myrku öflum. Nei, í þessu máli eru það hin myrku öfl sem hrósa sigri: Þau öfl sem með margvíslegum hætti hafa leitt dómsrannsóknina á villigötur og rótað upp moldviðri og rógi til þess að hylja sannleikann. Dómur áfrýjunarréttarins, sem er æðsta dómsstig og því endanlegt, var kveðinn upp eftir 15 daga einangrun dómaranna. Hann kollvarpaði niðurstöðum fyrra dómsstigs í öllum megin- atriðum: Fjórmenningarnir sem fengið höfðu lífstíðardóm fyrir að koma sprengjunni fyrir á staðn- um voru allir sýknaðir. Þeir voru allir framarlega í samtökum ný- fasista. Yfirmaður frímúrara- stúkunnar P2, fjárglæframaður- inn Licio Gelli, sem var potturinn og pannan í stærsta fjársvikamáli aldarinnar hér á Ítalíu (gjaldþroti Ambrosiano-bankans) og hefur verið orðaður við mörg stærstu glæpamál síðustu ára hér á Ítalíu, hafði hlotið 10 ára fangelsisdóm í undirrétti ásamt lagsmanni sín- um, fjárglæframanninum Fra- ncesco Pazienza, fyrir aðild að samsæri um þetta tilræði og fyrir að hafa stuðlað að því að leiða dómsrannsóknina á villigötur. Þeir voru báðir sýknaðir. Tveir yfirmenn öryggislögreglu ítalska hersins, þeir Pietro Musumeci og Giuseppe Belmonte, sem jafn- framt voru félagar í frímúrara- stúkunni P2 og góðkunningar Gellis, yfirmanns stúkunnar, höfðu verið dæmdir af undirrétti í 10 ára fangelsi fyrir falskan áburð og tilraunir til að afvegaleiða dómsrannsóknina. Dómurinn yfir þeim er það eina sem eftir stendur, en hann var minnkaður niður í 3 ár, þar sem ekki þótti sannað að framferði þeirra hafi þjónað hryðjuverkastarfsemi af ásettu ráði. Viðbrögðin við þessari dómsniðurstöðu hafa einkennst af djúpum vonbrigðum, sársauka og reiði. í fyrsta skipti í sögu dag- blaðsins 1‘Unitá var forsíðan auð daginn eftir úrskurðinn að öðru leyti en þvf að á miðri síðunni var lítil ljósmynd tekin á slysstaðnum og undir henni texti þar sem sagði. „Eftir 10 ár á fjöldamorðið í Bologna engan gjömingsmann. Eftir situr minningin um 85 látna og 200 særða. Frá árinu 1969 til dagsins í dag hafa 5 fjöldamorð verið framin hér á landi með hundruðum fórnarlamba án þess að nokkur hugmyndafræðilegur faðir þessara afbrota og nokkur gerandi þeirra hafi verið sakfelld- ur eða fangelsaður. Sannleikur- inn er eftir 20 ára rannsókn ekki falinn í leynihólfum dómaranna, heldur í leynilegum skjalasöfnum ítalska ríkisins. Þessi auða síða felur í sér afneitun alls málskrúðs og málalenginga. Hún er vitnis- burður um hneykslun og reiði. Hún er vitnisburður um van- þóknun en einnig um siðferðilega baráttu sem mun áfram halda af fullum krafti." Leyniþjónustan og myrkraöflin Ummæli blaðsins um leyndar- skjöl ríkisins varða aðild leynil- ögreglu hersins og öryggislög- reglu ríkisins að þessu máli, sem þrátt fyrir allt er staðfest í þessum endanlega dómi. Því sannleikur- inn er sá, að það er fyrst og fremst öryggislögreglan sem orðið hefur uppvís að því að leggja gildrur fyrir rannsóknardómarana og af- vegaleiða þannig dómsrannsóknina. En á bak við öryggislögregluna var í þessu máli, samkvæmt niðurstöðu undirréttar, hinn dularfulli frím- úrari og undirheimamaður, Licio Gelli. Skömmu eftir að hryðju- verkið í Bologna var framið bár- ust böndin að samtökum ítalskra öfgamanna til hægri. Á þriðja tug félaga í slíkum samtökum var handtekinn þrem vikum eftir sprenginguna, en skömmu síðar fóru að heyrast raddir um að hér hefði verið um erlent samsæri gegn Ítalíu að ræða. Og þann 13. janúar 1981 fannst dularfull ferð- ataska í járnbrautarlestinni sem fór á milli Taranto og Mflanó. í henni reyndist vera umtalsvert magn sprengiefnis sömu gerðar og notað hafði verið í Bologna. Jafnframt voru í töskunni erlend dagblöð og skilríki sem bentu til þess að taskan væri komin frá Þýskalandi. Þessi uppgötvun leiddi til þess að rannsókn máls- ins tók aðra stefnu, þangað til það uppgötvaðist að taskan um- um skoðun í málinu: dómsrann- sóknin og sakfelling Gellis í undirrétti hafi verið pólitískt lituð og tilkomin undir þrýstingi frá kommúnistaflokknum. ítal- ska dómararáðið vísaði þessum ásökunumá bug og svipti þennan lögfræðing starfsréttindum í 6 mánuði. Engu að síður virðist af- staða hans hafa haft áhrif á gang málsins og niðurstöðu fyrir áfrý- junarrétti. Köngulóar- netið „Niðurstaða