Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1995, Page 2
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1995
•k ,
2 ★
fréttir
Skoöanakönnun DV um kjör þingmanna:
Kjósendur haf na alfarið
skattfrjálsum greiðslum
- ákvörðun þingmanna á skjön við vilja 96 prósent landsmanna
Yfirgnæfandi meirihluti kjósenda
um allt land er andvígur þeirri
ákvöröun þingmanna að skammta
sér 40 þúsund krónur á mánuöi í
skattfrjálsar kostnaðargreiðslur.
Þetta kemur fram í skoðanakönnun
sem DV framkvæmdi í fyrrakvöld.
Af þeim sem afstöðu tóku í könn-
uninni reyndust 96,2 prósent vera
andvíg því að þirigmenn nytu skatt-
frelsis umfram aöra landsmenn.
Fylgjandi voru einungis 3,8 prósent.
Úrtakið í skoðanakönnun DV var
600 manns. Jafnt var skipt á milli
kynja og eins á milli landsbyggðar
og höfuðborgarsvæðisins. Spurt var:
„Ertu fylgjandi eða andvigur þvi að
þingmenn fái 40 þúsund krónur á
mánuði í skattfrjálsa kostnaðar-
greiðslu?"
Ef tekið er mið af svörum allra
þátttakenda í könnuninni reyndust
3,7 prósent vera fylgjandi þessum
skattfijálsu greiðslum til þingmanna
en andvíg voru 91,7 prósent. Oákveð-
in voru 2,2 prósent en 2,5 prósent
aöspurðra neituðu að gefa upp af-
stöðu sína.
Andstaöa kjósenda gegn 40 þúsund
króna skattfijálsu greiðslunum er
jafn mikil á landsbyggðinni og á höf-
uðborgarsvæöinu. Á landsbyggðinni
reyndust 96,2 prósent þeirra sem af-
stöðu tóku vera andvíg greiðslunum
en á höfuðborgarsvæðinu var hlut-
falliö 96,1 prósent.
Örlítill munur greindist hins vegar
á afstöðu karla og kvenna í könnun
DV. Meðal kvenna reyndust 97,9 pró-
sent þeirra sem afstöðu tóku vera á
móti skattfrjálsu kostnaðargreiðsl-
unum en meðal karla var hlutfalliö
94,4 prósent.
-kaa
Skattfríðindi þingmanna:
Lögunum breytt
„Niðurstaða skoðanakönnunar DV
kemur mér hreint ekki á óvart. For-
sætisnefnd hefur þegar afgreitt máhð
frá sér og leggur til að flutt verði
frumvarp til breytinga á lögunum frá
því í vor þess efnis að þessar al-
mennu starfskostnaðargreiðslur lúti
almennum reglum skattalaga. Sér-
reglan í lögimum verður sem sagt
afnumin og þetta höfum við gert í
samráði við þingflokksformenn,"
segir Ólafur G. Einarsson, forseti
Alþingis.
„Viðbrögð almennings voru vissu-
lega harðari en ég átti von á en með
þessari ákvörðun höfum við tekið
tillit til þessarar gagnrýni. Hún hefur
átt rétt á sér,“ segir Ólafur. -kaa
Eitt merkasta kuml
sem fundist hef ur
„Þetta var mjög spennandi dagur að víkingasiö. Þá voru með honum
og nú getum við fullyrt aö þetta er í jöröinni hundur og hestur. í
eitt ríkmannlegasta kuml sem fyrstu var óttast að beinagrind
fundist hefur á fslandi,“ sagði mannsins hefði verið raskað en í
Steinunn J. Kristjánsdóttir i sam- gær kom 1 Ijós aö hún lá dýpra en
tah viö DV í gær eftir aö verkum haldiö var í fyrstu.
dagsins við uppgröftinn í Skriðdal „Það er enginn vafl á að þetta er
var lokið. meiri háttar fundur og mikið verk
I gær fannst heiileg beinagrind framundan við að rannsaka það
af manni sem lagður hefur verið í sem komiö ixefur upp. Viö eigum
kumhð í öhum skrúöa. Við hhð enn eftir að taka L'rinagrindina úr
hans fundust m.a. þrír mynd- gröfinni en vonum au þaö takist
skreyttir bronshlutir meö greini- sem allra fyrst," sagði Steinurn.
legum listbrögðum víkinga. Þá Mikill gestagangur en nú viö
fannst heil klébergsgrýta. Það er kumhð í Skriðdal og margir for-
önnur slík sem finnst hér á landi. vitnir vegfarendur leggja lykkju á
Upp úr kumlinu í gær kom einnig leið sína til að kikja á þennan
öxi, sverð og skjöldur. ónefnda forfóður okkar allra, sem
Maðurinn hefur verið lagður á valinvarhinstahvílaíaustfirskum
hhðina í kumhð með kreppt hné dal. -GK
Skoðanakönnun DV:
Skattfrelsi þingmanna?
