Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1995, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1995, Blaðsíða 50
LAUGARDAGUR 23. SEPTEMBER 1995 Þórður Oddsson Þórður Vilberg Oddsson, Bólstaðar- hlíð 45, Reykjavík, er áttatíu og fimmáraídag. Starfsferill Þóröur fæddist í Ráðagerði á Sel- tjamamesi og ólst þar upp til níu ára aldurs er hann flutti með föður sínum á Stýrimannastíginn í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá MR1932, prófi í læknisfræði frá HÍ1940 og stundaði framhaldsnám við St. James Hospital í London 1949. Þórður var settur staðgengill læknis á Hólmavík 1935, var settur héraðslæknir í Ögurhéraði 1938, í Þistilfjarðarhérði 1942-50, í Klepp- jámsreykjahéraði 1950-64, í Borgar- neshéraði 1964-69, á Akranesi 1969-75 og var starfandi læknir í Reykjavík 1975-89. Þórður sat í stjórn Kf. Langnes- inga, Sparisjóðs Þórshafnar, var formaður hafnarnefndar Þórshafn- ar, sat í skólanefnd Þórshafnar- skólahverfis og í skólanefnd Reyk- holtsdalsskólahverfis 1952-58 og haföi á hendi póstafgreiðslu og símavörslu á Kleppjárnsreykjum í nokkurár. Fjölskylda Dóttir Þórðar og Guðnýjar Jónínu Sigurbjömsdóttur er Erla Jóhanna, f. 19.2.1938,félagsmálafulltrúií Reykjavik, gift Vali Páli Þóröarsyni og eiga þau fjögur börn. Sonur Þórðar og Olgu Bergmann Bjamadóttur er Þórður Bjarni, f. 23.2.1941, brunavörður á Keflavík- urflugvelli, kvæntur Helgu Magn- úsdóttur og eiga þau þau þrjú börn. Þórður kvæntist 7.2.1942 Sigrúnu Aðalheiði Kæmested, f. 2.11.1910, d. 1.9.1991, húsmóður. Foreldrar hennar vom Óli Ólason Kærnested, járnsmiður í Reykjavík, og k.h., Gróa Jónsdóttir húsmóðir. Synir Þórðar og Sigrúnar em Óli Hörður, f. 5.2.1943, framkvæmda- stjóri Umferðarráðs, kvæntur Þur- íði Steingrímsdóttur og eiga þau fjögur börn; Oddur, f. 27.10.1944, rannsóknarmaður hjá Rannsóknar- stofnun byggingariðnaðarins, kvæntur Guðrúnu Jónsdóttur og á hann fimm böm; Jón, f. 2.12.1946, húsasmíðameistari í Akarp í Sví- þjóð, kvæntur Guðríði Theodórs- dóttur og á hann fjögur börn. Stjúp- sonur Þórðar er Ámundi Ámunda- son, f. 9.6.1937, blikksmiðjueigandi í Reykjavík, kvæntur Herdísi Jóns- dótturög eiga þau fimm börn. Systkini Þórðar: Ásta, f. 14.11. 1905, ekkjaá Jótlandi; Jón, f. 23.12. 1908, d.21.5.1988,vélsmiðurhjá Héðni. Systur Þórðar, samfeðra: Fanney, f. 7.12.1917, d. 2.8.1989, húsmóðir í Reykjavík; Gyða, f. 20.12.1917, hús- móðir í Reykjavík. Foreldrar Þórðar voru Oddur Jónsson, f. 12.10.1878, d. 26.2.1934, hafnsögumaður í Reykjavík, og k.h., Guðríður Þórðardóttir, f. 23.5.1876, d. 30.1.1916, húsmóðir. Ætt Oddur var sonur Jóns, b. í Dúks- koti í Reykjavík, bróður Jónasar prests á Grýtubakka, föður Þórðar dómstjóra. Jón var sonur Jóns, b. á Höföa á Höfðaströnd, Jónssonar. Guðríður var dóttir Þóröar, útvb. og hafnsögumanns í Reykjavík Jónssonar, útvb. í Hlíðarhúsum, Þórðarsonar, hafnsögumanns í Borgarabæ í Reykjavík, Guðmunds- sonar, borgara í Borgarabæ, Bjarna- sonar, b. á Langárfossi í Mýrasýslu Eiríkssonar. Móðir Þórðar Jónsson- ar var Jódís Sigurðardóttir, b. á Efra-Skarði í Leirársveit, Péturs- sonar. Móðir Péturs var Sigríður yigfúsdóttir, lögréttumanns á Leirá, Árnasonar. Móðir Guðríðar var Þórunn Jóns- dóttir, b. í Mýrarhúsum, Sigurðs- Þórður Oddsson. sonar, b. á Seli í Grímsnesi, Jóns- sonar. Móðir Siguröar var Elín Sig- urðardóttir, b. í Vestra-Geldinga- holti, Jónssonar, lögréttumanns í Bræðratungu, Magnússonar, b. í Bræðratungu, Sigurðssonar. Móðir Jóns var Þórdís (Snæfríður íslands- sól) Jónsdóttir, biskups á Hólum, Vigfússonar. Þórður tekur á móti gestum í sal hjúkrunarfræðinga, Suöurlands- braut 22, (gengið inn að sunnan- veröu) í dag, milli kl. 16.00 og 19.00. Til hamingju með af- mælið 23. september 85 ára 60ára Margrét Ingimundardóttir, Dalbraut 18, Reykjavík. Unnur Ólafsdóttir, Bókhlöðustíg 8, Stykkishólmi. 