Þjóðviljinn - 07.09.1990, Qupperneq 28
DANSINN
Við erum að byrja innritanir
í danskennslu okkar í vetur þar sem allir dansar eru
í boði s.s. Barnadansar. Allir samkvæmisdansar.
Gömludansarnir. Nýjustu diskódansarnir.
Freestyle dansar ofl. ofl.
INNRITANIR - KENNSLUSTAÐIR:
Reykjavík : Brautarholt 4, Ölduselsskóli, Drafnaríell 4,
Ársel, Fjörgyn
Mosfellsbær: Hlégarður Símar: 20345 og 74444
Hafnarfjörður: Gúttó miUi klukkan 13-19 daglega
Hveragerði Selfoss Sími: 91-74444 milli klukkan 13-19 daglega Grindavík Keflavík Garður Sandgerði Sími: 68680 miHi klukkan 20-22 daglega
5 tíma námskeið í nýjasta
diskódansinum Hip Hop
Kennari Ad Van Otstal frá
Hollandi (allir aldurshópar)
5 tíma námskeið í Soca
- Það allra nýjasta.
Soca dansinn hefur fengið frá-
bærar viðtökur víða erlendis.
Kennari Ad Van Otstal. (allir
aldurshópar).
Rc
OKKSKOLIHA
Kennt verður í Brautarholti 4 á
föstudögum. Gestakennari:
Harald Liese frá Þýskalandi.
Hann er í heimsmeistarahópi í
Mynstrudansi.
Keppnishópur í samkvæmisdönsum barna í Reykjavík
Kennsla hefst föstudaginn 14. september
Dansskóli
Raðgreiðslur
|BH
V/SA MMH: EUnOCARD
UEIÐARS
ASTVALDSSONAR
1
Móðirin með stúlkurnar tvær. Ekki er annað að sjá en stúlkurnar hafi náð sér vel
eftir þessa erfiðu aðgerð. Það kemur hins vegar ekki í Ijós strax hvernig þeim á
eftir að vegna í framtíðinni.
Síamstvíburar
aðskildir
Nýlega voru stúlkur samvaxnar
á höfðum aðskildar í Moskvu
Vilja og Vilalija áður en þær voru skildar að. Lffsllkur slamstvíbura sem sam-
vaxnir eru á höfði eru taldar sára litlar.
Nýlega tókst læknum við Bur-
denkosjúkrahúsið í Moskvu að
aðskilja síamastvíbura sem voru
samvaxnir á höfðum. Aðgerðin
sem var stjórnað var af Alexand-
er Konovalov stóð í nærri tvo sól-
arhringa.
Stúlkunar Vilja og Vilaiija
voru rúmiega eins árs þegar
ákveðið var að ráðast í þessa
vandasömu aðgerð. En þær voru
fyrstu börn ungrar móður frá Lit-
háen.
Þetta mun vera 32. aðgerðin af
þessu tagi sem framkvæmd er í
heiminum, en líkurnar á að böm-
in lifi þessa aðgerð eru sára lítlar.
Stjórnandi aðgerðarinnar sagði
að í raun hefði ekki komið í ljós,
fyrir en hafist var handa hversu
flókin og erfið aðgerð þetta var.
Til dæmis hefði þá fyrst komið í
ljós að heilar tvíburanna voru
samvaxnir.
Aðgerðin hófst klukkan hálf
tíu að morgni 6. júlí sl. og stóð
fram yfir miðnætti 7. júlí. Kono-
valov sem sjálfur stóð við skurð-
arborðið allan tímann, sagði að í
raun hefði þurft að framkvæma
ekki bara eina skurðaðgerð held-
ur margar samtímis. Málið var
ekki bara að aðskilja stúlkurnar,
heldur einnig að opna höfuðkúp-
urnar og laga ágalla á heilabast-
inu.
Það kom ekki (Ijós fyrir en stúlkumar
gengust undlr skurðaðgerð að heilar
þeirra voru samvaxnir.
Svo virðist sem þessi einstaka
aðgerð hafi heppnast. Þegar tíu
vikur voru liðnar frá því aðgerðin
var gerð, sagði Konovalov að
mestu erfiðleikanir væru að baki
og svo virðist sem aðgerðin hafi
ekki haft merkjanleg áhrif á
heilastarfsemi stúlknanna, þeim
heilsast vel, en of snemmt er að
spá nokkm um framtíðina, sagði
hann. Framundan eru fleiri að-
gerðir og síðan endurhæfingar-
tími. Vilja og Vilalija sem geta nú
horfst í augu og leikið sér eins og
eðlileg börn eiga eftir að læra
margt sem þær hafa farið á mis
við fram til þessa.
sg/APN