Þjóðviljinn - 07.09.1990, Síða 2

Þjóðviljinn - 07.09.1990, Síða 2
#rxrif „I skólanum, í skólanum...“ Grunnskólar Reykjavíkur voru settir í gær. Af svip þess- ara yngstu grunnskólanema sem eru að hefja skóla- gönguna má ráða að eftir- væntingin hafi verið mikil eins og þessar myndir Kristins sýna. Sumir voru óöryggið uppmálað og héldu sig sem næst mömmu eða pabba, aðrir horfðu athugulum augum á framandi umhverfið á meðan enn aðrir létu sérfátt um finnast og höfðu allan hugann við knattfimina. MyndirKristinn. ER EKKI HAG- KVÆMARA AÐ LÁTA ÞÁ BOXA? Nýjasti leikur Kópavogsbúa var að hækka laun bæjarstjórans um hátt í hundrað þúsund kall svo að hann hefði hærri laun en Davíð. Það stóð ekki á svari frá Davið sem hækkaði sín laun um hundrað og fimmtíu þúsund kall og er nú aftur kominn með hærri laun en Sigurður Geirdal. Nú bíða allir spenntir eftir svarleik Kópavogsbúa. DV FJANDSKAPUR VIÐ LÍFRÍKIÐ Stolt (danska) herskipsins er 76 millimetra sjáífvirk fallbyssa. Með þessum kostagrip má skjóta spörfúgla af fimm kíló- metra færi og hitta. DV NÝ BÚGREIN FUNDIN? „Að leika í klámmyndum er gott starf,” segir Ginger. „Það er vel borgað og maður fær tæki- færi til að elskast með fallegum konum og körlum.” Sem sagt draumastarf. Tíminn LIFI ÍSLENSKT HUGVIT! Hann hafði ætlað að borga leigubíl með merkimiðum utan af tómatsósuflöskum sem ein- hver óprúttinn íslendingur hafði prangað inn á hann. Morgunblaóið OG MOGGINN HELSTA MÁLGAGN OFBELDISINS Góð auglýsing er þannig hvorki góð né vond en hún er valdbeiting. Morgunblaóió ENDA KEMST EKKI HVER SEM ER AÐ ÞAR Uppselt i fangaklefúm. Fyrírsögn í DV LAUSN UNGLINGA- VANDANS Við erum orðnir nokkuð þreyttir á þessum ólátum ung- menna og teljum best að þau verði send með bát út í eyjar á föstudögum og ekki sótt fýrr en á sunnudagskvöldin. Lögreglumaóur á Olafsvík í DV SKILGREININGA- VANDI AFGREIDDUR Kári villtist um þetta leyti inn í eldhús og sagði við þær: „Þið eruð bara hörkueld- húsmellur.” Og svarið kom um hæl: „Við erum engar eld- húsmellur, við erum pottapíkur.” Dagur UNDUR TILVERUNNAR Sumarið kom með vorinu og hefúr varað síðan. Bæjaríns besta ALLTAF ER EITTHVAÐ AÐ Veðurblíðan á sumrinu góða kom ekki í veg fyrir storma á vettvangi þjóðmála. Bæjaríns besta 2 SIÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 7. september 1990

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.