Þjóðviljinn - 28.09.1990, Síða 23
Fullt hús
Þjóðleikhúsið sýnir í Gamla bíói:
Örfá sæti laus eftir Spaugstofuna
Handrit og textar: Karl Ágúst Úlfs-
son
Tónlist: Gunnar Þórðarson
Leikstjóri: EgiII Eðvarðsson Leik-
mynd og búningar: Jón Þórisson
Lýsing: Páll Ragnarsson
Dansahöfundur: Ásdís Magnús-
dóttir. Hljómsveitarstjóri: Magnús
Kjartansson
Leikendur: Anna Kristín Arn-
grimsdóttir, Ásdís Magnúsdóttir,
Ásta Hinriksdóttir, Bessi Bjarna-
son, Guðmunda H. Jóhannesdóttir,
Helga Bernhard, Jóhann Sigurðar-
son, Karl Ágúst Úlfsson, Lilja Guð-
rún Þorvaldsdóttir, Lilja Þórisdótt-
ir, Pálmi Gestsson, Randver Þor-
láksson, Rúrik Haraldsson, Sigurð-
ur Sigurjónsson, Steinn Ármann
Magnússon, Tinna Gunnlaugsdótt-
ir, Þórarinn Eyfjörð og Örn Árna-
son.
Er það hlutverk Þjóðleikhúss-
ins að standa að sýningum sem
draga dám af skemmtidagskrám
vínveitingahúsanna? Gefa helstu
spaugurum þjóðarinnar tækifæri
til að smíða sýningu á stór svið
eftir tveggja vetra samfellda sig-
urgöngu í sjónvarpsþáttum sem
höfðu að skotspæni sjónvarp-
smiðilinn sjálfan? Þjóðleikhúsið
hefur reyndar áður sótt á þennan
markað, löngu áður en hann varð
jafn íýrirferðarmikill keppinautur
um áhorfendur og nú er orðið. I
tíð Sveins Einarssonar setti Þjóð-
leikhúsið á svið nokkrar
skemmtidagskrár í Þjóðleikhús-
kjallaranum. Það tiltæki sem leit
dagsins ljós í síðustu viku undir
nafninu Orfá sæti laus er því ekki
nýnæmi. Og víst er það fullkom-
lega réttlætanlegt að sinna slíkri
nýsköpun í fáskrúðugri leikritun
okkar. Og sækja má lengra aftur í
okkar leikhefð og finna samsvar-
anir i reviuleikjum fyrri tíma við
það lausbeislaða og brotakennda
form sem þeir félagar velja skopi
sínu. En sýning þessi er vitaskuld
vamaraðgerð Þjóðleikhúsmanna
og fullkomlega réttlætanleg í
stöðu mála á þeim bæ. Örfá sæti
laus hefúr verið í vinnslu lengi og
ómarkviss tímasetning sýningar-
innar á fyrra leikári hefúr ugg-
laust kostað Þjóðleikhúsið ærið fé
og aðstandendur mikið ergelsi.
Gaman, gaman
En hvemig tekst þá til?
Stundum má hlæja dátt að uppá-
TJALDIÐ
Háskólabfó
Aðrar 48 stundir
(Another 48 HRS)A
Murphy og Nolte eru komnir aftur undir
stjórn Walter Hill. Nú á aö slá í gegn í
framleiðslumyndafárinu. En þessi mynd er
bara þreytandi eftirlíking af fyrri myndum.
Murphy fær eina stjörnu fyrir að syngja
James Brown-lag./SIF
Á elleftu stundu
(Short time)**
Þetta er ekki framhaldsmynd og þetta er
heldur ekki stórmynd. Það eru engir frægir
leikarar og hún kostaði örugglega skít og
kanil. Það er bara ein sprenging og aðeins
þrír bílar sem eyðileggjast. I staðinn eru
smellnir brandarar, ágætur leikur og snið-
ugastsi bílaeltingaleikur sem ég hef séð
lengi./SIF
Pappírs Pési***
Ari Kristinsson kemur hér meö alveg
ágæta barnamynd. Pappírs Pési er
skemmtileg fígúra (íslenskur ET?) og
krakkarnir alveg einstaklega krakkalegir.
Lítil vinkona mín sagði að myndin væri al-
veg sérstaklega skemmtileg af því að hún
kenndi svo skemmtileg prakkarastrikl!
