Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1995, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1995, Qupperneq 23
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1995 23 Jóakim og Alexöndru er ekki i kot vísað því slotið er hálft annað þúsund fermetrar og er ætlun þeirra að 500 fermetrar af höllinni verði þeirra ástar- hreiður. Láttu þér líða vel í vetur! ÞYKKAR SOKKABUXUfí OG SOKKAR Heildsölubirgðir: Davíð S. Jónsson & Co. hf. sími 552 4333 Skötuhjúin, Jóakim Danaprins og tilvonandi brúður hans, Alexandra Manley, hafa undanfarnar vikur unnið að endurhönnun og innrétt- ingu nýs heimilis síns, Schacken- borgarhallar á Jótlandi. Þeim er ekki í kot vísað því slotið er hálft annað þúsund fermetrar og er ætlun þeirra að 500 fermetrar af höllinni verði þeirra ástarhreiður. Móðir Jóakims, Margrét Dana- drottning, lagði blessun sína yfir að parið byggi í óvígðri sambúð áður en þau sameinuðust fyr'ir augliti drott- ins en það þykir fátíða meðal eðal- borinna. Lánaði hún þeim meðal annars herragarð sinn í Frakklandi í sumar þann tíma sem hann stóð auður en eftir að parið kom heim til Danmerkur hafa endurbætur á Schackenborgarhöll staðið yfir. í sameiningu hefur parið farið í húsgagnainnkaup og endurhannað bað og eldhús. Segir blaðamaður Norska vikublaðsins að Jóakim hafi ekki viljað byrja á því verkefni fyrr en eftir að hann hefði fundið kvon- fang sitt. Alexandra tók hlutverk sitt svo alvarlega að hún gaf sér ekki tíma til að nýta garðinn umhverfis höllina og láta sól skína á sitt perlu- hvíta hörund - mikilvægara var að rífa innréttingar úr svefnherbergjum og stofum. Sjálf munu þau búa í suð- urálmu stórhýsisins en norðurálman verður innréttuð í fornum stíl. Stór landareign fylgir hölhnni sem Jóakim erfði eftir Schack greifa og greifynju. Það kemur sér vel því Jóa- kim, sem er lærður búfræðingur, hyggst lifa af jörðinni. Alexandra, sem er komin af kínverskum ættum, er hins vegar með hagfræðigráðu og má því gera því skóna að búskapur hjónaleysanna muni bera sig. Ætlunin var að Alex, eins og Jóa- kim kaUar ungfrú Manley, byggi í Hong Kong fram að brúðkaupinu, en þaðan er hún. Ástin reyndist fjar- lægöinni meiri og innan fárra vikna pakkaði Alex eigum sínum niður í 175 kassa og flaug til Jóakims síns en kassarnir voru fluttir sjóleiðis. Nýlega þurfti prinsinn á námskeið í akstri brynvagna. Alex hélt þá tU Hong Kong og fjárfesti í brúðarkjól ásamt tilheyrandi útbúnaði. Kjólinn og tUheyrandi hefur ekki enn mætt ásjónu Jóakims prins, „því Alex- Ástin reyndist fjarlægðinni meiri og innan fárra vikna pakkaði Alex eig- um sinum niður í 175 kassa og flaug til Jóakims sins en kassarnir voru fiuttar sjóleiðis frá Hong Kong. andra er svo gamaldags að unnusti hennar fær ekki að sjá kjólinn fyrr en 18. nóvember þegar hún gengur upp að altarinu" segir í Norsk Uke- blad. Þótt þau hafi deilt sæng og borði til þess tíma ætla þau að halda fast í gamlar hefðir og eyða síðustu nótt- inni hvort undir sínu þaki. sk1FS4 AFSLATTUR AF SKERMUM TIL 1. 0KT0BER. MIKIÐ URVAL ARMULA 24 S: 568 1518 Konungbornum ekki í kot vísað - Jóakim Danaprins og kvonfang hans móta nýtt heimili sitt Ilú er hafin ttórúttala á antik: hú<?ö?n, málverk. fílikið tkal tcljatt. muiiir O? minjar Önnur lendin? á leiðinni. Þe?ar við höfum úttölu er verðið imátt. Grensásvegi 3 (Skeifumegin), sími 588-4011

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.