Þjóðviljinn - 27.07.1990, Qupperneq 24

Þjóðviljinn - 27.07.1990, Qupperneq 24
Schwarzenegger í aksjón. Lowe og Spader ræöa málin. Mars vs. Los Angeles Bíóborgin Fullkominn hugur(Total Recall) Leikstjóri: Paul Verhoeven Framleiðendur: Mario Kassar & Andrew Vanja Handrit: Ronald Shusset, Dan 0‘Bri- an, Steven Pressfield & Gary Gold- man Aðalleikarar: Arnold Schwarzeneg- ger, Sharon Stone & Rachel Ticotin Regnboginn íslæmum félagsskap(bad Influence) Leikstjóri: Curtis Hanson Framleiðandi: Steven Tisch Handrít: David Koepp Aðalleikarar: Rob Lowe, James Spa- der & Lisa Zane Það er verið að sýna tvær mjög ólíkar spennumyndir í bíó um þessar mundir. Onnur, Fullkom- inn hugur, í Bíóborginni, kostaði tæpar 90 milljónir dollara í gerð og skartar ofurmenninu Arnold Schwarzenegger í aðaihlutverki. Hin, í slæmum félagsskap, í Regnboganum, er öll minni um Eins og orðið er nokkuð ljóst eru framleiðendur í Hollywood afskaplega hrifnir af að gera framhald af myndum sem ganga vel. Og hér eru nokkur framhöld sem við getum átt von á í náinni framtíð. * Aliens III er í bígerð og það er Finninn Harlin sem leikstýrir. Hann hefur líka nýlokið við að leikstýra Die Hard II þar sem Bruce Willis bjargar alþjóðlegum flugvelli frá hryðjuverka- mönnum. * Nú er loksins búið að ganga frá Chinatown II en hún hefur verið á leiðinni síðan 1974 þegar sú fyrsta sló í gegn. í þetta skiptið fer Jack Nicholson ekki aðeins með aðalhlutverkið, leynilögg- una Jake Gittes, heldur leikstýrir hann líka. * Godfather III á að vera vænt- anleg í lok árs. Það er A1 Pacino sem leikur Guðföðurinn Michael Gorleone og sagan á að vera í beinu framhaldi frá því þar sem hún hætti síðast, 1979. * Þeir sem höfðu gaman af myndinni Good Morning Viet- nam geta hlakkað til, því það er verið að reyna að fá Robin Wil- liams til að leika í Good Morning Chicago. Hún er um útvarps- manninn Adrian Cronauer í Chicago 1968. * Highlander II gerist árið 2020 og það er Christopher Lambert sem er í aðalhlutverki sem fyrr. Sean Connery ku líka vera í myndinni þó hann hafi dáið í nr. 1. * Honey, I shrunk the kids sem 24 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ sig, t.d. kostaði hún ekki nema 9 milljónir dollara en það þykir lítið vestanhafs og aðalleikararn- ir eru með mun minni vöðva. Hún er nú samt að mörgu leyti „stærri“. En við byrjum á Fullkomnum hug. Ég man að þegar ég var í gaggó var sýnd einhver mynd í bíó um andstyggilegan morðingja sem aflimaði og aflífaði fólk með keðjusög eða einhverju álíka. Sumir af strákunum í mínum bekk voru afskaplega hrifnir af þessari mynd og töluðu allt að því andagtugir sín á milli um hvað það hefði verið obboslega raun- verulegt þegar hann (morðing- inn) sagaði hausinn af konunni og blóðið spýttist út um allt. Þessir sömu strákar ættu að ffla Fullkominn hug. Fólkið er drepið tugum saman á afskaplega raun- verulegan hátt. Það er skotið og barið og stungið með hnífum með tilsvarandi (ó)hljóðum og blóð- slettum, svo að manni dettur si svona í hug að einhver hluti af gekk svo vel í Bíóborginni fyrir nokkru á að halda áfram. Þar eru 3 handrit í deiglunni; Honey, I Made the Kids Invisible, Honey, I Sent the Kids to the Moon; og Honey, I Xeroxed the Kids. Spennandi? * Mel Gibson og Danny Glo- ver finnst svo gaman að vinna saman, að Lethal Weapon III ætti að líta dagsins ljós áður en langt um líður. * Anthony Perkins fær að leika Norman Bates einu sinni enn því það er búið að skrifa handritið að Psycho IV. * Það er hugsanlegt að Mary Poppins birtist bráðum aftur á hvíta tjaldinu, börnum eflaust til ómældrar ánægju. En engar frétt- ir hafa lekið um leikaraval. * Sylvester Stallone situr ekki auðum höndum því Rambo og Rocky eru báðir í vinnslu. Rambo þessum 90 milljónum hafi farið í jarðarfarir. Fullkominn hugur gerist í framtíðinni þegar fólk flakkar um sólkerfið, og myndin gerist að mestu á Mars. Schwarzenegger leikur mann sem bjargar plánet- unni og íbúum hennar frá bráðum bana, um leið og hann reynir að komast að því hvort hann er einn af góðu