Þjóðviljinn - 28.09.1990, Page 26

Þjóðviljinn - 28.09.1990, Page 26
Blúsgrtarkonart Bonráe fær uppreisn æru i Þrátt fyrir látlaust ströggl kemur frægöin seint hjá sumum og hjá öðrum lætur hún aldrei á sér kræla. Bonnie Raitt hefur ver- ið viðloðandi tcmlistarheiminn síðan árið 1970 og gefið út einar níu eða tíu plötur. Allan þennan tíma hefur hún notið mikillar virðingar annarra tónlistarmanna og plötur hennar hafa hver um sig selst i nokkur hundruð þúsundum eintaka. I hvert sinn sem plata kom út allt frá fyrstu plötunni „Bonnie Raitt“ árið 1971, hafa gagnrýnendur sagt að nú hljóti að vera komið að því að slá í gegn, en allt hefur komið fyrir ekki. Það er margt sem gerir Raitt og feril hennar merkilegan. Hún er fædd í Los Angeles árið 1949 og er því 41 árs. Hún byrjaði tólf ára gömul að fondra við gítarinn, hljóðfæri sem fáar stelpur endast til að ná árangri með, og endaði sem einn merkasti núlifandi ,;sli- de“ gítarist Bandaríkjanna. Arið 1969 var Raitt farin að spila þjóð- lagatónlist, rokk og blús á klúbb- um og þá má segja að tuttugu ára ferðalag um Bandaríkin þver og endilög hafi hafist en á ferli sín- um hefúr hún spilað með mörgum forvitnilegustu blúsurum vestan- hafs. A síðustu tuttugu árum hef- ur hún líka oft hitað upp fyrir frægustu rokkara og blúsara tón- listarheimsins, eins og til dæmis Eric Clapton. En eftir tólf ára samning við Wamer Brothers gafst fyrirtækið upp á Raitt og sparkaði þessari gítarkonu sem svo oft var næstum því búin að slá í gegn. Ástæðum- ar fyrir lánleysi Raitt að þessu leyti era sjálfsagt margar. Ekki er þó ólíklegt að sú staðreynd að hún semur lítið af lögum sjálf, hafi haft mikil áhrif á sölu platna hennar. Það er heldur ekki ólík- legt að barátta hennar fyrir rétt- indum kvenna hafi eitthvað trafl- að bandaríska hljómplötukaup- endur. Eins og í góðum ævintýrum kom síðan að því að lukkuhjólið fór að snúast Raitt í hag. Eftir að Bonnie Raitt á hljómsveitarkistu sem hún hefurflogið á um Bandarfkin f tuttugu ár. hafa verið í sex ár án hljómplötu- samnings, tók Capitol hana upp á sína arma og fyrsta plata Raitt síðan 1983, „Nick of Time“, kom út í fyrra. Raitt á sjálf aðeins tvö lög á plötunni, titillagið og lag sem ber þann viðeigandi titil, „The Road is my Middle Name.“ Fyrir þessa plötu fékk Bonnie Ra- itt hvorki flsiri né færri en fem Grammy-verðlaun. Titillag plöt- unnar, „Nick of Time“, gerði það gott á vinsældalistum í Bandaríkj- unum og platan seldist í miljón- um eintaka. Þessi fjórfaldi heiður kom Raitt sjálffi vægast sagt á óvart og að eigin sögn varð hún að breyta öllum sínum áætlunum. Hún hafði fyrirhugað að hefja upptökur nýrrar plötu í júní síðast liðnum, en því var frestað ffam á haustið til að fylgja eftir Grammy-verðlaununum. En heiður Raitt við síðustu Grammy-verðlaunaafhendingu var meiri. Hún hafði sungið blús- dúett með gömlum vini sínum, John Lee Hooker, á endurkomu- plötu hans „The Healer“ og fyrir það lag fengu þau sameiginlega Vehiet Underground íkortér Ein umdeildasta hljómsveit rokksögunnar, Velvet Undergro- und, reis upp úr gröf sinni snemma sumars, eftir 15 ár undir grænni torfu. Vegna deilna um höfundarrétt hafa þau Lou Reed, John Cale, Maureen Tucker og Sterling Morrison varla talast við eftir að þau slitu samvistunum. En þeim og mörgum öðrum að óvör- um hittust þau öll við minningar- athöfn um Andy Warhol í París í júnímánuði. Nokkrum dögum áð- ur hafði Lou Reed gefið út þá yf- irlýsingu á blaðamannafundi, að Velvet Underground myndi aldrei aftur koma fram sem hljómsveit. Eftir að fjórmenningamir hittust var ekki víst fram eftir kvöldi, hvort þau myndu grípa í hljóðfær- in. Þau létu engu að síður til leið- ast og tóku 15 mínútna útsetningu af „Heroin“. Það fylgir