80 ára Þórurnn Benediktsdóttir, Hraunbæ 154, Reykjavík. Páli Þórðarson, Egilsbraut 9, Þorlákshöfn. 75ára Hinrik Þórarinn Jónsson, Stelkshólum 2, Reykjavík. Eygló Guðmundsdóttir, Stakkhömrum 17, Reykjavík. Guðmundur ius Gissursson, iönverkamaður, Hraunbæ 156, Reykjavík. Hann eraðheim- an. Kjartan Stefánsson, Norðurvegi 31, Hrísey. Garðar Loftsson, Hverfisgötu 91, Reykjavík. Herbert Ólafsson, Sigtúni 59, Reykjavík. 70 ára Sigríður Ketilsdóttir, Glerárgötu 18, Akureyri. Guðrún Lilja Friðjónsdóttir, Gautlandi 5, Reykjavfk. Guðrún verður að heiman. Höskuldur Þorsteinsson, Mikladalsvegi 7, Vesturbyggð. Höskuldur verður að Eiðismýri 18, Seltjarnarnesi á afmælisdaginn. Sigurður Ágústsson, Laufásvegi 14, Stykkishólmi. 50ára Maria Eygló Normann, Fellsmúla9,Reykjavík. - Ágústa Ágústsdóttir, Jakaseli 5, Reykjavík. Friðbjörn Jónsson, Hrafnagilsstræti 33, Akureyri. Áslaug Arthúrsdóttir, Ljósheimum 6, Reykjavík. Ester Gísladóttir, Vatnsendabletti 181, Kópavogi. 40ára Oddbjörg Inga Jónsdóttir, Gauksrima23, Selfossi. Ingunn Magnúsdóttir, Kögurseli 6, Reykjavík. Einar Ingvar Jóhannsson, Suöurmýri48, SeltjarnamesL Ólafur Áki Ragnarsson, Kambi 8, Djúpavogshreppí. Hákon F. Jóhannsson Hákon Franklín Jóhannsson, Mið- leiti 7, Reykjavík, er áttræður í dag. Starfsferill Hákon fæddist að Langárfossi. Hann lauk námi við VÍ1934. Að námi loknu stundaði Hákon ýmis verslunar- og skrifstofustörf næstu tíu árin. Hann starfrækti síð- an innflutnings- og heildverslun í eigin nafni en með öörum sem hlutafélag og síðar sem einkafyrir- tæki þar til fyrir fáum árum er hann hætti atvinnurekstri. Þá var Hákon meðeigandi að fast- eignasölu með Þorsteini Sveinssyni hdl. í tæpan áratug frá 1946. Hann var framkvæmdastjóri Innkaupa- sambands bakarameistara á íslandi 1945-53 og stofnaði verslunina Sport 1958 sem hann starfrækti til 1980. Hákon kvikmyndaði sund Eyjólfs Jónssonar sundkappa, þ. á m. sund- ið úr Selsvörinni í Reykjavík til Akraness 1958 og sundið frá Vest- mannaeyjum og á Krosssand í Lan- deyjum 1959. Hákon sat í stjórn Landssambands stangaveiðifélaga 1958-76 og var formaður þess 1973-76, sat í fram- kvæmdastjórn Nordisk Sportfisker Union 1966-80 og var formaður þess 1977-80 en hann beitti sér fyrir þeirri ályktun sambandsins að lax- veiðar á alþjóðahafsvæöi í Norður- Atlandshafi yrðu bannaöar. Hákon hefur verið fulltrúi á aðalfundum Landssambands stangveiðimanna frá 1956, var formaður kastnefndar sambandsins og mótstjóri á lands- mótum í kastkeppnum sem sam- bandið hélt 1964-72, sat í stjórn Sjó- stangaveiðifélags Reykjavíkur í nokkur ár, var formaður bikar- nefndar félagsins um skeið, stjórn- aði firmakeppni Fáks í nokkur ár, var formaður undirbúningsnefnd- ar, stofnandi íþróttadeildar Fáks 1976ogstofnfélaginr. 