eða vondu gæjunum, byggingaverkamaður eða njósnari. Handritið er unnið lauslega eftir smásögunni „We can rem- ember it for you wholesale" eftir Philip K. Dick. (Hann skrifaði líka vísindaskáldsöguna Do And- roids dream of electric sheep? sem síðar varð að myndinni Bla- derunner). Dick er snjall rithöf- undur og söguþráðurinn er ekki það versta. En utan á hann er hlaðið svo mörgum tæknibrellum og miklu ofbeldi að hann týnist. Leikstjórinn er enginn nýliði í að setja ofbeldi upp á hvíta tjald- ið, það er Hollendingurinn Paul IV mun í þetta skiptið halda merki vistfræðinnar á lofti! Rocky V er hinsvegar kominn með heilaskemmd af því hann hefur verið barinn svo oft í hringnum, og ráfar um fátækur og vinasnauður. Stallone vildi víst láta hann deyja í þessari mynd en United Artists stúdíóið gaf ekki leyfi. * Tökur á Three Men and a Baby II byrja næsta vor en mynd- in mun heita Three Men and a Little Lady. Og þar með eru Kan- ar komnir fram úr Frökkum sem áttu upprunalega handritið Trois Hommes et un Couffin. Þetta er aðeins brotabrot af því sem er væntanlegt. Young Guns II, Who Framed Roger Rabbit II, Robocop II, Gremlins II, Be- verly Hills Cop III og Batman II koma líka fyrr eða síðar. Góða skemmtun. sif Verhoeven sem ber ábyrgð á þessu, sá sami og gerði Robocop fyrir nokkrum árum. Um Schwarzenegger er fátt að segja, hann verður aldrei leikari, en hann er feikilega duglegur að ber j a og skj óta og meira þarf ekki hér. Þó að Total Recall sé ein af dýrustu myndum sem gerð hefur verið þá er ekkert mál að koma svoleiðis fyrirtæki af stað. Aðal- leikarinn trekkir pottþétt og leikstjórinn er búinn að sanna sig líka, svo eru nokkrar skvísur sett- ar inn upp á punt. Það var annað uppi á teningnum þegar fram- Ieiðandi myndarinnar I vondum félagsskap, Tisch, fór að leita að fyrirtæki til að fjármagna hana. Universal, Columbia, Orion og fleiri neituðu öll nema henni yrði breytt, hún yrði gerð glaðlegri og settur á hana happy end. Það fannst Tisch og höfundinum, Ko- epp, alveg ómöguiegt og það var ekki fyrr en þeir töluðu við lítið B-mynda fyrirtæki, Trans World Entertainment, sem hafði áhuga á að búa til betri myndir, að hjól- in fóru að snúast. Þó eru bara tveir drepnir í henni á móti tugum í Fullkomnum hug. James Spader (úr Sex, Lies and Videotapes) leikur Michael, við- skiptastrák á uppleið. Hann er trúlofaður prúðri ljósku af góð- um ættum, gengur vel í vinnunni og á flotta íbúð. Hann heldur að hann sé sáttur við allt en í ljós kemur að það þarf afskaplega lítið til að hann breyti algjörlega um lífsstfl. Dag einn gengur hon- um illa á skrifstofunni og hann fer niður á strönd, í framhaldi af því kynnist hann Alex (Rob Lowe). Alex er myndarlegur og sjarmer- andi flækingur, eigur hans kom- ast allar fyrir í einni íþróttatösku. Michael fellur alveg fyrir Alex og lífsvenjum hans. Hann virðist ekki bundinn neinum, hefur enga atvinnu og enga siðgæðisvitund. Alex hjálpar Michael með vanda- mál í vinnunni, fer með hann í undarleg partý og hjálpar honum að ná í æðislega stelpu (Lisu Zane) eftir að hann klúðrar trú- lofuninni. Michael kynnist nýrri hlið á sjálfum sér í gegnum Alex, dekkri og harðari hlið. Svo kem- ur að því að Alex ofbýður honum og þá vill Michael losna við hann, en það er hægara sagt en gert að losna við djöfulinn þegar maður hefur selt honum sálu sína. Rob Lowe vendir hér sínu kvæði í kross og sýnir á sér alveg nýja hlið. Vegna útlitsins hefur hann yfírleitt lent í að leika sæta viðkvæma drengi í myndum eins og Youngblood og Oxford Blues. En hann getur svo sannarlega meira en að brosa fallega. Tvískipting persónunnar er ógnvekjandi. Fyrst er hann eins og samnefnari yfir allt sem er elskulegt og sjarmerandi þó hann sé pínulítið geggjaður. Svo magn- ast geggjunin og djöfulskapurinn skín í gegnum elskulegt brosið. James Spader fór beint að leika í þessari mynd eftir leiksigurinn í Sex, Lies and Videotapes. Hér leikur hann mann sem kynnist dökku hliðinni á sjálfum sér og afleiðingunum af því. Hann er fanta góður leikari og