Þjóðviljinn - 28.09.1990, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 28.09.1990, Qupperneq 3
Kæstur hákarl í hjarta Oslóar Geysir, alíslenskur veitingastaður í miðborg Oslóar sem hefur slegið rækilega í gegn Skammt frá Karli Jóhanni í hjarta Oslóar liggur Keysergata. Þar blasir kunnugleg sjón við landanum, skilti með mynd af Geysi og íslenski fáninn blaktir við hún. Það er gengið upp nokk- ur þrep og inn í heimilislegt and- dyri. Ur hátölurum berst lágvær íslensk tónlist en innan úr eldhúsi heyrist kallað á íslensku: Ertu bú- inn að flaka ýsuna? Við erum stödd á eina alís- lenska veitingahúsinu á erlendri grund, Veitingahúsinu Geysi. Allt starfsfólk veitingahússins er íslenskt og á matseðlinum má finna ýmsar krásir sem koma Is- lendingum kunnuglega íyrir sjón- ir einsog t.d. hangiket og skyr. Nýtt Helgarblað ræddi stutt- lega við Óla Jón Ólason eiganda staðarins þegar blaðamaður var staddur í Osló í fyrri viku. Óli sagði að tilviljun hefði ráðið því að staðurinn var stofnaður. „Við rákumst á auglýsingu um að spænskur veitingastaður væri til sölu. í ffamhaldi af því ákváðum við að skoða staðinn og leist strax vel á hann. Við gerðum svo tilboð í innbúið og því var tekið. Staðurinn var opnaður með viðhöfn 17. júní 1989.“ ÓIi sagði að upphaflega hefði ætlunin verið að hafa staðinn ís- lenskari en raun varð á. Hann sagði að þeir hefðu sótt um leyfi til þess að flytja inn íslenskt lambakjöt og ýmsar aðrar vörur að heiman en ekki fengið. „Lambakjötið er ómögulegt að fá flutt inn, því það er algjört bann í Noregi á innflutningi á lambakjöti og ekki mögulegt að fá neina undanþágu. I staðinn not- um við lambakjöt frá Norður- Noregi og eldum það á íslenskan máta, t.d. er einn lambakjötsrétt- urinn eingöngu kryddaður með íslenskum íjallagrösum. Þá búum við til eigið skyr, sem er vinsæll eftirréttur hjá okkur. Einnig get- um við yfirleitt boðið upp á ís- lenskt hangiket og kæstan hákarl, sem vinir og velunnarar flytja okkur að heiman. Reyktur lundi er fastur á matseðlinum og þykir Norðmönnum hann mjög sér- stæður því lundinn er alfriðaður í Noregi. Stolt okkar er svo seytt rúgbrauð, sem við bökum sjálfir, en það er eina brauðið sem borið er ffam í Geysi. Við höfúm svo eldað brauðsúpu úr rúgbrauðinu, sem er herramannsmatur með þeyttum ijóma.“ Á þorranum var boðið upp á þorramat og Óli hefúr haft mikinn hug á að framleiða sjálfúr ýmsa af þessum séríslensku réttum. Hann hafði samband við nokkur slátur- hús og spurði hvort hægt væri að fá keypta hrútspunga og blóð. Á fimm stöðum var skellt á hann áð- ur en hann loksins náði sambandi við mann sem ekki hélt hann vera að gera grín. Óli sagði að lang- flestir gestir staðarins væru Norð- menn og væru þeir yfirleitt hrifn- ir af íslensku réttunum, þótt sum- Allt á sínum staö Sem áður er hægt að fá skápana útbúna með föstum hillum, hillustoðum, útdregnum hillum, upphengjum bæði föstum og útdregnum fyrir skjalapoka, útdregnum spjaldskrárhillum og útdregnu vinnuborði til að leggja á þá hluti sem unnið er við hverju sinni. Nú eru fáanlegir rekkar fyrir segulspólur/diska. Segulspóluupphengjur og síðast en ekki sist upphengjur fyrir tölvumöppur. Að stafla tölvumöppum í hillur er nú ekki lengur nauðsyn. Möppunum er einfaldlega rennt í þar til gerðar brautir. Ef einhver sérstök vörsluvandamál þarf að leysa biðjum við viðkomandi góðfúslega að hafa samband við okkur sem allra fyrst og munum við fúslega sýna fram á hvernig Shannon skjalaskápur hefur „Allt á sínum stað“. HAGSTÆTT VERÐ. LEITIÐ UPPLÝSINGA. Gunnar Már Geirsson yfirþjónn, Óli Jón Ólason eigandi Geysis og Erwin Ámason yfirkokkur á tröpp- um veitingahússins Geysis. Mynd Sáf. um fyndist einstaka réttur of sér- stakur fyrir sinn smekk. Það væri þó áberandi að allir virtust vera hrifnir af hangiketinu. Þá hefúr staðurinn eignast sína fastagesti, sem koma aftur og aftur. Einn fastagestanna er jap- anskur kaupsýslumaður sem kemur reglulega til þess að fá sér kæstan hákarl og snafs með. Hann varð svo hrifinn af staðnum að hann bauð Óla að aðstoða hann við að opna íslenskan matsölu- stað i Japan. Af því verður þó tæpast í bráðina að sögn Óla, þrátt íyrir að hugmyndin sé ffeistandi. Óli sagði að íslendingar sæktu staðinn lítið, enda væri hann í dýrari kantinum. Hinsveg- ar hafa íslendingar notað staðinn á stórafmælum. Alls starfa fímm íslendingar á Geysi í föstu starfi og um helgar eða þegar mikið er að gera bætast tveir íslendingar í hópinn. Erwin Amason er yfirkokkur en hann lærði á Hótel Holti. Gunnar Már Geirsson er yfirþjónn en hann varð Norðurlandameistari í lær- lingakeppni sl. vetur, enda er þjónusta og matur einsog það ger- ist best á veitingahúsum á Islandi. Óli sagði að þeir hefðu lítið auglýst staðinn heldur treyst á það að hróður hans myndi spyij- ast út. Sú hefúr og orðið raunin því aðsókn að staðnum hefúr auk- ist jafnt og þétt. Skiptir þar ekki minnstu máli að staðurinn hefúr fengið mjög lofsamleg ummæli í norskum blöðum. Dagblaðið Dagens Neringsliv gerði úttekt á 48 matstöðum í Osló og lenti Geysir þar í 6 til 9 sæti. Tveir af stöðunum fengu hæstu einkunn fyrir mat en það voru staðurinn sem lenti i fyrsta sæti og Geysir. ,3ftir að þessi úttekt birtist jókst aðsókn að staðnum vemlega og nú em pöntuð borð langt ffam í tímann, allt að tveim mánuðum. Þetta er þvi allt að smákoma en auðvitað er þetta mikil vinna og sama streðið og heima ef rekstur- inn á að ganga upp,“ sagði Óli Jón Ólason. -Sáf AUGLYSING UM INNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ *) Á KR. 10.000,00 1980-2.fl. 25.10.90-25.10.91 kr. 213.582,92 1981-2.fl. 15.10.90-15.10.91 kr. 131.828,16 1982-2.fl. 01.10.90-10.10.91 kr. 91.523,46 *)lnnlausnarverö er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. Innlausn spariskírteina ríkissjóös fer fram í afgreiðslu Seölabanka íslands, Kalkofnsvegi 1 og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. Reykjavík, september 1990. OlMIIIR OISIASOM & CO. Slí. SUNDABORG 22 SÍMI 91-84800 SEÐLABANKI ÍSLANDS

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.