Þjóðviljinn - 07.09.1990, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 07.09.1990, Blaðsíða 17
Brennivínið gefur anda og snilli Goðsögnin um áfengið og skáldskapinn Hemingway: Þeir kunna ekki að drekka, en það kann ég. Ég hefi verið að blaða í bók sem heitir „Listagyðjan þyrsta". Hún er eftir Tom nokkurn Dardis og undirtitill hennar er: „Áfengiö og bandarískir rithöfundar." Gægjugats- bókmenntir? Og nú getið þið spurt strax: Er eitthvað merkilegt við drykkju- skap bandanskra rithöfunda? Jafnvel þótt heimsfrægir menn eins og William Faulkner eða Hemingway drekki eins og svampar, séu jafnvel sendir í af- vötnun hvað eftir annað eins og raunin varð á með þann fyrmefn- da: hvaða máli skipti það? Verða þeir eitthvað merkilegri eða ómerkilegri rithöfundar fyrir bragðið? Það er nú spurningin. Reyndar tekur maður sér slíka bók í hönd með nokkrum fyrir- vara. Maður heldur að hér sé eina ferðina enn verið að leggjast á glugga hjá frægu fólki, hnýsast í einkamál. Og einhver slíkur keimur er óneitanlega af bókinni. Þó verður hún í rauninni miklu stærri en slíkar slúðurbækur og ber ýmislegt til. Fyrst þó það, að bókinni er ætlað að kveða niður goðsögnina um snilldina og brennivínið. Þá hugmynd að þetta tvennt eigi samleið. Eða eins og segir í kvæði Frödings um skáldið Wennerbóm sem Magnús Ásgeirsson þýddi: „Brennivínið gefur anda og snilli“... Fimm Nóbelsskáld... Og þá er ekki að ástæðulausu spurt um einmitt bandaríska rit- höfunda og brennivínið. Þegar bókin var skrifuð höfðu sjö innfæddir Bandaríkjamenn hlotið Nóbelsverðlaun í bók- menntum og fimm þeirra voru alkóhólistar. Sinclair Lewis (höf- undur Babbit), leikskáldið Eug- ene O'Neill, William Faulkner, Ernest Hemingway og John Steinbeck. Og ef skyggnst er um bókmenntasviðið ameríska þá er fljótgert að bæta yið nöfnum. Scott Fitzgerald og Tennessee Williams, Jack London og Thom- as Wolfe, Dorothy Parker og Ro- bert Lovell og margir fleiri - öll voru þau þorstlát í meira lagi. Með öðrum orðum: listinn er það glæsilegur að hann virðist hin prýðilegasta staðfesting á því, að reyndar sé brennivínið hollt sköpunargáfunni. Menn freistast til að taka mark á gömlum og nýj- um kenningum um það, hvemig áfengið losar um hömlur, stækk- ar vitundina, gefur nýja sýn, hug- myndum um að skáld EIGI að vera ölvað - með hvaða ráðum sem væri, hvort heldur það drekkur eða notar sjálfan skáld- skapinn og hugarflugið sem vím- ugjafa. Ófullur er maður ekki til Þeir bandarísku rithöfundar sem bókin fjallar um (Faulkner, Fitzgerald, Hemingway og O'Neill) höfðu allir mikla trú á krafti vímunnar. Siðmenningin byrjar á því að menn eima sterka drykki, sagði Faulkner. Snafsinn er það eina sem fær mig til að finnast ég vera lifandi, sagði Eug- ene ONeill. Helst vil ég sjá hvem mann fullan, sagði Hemingway: Maðurinn er ekki til fyrr en hann er fullur. Með öðrum orðum: veruleikinn er eitthvað skertur, leiðinlegur og aumur án áfengis. Þeirri afstöðu, sem er reyndar einkennandi fýrir alla alkóhól- ista, hvort sem þeir kunna að koma fyrir sig orði eða ekki, lýsti Scott Fitzgerald (höfundur The Great Gatsby), á eftirminnilegan hátt: „Ég var aldrei á því að taka samtíðinni eins og hún er, heldur reyndi alltaf að breyta henni, bæta hana, stundum jafnvel að eyðileggja hana. Ég átti mér alltaf fjarlægan sjóndeildarhring sem var glæsilegri en það sem nær var, einhversstaðar var himinn- inn blárri.“ Hvers vegna drekkur Jeppi? Bókarhöfundur gerir sér það til erinda að ráðast gegn þessum goðsögnum, þessum kenningum, og rífa þær rnður með því að rekja feril þeirra fjögurra rithöfunda sem fyrr vom nefndir. Hann kemur víða við: gerir m.a. grein fyrir þeim bandarísku karl- mennskuhugsjónum sem gerðu drykkjuskap að manndómsraun (Hemingway var mjög á þeim buxum). Einnig fyrir þeim orðstí sem áfengið fékk á bannárunum í Bandaríkjunum, þegar rithöf- undur gat talið það sér til upp- reisnar gegn kerfinu að hella sig fullan. (Helvítis ríkisvaldið var búið að banna OKKUR að drekka!). En fyrst og síðast hefur hann hugann við nútíma skilning á alkóhólisma og rekur það hvemig þeir ágætu höfundar sem um ræðir falla að honum eins og flís við rass. Allt á sínum stað Tom Dardis getur þess, að til skamms tíma hafi það verið hálf- gert feimnismál að kalla hlutina réttum nöfnum: merkir rithöf- undar drekka