áfrýjunarréttarins er síðasti vefurinn í köngulóar- neti sem umlukið hefur landið á síðustu 20 árum,“ sagði Achille Occhetto, formaður ítalska kommúnistaflokksins í kjölfar úrskurðarins. Hann sagði að sú stöðuga ógnun sem ítalskt lýð- ræði byggi við væri óþolandi, og bætti því við að nauðsynlegt væri að opna leyniskýrslur ítölsku leyniþjónustunnar og leyniþjón- usta annarra ríkja sem tengdust þessu máli og öðrum hliðstæðum. Sérstakt lagafrumvarp um leyni- þjónustuna liggur nú fyrir ítalska þinginu, þar sem gert er ráð fyrir lýðræðislegu eftirliti með starf- semi hennar og möguleika á opn- un leyndarskjala þegar ríkishags- munir krefjast að mati dómara eins og í þessu tilfelli. En Bologna-málið og niður- staða þess er því miður ekki ein- angrað tilfelli eins og áður er get- ið. Að minnsta kosti fimm fjölda- morð hliðstæð þessu eru enn óupplýst og hefur í fleiri tilfellum lyktað með sýknun í áfrýjunar- rétti. Dularfyllst er þó Ustica- málið, sem enn er í dómsrann- sókn eftir 10 ár og enginn virðist geta fengið botn í þrátt fyrir mikla eftirgrennslan, þar sem jafnvel forsetinn Francesco Cos- siga hefur haft afskipti af dómsrannsókninni. Ustica Það var þann 27. júní 1980, rúmum mánuði fyrir Bologna- sprengitilræðið, að farþegaflug- vél flugfélagsins Itavia af gerð- inni DC9 á leið frá Bologna til Palermo hrapaði í hafið skammt frá eyjunni Ustica með þeim af- leiðingum að allir um borð fór- ust, eða um 100 manns. Þetta „slys“ var mönnum lengi vel ráð- gáta og rannsókn þess leiddi lengi vel lítið í ljós. Það var ekki fyrr en 5 árum eftir slysið að rannsóknardómari í málinu skipaði sérstaka nefnd tækni- manna er annaðist málið. Eftir rannsókn, sem byggði meðal annars á brotum úr flakinu, sem fiskuð höfðu verið upp, skilaði þessi nefnd 5 tæknimanna ein- róma áliti í mars 1989, og niður- staðan kom á óvart: að mati nefndarmanna hafði þessi farþ- egavél verið skotin niður með flugskeyti frá annarri flugvél, og átti flugskeytið að hafa verið af þeirri gerð sem ítalski herinn hef- ur ekki aðgang að, en er hins veg- ar notuð bæði af bandarískum og frönskum herþotum. Þrátt fyrir þessa einróma niðurstöðu var málinu ekki lokið: ljóst var að upptökur úr flugumferðarstjóm og radarupptökur af svæðinu höfðu verið skemmdar eða faldar og önnur gögn varðandi rannsóknina höfðu verið „falin“ eða „gleymd“. Dómarar og tæknimenn sem unnu við rannsóknina kvörtuðu undan erf- iðu samstarfi við þær þjóðir sem hugsanlega áttu aðild að málinu, og ljóst var að háttsettir menn í her og leyniþjónustu höfðu bæði þagað um einstök atriði og logið til um önnur. Enn er allt á huldu um þetta dularfulla mál, þótt tímafresturinn fyrir rannsókn þess sé senn á enda. En af enda- lausum blaðaskrifum um málið er helst að skilja að menn áliti að vélin hafi verið skotin niður fyrir mistök í einhverri leynilegri loft- orrustu sem átt hafi sér stað á þessu svæði umræddan morgun, þar sem fleiri orrastuþotur hafa verið greindar á ratsjárupptökum á svæðinu á þessum tíma. Er talið að þar hafi hugsanlega verið um líbýskar og bandarískar vélar að ræða, og að hugsanlega hafi flug- /skeytið geigað og elt uppi vitlausa vél fyrir mistök. En hverjir sem hinu ábyrgu eru í þessu tilfelli sem og í þeim hryðjuverkum sem hér voru framin af fasistum á ár- unum 1969-80, þá er það ljóst að þeir virðast njóta vemdar innan ríkiskerfisins sem hefur með ótví- ræðum hætti beitt sér gegn því að sannleikurinn í þessum málum sjái dagsins ljós. „Hér hefur ekki enn birt af degi - hér ríkir enn niðdimm nótt,“ sagði Renzo Imbeni, borgarstjóri Bologna eftir dómsúrskurðinn. „í 21 ár hafa allir verið jafnir gagnvart lögleysunni, fómar- lömbin jafnt og ættingjamir. Hryðjuverkin í Mflanó, Brescia, Bologna, Ustica og hinir miklu glæpir mafi'unanr em allir án sak- borninga. Það er framskylda lýðræðisrfkisins að tryggja ör- yggi. Og þegar það getur það ekki, að tryggja réttlætið. í 21 ár hefur þetta ekki gerst. Það er því réttmætt að spyrja þeirrar spum- ingar, hvort við lifum í réttar- ríki.“ Orð hans virðast orð að sönnu. Frá Ólafi Gíslasyni fréttaritara Þjóðviljans í Porto Verde Föstudagur 27. júlí 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 19

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.