Þjóðviljinn - 07.09.1990, Side 3
FRETTIR
68 55
msam
Rúna og Gestur opnuðu í gær sýningu í Gallerí Borg í Pósthússtræti 9.
Var þar samankominn mikill fjöldi gesta til að gleðjast með þeim
hjónum. Gestur og Rúna hafa tekið þátt í fjölda samsýninga, bæði hér
heima og erlendis, og haldið tólf einkasýningar, þá síðustu i Kaup-
mannahöfn íágúst 1989. Sýningin í Gallerí Borgeropinfrákl. 14 til 18
um helgina, en stendur til (ariðjudagsins 18. september. Á myndinni
má sjá þau Rúnu og Gest í hópi vina og listunnenda við opnunina í
gærdag. Mynd: Jim Smart.
Glóðvolgar þýðingar
Mál og menning gefur nú í
haust út þýðingar á tveimur glæ-
nýjum bókum. Þetta er nýjustu
bækur þeirra Milan Kundera og
Isabelle Alliende. Báðar bæk-
umar komu út sl. vor og em ís-
lensku þýðingarnar meðal fyrstu
þýðinganna á bókunum.
Skáldsaga Kundera nefnist í
þýðingu Friðriks Rafnssonar
„Ódauðleiki". Tómas R. Einars-
son þýðir bók Alliende og nefnist
hún „Eva Luna segir frá“. -Sáf
Þýðingar
Stefán Hörður á sænsku
Safn Ijóða Stefáns Harðar
Grímssonar kemur út á sænsku í
tengslum við bókamessuna í
Gautaborg. Það er bókaforlagið
Fripress, sem m.a. hefur gefið út
bækur Einars Kárasonar, sem
gefur bókina út.
Ljóðasafnið nefnist „Bilder
utan vágg“ og er í þýðingu Inge
Knutsson, sem hefiir áður þýtt
lióð Snorra Hjartarsonar og
Ölafs Jóhanns Sigurðssonar.
í bókinni er úrval Ijóða úr
bókunum Svartálfadans, Hliðin á
sléttunni, Farvegir og Tengsl.
AIls em 55 ljóð í bókinni. -Sáf
SÍF
Styrkir sig í Ewópu
Hafa fest kaup á frönsku matvælafyrirtœki
Um mánaðamótin tók Sölusam-
band íslenskra flskfram-
leiðenda formlega við franska
matvælafyrirtækinu Nord Mor-
ue, sem samtökin keyptu nýverið.
Það er sölu- og framleiðslufyrir-
tæki sem sérhæfir sig í sait-
fiskréttum fyrir franskan neyt-
endamarkað.
Með þessum kaupum á franska
fyrirtækinu fær SÍF greiðari að-
gang að frönskum markaði fyrir
íslenskan saltfisk, sem er. virt
gæðavara þar í landi. Jafnframt
er SÍF með því að fjárfesta í
frönsku fyrirtæki að styrkja stöðu
sína á Evrópumarkaði og um leið
að auka sölu á saltfiskafurðum
héðan.
Sigurður Haraldsson aðstoðar-
framkvæmdastjóri SÍF segir að á
ársgmndvelli hafi franska fyrir-
tækið keypt af söltuðum fiskaf-
urðum héðan um fjögur þúsund
tonn. Búist er við að það verði
ekki minna eftir eigendaskiptin
en það er þó háð því hvernig
framleiðendum gengur í barátt-
unni við að fá hráefni til vinnsl-
unnar.
Sighvatur Bjamason hefur ver-
ið ráðinn sem aðstoðarfram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, en
hann hefur gegnt starfi sölustjóra
hjá Sölusamtökum íslenskra fisk-
framleiðenda. -crh
BALimSKOLá
Innritun frá og með mánudeginum 3.
september í síma 38360 frá kl. 12-16.
Kennsla hefst um miðjan september.
Fjölbreytt og skemmtilegt kerfi fyrir alla
aldurshópa frá 4ra ára.
Afhending skírteina í skólanum laugar-
daginn 15. septemberfrá kl. 13-16.
Ballettskóli ik.
Eddu
Scheving
Skúlatúni 4
Meðlimur í Félagi íslenskra listdansara.
Dagvistarmál
Foreldrasamtökin hafa óskað
eftir viðræðum við stjórnend-
ur Dagvistar barna um erfiðleika
i starfsmannahaldi stofnunarinn-
ar í tilefni af fréttum af svo mikl-
um starfsmannaskorti að það
standi vistun og uppeldisstarfi
fyrir þrifum. Þá hefur Fagdeild
Dagvistar barna einnig óskað
eftir því að stjórn Dagvistar taki
til umfjöllunar launamun starfs-
fólks dagvistarheimila í Reylga-
vík og í öðrum sveitarfélögum en
eins og Þjóðviljinn skýrði frá
fyrir stuttu er hann Reykjavík
mjögí óhag.
Að sögn Harðar Svavarssonar
framkvæmdastjóra samtakanna
hefur stjórn Dagvistar lofað
fundi fljótlega. „Því hefur yfir-
leitt verið vísað á bug að um ein-
hvem vanda sé að ræða. Bréf
Fagdeildar staðfestir hins vegar
að eitthvað verulegt sé að. Þar
segir m.a. að orðspor stofnunar-
innar sé í hættu og fóstruskortur-
inn standi árangursríku uppeldis-
starfi fyrir þrifum, sagði Hörður.
„Þetta bréf var tekið fyrir á
fundi stjómarinnar í vikunni og
sent áfram til samninganefnda
viðkomandi félaga og borgarinn-
ar. Með því er e.t.v. verið að
viðurkenna að vandinn sé vegna
launanna. Það sem foreldrar gera
kröfu um er að Dagvist lýsi yfir
einhverri stefnu í þessu máli
þannig að starfsmannaskorturinn
verði ekki áfram jafn reglulegur
viðburður á haustin eins og ferðir
farfugianna.“
í bréfi fagdeildar koma einnig
fram tölur um ráðningar nýút-
skrifaðra fóstra. í Hafnarfirði em
8 dagvistarstofnanir, þangað hafa
5 fóstmr ráðið sig. í Kópavogi
eru 10 leikskólar og þangað réðu
sig 7 fóstmr en á þau 67 dagvistar-
heimili sem Dagvist bama rekur
hafa einungis 7 nýútskrifaðar
fóstmr ráðið sig. -vd.
Foreldrar vilja aðgerðir
Fagdeild Dagvistar: Launamunur starfsfólks á dagvistarheimilum í
Reykjavík og annarra sveitarfélaga alltofmikill. Foreldrasamtökin:
Dagvist barna verður að móta einhverja stefnu