Drífið ykkur með börnin um helgina. /SIF
Stjörnubíó
Fram í rauðan dauðann
(Love you to death)***
Stórskemmtileg gamanmynd um kvenn-
abósann Joe Boca sem allir eru að reyna
að drepa. Það er úrvals leikaralið sem sér
um skemmtunina. Joan Plowright er ein
miðavirði. Endilega að taka sér fri frá fram-
haldsmyndum og bófahasar og sjá gam-
finningasömum atriðum í
glundroða þeirra félaga, en margt
í sýningu þeirra vinnur beinlínis
gegn þeim tilgangi þeirra að
skemmta fólki. Sumu bera þeir
sök á sem höfundar, annað verður
að skrifa á reikning reynslulítils
leikstjóra. Það form sem þeir
kjósa er býsna opið: það er mis-
heppnuð leiksýning í gangi og
gengur illa. Hún er margrofin af
persónulegum innskotum leikar-
anna og tæknimanna, auk all-
skyns innskota hóps persóna sem
sumar eru þjóðkunnar úr sjón-
varpsþáttum Spaugstofunnar en
aðrar sem við þekkjum minna til
þótt allar séu kunnuglegar figúr-
ur. Og eins og gjaman verður í
sýningum sem eiga að hafa heild-
stætt yfirbragð og lyktir en eru
samdar af kunnáttuleysi, lenda
þeir félagar í stómm og miklum
vanda er dregur að leikslokum.
Og sá kaótíski stíll sem þeir kjósa
verkinu blindar leikstjórann, sem
er þaulkunnugur vinnslu sjón-
varps og kvikmyndar og getur þar
kosið sjónarhom áhorfandans í
flóknu spili leikenda, leikmyndar,
tals og tóna, svo mjög að hann of-
hleður sviðið atburðum og áreit-
um. Áhorfandinn verður ringlað-
ur. Hvert á að horfa, hvað gengur
á? Er ég að missa af einhverju
fyndnu? Og þegar við bætist að
leikstíll sýningarinnar er óhemju
hraður og lát er hvergi á verður
áhorfandi þreyttur á öllu saman.
Skúffelsi
Ég hef þá trú að þeim félögum
hafi ekki verið greiði gerður með
þeirri kröfú þjóðleikhúsmanna að
þekktustu persónur Spaugstof-
unnar skyldu koma fram í þessu
skopi. Þær em sniðnar fyrir sjón-
varp, líf þeirra bundið þeim
ramma. Sú krafa hefur líka sett
þeim félögum þröngar efnislegar
skorður og alið af sér þá sýningu
sem gefúr að líta í Gamla bíói. Og
í öllum þessum fyrirgangi fer
margt forgörðum. Tónlistin
hverfúr og nær öll söngnúmer
verða daufleg, enda er sú grein
gamanleiksins ekki sterkasta hlið
þeirra félaga. Þeir hafa náð best-
um árangri í stuttum hnitmiðuð-
um sketsum. Það em slíkir taktar
sem takast best í sýningunni og
em oft bráðskemmtilegir. En í
heild er sýning Spaugstofúnnar
skúffelsi.
anmynd sem tekst stundum að minna á
Dario Fo I stuði./SIF
Laugarásbfó
Á bláþræði
(Bird on a Wire)A
Gibson og Hawn leika hér gamalt kæru-
stupar sem er á flótta undan bæði bófum
og löggum (minna má það ekki vera). Þau
passa hræðilega illa saman og hefur sýni-
leg áhrif á leik þeirra. Handritið er ósköp
ómerkilegt, en það er reynt að flikka upp á
það með að láta aðalleikarana vera berr-
assaða annað veifið./SIF
Aftur til framtiðar III
(Back to the Future III) ★★’A
Marty og Doc eru hér komnir I þriöja og
síðasta skiptið. Nú eru þeir félagar komnir í
Villta vestrið og Doc orðinn ástfanginn. En
söguþráðurinn er eins og venjulega um
vandamál þeirra við að komast aftur til
framtíðar. /SIF
Bíóborgin
Hrekkjalómarnir 2
(Gremlins 2)**
Litlu skrímslin eru komin aftur á kreik í þetta
skiptið í stórhýsi í Manhattan. Ég var full af
fordómum í garð þessarar myndar og lang-
aði ekkert á hana og það kom mér þess-
vegna á óvart hvað ég skemmti mér vel.
Það er fullt af góðum bröndurum og tækni-
brellurnar eru frábærar./SIF
Á tæpasta vaði 2
(Die Hard 2)★★★
Bruce Willis er kominn aftur í gervi lög-
reglumannsins John McClane og I þetta
skiptið fer hann ekki úr skyrtunni og bjargar
alþjóðlegum flugvelli í Washington frá
hryðjuverkamönnum. Það er Finninn
Renny Harlin sem leikstýrir þessu fram-
\ haldi og gerir það prýðilega. Ágæt spennu-
mynd með fullt af sprengingum og smá
gríni inni á milli. /SIF
Skemmtikraftar
Hvað stendur þá eftir? Bessi
Bjamason og Rúrik Haraldsson
virðast geta gert sér mat úr hvaða
vitleysu sem er. Sigurður Sigur-
jónsson skýtur út úr sér fyndnum
setningum í nokkrum gervum og
er glæsilegur kistusmiður úr
söguheimi Dickens. Randver er
oft feikilega fyndinn sögumaður.
