Þjóðviljinn - 07.09.1990, Qupperneq 25
t'TWyrn
■wrwr
y* ptrnKHiswnriimÞ
■— • «r w>pn pijp.«r«*vvvac^iF>^
MYNDLISTIN
Veitingastaðurinn 22, Inga Sólveig:
Ijósmyndasýningin „Hnignun". Opið
virka daga kl. 11:00-01:00 og um
helgarkl. 18:00-03:00.
Árbæjarsafn, opið alla daga nema
má kl. 10-18. Prentminjasýning í Mið-
húsi, kaffi í Dillonshúsi, Krambúð, og
stríðsárasýningin: „Og svo kom
blessað stríðið".
Bókasafn Kópavogs, sýning á
vatnslitamyndum ívars Magnús-
sonar. Opið má til fö kl. 10-21.
Djúpið, kjallara Hornsins, Hafnar-
stræti 15. Þorri Hringsson sýnir klippi-
myndir.
Gallerí 11, Skólavörðustíg 4a, Hulda
Hrönn Ágústsdóttir opnar sýningu á
lau kl. 15.0piðalladagafrákl. 14-18.
Gallert 8, Austurstræti 8, sýnd og
seld verk e/um 60 listamenn, olíu-,
vatnslita-, og grafíkmyndir, teikning-
ar, keramík, glerverk, vefnaður, silf-
urskartgripir og bækur um íslenska
myndlist. Opið virka daga og iau kl.
10-18ogsu 14-18.
Gallert Borg, Pósthússtræti 9, Gest-
ur og Rúna sýna málverk og skúlp-
túra.Opiðvirkadagakl. 10-18, um
helgar 14-18, til 18.9.
Gallerí Borg, Austurstræti 3 og Síðu-
múla 32, grafík, vatnslita-, pastel- og
olíumyndir, keramikverk og módel-
skartgripir, opið lau 10-14.
Gallerí List, Skipholti 50 B, Bjarni
Þór Bjarnason opnar sýningu á lau kl.
14.0pinvirkadagakl. 10-18ogum
helgar kl. 14-18, til 16.9.
Gallerí Nýhöfn, Guðbjörg Lind opn-
ar málverkasýningu á lau kl. 14-16.
Opin virka daga nema má kl. 10-18
og um helgar kl. 14-18, til 26.9.
Gallerí Sævars Karls, Bankastræti
9: Kees Visser opnar sýningu í dag á
þrívíðum verkum úr tré og stáli. Sýn-
ingin er opin á verslunartíma kl. 9-18
virkadaga.og 10-14 lau, til 5.10.
Gerðuberg við Austurberg 111, sýn-
ing á myndverkum barna unnin í lista-
smiðjunni Gagn og gaman í sumar.
Leiðsögn um sýninguna lau. Opin í
dag og á lau kl. 10-21, síðasta sýn-
ingarhelgi.
Hafnarborg, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar, átta textíllista-
konur sýna máluð og þrykkt mynd-
verk, nytjalist o.fl. til 16.9. Anna Leós
sýnir vatnslitamyndir i kaffistofu, til
16.9. Opið alla daga nema þri kl. 14-
19.
Hlaðvarplnn, við Vesturgötu. Pétur
Hraunfjörð öskukall sýnir málaðan
hugveruleika, opið kl. 13-18, til 10.9.
Ath. síðastasýningarhelgi.
Kjarvalsstaðir, September-Septem,
yfirlitssýning á verkum September-
hópsins 1947-54 og Septem-hópsins
1974-1990. Verk alls 16 myndlistar-
manna bæði í austur- og vestursal.
Opiðdaglegafrákl. 11-18. Ath.síð-
astasýningarhelgi.
Listasafn ASÍ, Grensásvegi 16a,
Sigurður Þórir opnar sýningu á mál-
verkum og teikningum á lau kl. 14.
Opið alla daga kl. 14-19, til 23.9.
Llstasafn Einars Jónssonar opið
alla daga nema má 13.30-16, högg-
myndagarðurinn alla daga 11-17.
Listasafn íslands, sumarsýning á
íslenskum verkum í eigu safnsins.
Opið daglega kl. 12-18.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
sýn. áandlitsmyndum Sigurjóns.
Opið lau og su kl. 14-17, þri kl. 20-22.
Listhús við Vesturgötu 17, Bragi
Ásgeirsson opnar málverkasýningu,
Að hlusta með augunum - mála með
skynfærunum, lau. Opin daglega milli
kl. 14 og 18. Til 23.9.
Minjasafn Akureyrar, Landnám í
Eyjafirði, heitisýningaráfornminjum.