það verður gaman að sjá hvað hann tekur sér næst fyrir hendur. Þriðja aðal- hlutverkið er eiginlega í höndum myndbandsvélar, en það er ómögulegt aö fara nánar út í það án þess að eyðileggja söguþráð- inn fyrir væntanlegum bíógest- um. Það eru ungir menn sem standa að þessari mynd. Aðalleikararnir eru ungir, handritshöfundur er aðeins 26 ára og Curtis Hanson, leikstjórinn, er heldur ekki gam- all. Hann á eina þekkta mynd að baki, Bedroom Window, sem er tryllir eins og þessi en ekki eins góð. Honum tekst vel að skapa andstæður, eins og á milli Micha- el og Alex og undirstrikar þær með borginni Los Angeles þar sem myndin gerist. Michael þrífst á daginn innanum bindisklædda menn og kor.ur, innanum háhýsi, síma og tölvur. Alex kemur hins vegar út á næturnar og er um- kringdur sexý konum, nýstár- legum listamönnum og háværri tónlist. Þetta er smart mynd og fyrsta flokks afþreying. Hún var valin besta spennumyndin á kvik- myndahátíð á Ítalíu, ég veit ekki hvernig samkeppnin var en hún á það örugglega skilið. Sif Hðskólabíó Leitin að Rauða október (The hunt tor Red October) ** John McTiernan, sá sem gerði Die Hard, cr nú kominn af fimmtugustu hæð og niður á fimmhundruð metra dýpi. Sean Connery í hlutverki rússnesks kafbátaforingja á- kvcður að flýja til Bandankjanna með kaf- bátinn. Fyrsta nostalgíumyndin um kalda stríðið en alveg örugglega ckki sú síðasta. Vlnstri fóturinn (My left foot) **** Algjörlega yndisleg mynd sem maður get- ur ekki annað en fallið fyrir, nokkurskonar óður til líkamshluta. Daniel Day Lewis sýnir manni í hlutvcrki Christi Brown að vinstri fótur er allt sem maður þarf til að vera sjarmerandi og sexy. Shlrley Valentine *** Paulinc CoUins fer á kostum sem Shirley Valentine! (Petta er klisja en það er alveg satt.) Shirley er kona sem talar við eldhús- vegginn sinn, afþví alhr aðrir í kringum hana eru svo leiðinlegir. Svo talar hún líka við stein en hann skilur hana ekki afþví hann er grfskur. Þetta cr skemmtilcg mynd um konu sem er dálítið galin og skammast sín ekkert fyrir það. Clnema Paradiso (Paradísarbfólð) **** Pað er í rauninni fáránlegt að vera að gefa svona mynd stjörnur, því hún cr langt yfir alla stjörnugjöf hafin. Svona mynd er að- eins gerð einu sinni og þessvcgna má eng- inn scm hefur hið minnsta gaman af kvik- myndum missa af henni. Siðnefnd lögreglunnar (Internal affairs) 'V-i Það cru aðalleikararnir Gere og Garcia scmfá þessar stjörnur, þeircru báðirgóðir, allt of góðir fyrir þetta lélega handrit sem er mengað af kvenfyrirhtningu. Horft um öxl (Látum það flakka) 0 Þetta er ein leiðinlegasta mynd sem ég hef séð lengi. Hún er svo fyrirsjáanleg að mað- ur getur farið heim eftir fimm minútur og samt vitað endinn. Ég skil bara ckki hvað afburðaleikarar á borð við Hopper og Sutherland eru að gera þama. Stjörnubíó Stálblóm (Steel magnolias) *** Þetta er ekki „skemmtilegasta gamanmynd allra tíma“ eins og stendur í auglýsingunni. Þetta er rcglulega skemmtileg mynd um líf sex vinkvenna í smábæ. En lífið er ekki alltaf tóm skemmtun svo að þið skuluð taka einn vasaklút með. Fjölskyldumál **Vi Mynd um þetta eilífa vandamál, hverjir geta eignast börn og hverjir ekki og hvers- vegna það viU ekki alltaf fara saman að þeir sem geta það vilji það. Söguþráðurinn er ósköp cinfaldur en lcikurinn stórgóður, sérstaklega hjá hinni ungu Mary Stcwart Masterson. Laugarásbíó Unglingagengin (Cry Baby) *** Dans- og söngvamynd á la John Waters. Töffarastrákur verður hrifinn af prúðri stelpu og gagnkvæmt. Síðan syngja þau í gegnum alla erfiðleikana. Ef ykkur finnst að þið kannist við söguþráðinn þá skuluð þið samt fara því útfærslan er alveg splúnk- uný. Alltaf (Always) ** Spielberg cr hér með ansi væmna mynd um flugmann sem deyr cn kemur aftur til að hjálpa ungum flugmanni að verða góður og reyna við ckkjuna f leiðinni. Dreyfuss er ekki alveg nógu sannfærandi scm fmynd fífldirfskunnar en Hunter og Goodman eru bæði mjög góð. Sif Framhaldsmyndir — sama gamla sagan?

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.