Hæfileikar Pálma og Amar njóta
sín ekki í þessari sýningu. Aðrir
kraftar sem em kallaðir til þessa
leiks fylgja formúlu sýningarinn-
ar af krafti og fimi en em harla lít-
ið hlátursefni.
Langir lífdagar
Ekki er ólíklegt að þessi sýn-
ing gangi lengi og skemmti fólki
eitthvað. Fyrri vinsældir fleyta
henni langt. „Það má hafa gaman
af þessu,“ sagði fólk í frnmsýn-
ingarhléinu. En það er bara ekki
Mynd: Kristinn
nægilegur árangur þótt um fmm-
raun ungra höfúnda sé að ræða.
Þeirra bíður núna það stranga
verk að fínpússa sýninguna í
keyrslum. Það er ekki öfúndsvert
verk og verður erfitt. Vonandi
njóta þeir til þess tilstyrks leik-
hússtjómarinnar og sinna sam-
starfsmanna. Því þá aðeins er til-
gangi þessa skops náð að fólk
skemmti sér konunglega í fúllu
Dapurleg framtíðarsýn
Háskólabíó
Robocop2
Leikstjóri: Irvin Kershner
Aðalleikarar: Peter Weller, Nancy
Allen o.fl.
Það er enginn endir á þessari
framhaldsmaníu í sjónmáli og
engin von á honum heldur, því
amerfsku stúdíóin eru öll að ráð-
gera fleiri framhaldsmyndir. Ég
spái því að eftir nokkur ár verði
það undantekning frekar en hitt
að sjá mynd sem ekki er framhald
af einhverri annarri. Dapurleg
framtíðarsýn!
Það er líka dapurleg framtíðar-
sýn í Robocop 2. Eins og sú fyrri
gerist hún f Detroit í náinni fram-
tíð, Og eins og í fyrri myndinni er
það einkafyrirtækið OPC (Omni
Consumer Products) sem rekur
lögregluna og borgar henni laun.
Vandamálið er að OCP borgar
lögreglunni alltof lág laun og
löggan er þessvegna í verkfalli.
Þessvegna ríkir óöld mikil í Det-
roit og aðeins Robocop getur
bjargað málunum. (Þessi sögu-
þráður gæti alveg eins átt við
mynd nr. 1).
Glæponarnir í þessari mynd
eru annars vegar eiturlyfjasalar.
Þeir framleiða og selja eiturlyfið
Nuke, sem er geysivinsælt, menn
ráðast á gamlar konur og ungar
konur á menn til að ræna pening
fyrir Nuke. Hinir glæpa-
mennirnir eru forstjórar OPC,
þeir vilja eiga borgina og breyta
henni, rífa fátækrahverfin og
byggja dýrar stálhallir svo að þeir
sem minna mega sín eiga engan
samastað. En það verður lítið úr
framkvæmdum meðan glæpa-
tíðnin er svona há. Robocop 1.
annar ekki eftirspurn og OPC á-
kveður að búa til annan Roboc-
op. En það er hægara sagt en gert
þvf að svona vélmenni verður að
hafa mannsheila. Menn fara að
leita að heila og ákveða loks að
nota heilann úr aðal eiturlyfja-
salanum sem er nýbúið að hand-
taka. (Kannist þið nokkuð við
hugmyndina? Það vantar bara
Igor með kryppuna.) Síðan endar
allt með agalegu stríði milli
vélmennanna sem er á að giska
tíu mínútum of langt.
Það er voða lítið nýtt í þessari
mynd er hún er oft spennandi, og
þar spilar inní ágæt myndataka,
hetjutónlist og læti, enda hljóð-
kerfið í Háskólabíói alveg kjörið
fyrir svona hávaðamynd.
Þetta er spennumynd fyrir þá
sem hafa svo gaman af spennu að
ekkert annað skiptir máli. Hinir
skulu bara leigja sér vídeó.
SIF
Lægsta verð á Encyclopedia Britannica hingað til.
Nú er dollarinn hagstæður til kaupa á Britannica 1990.
33 stór bindi - yfír 33000 blaðsíður - mikill fjöldi litmynda
1989 útgáfan kostaði kr. 95.000,-
Við bjóðum þér 1990 útgáfuna í vönduðu, brúnu bandi á aðeins
kr. 69.000,- gegn staðgreiðslu, eða á kr. 77.000,- með afborgunum.
Þetta einstaka tilboð gildir meðan núverandi birgðir endast.
BÓWU8 STEINARS
BERGSTAÐASTRÆTI7, SÍMI 12030.0PIÐ 1-6 eh.
Föstudagur 28.september 1990 NÝTT HELGARBLAÐ — SlÐA 23