Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1995, Síða 37
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1995
~k is
glingaspjall
Tryggvi Farestveit, 16 ára, hefur haft áhuga á tölvum frá níu ára aldri. Hann
notfærir sér Internetiö til margvíslegrar skemmtunar og fróðleiks.
DV-mynd Brynjar Gauti
Internet fyrir unglinga:
Spjallað við Jackson
Á Internetinu
(eða Alnetinu)
geta börn, ung-
lingar og full-
orðnir fundið
margt skemmti-
legt við sitt hæfi.
Maður þarf hins
vegar að eiga
tölvu, modem og
kaupa sér áskrift
að netinu. Það er
mjög margt hægt
að gera fyrir
sextán ára ung-
linga á Internet-
inu. Sjálfur hef
ég haft áhuga á
tölvum frá því ég
var níu ára og
hef ákaflega gam-
an af að fikra
mig áfram með
hina ýmsu mögu-
leika sem tölvan
býður upp á.
Internetið var
því frábær nýj-
ung fyrir mig.
Á netinu er
margt áhugavert
og ég held að
fólki, sérstaklega
unglingum, finnist mest spennandi
að vera á Yrkinu eða Intemet Relay
Chat. Þar er hægt að spjalla við fólk
út um allan heim, um stjómmál,
tónlist, kvikmyndir, tölvur eða nán-
ast hvað sem er. Margir íslendingar,
hvort sem þeir búa hér á landi eða í
útlöndum, hópast saman í grúppu
sem nefnist Iceland. Oft kikja í
heimsókn útlendingar sem vilja
fræðast um ísland eða kynnast ís-
lendingum.
Á mörgum svæðum á Yrkinu eru
grúppur sem eingöngu em fyrir
unglinga. Ég hef skoðað eitt þeirra
svæða sem nefnist Teenagers, en
aldrei fundið annan íslending þar.
Yrkið er einungis smáhluti af
Intemetinu en eitt af þeim stóru er
The World Wide Web eða Veraldar-
vefurinn. Á Veraldarvefnum er
hægt að gera margt, eins og t.d. að
skoða sýnishom úr nýjustu kvik-
myndunum. Þar er hægt að fá alls
kyns upplýsingar, skoða blöð og
tímarit, fara í heimsókn til útlanda,
jafnvel Hvíta húsið, svo einungis
brot af öllu því sem í boði er sé
nefnt.
Þama er hægt að ná í handrit úr
kvikmyndum eins og Pulp Fiction
og Batman Forever. Maður getur
skrifað bréf til Söndru Bullock eða
jafnvel, eins og var í sumar, talað
við Michael Jackson. Hvort það eru
í raun Michael Jackson eða Sandra
Bullock sem svara veit maður þó
ekki. Það er auðvelt að þykjast vera
einhver annar en maður er á net-
inu. Maður gæti t.d. verið John
Lennon, risinn upp frá dauðum, ef
mann langar til að gantast eitthvað.
Intemetið er fyrir
alla. Ef fólk hefur
áhuga á að kynn-
ast nýju fólki, öðr-
um þjóðum eða
löndum, jafnvel
stöðum sem það
heftrn aldrei kom-
ið til, þá er það
vel hægt á netinu.
Fyrir þá sem vilja
kynnast íslandi
betur er það leik-
ur einn í tölv-
unni.
Ég á varla orð til
að lýsa öllum
þeim möguleikum
sem Internetiö
býður upp á. Fyr-
ir mér er þetta
sem heill skóli,
tölvan er fræð-
andi fyrir ung-
linga. Tölvan er
lika sem tungu-
málaskóli því
maður þjálfast í
ensku, þýsku og
dönsku.
Það em nokkrir
staðir hér á landi
sem bjóða upp á
áskrift að netinu. Má þar nefna Mið-
heima og Nýherja. Ég keypti mína
áskrift hjá Miðheimum, fékk mitt
eigið pósthólf og aðgang að netinu.
Með þvi gat ég sett upp eigin heima-
síðu. Fyrir þá sem aldrei hafa
kynnst Intemetinu en langar að
prófa er upplagt að fara í kaffihúsið
Síberíu þar sem hægt er að skoða
möguleikana.
Mánaðargjald fyrir Internet er
ekki hátt. Hjá Miðheimum er það
um 2000 krónur á mánuði. Mér
finnst að unglingar ættu að nýta sér
Internetið - fyrir mér er það heildar-
lausn sem ætti að henta öllum.
Tryggvi Farestveit Heimasíða:
http://www.centrum.is/-
tryggvi/index.htm Nemandi í Fjöl-
braut í Garðabæ
hin hliðin
segir Logi Bergmann Eiðsson, nýr
....._
Nýr liðsmaður Dagsljóss sýnir á
sér hina hliðina í DV í dag. Þótt
Logi Bergmann Eiðsson sé að
hefia störf á nýjum vettvangi hjá
Sjónvarpinu er hann búinn að
vera starfsmaðui- Rikisútvarpsins
um árabil sem fréttamaður,
íþróttafréttamaður og dagskrár-
gerðarmaður. Logi hefur veriö
viðloðandi fiölmiðlun í allmörg
ár. Má nefna að hann hefur verið
íþróttafréttamaður á nokkrum
Þjóðviljanum og Morgunblaðinu.