ekki sög- unni hvort framhald verður á samspilinu. Verögikfi Hencfeix misskilið Hann var heldur betur dýr misskilningurinn sem ítali nokkur lenti í fyrir skömmu. Vinurinn tók þátt í að bjóða í Fender Stratocast- er gítar á uppboði hjá Sotheby’s í London, en gítarinn átti Jim Hendrix forðum. Italinn kom boðum sínum áleiðis í gegnum síma. Að lokum fór svo að enginn bauð betur en hann, 180 þúsund pund eða 18 miljónir íslenskra króna. Eitthvað hefur hann víst raglast í líram og pundum þvi sögur herma að hann hafi gránað duglega í andlitinu þegar hann gerði sér grein fyrir því að gítar- inn kostaði ekki 18 þúsund pund eins og hann héit, sem samsvarar 1,8 miljónum króna. Heimildir herma ekki hvort hann átti fyrir gripnum að lokum. Smáskrfusafn TheFall Manchester-grúppan The Fall á sér örfáa en þó nokkuð góða að- dáendur á íslandi. Snemma í þess- um mánuði var gefin út safnplata með lögum hljómsveitarinnar og Grammy-verðlaun, þannig að Ra- itt var verðlaunuð fimm sinnum. Við afhendinguna sagði hún: „Ef einhver hefði sagt við mig fyrir rúmu ári að ég ætti eftir að fá Grammy-verðlaun fyrir „Nick of Time“ hefði ég sagt, auðvitað og Berlínarmúrinn fellur á næsta ári.“ Á þeim sex árum sem Raitt var samningslaus, skildi hún við mann sinn og hætti að drekka áfenga drykki, sem hún hafði gert heldur ótæpilega i langan tíma. Hún þakkar þessari ákvörðun að nokkru leyti velgengni sína og fjallar um hana í laginu „Nick of Time.“ Þetta titillag plötunnar sker sig nokkuð úr öðram lögum plötunnar. Þetta er þægilegur þjóðlagablandaður blús og raunar eitt þeirra laga sem mér finnst best á plötunni. Það er alltaf hætt við því, þeg- ar lög eru tekin eftir marga og ólíka höfúnda, að plata verði sundurlaus. „Nick of Time“ er ekki alveg laus við þetta. Platan er þó ffekar tvískipt en margskipt þannig að Raitt sleppur fyrir hom. Mig langar að nefna nokkur lög til sögunnar. „Nobody’s Girl“ eft- ir Larry John McNally er til dæm- is ljúft lag um sjálfstæða stelpu sem kærir sig ekki um að láta aðra segja sér til vegar. Kassagítarinn og öguð rödd Raitt mynda góðan samhljóm og lagið er bæði laust við væmni og kvennabaráttukli- sjur. Næsta lag þar á eftir, „Heave A Heart“ eftir Bonnie Hayes, er í svipuðum dúr, nema þar sleppir Raitt gítamum algerlega. Bonnie Raitt endar plötuna síðan á lagi sínu „The Road is my Middle Name,“ hefðbundnum blús þar sem hún sýnir svo ekki verður um villst, að hún er rúmlega liðtækur blúsgítaristi. Þessi bandaríska gítarkona hefúr ekki hljómað í mörgum hljómtækjum á Islandi. Þeir sem hafa aðeins kynnst henni á „Nick of Time“ geta hins vegar náð sér í saínplötu sem Wamer Brothers hafa gefið út og nær yfir allan hennar ferli. Platan sú heitir ósköp einfaldlega „Bonnie Raitt Collection“. í þessu safni er að finna marga mjög skemmtilega hráa blúsa og marga hveija mun blárri en em á „Nick of Time“. -hmp heitir sú „458489“. Platan hefúr að geyma 17 lög sem komu út á smáskífúm á ámnum 1984 - 1989. Inspiral Carpets Enn ein Manchester-grúppan sem hefúr notið vaxandi vinsælda sendi ffá sér sína fyrstu breiðskífú í sumar. Nú era drengimir ný- komnir úr hljóðveri þar sem þeir tóku upp efni á nýja smáskífu sem er væntanleg í næsta mánuði. Fágættefhi Aðdáendur þeirrar ágætu hljómsveitar Decon Blue ættu að gleðjast við þessa ffétt. Hljóm- sveitin ætlar að senda ffá sér í næsta mánuði tvöfalda skifú sem hefúr að geyma lög sem áður voru gefin út á B-hlið smáskífa og ann- að fágætt efni sem gefið var út í takmörkuðu upplagi. Hljómsveit- in verður einnig með tónleika á Wembley um svipað leyti og plat- an kemur út. -hmp 26 SÍÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 28. september 1990

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.