Þjóðviljinn - 07.09.1990, Page 11
Öskukarl í slagtogi með listagyðjunni
Pétur Hraunfjörð: Hef að endingu fundið mér tímanlegan tilgang í lífinu
Um þessar mundir stendur yfir all sérstæð listsýning í Hlaðvarpanum
við Vesturgötuna í Reykjavík. Þar hefur Pétur Hraunfjörð sett upp
ýmsar smámyndir málaðar á stein, en Pétur þekkja sjálfsagt fleiri sem
öskukarl og kjaftforan Dagsbrúnarmann fremur en listmálara. Sýning-
una nefnir listamaðurinn því dularfulla heiti „Málaður hugveruleikur".
mála á striga ogpappír, en fundið
fljótt að það ætlti'ekki við hann.
- Þá uppgötvaði ég grjótið og ég
hef haldið mig við það síðan.
Ég nota alveg sömu tækni og
frummaðurinn notaði. Ég læt
misfellur og örður í steininum
ráða pensilförunum og þar af
leiðandi myndefninu. Þannig
verður árangurinn bestur, segir
Pétur.
Á sýningunni gefur að líta ýms-
ar smámyndir af margvíslegu
fólki, sumu ágætlega kunnu en
öðru miður þekktu.
- Það hefur verið sagt um mig
að ég máli aðeins fólk sem hafi
skoðanir. Það er ekki allskostar
rétt því ég mála líka skoðanaleys-
ingja. Þeir eru því miður alltof
margir í kringum okkur, eins og
hann frændi minn hér, segir Pétur
og bendir á einn gripinn á sýning-
unni, - karlanginn hefur ekki
hug á öðru en að safna aurum og
húseignum.
Á sýningunni gefur t.d. að líta
myndir af Bólu-Hjálmari, Silju
Aðalsteinsdóttur og Tolla Mort-
hens, sem skreyta reyndar bæði
sama steininn, Vésteini Lúð-
víkssyni, Helgu Kress og
spænsku baráttukonunni Passi-
onara sem lést fyrir fáum árum í
hárri elli.
- Þetta fólk á það sammerkt að
hafa skoðanir og að vera tilbúið
til að standa og falla með þeim,
segir Pétur.
Óvenjulegar nafngiftir verk-
anna vekja óneitanlega athygli.
Eitt verkið nefnir Pétur Metorð-
astritarann, annað Karlrembu.
Einnig er þarna heiti eins og
Klökkvi og Ótta, Neysluspreng-
ur, Lassaróni, Sjálfumglaður, og
er þá fátt eitt upp talið af mörgum
Horfur á laugardag: Hæg suðvestan átt og smáskúrir á Suövestur- og
Vesturlandi, en léttskýjað austanlands. Þykknar upp um vestanvert landið
slðdegis. Hiti á bilinu 7-12 stig.
- Þegar ég var orðinn atvinnu-
laus af of nánum kynnum við
þann eðla konung Bakkus og bú-
inn að glíma við sömu spurning-
una f 15 ár, hvort lífið hefði ein-
hvem tilgang, án þess að finna
viðhlítandi svar, er ég loksins bú-
inn að finna mér tímanlegan til-
gang í lífinu, segir Pétur þegar
hann er inntur eftir því hvemig
standi á því að hann hafi tekið til
við málaralistina.
Pétur segist fyrst hafa reynt
fyrir sér í málalistinni með því að
Pétur Hraunfjörð segist loksins
hafa fundið sér tilgang þegar
hann(komst í kynni við grjótið.
Mynd Kristinn.
Veðrið sunnudag 9. sept.
Horfur á sunnudag: Suðaustan átt og rigning, einkum sunnanlands og
vestan. Regnsvæðið mun þokast norður og austur yfir landið. I kjölfar þess
verður suðvestlæg átt með skúrum á Suður- og Vesturlandi. Hiti 8-12 stig.
sérkennilegum heitum á mynd-
verkunum.
- Ég hugsa, segir Pétur, - að
heitin á verkunum veki fremur
athygli sýningargesta en mynd-
efnið sjálft, enda er ég hin síðari
ár farinn að leggja meira upp úr
anda verkanna en efninu, að ekki
sé nú talað um pensildrætti og
annað prjál.
Að sögn Péturs hefur aðsókn
að sýningunni verið með ágæt-
um. Margar myndanna hafa
selst, enda er verðinu stillt í hóf.
Flestir gripanna em verðlagðir á
innan við 1000 krónur.
- Einhverjir útlendingar hafa
þvælst hingað inn og keypt af
mér. Hingað kom t.d. Amerík-
ani. Ég mátti til með að stríða
honum aðeins og bauð honum
myndina „Ami go home“. Hann
vildi ekki kaupa. Skýringin er
sennilega sú að hann er af dönsku
bergi brotinn og hefur því ekki
tekið sneiðina til sín, segir Pétur.
Sýningu Péturs í Hlaðvarpan-
um á „máluðum hugvemleik“
lýkur tíunda þessa mánaðar.
-rk
UM
EFTIR
SÖTTIRÞÚ
HÚSNÆÐISLÁN
1. JANÚAR1988?
Hef ur þú þegar gert kauþsamning
án þess aó hafa fengió lánió?
Þá átt þú hugsanlega þann valkost aó sækja
uhi úrlausn f húsþréfakerfinu.
í júnímánuði sl. tóku gildi bráðabirgöaákvæði
reglugerðar nr. 217/90. Samkvæmt þeim
hefur Húsnæðisstofnun heimild til að kaupa
fasteignaveðbréf vegna kaupsamninga sem
gerðir hafa verið eftir 1. janúar 1988,
að uppfylltum vissum skilyrðum.
Fasteignaveðbréf þessi greiðir hún
með húsbréfum.
Húsnæðisstofnun hefur sent öllum þeim
bréf, sem sótthafa um húsnæðislán eftir
1. janúar 1988, þar sem fram koma ítarlegar
upplýsingar um skilyrði bráðabirgða-
ákvæðanna.
Viðtakendur eru hvattir til
að kynna sér vandlega innihald þess bréfs
og leita sér upplýsinga um rétt sinn.
Kynningarefni um húsbréfakerfið liggur m.a. frammi í afgreiðslu
Húsnæðisstofnunar og hjá fasteignasöium.
Afgreiðsla stofnunarinnar er opin frá mánudegi til föstudags kl. 8-16.
[&] HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS i
Q SUÐURLANDSBRAUT 24 ■ 108 REYKJAVÍK ■ SÍMI 696900
SAMEINAÐA/SÍA