kannski of mikið eða illa, en það má helst ekki kalla þá alka. (Ef við lítum okkur nær: það var ekki fyrr en í sam- talsbók sem kom út í fyrra, að dóttir Einars Benediktssonar tekur af skarið með það að hann hafi verið „það sem nú er kallað alkóhólisti“.) Dardis rekur síðan brennivínssögu höfundannna - bæði í einkalífi og ritstörfum. Þar er náttúrlega allt það að finna á sínum stað, sem til framvindu alkóhólisma heyrir. Skáldin dýrka áfengið og kveða því lof, þeir fara smám saman að óttast það um leið, reyna að breyta til: skipta um bústað, skipta um maka, skipta um víntegundir. Þeir reyna tímabundið bindindi og hófdrykkju, fá sér jafnvel gæslumann sem á að gefa þeim hæfilegan skammt á hverjum degi (Faulkner). Þeir eru reglu- lega lagðir inn til afvötnunar (Faulkner) leita til sálfræðinga (0‘Neill), þeir skandalisera, lemja konumar sínar og kenna þeim um eigin drykkjuskap. Þeir vísa náttúrlega frá sér með hroka öllum tilmælum til að þeir hætti að drekka eða slái því á frest - og er til dæmis sögð eftirminnileg saga af William Faulkner sem dregur vel fram þennan gikks- hátt. Sagan er sú, að dóttir Faulkners, Jane, sá að karl faðir hennar var að byrja á túr skömmu fyrir afmælið hennar og hún bað hann (aðeins í þetta eina sinn) að fara nú ekki að drekka. Hann leit á hana kalt og sagði: „Veistu, það man enginn lengur hvað krakkarnir hans Shakespe- ares hétu.“ En fyrst og síðast eru þessir höfundar iðnir við hina fornu LÚn$t afneitunarinnar. Ekki síst Hemingway. Hann var maður mjög hraustur og þoldi vel dryk- kjuna frameftir aldri. Hann var líka sannfærður um að „hinir“ væru fyllibyttur - Faulkner og Fitzgerald. Af því þeir kynnu ekki að drekka. Hefðu ekki þá réttu afstöðu og það rétta þol. En sjálfur var hann sannfærður um að hann kynni að drekka: það er allt í lagi með mig, hinir eru verri. Niöurbrot skálds Bókarhöfundi nægir ekki að rekjajþað ítarlega hvemig stór- skáldtn hans fylgja nákvæmlega alkóhólisku .mynstri: höfuðtil- gangurinn er að sýna fram á að drykkjuskapurinn hafi aldrei lagt þeim lið við skriftir og fljótlega snúist gegn þeim og brotið gáfu þeirra niður. Þeir Faulkner, Fitz- gerald og Hemingway endast allir fram undir fertugt - sitt hvomm megin við þau tímamót skrifa þeir síðustu stórverk sín, þar eftir tekur hnignunin við. Sem er mjög brött, einkum í dæmi Fitzgeralds. Að vísu er það svo að „galdur nafnsins“ vinnur með höfundun- um. Gerir það til dæmis að verk- um, að lélegt verk eins og „Yfir ána og inn undir trén“ sem Hem- ingway sendi frá sér 1950 og of- lofuð stutt skáldsaga, „Gamli maðurinn og hafið“ sem kom skömmu seinna, þessi verk seld- ust fimavel. Maðurinn var orðinn svo frægur að rödd gagnrýninnar koðnaði niður: hver var sá að hann þyrði að segja að kóngurinn væri ekki í neinu? Sá sem hætti Tom Dardis gerir allvel grein fyrir sínu máli, þótt hann mætti reyndar fara betur út í einmitt þá hnignun í sköpunarverki höfund- anna sem er aðaltrompið á hans hendi í slagnum við goðsögnina lífseigu. (Og mætti þá á hinn bóg- inn spara sjálfar fylliríssögurnar, sem era því miður allsstaðar eins.) Hann hefur reyndar eitt gott tromp í hendi - en það er Eugene 0‘Neill. Eugene Ó‘Neill var alinn upp í fíklafjölskyldu, faðir hans og bræður alkóhólistar og móðirinn morfínisti, og hann trúði aldrei á að það færi í raun- inni saman að skrifa og drekka. Rosalegar uppákomur í eigin drykkju, dapurleg örlög annarra í fjölskyldunni og vaxandi sköpunartregða - allt þetta sam- einaðist um að gera Eugene O'Neill svo hræddan við brenni- vínið, að þegar hann var 38 ára gamall rak hann tappann í heimsbokkuna. Það var hoU hræðsla. Þetta ágæta leikskáld átti rúman áratug eftir með sæmi- legri heilsu - og á þeim tímum skapaði hann mörg sin bestu verk. Og þá tvö leikrit sem era með því merkilegasta sem um fíkn hefur verið skrifað: „ísmað- urinn kemur“ og „Húmar hægt að kvöldi“ sem er reyndar saga hans eigin fjölskyldu. Niðurstað- an er náttúrlega sú, að betur hefðu fleiri orðið nógu hræddir - áður en það varð um seinan. ^ppf,; a; ■ Eugene O'Neill: Hann varð nógu William Faulkner: Siðmenningin byrjar Scott Fitzgerald: Himinninn er blárri hræddur. á bruggi. annarsstaðar. Föstudagur 7. september 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 17

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.