Þjóðviljinn - 27.07.1990, Qupperneq 25
MYNDLISTIN
Árbæjarsafn, opið alla daga nema
má kl. 10-18. Prentminjasýning í Mið-
húsi, kaffi íDillonshúsi, Krambúð, og
stríðasárasýningin „og svo kom
biessaðstríðið''.
Ásmundarsalur, Helgi Valgeirsson
sýnir teikningar og málverk. Opið
daglega kl. 14-22, til 6.8.
Félags- og þjónustumiðstöð aldr-
aðra við Bóistaðarhlíð 43, María
Ásmundsdóttir, málverkasýning.
Opin má-fö kl. 14-16, til 1.8.
Ferstikluskáli Hvalfirði, Rúna Gísl-
adóttir sýnir vatnslita-, akryl-, og
klippimyndir. Opið fram til kl. 23 dag
hvern.
FÍM-salurinn, Garðastræti 6, Inga
Þórey Jóhannsdóttir, málverk, opið
alladagakl. 14-18, til 7.8.
Gallerí 8, Austurstræti 8, sýnd og
seld verk e/um 60 listamenn, olíu-,
vatnslita-, og grafíkmyndir, teikning-
ar, keramík, glerverk, vefnaður, silf-
urskartgripir og bækur um íslenska
myndlist. Opið virka daga og lau kl.
10-18ogsu 14-18.
Gallerí Borg, Austurstræti 3 og Síðu-
múla 32, grafík, vatnslita-, pastel- og
olíumyndir, keramikverk og módel-
skartgripir, opið lau 10-14.
Hafsteinn Guðmundsson smiður [leldsmiðjuÁrbæjarsafns.Ásunnudag
verður í safninu sýnt handbragð fyrri tíma, og margt fleira sér til gamans
gert.
Hvað á að gera um helgina?
i Arthur Morthens
! sérkennslufulltrúi
Ætlunin er að fara í smáferðalag á Snæfellsnesið norðanvert og að
láta kylfu ráða kasti hvert farið verður nákvæmlega. Ef veðrið verður
okkur hagstætt er ætlunin að fara út í Breiðafjarðareyjar.
Gallerí Nýhöfn, Alcopley opnar mál-
verkasýningu í dag kl. 14-16. Sýning-
in er opin virka daga nema má kl.
10-18, og kl. 14-18 um helgar.
Hafnarborg, á morgun opnaður nýr
sýningarsalur, Sverrissalur, kl. 14,
jafnframt opnuð sýning á verkum úr
listaverkasafni hjónanna Sverris
Magnússonarog IngibjargarSigur-
jónsdóttur, sem þau gáfu safninu.
Opið alla daga nema þri kl. 14-19, til
27.8.
Kjarvalsstaðlr, árleg sumarsýning á
verkum Kjarvals, nú undir yfirskrift-
inni Land og fólk. Vestursalur: Nína
Gautadóttir, málverk. Opiðdaqleqa
frákl. 11-18.
Listasafn Einars Jónssonar opið
alla daga nema má 13.30-16, högg-
myndagarðurinn alla daga 11-17.
Listasafn íslands, sumarsýning á
íslenskum verkum í eigu safnsins.
Opiðdaglega kl. 12-18.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
sýn. á andlitsmyndum Sigurjóns.
Opið lau og su kl. 14-18, má, þri, mi
og fi kl. 20-22. Tónleikar á þriðju-
dagskvöldum kl.20:30.
Listhús við Vesturgötu 17, Einar
Þorláksson, Elías B. Halldórsson,
Hrólfur Sigurðsson og Pótur Már Pét-
ursson sýna málverk. Opið daglega
kl. 14-18, til 31.7. Ath. síðastasýn,-
helgi.
Menntamálaráðuneytið, Húbert Nói
og Þorvaldur Þorsteinsson.
Minjasafn Akureyrar, Landnám í
Eyjafirði heiti sýningar á fornminjum.
Opið daglega kl. 13:30-17, til 15.9.1
Laxdalshúsi Ijósmyndasýningin Ak-
ureyri.opiðdaglegakl. 15-17.
Minjasafn Rafmagnsveitunnar,
húsi safnsins v/ Rafstöðvarveq, su
14-16.
Norræna húsið, kjallari: Snorri Arin-
bjarnar, málverk. Opin 14-19 dag-
lega, til 26.8.
Reykholt, M-hátíð í Borgarfirði, sýn-
ing borgfirskra myndlistarmanna.
Samsýning 19 listamanna. Opið dag-
legakl. 13-18, til 6.8.
