Þjóðviljinn - 07.09.1990, Page 19
Leirinn er margra meina bót
Sund og vatnsnudd er mikilvægur þáttur í starfsemi
heilsuhælisins.
Ekki er alltaf
nauðsynlegt að
fara alveg
í leirbað, heldur
eru fætur eða
hendur þakin leir.
Flestir kannast við heilsuhælið í Hveragerði, sem rekið er af Nátt-
úrulækningafélagi (slands. Og stór hluti þeirra hefur gert sér einhverj-
ar hugmyndir um starfsemi hælisins, sem oftar er ekki eru byggðar á
bæði misskilningi og vanþekkingu. Margir halda nefnilega að heilsu-
hælið sé einhvers konar elliheimili eða sjúkrahús fyrir aldraða. Og ekki
nóg með það, fjölmargir eru haldnir fordómum í garð hælisins vegna
fæðisins sem þar er neytt og tala um „fólkið sem er í grasinu". Þeir hinir
sömu þekkja ekki hugmyndafræðina sem liggur að baki starfsemi
heilsuhælisins, en ættu hins vegar að kynna sér hana og ekki síst að
reyna að lifa eftir henni. Á heilsuhælið kemur fólk á öllum aldri til að fá
bót meina sinna og ekki síður til að slaka á, borða heilsusamlegan mat
og stunda líkamsrækt.
Heilsuhælið hefur verið starf-
andi í 35 ár, en Náttúrulækninga-
félagið hefur hins vegar starfað í
53 ár. Það var Jónas Kristjánsson
læknir sem var aðalhvatamaður
að stofnun heilsuhælisins, en
hann hafði orðið fyrir áhrifum
náttúrulækningastefnunnar á
Norðurlöndum. Náttúrulækni-
ngastefnan átti í vök að verjast til
að byrja með, og reyndar lengi
framan af, en hin síðari ár hefur
fólk verið að vakna til vitundar að
gildi hennar.
Eitt helsta sérkenni heilsuhæl-
isins er leirböð. Þau hafa verið
stunduð frá upphafi við misjafnar
undirtektir lærðra og leikra, en
hlotið einróma lof þeirra sem þau
stunda. í leirböð er notaður svo-
kallaður eldfjallaleir eða hvera-
leir sem tekinn er úr fjallinu ofan
við heilsuhælið. Hann þykir sér-
lega góður vegna ýmissa efna sem
hann inniheldur, s.s. steinefna.
Gísli Einarsson yfirlæknir á
heilsuhælinu segir leirböð aðal-
lega vera notuð þegar um er að
Gísli Freysteinsson sér um
leirböðin. Hér er hann að
moka yfir Maríu Kristjánsdóttur.
Myndir: Jim Smart.
ræða gigt ýmiskonar.
„Hitaleiðni leirs þykir mun
betri en hitaleiðni vatns. Einnig
hefur það verið rannsakað af
þýskum vísindamönnum að
steinefni leirsins hafa áhrif inn í
líkamann fyrir utan góða hita-
leiðni. Leirinn hefur þess vegna
þau áhrif að mýkja stirða liði.
Það hefur ekki verið hægt að sýna
Heilsuhælið
í Hveragerði
heimsótt
fram á efnafræðilega niðurstöðu
þessu til sönnunar, en hins vegar
er sönnunin kannski vellíðan og
liðlegri hreyfingar fólks sem
stundar böðin,“ segir Gísli.
Fólk með liðagigt, vöðvagigt
og slitgigt stundar leirböð, en að
sögn Gísla hefur leirinn ekki af-
gerandi áhrif á sjúkdóminn sem
slíkan. „Leirinn hefur hins vegar
afgerandi áhrif á líðan fólks. Það
eru gefin lyf til að draga úr bólg-
um og vandamál gigtsjúklinga er
stirðleiki, annaðhvort einhvern
tíma sólarhringsins eða allan sól-
arhringinn. Fólk með liðagigt,
þ.e. þegar sjúkdómurinn er í
liðnum, er yfirleitt stirðara á
morgnana, en fólk með slitgigt á
kvöldin vegna álagsins yfir dag-
inn. Gigtarlyfin sem eru gefin til
að draga úr bólgum ganga öll
mjög hart að líkamanum, sér-
staklega að maga og skeifugöm.
Þess vegna er oft um að ræða
blæðandi magasár hjá gigtarsjúk-
lingum vegna langvarandi töku
gigtarlyfja. Þess vegna er oft
nauðsynlegt að hætta tökunni um
tíma og þá er leirmeðferð mjög
góð aðferð til að koma til móts
við lyfin meðan fólk hvílir sig á
þeim,“ segir Gísli.
Hiti hefur mjög góð áhrif á
gigtarsjúklinga, bæði heitt vatn
og hlýtt loftslag. Heilsuhælið
býður upp á vatnsnudd, vatns-
potta í sundlaug sem eru góðir
fyrir þá sem geta „farið í eigin
meðferð“ og svo leirböð sem
þykja best.
Meðferð leirsins fer þannig
fram að hann er tekinn úr fjallinu
á haustin og vorin. Þá er hann
hrærður út með vatni og settur í
upphituð ker. Kerin eru úr tvö-
földu plasti og milli „þilja“ er 80
stiga heitt vatn sem heldur leirn-
um heitum, eða í um 37 stiga.
Annaðhvort fer fólk í leirbað eða
leirinn er borinn á þau svæði sem
þarf. Til dæmis fara sumir með
hendurnar í leir, en aðrir með
fætur.
En leirinn er ekki bara góður
fyrir gigtarsjúklinga, heldur hef-
ur fólk með psoriasis fengið
nokkurn bara af leirböðum.
Einnig hefur leirinn góð áhrif á
asmaveika.
Á heilsuhælinu fer fólk í
leirbað og er þar í 10 mínútur.
Eftir það er farið í sturtu og það-
an í hvíldarherbergi þar sem fólki
er „pakkað inn“ í teppi. Þar er
fólk látið liggja í 15-20 mínútur
og látið slaka á. Þá er aftur farið í
sturtu og líkami og sál eru endur-
nærð. Þeir sem hafa farið í
leirbað segja það engu líkt. Það
sé nánast eins og maður sé 5 kíl-
óum léttari á eftir, húðin eins og
barnsrass, sársaukinn farinn úr
liðunum og sálin aldrei hressari.
ns.
Föstudagur 7. september 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 19
HANDBRAGÐ MEISTARANS
BAKARI BRAUÐBERGS
Avallt nýbðkuð brauð
- heilnæm og ódýr^
Aðrir útsölustaðir:
Hagkaup: Skeifunni
- Kringlunni
- Hólagarði
Verslunin Vogar,
Kópavogi
Bmuöbem
Lóuhétar 2 • 6 *lmi 71539*^
Hraunborgi 4 tkni 77272