Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1995, Síða 19
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1995
sviðsljós
í ónáð hjá pressunni
Emma Thompson var stórt númer
í Bretlandi á meðan hún lét sér nægja
að láta hæflleika sína skína í bresk-
um leikhúsum og kvikmyndum og
bresku sjónvarpi. En þegar hún
hlaut óskarsverðlaunin 1993 fyrir
leik sinn i Howard’s End fór breska
pressan í baklás. Ekki batnaöi það
þegar hún ári seinna var útnefnd til
tveggja óskarsverðlauna, fyrir leik í
Remains of the Day og In the Name
of the Father.
Greinarhöfundur í The Times
skrifaði að Emma Thompson væri
að verða jafn þreytandi og Meryl
Streep og aö hegðun hennar væri
hneyksli.
Aðrar breskar stjörnur hafa fengið
svipaða meðferð hjá breskum fjölm-
iðlum, eins og til dæmis Michael
Caine, Dudley Moore, Jeremy Irons
og Daniel Day-Lewis. Meira að segja
Sir Lawrence Olivier var sakaður um
það fyrir hálfri öld að eltast við ófin-
an frama í Hollywood í stað þess að
fást við alvarleg störf á leiksviðum í
London. Enginn þeirra hefur þó
fengiö jafn slæma útreið og Emma.
Hún hefur jafnvel fengið á baukinn
hjá fjölmiölum fyrir að vera gift Ken-
neth Branagh sem á unga aldri var
kallaður nýr Olivier. Emma og Ken-
neth hafa verið skömmuð fyrir að
vera vinstri sinnuð og fyrir að baða
sig í ljósinu frá konungshöllinni.
Emmu var nóg boðið þegar gefið
var í skyn í fjölmiðlum að hún fengi
vinnu í gegnum manninn sinn. Nú
talar hún ekki við bresku síðdegis-
blöðin og svo virðist sem hún forðist
samstarf við eiginmann sinn þrátt
fyrir að þau hafi slegið í gegn í mynd-
um sem þau hafa leikið saman í.
Emmu þykir óskemmtilegt að láta
taka við sig viðtöl þegar auglýsa þarf
kvikmyndir en hún lætur sig þó hafa
það.
Emma og Kenneth búa í norður-
hluta London í sömu götu og Emma
ólst upp í. Móðir hennar býr á hæð-
inni fyrir ofan þau og systir hennar
handan við horniö. Hún ólst upp viö
leikhúslíf því margir leikarar eru í
fjölskyldunni. Aðdáendur hennar
segja hana geta brugðið sér í hvaða
hlutverk sem er.
Kenneth Branagh og Emma Thompson hafa fengið á baukinn hjá bresku
pressunni.
Pierce Brosnan og Keely Shaye-
Smith áttu ánægjulegar stundir í
sumar á Kyrrahafseyjunni Bora
James Bond:
Ástarfrí í
Kyrrahafinu
Pierce Brosnan, hinn nýi James
Bond, er nú hættur að leyna sam-
bandi sínu og blaðakonunnar Keely
Shaye-Smith. Keely hefur skrifað um
umhverfismál og hún kynntist Pi-'
erce í sambandi víð herferð í nátt-
úruverndarmálum sem hann studdi.
Keely hefur fylgt Pierce á ferðum
hans milli staða þar sem hann hefur
þurft að dvelja vegna vinnu sinnar.
En Pierce var í fyrstu tregur til að
opinbera samband þeirra og sagði í
mörgum viðtölum að hann væri enn
einn síns liðs og ætlaði aldrei að
kvænast aftur. Keely er sögð hafa
hótað aö yfirgefa Pierce ef hann lýsti
slíku yfir aftur.
Pierce missti eiginkonu sína, Cass-
öndru Harris, úr krabbameini fyrir
nokkrum árum. Þau höfðu lifað í
hamingjusömu hjónabandi í 16 ár og
áttu saman einn son. Börn Cass-
öndru af fyrra hjónabandi höfðu
einnig ahst upp hjá þeim.
Cassandra kvað hafa sagt við Pi-
erce aö hann yrði að kvænast aftur
en hann yrði að lofa að ganga ekki
að eiga neina heilalausa.
Hjónaband Pierce og Cassöndru
Harris var eitt af þeim hamingju-
sömustu i Hollywood.
LjEGT,
®/>
> ?
Co 0
$
'afa
b' É u‘'rv/k--
c & óí i6 ;>-
x- Ol &
*«» j
-vertu viðbúiruw vinningi
Vertu með fyrir kl. 20?-0