Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1995, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1995, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1995 Fréttir Neitaði að sofa undir sama þaki og hundamir á Flateyri: Ég gæti hreinlega kysst þessa hunda núna - segir Ingibjörg Kristjánsdóttir, sem slapp við snjóflóðið ásamt flölskyldu sinni „Ég þori ekki aö hugsa þá hugsun til enda hvaö hefði orðið um fjöl- skylduna ef við hefðum gist þar sem við vorum vön að vera þegar snjó- flóðahætta var tahn við Ólafstún," segir Ingibjörg Kristjánsdóttir, íbúi við Ólafstún á Flateyri, sem í fyrsta sinn neitaði að gista á heimili mágs síns að Tjamargötu 7. Ingibjörg og maður hennar, Hinrik Kristjánsson, hafa margoft þurft aö flýja hús sitt vegna snjóflóðahættu. Þau hafa alltaf undir þeim kringum- stæðum fariö inn á heimili Guð- mundar Kristjánssonar, bróður Hin- riks, og Bergþóru Ásgeirsdóttur. í síðustu viku þegar fólk var rekið úr húsum sínum við Ólafstún voru hjónin Bergþóra og Guðmundur að heiman en tvítug dóttir þeirra, Helga Jónína, var heima ásamt tveimur hundum fjölskyldunnar, Perlu og Kátu. Ingibjörg segist alltaf hafa verið hálfhrædd við hunda og þegar kallið kom um að rýma húsið við Ólafstún sagði hún við mann sinn aö ekki kæmi til greina að gista á Tjarnar- götu. Fóru í annað hús „Þetta var mitt annað heimih en vegna þess að hjónin voru ekki heima þá leist mér ekki á að vera þama innan um hundana. Ég gat ekki hugsað mér að þurfa að fara um miðja nótt á salerni og eiga von á að mæta hundunum," segir Ingibjörg. Hún segist hafa þurft að beita nokkrum sannfæringarkrafti til að fá mann sinn til að fallast á að fara í annað hús en hann hafi þó fallist á það á endanum. „Viö fengum að fara í Brynjukot sem er eins konar orlofshús í eigu kvenfélagsins á staðnum. Þar voram við þegar hörmungarnar dundu yíir. Núna gæti ég hreinlega farið og kysst þessa hunda,“ segir Ingibjörg. Helga Jónína Guðmundsdóttir var í húsinu að Tjarnargötu 7 ásamt hundunum tveimur og vinkonu sinni, Guðnýju Margréti Guðmunds- dóttur, þegar snjóflóðið skall á hús- inu. Hún segist ekki í nokkrum vafa um að ótti Ingibjargar við hundana hafi bjargað einhveijum úr fjölskyld- unni frá því að verða fyrir skaða i snjóflóðinu. „Ég hringdi suður i pabba og baö Ingibjörg Kristjánsdóttir og Hinrik Kristjánsson maður hennar. Ingi- björg neitaði að gista undir sama þaki og hundarnir og það varð úr að fjölskyldan fór annað. DV-mynd Guðmundur Sigurðsson hann að bjóða Ingibjörgu og Hinna að vera hjá okkur um nóttina. Ég beið svo eftir að þau kæmu en frétti aö þau kæmu ekki vegna þess að Ingibjörg væri svo hrædd við hund- ana. Það kom mér á óvart vegna þess að hún er ekki hrædd undir venju- legum kringumstæðum og hefur allt- af gist hjá okkur þegar hún hefur þurft að rýma hús sitt. Þessi afstaða hennar bjargaði þeim því þau hefðu annars verið hérna öll fjögur með ófyrirsjáanlegum aíleiðingum," segir Helga Jónína. Óhugsandi aðallir hefðu bjargast Hún segir að miðað við hvemig húsið fór af völdum snjófóðsins þá væri nánast óhugsandi að fjölskyld- an heföi öh bjargast úr flóðinu. Það varð úr að Guðný Margrét, vinkona Helgu Jónínu, gisti hjá henni um nóttina og í hennar herbergi. Helga Jónína og hundamir sváfu aftur á móti í hjónaherberginu. „Ég hrökk upp af fastasvefni við hrikalegan hávaða og ég hugsaði með mér að þetta væri geðveik vindhviða en svo kastaöist veggurinn á mig og ----------—-------- V X, Flateyri: Hreinsun langtkomin Reynir Traustaaan, DV, Flateyri; „Þetta hefur gengiö alveg ein- staklega vel,“ segir Sigurður Sig- urdórsson, sem er einn þeirra sem unniö hafa við skráningu inn á flóðasvæðíð á Flateyri. Sigurður segir að þegar hafi verið lokið hreinsun flestra þeirra húsa sem skemmdust eða eyðilögðust í snjóflóðinu. Alls skemmdust 23 hús, þar af stendur ekkert uppi af 12 húsum. Fjölmargir hafa unniö aö hreins- unarstarfi. Um 80 björgunar- sveitarmenn hafa aö staðaldri unnið við hreinsun í senn auk heimamanna. Svæðið er girt af og áformað að gefa fólki færi á að bjarga persónulegum