- 40 þús. kr. skattfrjálsar kostnaðargreiöslur á mánuöi -
Niðurstöður:
100%--------—----------9l;7
Fylgjandi Andvígir Óákveðnir Svara ekki
§ Fylgjandi
Afstaða eftir búsetu:
SiKurlax kom-
inn í gjaldþrot
„Jú, það er rétt, við báðum um
gjaldþrotaskipti í dag,“ segir Júlíus
Birgir Kristinsson, framkvæmda-
stjóri fiskéldisfyrirtækisins Silfurlax
hf.
Fyrirtækið hefur undanfarin ár
rekið hafbeitarstöð í Hraunsfirði á
norðanverðu Snæfellsnesi, auk
seiðaeldisstööva að Núpum í Ölfusi,
Læk, Hahkelshólum og fleiri stöðum
á Suðurlandi.
Fyrirtækið hefur átt í verulegum
erfiðleikum undanfarið og hafa
heimtur á hafbeitarlaxi brugðist aö
mestu í sumar. Er því kennt um aö
fyrirtækið leggur nú upp laupana
eftir ellefu ára starfsemi.
-GK
Fékk þungt höf uð-
höggíbrotsjó
Skipverji á togaranum Höfðavík brúarvegginn.
AKfékkþungthöfuðhöggþegarbrot- Þyrla Landhelgisgæslunnar var
sjór reið yfir skipið á miðunum suð- send efhr manninum og kom hún
vestur af Eldey í gær. Maðurinn stóö með hann á Borgarspítalann síðdeg-
fyrir framan brúna þegar sjórinn is. Meiðsh mannsins reyndust minni
gekk yfir hann og slóst höfuð hans í en tahð var í fyrstu. -GK
Féll af þaki og rotaðist
- falliö var nærri fimm metrar
Maður féll ofan af þaki húss við
Sævarhöfða eftir hádegið í gær og
rotaðist. Falhð var nærri fimm metr-
ar en mjúkur jarðvegur undir þannig
að maðurinn slapp betur frá falhnu
en á horfðist. Hann var fluttur á
slysadeild og kvartaði undan eymsl-
umíandhtiogöxl. -GK
Ummæli fólks
í könnuninni
„Þótt ég noti stígvél í tjósinu
telst það ekki tíl kostnaðar hjá
mér," sagði bóndi á Suöurlandi.
„Ég er gjörsamlega á móti þess-
um greiðslum. Ákvörðun þings-
ins ber vott um fuhkomið sið-
leysi," sagði kona á Suðurlandi.
„Þaö væri nær aö efla löggæsl-
una,“ sagði kona á Austurlandi.
„Þingmenn mega gjarnan hafa
hærri laun en þeir verða að borga
sinn skatt eins og aðrir,“ sagði
kona á Vestfjörðum. „Ég er al-
gjörlega á móti því að þingmenn
njóti sérréttinda. Þá fjarlægjast
þeir þjóðina meira en orðið er,“
sagði karl í Reykjavík. „Ég er á
því að öryrkjar eigi að njóta sérs-
takra skattfríðinda. Að undan-
skilja þingmenn er fásinna,“
sagði kona á Norðurlandi. „Úr
því þingmenn viija bera sig sam-
an við starfsbræður í útlöndum
er best að við gerum það lika,“
sagði verkamaður í JReykjavík.
„Er þeirra kostnaður eitthvað
æðri okkai- kostnaði?" sagði kona
á Vesturlandi. „Þaö er feiknaleg-
ur ruddaskapur gagnvart al-
menningi að þingmenn skuh
skammta sér laun eftir hentug-
leikum,“ sagði karl í Reykjavík.
-kaa
Stuttar fréttir
Þingmennúrfrii
Forseti íslands hefur að tillögu
forsætisráðherra ákveðið að Al-
þingi skuli koraa saman mánu-
daginn 2. október næstkomandi.
Kosiðumformann
Atkvæðagreiðsla vegna alls-
herjarkjörs til formanns í Al-
þýðubandalaginu hefst á fóstu-
áaginn í næstu viku. Atkvæða-
greiðslunni lýkur á hádegi hinn
13. október næstkomandi.
Bhndrafélagiö er að hefja fjár-
öflun þar sem leitað verður til
fyrirtækja og almennings. Gegn
fiárframlagi fær almenningur
kort sem veitir 10 til 50% afslátt
hjá 130 fyrirtækjum á höfuðborg-
arsvæðinu.
Stöð 3 er heitið
Nafnið Stöö 3 varð fyrir valinu
í samkeppni um heiti nýrrar
sjónvarpsstöðvar sem áætlar að
hefla útsendingar hér á landi.
Félag íslenskra stórkaupmanna
hefur harðlega mótmælt nýlegri
úthlutun toiikvóta á unnum kjöt-
vörum. Aö mati stórkaupmanna
felur úthlutunin í sér óheimila
, gjaldtöku.
Farþegum í miililandafiugi á
vegum Flugleiða fjölgaði um 7,8%
fyrstu 8 mánuöi ársins. Ahs flugu
102.803 farþegar á vegum félags-
ins milli landa á timabihnu. ‘
Kvartað yf ir rikisábyrgð
Eftirlitsstofnun EFTA hefur
kvartað við íslensk stjómvöld
yfir þeirri ríkisábyrgð sem ríkis-
bankarnir njóta. RÚV greindi frá
þessu. -kaa