1„ ogvar formaður fræðslunefndar Fáks 1984-86. Hákon tók saman bók um störf og stefnu Landssambands stangaveiöi- félaga frá stofnun 1950-76 sem út kom 1994. Hann hefur haldið fjölda erinda á fundum og ráðstefnum um laxveiðimál og ritað greinar í blöð ogtímarit. Fjölskylda Hákonkvæntist21.5.1938Svölu Eyjólfsdóttur, f. 21.6.1918, húsmóð- ur og hárgreiðsludömu. Hún er dótt- ir Eyjólfs Gíslasonar sem lést 1955, starfsmanns Reykjavíkurborgar, og Guðríðar Magnúsdóttur sem lést 1930, en hún var lærð mjólkurbús- stýra. Eftir lát móður sinnar ólst Svala upp hjá Árna Péturssyni lækni sem lést 1953, og k.h„ Katrínu Ólafsdóttur húsmóður, sem lést 1988. Börn Hákonar og Svölu eru Katr- ín, f. 4.1.1941, húsmóðir í Englandi, gift Donald Echelberger, fyrrv. ílugkafteini hjá Bandaríkjaher og Nato og eiga þau eina dóttur; Jó- hann, f. 26.6.1948, starfsmaður í Víðinesi, búsettur í Kópavogi, kvæntur Dagnýju Jóhannsdóttur húsmóður og á hann einn son; Erna, f. 20.3.1954, húsmóðir í Virginíu í Bandaríkjunum, gift Gernot S. Pomrenke, dr. í eðlisfræði og starfs- manni Bandaríkjastjórnar í Was- hington og eiga þau þrjú börn; Hákon F. Jóhannsson. Tryggvi, f. 13.7.1955, menntaskóla- kennari, nú í Englandi. Systkini Hákonar: Liv, f. 29.9.1912, ekkja í Reykjavík; Vilhjálmur, f. 4.11.1913, fyrrv. héraðslæknir í Jönköping; Kristján Tryggvi, f. 11.10.1917, fórst í flugslysinu í Héð- insfirði 29.5.1947, ásamt Ernu, eigin- konu sinni, og tveimur ungum son- umþeirra, vélaverkfræðingur; Sva- var, f. 13.10.1919, fyrrv. bankafull- trúi í Reykjavík; Herdís Maria, f. 26.10.1925, húsmóðir í Reykjavík; Guðrún Margrét, f. 23.3.1930, hús- móðiríReykjavík. Foreldrar Hákonar voru Jóhann Franklín Kristjánsson, f. 7.5.1885, d. 16.7.1952, byggingameistari og húsateiknari, og Mathilde V. Kristj- ánsson, f. Gröndal 15.12.1892, d. 27.9. 1962, húsmóðir. Hákon og Svala taka á móti gest- um í dag, laugardaginn 23.9., í sam- komusal að Miðleiti 7, kl. 16.00- 18.00. Irma Herman Geirsson Irma Herman Geirsson, fyrrv. starfsmaður við mötuneyti virkjan- anna við írafoss og Steingrímsstöð, Ljósafossi 4, Grímsneshreppi, er sjö- tíu ogfimm áraídag. Starfsferill Irma fæddist í Kolberg í Pommern Sem þá var í Þýskalandi en nú í Póliandi. Hún missti móður sína 1927 og ólst upp, ásamt systur sinni, hjá ömmu sinni í Kolberg. Hörm- ungar stíðsins settu mjög mark sitt á lífið í Kolberg, ekki síst eftir að Rússar hernámu staðinn. Fjöldi fólks lést á þeim árum og annarra var saknað. Eina systir Irmu, Doro- thea, f. 1926, dó úr barnaveiki 1944. Irmu tókst að flýja með pólskum mjólkurbíl til Stettin þar sem Rauði krossinn kom henni um borð í lest til Lúbeck. Þar bjó hún um skeið í flóttamannabúðum en tókst síðan aðfáatvinnu. Irma frétti af atvinnutilboðum ís- lenskra bænda 1948 og réð sig því að Syðri-Brú í Grímsnesi 1949. Þar starfaði hún til 1954 en hóf þá störf við mötuneyti virkjananna við íra- foss og Steingrímsstöð. Þar starfaði hún samfellt í þijátíu og sex ár eða þar til hún hætti störfum sjötug. Fjölskylda Iwna giftist 1950 Alexander Rein- holt Geirssyni, f. 21.8.1911, sem þá vann við Ljósafoss. Hann var sonur Geirs Jónssonar, verkamanns á Akranesi, og Gróu Halldórsdóttur húsmóður. Böm Alexanders frá fyrra hjóna- bandi em Heiöar, f. 1944, rafvirki við Mjólkurbú Flóamanna á Sel- fossi, kvæntur Sigrúnu Jóhannes- dóttur og eiga þau þrjár dætur en Heiðar ólst að verulegu leyti upp hjá Alexander og Irmu; Kristinn Reinholt, Árni og Sigrún. Sambýlismaður Irmu 1983-94 er Karl, f. 15.7.1919, sonur Sæmundar Dúasonar, kennara í Fljótum og víð- ar, og k.h„ Guðrúnar Þorláksdóttur húsmóður. Karl dvelst nú á öldrun- ardeild Sjúkrahússins á Siglufiröi. Foreldrar Irmu voru Frida og GustafHerman. Irma heldur upp á afmælið hjá Rögnu Freyju og Gísla að Greni- grund 2B, í Kópavogi laugardaginn 23.9. frá kl. 17.00. r
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.