Skálholtsskóll, Gunnar Örn Gunn-
arsson, sýningin Sumar í Skálholti,
opinjúlí-ágústkl. 13-17.
Vín, Akureyri, Hallgrímur Helgason
sýnirgamanmyndir. Opiðkl. 10-
23.30 alla daga, til 29.7.
Þjóðmlnjasafnið, opið 15.5-15.9
alladaganemamákl. 11-16.Bogas-
alur: Frá Englum og Keltum.
TONLISTIN
Sumartónleikar í Skálholtskirkju,
önnur helgi: 28.-29.7., lau kl. 15
Söngverk e/Bach og ættmenni hans.
Kl. 17 konsertar fyrir 2,3 og 4 semb-
alae/J.S.Bach. Su kl. 15 3 sembalk-
onsertar e/Bach. Kl. 17 messa.
Tveir vlnlr og annar í fríi, Laugavegi
45; í kvöld Megas ásamt hinni stór-
hættulegu hljómsveit. Lau islands-
vinir, su og má blúsrokktríóið P.E.S.
LEIKLISTIN-
Ferðaleikhúsið, Tjarnarbíói Tjarn-
argötu 10E, Light Nights, í kvöld, lau
ogsukl.21.
HITT OG ÞETTA
Hana-nú í Kópavogi, samveraog
súrefni á morgun lau, lagt af stað frá
Digranesvegi 12 kl.10. Komum sam-
an upp úr hálftíu og drekkum mola-
kaffi. Púttvöllurinn á Rútstúni öllum
opinn.
Félag eldri borgara, Göngu-Hrólfur
hittast á morgun lau kl. 10 að Nóatúni
17. Opið hús Goðheimum á su frá kl.
14. Frjálst spil og tafl. Dansleikur
hefstkl.20.
Útivist, helgarferð 27-29; Básar í
Goðalandi, brottför í kvöld kl. 20.
Sunnudag: Katlatjarnir - Ölfus-
vatnsgljúfurkl. 10:30. Þorsteinsvík -
Hellisvík kl. 13 (róleg ganga). Brottför
í su-ferðir frá BSl-bensínsölu, stans-
aðv/Árbæjarsafn.
Ferðafélag (slands, helgarferðir:
Þórsmörk, miðsumarsferð. Land-
mannalaugar- Eldgjá - Háifoss.
Kjölur- Kerlingarfjöll - Hveravellir.
Álftavatnsskáli. Á sunnudögum
dagsferðir í Þórsmörk.
Árbæjarsaf n, starfshættir fyrri tíma á
su kl. 13-17, járnsmíði, trésmíði, tó-
vinna, prentsmíði o.fl. Krambúð, elsti
bíll landsins, messa og kirkjukaffi.
Norræna húsið, (slandskynni á lau
kl. 17 á sæ, kl. 18 á fi, Borgþór Kærn-
ested. Su fyrirlestur: Kristofer Glam-
an forstjóri Carlsberg um fjárframlög
Heitir ÚR RÍKI mT ARI TRAUSTI OUÐMUNDSSON SKRIFAR
■ m m NATTURUNNAR 20
rerar
Möttull jarðar er allur massinn
sem liggur milli þunnrar skorp-
unnar og hins glóheita kjarna.
Dýpi möttulsins er um 2900 kíl-
ómetrar. Hann er nær örugglega
úr dálítið lagskiptu bergi sem er
ekki óskylt basalti og inniheldur
mikið af málmum eins og áli,
járni og magnesíum. Þótt mött-
ullinn sé mjög heitur er þrýsting-
ur svo hár þarna í djúpunum að
bergið er víðast hvar „fast“ í sér.
Það mjakast þó undan tröllaukn-
um átökum sem eiga sér orsök
m.a. í mishitun. Hún veldur því
að berg sem er heitara en um-
hverfið er hlutfallslega léttara en
aðliggjandi möttulefni og rís því
löturhægt meðan „köldu“ hlut-
arnir síga. Sums staðar (og í frek-
ar smáum stíl) er möttulefnið
bráðið að hluta (algengast 5%-
25%, getur þó náð hærra hlut-
falli). Þar er ein helsta uppspretta
kviku. Svo er t.d. háttað undir
hryggjunum og við trogin sem
einkenna annars vegar plötuskil
og hins vegar plötumót. En utan
þeirra og reyndar í nánd líka eru
svo blettir með snarpri eldvirkni.
Athuganir benda til að undir
blettunum eru stróklaga upp-
streymissvæði hlutbráðar, 50-100
km breið og djúp (líklega nokkur
hundruð kílómetrar á dýpt).
