Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1995, Qupperneq 31
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1995
39
Verðlaunahafinn í Cadfael-leiknum:
Með áhugaverðustu
bókum
sinnar tegundar
Við lok helgarferðar vinnings-
hafa í leik Cadfael-bókanna og Rík-
issjónvarpsins var vinningshafínn,
Ævar H. Kolbeinsson, spurður álits
á bókaröðinni um bróður Cadfael. í
ljós kom að hann hafði lesið allar
þær Cadfael-bækur sem út
hafa komið á íslensku og
nokkrar að auki á ensku.
„Ég .get ekki sagt annað
en að þær eru með áhuga-
verðustu bókum sinnar
tegundar. í þeim er vand-
aður mórall, efni þeirra er
sögulega áhugavert og þær
fara vel með staðreyndir,
blanda skemmtilega sam-
an ýmsu sem heimildir eru
fyrir og öðru sem gæti fall-
ið að þeim heimildum.
>etta gerir flétturnar enn
áhugaverðari en ella.
íslensku þýðingarnar
kann ég ekki út á að setja,
man ekki eftir "því að ég
setti þar spurningarmerki
við neitt, eins og oft vill þó
verða þegar lesnar eru ís-
lenskar þýðingar.“
svona erna og hressa og uppgötva
hve hún hefur skrifað mikið. Lík-
lega slær hún sjálfa Agöthu Christie
út.“
„Nú leit um tíma ekkert efnilega
út með að við kæmumst á leiðar-
Svipað og sögu-
slóðir
r
Islendingasagna
„Finnst þér ankannalegt
að efnt skuli með þessum
hætti til ferðar á slóðir til-
búinnar persónu?"
„Nei, ekkert frekar en á sögusafn
Hróa hattar, til dæmis. Allt sögulegt
umhverfi er til staðar, umhverfi
sem sögurnar eru látnar gerast í, og
að sjá staðina gerir þetta lifandi fyr-
ir manni. Ég tel þetta ósköp svipað
og ferðir á söguslóðir íslendinga-
sagna, til dæmis; það er nú ekki al-
veg víst að allt sé satt og rétt sem
þar er frá sagt.“
„Ertu ánægður með þessa ferð?“
„Já, svo sannarlega. Þessi ferð
hefur verið einstaklega vel heppnuð
í alla staði. Borgin sjálf, Shrews-
bury, hefur komið ákaflega mikið á
óvart fyrir það hve áhugaverð hún
er. Hér er svo margt að sjá og skoða.
Sögusafn Cadfaels, Shrewsbury
Quest, er að sumu leyti betra en til
dæmis safn Hróa hattar. Það er
þannig uppbyggt að það hvetur til
að stansa og gera eitthvað sjálfur.
Þarna hittir maður lifandi persónur
og verður þátttakandi. Þetta safn á
örugglega eftir að verða eftirsótt,
ekki síður en víkingásafnið í York.
Svo var ekki síst skemmtilegt að
fá að hitta skáldkonuna og sjá hana
enda.“
„Nei, en þær tafir plöguðu okkur
í sjálfu sér ekki. Og eins og spilaðist
úr þessu atvikaðist það þannig að
við vorum komin í gistingu á kristi-
legum tíma og gátum notið æski-
legrar hvíldar. Ég tel að það hafi
farið á besta veg.“
„En þú, Guðmunda, hvernig hef-
ur ferðin farið í þig?“
Naut ferðarinnar
fram í fingurgóma
„Ferðin hefur verið ákaflega góð
og ég hef notið hennar fram í fing-
urgóma. Það var afskaplega gaman
að skoða Shrewsbury Quest og fara
svo út í bæ og ganga: sjá götuskip-
anina sem er eins og hún hefur ver-
ið öldum saman og fara fram hjá
þessum húsum þar sem persónurn-
ar höfðu búið - eða má ímynda sér
að þær hafi búið. í heild hefur ferð-
in verið ótrúlega lítið þreytandi,
eins og ég er orðin fljót að þreytast.
Þetta var allt svo vel skipulagt og
vel gert, leyst á augabragði úr þeim
litlu hnökrum sem upp komu. Eg tel
að þessi ferð hafi í hvívetna verið
þeim sem að henni stóðu til sér-
staks sóma.“
I ritsal Shrewsbury Quest fá fiestir að spreyta
sig sjáifir á því að skrifa og lýsa handrit. Til
þess að stemningin verði rétt skrýðast þeir
gjarna munkakufli á meðan. Hér klæðir bróðir
Gareth vinningshafann, Ævar H. Kolbeinsson,
í kuflinn en Guðmunda Halldórdóttir, móðir
Ævars, en hann bauð henni með sér í ferðina,
og Dorothy leiðsögumaður fylgjast með.
Oðruvísi PYLSUTILBOÐ:
--- »
íébí:
Hamborgararnir
okkar eru úr 100%
hreinu íslensku
nautakjöti.
í þeim eru engin
aukaefni, bindiefni
eða fyllingarefni.
McHamborgari kr. 99,-* McOstborgari kr. 128/
Venjulegt verð *: kr. 169,- **: kr. 198,-. Tilboðið gildir
til og með 30. september, 1995.
/V\
|Mcgonaid
Veitingastofa og næturlúga,
Austurstræti 20
Veitingastofa og Beint-í-Bílinn,
Suðurlandsbraut 56
Hurley í eld-
heitum nektar-
atriðum
Sviðsljós
Elizabeth Hurley, unnusta breska
f hjartaknúsarans og hrakfallabálksins
V Hughs Grants fækkaði fötum fyrir
framan kvikmyndavélina fyrir nokkr-
um árum þegar hún steig fyrstu skref-
in á frama- og frægðarbrautinni.
Viðburðaríkt
blað fyrir þig
• Tónlist
• Kvikmyndir
• Myndbönd
• Dagskrá
• Sviðsljós
- og margt fleira
DV er skemmtilegt blað með
allar nýjustu fréttirnar.
Frjálst, óháð dagblað fyrir þig
Munið nýtt símanúmer 550-5000
klausturgarði Shrewsbury Quest er meðal annars boðið upp á létta leiki af
ýmsu tagi, meðal annars stóra myllu. Hér teflir bróðir Gareth myllu við Ævar
en aðrir úr samfylgdinni fylgjast með.