Opið daglega kl. 13:30-17, til 15.9. í
Laxdalshúsi Ijósmyndasýningin Ak-
ureyri, opið daglega kl. 15-17.
Minjasafn Rafmagnsveitunnar,
húsi safnsins v/ Rafstöðvarveg, su
14-16.
Þorlák Kristinsson þekkja flestir sem listmálarann Tolla. Hann opnar á morgun sýningu ( Síúnkariki á
(safirði. Þar verða sýnd tíu málverk og silkiþrykk, auk steinþrykksmynda sem unnar voru í Kaupmannahöfn
á þessu ári. Meginstef myndanna er hafið. Slúnkaríki er opið fimmtudaga til sunnudaga kl. 16-18, og
stendur sýningin til 23. þessa mánaðar.
Hvað á að gera um helgina?
Bryndís Schram
Ég hef engar áætlanir uppi fyrir helgina. Eftir allan erilinn í vikunni er
best að hvíla lúin bein og safna kröftum fyrir næstu vinnuviku. Þaö geri
ég best með því að skella mér í laugarnar og taka góðan sundsprett.
Eftir sundið á sunnudögum tilheyrir að skreppa á Kaffivagninn. Bæði
er að kaffið er þar gott og þar hittir maður skemmtilegt fólk. Og ekki
spillir útsýnið yfir gömlu höfnina. Sundsprettur og kaffi á eftir er mitt
„ritúal" á sunnudögum, sagði Bryndís Schram dagskrárgerðarmaöur.
Norræna húsið, kjallari: Finnska
listakonan Mari Rantanen sýnir mál-
verk til 23.9. Anddyri: Sýningin Barn
vatns og vinda, grafík eftir Kaljo Pollu
frá Eistlandi. Opnar 14-19 daglega.
Smíöagalleríið Mjóstræti 2b og
Pizzaofninn Gerðubergi: Þorsteinn
Unnsteinsson með sýningu á báðum
stöðum. Olíupastel og akrýlmyndir.
Smíðagalleríiðopiðmá-fökl. 11-18
oglau kl. 11-15, Pizzaofninn alla
dagakl. 11:30-23:30, til 19.9.
Slúnkaríki, ísafirði: Þorlákur Krist-
insson - Tolli- opnar sýningu á lau kl.
15.0piðfi-su kl. 16-18.
Þjóðminjasafnið, opið 15.5.-15.9.
alla daga nema má kl. 11 -16. Bogas-
alur: Frá Englum og Keltum.
TÓNLIST
Heiti potturinn Uuus-húsi, Ólafur
Stephensen á píanó, Björn R. Einars-
sonábásúnu.TómasR. Einarssoná
kontrabassa og Pétur Grétarsson á
trommur á su kl. 21:30.
Caput-hópurinn: Tónleikar á litla
sviði Borgarleikhússins á má kl.
20:30. Verk e/Áskel Másson, Joep
Straesser, Will Eisma og Hjálmar R.
Ragnarsson. Flytjendur eru: Signý
Sæmundsdóttirsópran, Maarteen
van der Valk slagverksleikari, Kol-
beinn Bjarnason flautuleikari, Eggert
Pálsson slagverksleikari og Martial
Nardeau flautuleikari.
HITT OG ÞETTA
Hana-nú í Kópavogi, samvera og
súrefni á morgun lau, lagt af stað frá
Digranesvegi 12 kl. 10. Komum sam-
an upp úr hálftíu og drekkum mola-
kaffi.
Útivist, helgarferðir 7.-9.9. Básar í
Goðalandi, Emstrur-Hvanngil, miðar
og pantanir skrifstofu s. 14606 /
23732. Sunnudagsferðir:
Þórsmerkurganga kl. 08. Hengill kl.
13. Brottferðir BSÍ, bensínsölu.Hjól-
reiðaferð kl. 13:30, brottförfráÁrbæj-
arsafni.
Ferðafélag fslands, sunnu-
dagsferðir: Sandá-Kórinn að Bláfells-
hálsi kl. 09. Bláfellsháls-Hvítárnes
(ökuferð) kl. 09. Tröllafoss-Haukafjöll
kl. 13. BrottferðirfráBSÍ, austan-
megin. Fjölskylduferð í Þórsmörk 7.-
9.9., lagtaf stað íkvöld kl. 20.
Kattavinafélagið heldurflóamarkað
að Hallveigarstöðum, Öldugötu-
megin, su kl. 14-17.
UR RIKINATTURUNNAR 28
Ari Trausti
Guðmundsson
Á eftir vetri kemur vor
Möndulhalli jarðar og hringhreyfing hennar um sólu valda
árstíðaskiptum.
