Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1995, Síða 10
10
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1995
Skipstjórinn stundar hata-jóga og vinnur að þýðingu kennslubókar um jóga:
„Stundum, áöur en ég veit af, er
ég kominn með lappir upp á vegg í
ákveöna stellingu. Bara af því að ég
finn að ég þarf þess með að láta
blóðið renna til baka. Ég er kannski
búinn að sitja eða standa allan dag-
inn uppi í brú og þá set ég fæturna
upp á vegg. Mér finnst þetta eðlilegt
þótt það sé engan veginn eðlilegt að
vera með fæturna upp um alla veggi
en ég iæt það vera að standa á haus
úti á sjó,“ segir Þorleifur Guð-
mundsson, skipstjóri á Jóni Trausta
ÍS 78, 53 tonna eikarbát sem gerður
er út frá Þorlákshöfn.
ars jóga. Mottóið er heilbrigð sál í
hraustum líkama. Þetta er ekki bara
vöðvauppbygging heldur er líka
lögð áhersla á að rækta innri líffæri:
hjarta, nýru, lifur, æðakerfið, sjón,
heyrn og heila, á skipulegan hátt.
Um leið og ég geri æfingar er ég að
byggja mig upp og hvíla mig. Ég var
með visst prógramm sem ég hef
fylgt en þegar ég er á sjó fer allt slíkt
út í veður og vind. Þá nota ég þær
stundir sem gefast til að stunda
þetta. Ef maður hefur einhvern tíma
byrjað á þessu býr maður að því alla
ævi.“
35 ára
kynni
Margir Vesturlandabúar hafa til-
einkað sér jóga í seinni tíð en lík-
lega eru þeir fáir, skipstjórarnir,
sem stunda jóga að staðaldri. Þeir
eru þó líklega enn færri, skipstjór-
arnir, sem vinna að þýðingu bókar
um jóga á íslensku eins og Þorleifur
hefur einmitt verið að gera undan-
farin ár.
Hann segir að margir samverk-
andi þættir hafi kveikt áhuga hans á
jóga. Hann hafl fyrst kynnst þessu í
leikfimi í gagnfræðaskóla skömmu
fyrir 1960. Leikfimikennari hans var
Vignir Andrésson og segir Þorleifur
hann hafa laumað þessu inn í leik-
fimikennsluna á skemmtilegan hátt.
„Mörgum árum seinna fór ég að
spá í þetta og ætli það hafi ekki ver-
ið árið 1978 sem ég fór að stunda
þetta fyrir alvöru.“
Líkamsæfingar
og hugrækt
en ekki trú
Jóga er upprunnið í Indlandi og
hefur verið túlkað sem heimspeki-
stefna og ein útbreiddasta trúspeki-
stefna í hindúasið. Þorleifur leggur
þó áherslu á að jógað sem hann
stundar, hata-jóga, sé meira líkams-
æfingar og hugrækt en trú.
„Það er allt tekið í gegn í þessu og
þetta er í raun undirstaða alls ann-
Staðið á haus
uppi á hól
Fyrir nokkrum árum þurfti Þor-
leifur að aka á milli Hornafjarðar og
Þorlákshafnar. Skipið sem hann var
á landaði á Hornafirði og var ákveð-
ið að aka til Þorlákshafnar með
áhöfnina. Menn voru þreyttir og
þegar Þorleifur var búinn að aka
hálfa leið stöðvaði hann bifreiðina,
snaraði sér út, hljóp upp á nærliggj-
andi hæð og stóð á haus. Smápen-
ingar og annað lauslegt hrundi úr
vösum hans en eftir fimm mínútur
kom hann aftur niður í bíl þar sem
áhöfnin beið í forundran og hélt
ferðinni áfram úthvíldur.
„Ég fæ hvíld út úr þessu. Þetta
eykur blóðstreymi til höfuðsins og
maður vaknar vel við það. Þetta
kemur æðakerfinu líka í lag. Ég
varð til dæmis var við það sem sjó-
maður og stýrimaður fyrr á árum.
Þá stóð maður mikið og af þessu
hlaust gyllinæð, líkt og hrjáir marga
sjómenn. Ég fór að velta því fyrir
mér hvað hægt væri að gera því ég
var orðinn þreyttur á að láta skera í
þetta og fór að stunda jógaæfingar.
Eftir það hefur gyllinæð ekki angr-
að mig enda er sjúkdómurinn ekk-
ert annað en æðahnútur og jógaæf-
ingarnar halda æðakerfinu heil-
brigðu,“ segir Þorleifur.
Bókin sem Þorleifur er að þýða er
ensk kennslubók um jóga. Verkið
hefur verið langan tíma í smíðum,
enda segir Þorleifur það verðugt
ævistarf, en hann hóf það árið 1982.
„Ég byrjaði að þýða bókina af því
að ég fann að áhrifin voru góð af
„tg sveima ekki a milli tilvistarstiga eða annað slíkt en ég er mun meðvit-
aðri um eigin likama og það er heimur út af fyrir sig,“ segir Þorleifur Guð-
mundsson.
þessum æfingum. Ég vildi að aðrir
nytu þess með mér. Ég hef haldið
þessu að fjölskyldunni, vinum og
þeim sem standa mér nærri. Verkið
hefur tekið langan tíma en bókin er
á mjög erfiðu máli fyrir ekki mennt-
aðri mann en mig. Það er mikið um
læknisfræðileg og heimspekileg
hugtök í henni og ég hef verið
klukkustundum saman að þýða
bara eina blaðsíðu. Það þarf
bæði að finna réttu orðin og
láta þetta hljóma vel þannig að
lesandinn geti rennt í gegnum
textann. Eins og heyra má er
þetta erfltt verk og ég á langt í
land með að ljúka því þótt ég
hafi byrjað á þessu fyrir 13
árum. Þýðingar liggja oft
niðri hjá mér í nokkra mán-
uði eða ár enda erfitt að
vinna að þeim á sjó í þeim
veiðiskap sem ég stunda. En '
ég reyni að nýta dauðar
stundir til þess að vinna að
þessu og svo vantar mig útgef-
anda að bókinni," segir Þor-
leifur.
Hann segir fjölskyldu og
vini taka því misjafnlega þegar
hann reynir að fá þá til að
stunda jóga. Sumir séu þó
reiðubúnir að prófa.
Einstaka
menn jákvæðir
„Sumir halda að þetta séu
trúarbrögð sem það er alls ekki
frekar en kvótakerfið. Ég geri
þetta yfirleitt einn og í ein-
rúmi. Ég hef þó orðið var við
að einstaka maður *sem ég þekki
prófi þetta og þeir eru jákvæðir
gagnvart þessu. Þeir segjast finna
mun á sér á eftir en
þaö er tómur
misskilning-
ur að þetta
séu trúarbrögð,
þetta er miklu
frekar lífsspeki,
enda hef ég orðið
var við vakn-
ingu meðal
fólks gagnvart
þessu. Það eina sem hata-jóga kann
að gera er að færa mann nær
trúnni, þeirri trú sem maður hefur _
hvort sem það er íslams-, búddatrú
eða kristni. Ég sveima ekki á milli
tilvistarstiga eða annað slíkt en ég
er mun meðvitaðri um eigin líkama
og það er heimur út af fyrir sig.
Hinn almenni maður sér ekki nema
yfirborð eigin líkama og maður fer
betur með hluti þegar maður veit að
þeir eru viðkvæmir.“
-pp