eigum. Um 50 kindur frá bænum Syðra-Kolugili í Þorkelshólshreppi i Víöidal í Vestur-Húnavatnssýslu fennti og drápust í óveðrinu sem gekk yfir landið á dögunum og sést hluti þeirra á myndinni. Bærinn er í baksýn. Einnig fórust 25 kindur frá bænum Litlu-Hlíð, sumar þeirra fennti en hinar hrakti út í á. DV-mynd Eggert Antonsson Mikið tjón á Ytri-Húsabakka í Seyluhreppi í Skagaíirði: Helmingur fjárins fórst Öm Þórarmsson, DV, Fljótum: „Ég fór að smala fénu saman um morguninn en kom því ekki heim aö húsunum enda var ég einn. Þá fór ég að líta eftir fé annars staðar og koma því heim aö húsum. Veðriö versnaði mikiö eftir hádegið, þaö hvessti og fór að siy óa. Þá komu tveir nágrannar mínir mér til aðstoðar og við byijuðum á að brúa skurð sem viö ætluöum að reka féö yfir í íjár- húsin. Þegar við fórum að svipast um eftir fénu var þaö ekki sjáanlegt. Við leituðum alhengi í afleitu veðri og litlu skyggni en tókst ekki að finna fjárhópinn. Þegar veðriö fór að ganga niöur um morguninn fór ég strax að huga að fénu og fann stóran hóp sem haföi hrakið í síki hér í landareign- inni,“ sagði Gísh Jónsson, bóndi á Ytri-Húsabakka í Seyluhreppi í Skagafiröi. Gísli fékk björgunarsveitina á Sauðárkróki til að aðstoða sig við að bjarga fénu úr síkinu. Þeir náöu alls 40 kindum lifandi úr krapinu, þessar kindur voru flestar efstar í hrúgunni því hópinn hafi hrakið út í síkið hálf- fullt af krapi og féð troöist hvað ofan á annað. „Það eru nú dauðar 12 af þessum 40 og mér sýnist að alls hafi farist 140-150 kindur hjá mér í þessu fár- viðri. Þetta er um helmingurinn af ljárstofninum og flest yngsta féð,“ sagði Gísh. Gísh segist ekki muna eftir öðru eins hvassviðri og var að- faranótt fimmtudagsins og aö víða á bæjum á þessum slóðum hafi fé hrakið undan veðurofsanum þótt ekki hafi oröið neitt viðlíka tjón og hann varð fyrir. bylurinn stóð inn og þá vissi ég hvað hefði gerst. Ég öskraði á Möggu en fékk ekkert svar. Þá talaði ég við hundana og sagði að við skyldum koma,“ sagði Helga Jónína. Hún fór síðan ásamt hundunum út í öskrandi byhnn á nærklæðunum einum og braust eftir hjálp. Talaði stanslaust við hundana „Hundarnir fylgdu mér fast eftir og viku ekki frá mér. Ég talaöi stans- laust við þá og kom að húsi við Unn- arstíg og barði allt að utan en fékk ekkert svar. Ég hugsaöi með mér hvað þetta væri mikill asnaskapur að fara út í stað þess að bíöa hjálpar. Ég var farin að halda að ég yrði úti þarna. Svo ákvað ég að brjótast áfram og komst að ehiheimihnu og fór þar inn,“ segir Helga Jónina. Átta klukkustundum síðar var vin- konu hennar bjargað úr rústunum. Hún var köld en htið slösuö. „Það var mikill léttir þegar henni var bjargað. Ég var allan tímann viss um að hún væri dáin. Ég er afskap- lega þakklát öllum," segir Helga Jón- ína. Stuttar fréttir Samhugur þingmanna Þingmenn minntust þeirra sem létust í snjóflóðinu á Flateyri í síðustu viku þegar þing kom sam- an í gær. Ragnar Arnalds þingfor- seti ávarpaöi þingheim og baö þingmenn að rísa úr sætum . Sungiðfyrir Flateyringa Kristján Jóhannsson ópera- söngvari mun halda tvenna tón- leika með Sinfóníuhljómsveitinni í vor. Ágóði af öðram þeirra renn- ur til þeirra sem um sárt eiga að binda vegna snjóflóösins á Flat- eyri. Mbl. greindi frá. StyrkirfráESB íslensk fyrirtæki og stofhanir fá á næstu 2 til 3 árum hátt i 400 milljónir króna úr rannsóknar- og þróunarsjóðum ESB. RÚV greindi frá. Lyfjalögumfrestað Alþingi samþykkti í gær að fresta gildistöku nýrra lagaá- kvæðaum aukið frelsi í lyfjasölu. Ákveðið var að fresta gildistök- unni í 4 mánuði en upphaflega fór heilbrigðisráðherra fram á 8 mánaða frestun. Tárúrsteinitilnefnd Kvikmyndin Tár úr steini hefur verið tilnefnd af íslands hálfu til bandarísku óskarsverðlaunanna í flokki bestu erlendu kvikmynd- anna. Tilnefningin var ákveöin á sameiginlegum fundi kvik- myndagerðarmanna í vikunni. Vaxtalækkun likleg Miklar h'kur eru á að vextir banka og sparisjóða lækki á morgun í takt viö aðrar vaxta- lækkanir að undanfömu. Stöð tvögreindifráþessu. -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.