Menn kvarta ofl yfir þyngsl-
um á dimmum vetrum Islands en
sperrast allir er vorar. Líklega eru
þetta alveg eðlileg viðbrögð
flestra lífvera við árstíðunum —
reglubundnum breytingum í um-
hverfinu sem lífverur jarðar hafa
búið við alla tíð og þróast í sam-
ræmi við þær. Auðvitað kemur
þetta misjafnlega við fólk, en
varla rannsókna þörf til að stað-
festa tilgátuna.
Árstíðimar eru ekkert al-
mennt náttúrulögmál í sólkerfinu
okkar. Þær stafa af því, að snún-
ingsás kúlnanna (plánetanna eða
reikistjamanna) hallar miðað við
flöt sem settur er um miðju sólar
og miðbaug hennar - og því er
víst þannig varið að engar tvær
plánetur hafa sama möndulhalla.
Venus hefur nánast engan, Úran-
us liggur á hliðinni (rúmlega 90
gráðu möndulhalli), en Mars og
Satúmus hafa einna líkastan
möndulhalla og jörðin (rúmar 20
gráður). Og þar eð Mars er líka á-
Hka lengi að snúast einn hring um
ás sinn, er sólarhringurinn áþekk-
ur og hjá okkur, en Marsárið er
um tvöfalt lengra (og hver árstíð
þar með líka). Á Venusi eru engar
árstíðir (og reyndar enginn til að
sýta það), en á Úranusi er dimm
„pólnóttin” 21 árs löng og bmna-
kuldinn í ystu loftlögum þessarar
gasplánetu slíkur að nóg er hvort
sem sól skín á þau eða ekki.
Möndulhalli jarðar veldur því
að meðan jörðin hendist hluta úr
fimalöngum hring sínum um
sólu, þá hallar norðuhvelinu AÐ
sólinni, en suðurhvelinu FRA.
Frá okkur séð nær sólin þá hærra
upp á himininn á daginn en ella,
enda er þá hlýtt (sumar). And-
fætlingar vorir sjá sólina lægra á
lofti en ella, og það er kalt hjá
þeim (vetur). Svo þegar sólin
heldur áfram (viðstöðulaust að
sjálfsögðu) hallar norðurhvelinu
æ minna að sólinni (sem er kyrr
miðað við jörðina (en reyndar
ekki aðrar sólir/sólkerfi!)). Þá
tekur haust við á norðurhveli og
svo, hálfum brautarhring eftir að
hásumar var þar (í kringum 20.
júní) er kominn miður vetur og
norðurhvelinu hallar FRÁ sólu (í
kringum 20. des). Og svo tekur
aftur að nálgast sú staða sem fyrst
var nefhd og þar vorar, en sumrar
á norðurhveli.
Raunar sjáum við þetta ágæt-
lega fyrir okkur á mynd og vitum
hvað er að gerast, en ffá „kyrr-
stæðu” yfirborði jarðar sýnist allt
annað vera uppi á teningnum en
þessi skýring. Manni sýnist sólin
snúast um jörðina og lækka á lofti
eða hækka eftir því sem árið líð-
ur. Það er því ekkert skrýtið þótt
fyrri tíma menn gætu ekki skilið
árstíðimar réttum skilningi.
Yfimáttúrlegar hugmyndir
eða margs konar alþýðuskýringar
komu til vegna eins konar sjón-
hverfingar, og sumt af því átti á-
reiðanlega þátt í að setja sól og
tungl í guðasæti í ýmsum heims-
homum áður en ýmis eingyðistrú-
arbrögð og kristnin komu til. Þau
trúarbrögð áttu samt engan þátt í
að skýra árstíðimar. Skýringamar
komu fram innan raunvísindanna
um leið og heimsmynd nútímans
varð til úr hæggengu bitaspili.
Árstíðunum fylgja margar af
merkilegustu hambreytingum í
náttúmnni og sumt er makalaust
sjónarspil. Hegðun margra lífvera
breytist, veður breytast, afrennsli
vatns á landi breytist og yfirbragð
landsins tekur stakkaskiptum.
Þess vegna má segja með sanni að
eitt af því sem gerir þessa sér-
kennilegu og viðkvæmu plánetu
svo einstaka (án þess að vita fylli-
lega hve einstaka!) em einmitt
árstíðimar.
Hér á landi reyna samtök á
sviði náttúmffæði að kynna al-
menningi ýmislegl er varðar árs-
tíðimar, einkum vor og haust, og
er fólk hvatt til þess að nýta sér þá
starfsemi.
T
I'