Við sjáum Loga á ný á skjánum í
byrjun október.
Fullt nafn: Logi Bergmann
Eiðsson.
Fæðingardagur og ár: 2. des-
ember 1966.
Maki: Ólöf Dagný Óskarsdóttir.
Böm: Elín Tinna, 7 ára, og
Fanndis Birna, 7 mánaða.
Bifreiðar: Ford Fiesta, árgerð
1986, og Toyota Corolla, árgerð
1992.
Starf: SjónvarpsmaðtU'.
Laun: Lág.
Áhugamál: Golf, fiölmiðlar og
körfubolti.
Hefur þú unnið í happdrætti
eða lottói? Fengið þrjár réttar i
Lottóinu.
Hvaö finnst þér skemmtileg-
ast að gera? Slaka á með fiölskyld-
unní, skemmta mér, spila golf og
vinna þegar eitthvaö er um að
f vera.
Hvað finnst þér leiðinlegast
að gera? Vakna snemma og vinna
í gúrkutíð.
Uppáhaldsmatur: Koníaks-
flamber aöur humar í karríi.
Uppáhaldsdrykkur: Fyrsti
kaffibollinn á morgnana.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstiu- í dag? Gefr Sveinsson.
Uppáhaldstímarit: Sports Dlu-
stratet.
Hver er fallegasta kona sem
þú hefur séð fyrir utan maka?
Michelle Pfeiffer.
Ertu hlynntur eða andvígur
ríkisstjóminni? Pass.
Hvaða persónu langar
mest að hitta? Jón Sigurðssoi
forseta.
Uppáhaldsleikari: John Cleese.
Uppáhaldsleikkona: Helen
Mirren.
Uppáhaldssöngvari:
Árni Johnsen!
Uppáhalds
stjórnmála-
maður: Össur
Skarphéðins-
son.
Uppá-
haldsteikni-
myndaper-
sóna: Karakter-
inn í The Far Side
Uppáhaldssjón
varpsefni: Fréttir,
íþróttir og innlent
dagskrárefni.
Uppáhaldsveitinga-
hú: Grilliö.
Hvaða bók langar
þig mest að lesa?
Skömmina eftir Taslimu
Nasrin.
Hver útvarpsrásanna
finnst þér best? Rás 1.
Uppáhaldsútvarpsmaður:
Górilludrengfrnir.
Hvort horfir þú meira á Sjón
varpið eða Stöö 2? Sjónvarpið að
sjálfsögöu.
Uppáhaldssjónvarps-
skemmtistaðm-: Við Pollinn.
Uppáhaldsfélag í íþróttum:
KMF (Knattspymufélagið Magnús
'finnsson).
Stefnir þú að einhverju sér-
itöku í framtiðinni? Komast í
jang með Dagsljósinu í vetur og
lækka forgjöfina mína í golfi.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu?
Varð mér til skammar í Kerlingar-
og á ýmsum golf
völlum.Einnig
slappaöi ég
af í sum-
arbú-
staðn-
um.
maður: Páll Bene-
diktsson. Hann
er lang-
flottastur.
Uppá-
halds-
<1 ۤ*!?
■ ..■
Aðalfundur
Rauða kross íslands 1995
Aðalfundur Rauða kross íslands verður haldinn
á Hótel ^oftleiðum í Reykjavík 27.-29. október nk.
Fundurinn verður settur föstudaginn
27. október kl. 17.00.
Dagskrá samkvæmt 16. grein laga RKÍ.
Stjórn Rauða kross íslands
NISSANINFINITY J-30
SÁEINI SINNARTEGUNDARÁLANDINU.
Bíllinn er af árgerð 1993, búinn 3,0 litra vél, með 24 ventlum
sem skilar 210 hestöflum. Sjálfskiptur, með ABS-hemlavörn,
tregðulæsingu í drifi, hraðastillingu (cruise-control), sjálfvirkri
loftkælingu (air-condition), loftpúðum fyrir ökumann og far-
þega, þjófavarnarkerfi með fjarstýrðum samlæsingum,
BOSE-hljómflutningstæki með útvarpi, segulbandi og geisla-
spilara, rafmagnsstillingu á framsætum og leðurklæðningu,
ásamt fjöldanum af öðrum veglegum aukabúnaði sem of langt
mál yrði að telja upp. Bíllinn er aðeins ekinn 20.000 km og
sérstaklega vel með farinn.
Tilboð óskast send til Ingvars Helgasonar hf., Sævarhöfða 2,
132 Rvík. Ýmis skipti koma til greina. Allar frekari upplýs-
ingar veita sölumenn nýrra bíla í síma 525-8000.
‘ ' ‘ i
SOKKABUXUR
SEM ÞU GETUR TREYST