Uppstreymið hefur verið nefnt
möttulstrókur og svæðið ofan við
heitur reitur - og reyndar oft átt
við hvort tveggja með hugtakinu
heitur reitur.
Milli 20 og 30 heitir reitir teljast
vera á yfirborði jarðar og er ekki
enn unnt að svara hvers vegna.
Sumir eru á (og undir ef við höld-
um okkur við tvöföldu merking-
una) meginlöndum eins og
Yellowstone-reiturinn í Banda-
ríkjunum, aðrir eru um miðbik
jarðskorpufleka (platna) eins og
sá sem fæðir af sér Hawaií-eyjar
og enn aðrir við jaðra fleka eins
og íslandsreiturinn. Og þegar
saman fer gliðnun á hrygg vegna
plötuskriðs (landreks) og virkni á
heitum reit, líkt og hér, er tíðni
eldgosa há og framleiðslan mikil.
Þar er komin meginskýringin á
tilvist svo stórrar eyju sem ísland
er úti í miðju Ballarhafi.
Á heitum reit gubbast upp
ósköpin öll af kviku; möttu-
lstrókurinn færir hlutbráð sífellt
nær yfirborðinu og minni þrýst-
ingi og eykst þá hlutfall bráðar
sem enn léttist miðað við jaðra
stróksins og þannig koll af kolli.
Uppi opnast sprungur og/eða
Möttulstrókur
JORÐ^
KVIKA
4
MÖTTULL 'Att/Í
Lækkandi
þrýstingur
4
Uppstreymi
heits
bergs
'bráðnun*
•ttti
Hundruð
km
I
I
1
ÞJÓÐVUJINN / ÓHT
r
Heitir reitir eru hringlaga svæði, 50-100 km í þvermál, á
yfirborði jarðar. Þá einkennir mikil eldvirkni. Undir er
hægfara, stígandi strókur úr heitu bergi, möttulstrókur.
gosmiðstöðvar myndast (eldfjöll
sem teljast megineldstöðvar er
gjósa margendurtekið). Gos-
bergið er oft einhver deilitegund
basalts og mörg gosanna ákaflega
settleg en afkastamikil flæðigos
þar sem þunnfljótandi hraun
bunar í loft upp og storknar sem
helluhraun. Ein einkennandi teg-
und gosstöðva eru breiðvaxnar
og fremur flatar dyngjur af ætt
Skjaldbreiðar NA Þingvalla og
Mauna Kea á Hawaií- eyjum.
Yfirleitt er litið á möttulstróka
sem kyrrstæð fyrirbæri. Plöturn-
ar yfir þeim rekur hins vegar til
einhverrar áttar. Afleiðingamar
eru þær að gossvæði á yfirborði
jarðar færast úr stað því strókurin
„gatar“ í sífellu plötuna yfir sér.
Islandsreiturinn var virkur undir
Grænlandi fyrir um 40-70 milljón
árum og hefur þá (og síðan)
„færst" í SA eða A-átt eða með
öðrum orðum: Platan yfir kyrr-
stæðum stróknum hefur færst í
vestur og eldvirkni reitsins færst
nær og nær lengdargráðum ís-
lands. Um leið hafa plötuskilin
verið að færast og taka sig upp á
nýjum stöðum þannig að allflók-
in atburðarás hefur fætt af sér
misgömul basaltsvæði á V-
Grænlandi, A-Urænlandi, í Eær-
eyjum og á norðanverðum Bret-
landseyjum.
Fyrir um 15-20 milljón árum
var orðið fremur stutt milli plötu-
skila í N-Atlantshafinu og heita
reitsins sem enn var fyrir vestan
þau. Eldvirkni jókst þá til muna
þar sem nú er ísland og upp
hlóðst myndarleg eyja og gerir
enn. Rek landsins í heild (burtséð
frá gliðnun mill platnanna) hefur
„fært“ heita reitinn undir landið,
leitt til uppstokkunar virkra
gliðnunarsvæða á því og er nú
reiturinn að komast austur fyrir
plötuskilin. Miðja hans er talin
nokkurn veginn við NV-jaðar
Vatnajökuls og ef fer sem horfir
nálgast strókurinn austurjaðar
landsins á næstu ármiljón eða
svo. En hvort það hefur í för með
sér að eldvirkni færist æ austar á
landinu og að breyting verður á
rekbeltum skal ekki fjölyrt um,
en ekki hafnað heldur.
Föstudagur 27. júlí 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 25'