Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1995, Qupperneq 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1995
Fréttir
Neitaði að sofa undir sama þaki og hundamir á Flateyri:
Ég gæti hreinlega kysst
þessa hunda núna
- segir Ingibjörg Kristjánsdóttir, sem slapp við snjóflóðið ásamt flölskyldu sinni
„Ég þori ekki aö hugsa þá hugsun
til enda hvaö hefði orðið um fjöl-
skylduna ef við hefðum gist þar sem
við vorum vön að vera þegar snjó-
flóðahætta var tahn við Ólafstún,"
segir Ingibjörg Kristjánsdóttir, íbúi
við Ólafstún á Flateyri, sem í fyrsta
sinn neitaði að gista á heimili mágs
síns að Tjamargötu 7.
Ingibjörg og maður hennar, Hinrik
Kristjánsson, hafa margoft þurft aö
flýja hús sitt vegna snjóflóðahættu.
Þau hafa alltaf undir þeim kringum-
stæðum fariö inn á heimili Guð-
mundar Kristjánssonar, bróður Hin-
riks, og Bergþóru Ásgeirsdóttur. í
síðustu viku þegar fólk var rekið úr
húsum sínum við Ólafstún voru
hjónin Bergþóra og Guðmundur að
heiman en tvítug dóttir þeirra, Helga
Jónína, var heima ásamt tveimur
hundum fjölskyldunnar, Perlu og
Kátu.
Ingibjörg segist alltaf hafa verið
hálfhrædd við hunda og þegar kallið
kom um að rýma húsið við Ólafstún
sagði hún við mann sinn aö ekki
kæmi til greina að gista á Tjarnar-
götu.
Fóru í annað hús
„Þetta var mitt annað heimih en
vegna þess að hjónin voru ekki
heima þá leist mér ekki á að vera
þama innan um hundana. Ég gat
ekki hugsað mér að þurfa að fara um
miðja nótt á salerni og eiga von á að
mæta hundunum," segir Ingibjörg.
Hún segist hafa þurft að beita
nokkrum sannfæringarkrafti til að
fá mann sinn til að fallast á að fara
í annað hús en hann hafi þó fallist á
það á endanum.
„Viö fengum að fara í Brynjukot
sem er eins konar orlofshús í eigu
kvenfélagsins á staðnum. Þar voram
við þegar hörmungarnar dundu yíir.
Núna gæti ég hreinlega farið og kysst
þessa hunda,“ segir Ingibjörg.
Helga Jónína Guðmundsdóttir var
í húsinu að Tjarnargötu 7 ásamt
hundunum tveimur og vinkonu
sinni, Guðnýju Margréti Guðmunds-
dóttur, þegar snjóflóðið skall á hús-
inu. Hún segist ekki í nokkrum vafa
um að ótti Ingibjargar við hundana
hafi bjargað einhveijum úr fjölskyld-
unni frá því að verða fyrir skaða i
snjóflóðinu.
„Ég hringdi suður i pabba og baö
Ingibjörg Kristjánsdóttir og Hinrik
Kristjánsson maður hennar. Ingi-
björg neitaði að gista undir sama
þaki og hundarnir og það varð úr
að fjölskyldan fór annað.
DV-mynd Guðmundur Sigurðsson
hann að bjóða Ingibjörgu og Hinna
að vera hjá okkur um nóttina. Ég
beið svo eftir að þau kæmu en frétti
aö þau kæmu ekki vegna þess að
Ingibjörg væri svo hrædd við hund-
ana. Það kom mér á óvart vegna þess
að hún er ekki hrædd undir venju-
legum kringumstæðum og hefur allt-
af gist hjá okkur þegar hún hefur
þurft að rýma hús sitt. Þessi afstaða
hennar bjargaði þeim því þau hefðu
annars verið hérna öll fjögur með
ófyrirsjáanlegum aíleiðingum," segir
Helga Jónína.
Óhugsandi aðallir
hefðu bjargast
Hún segir að miðað við hvemig
húsið fór af völdum snjófóðsins þá
væri nánast óhugsandi að fjölskyld-
an heföi öh bjargast úr flóðinu. Það
varð úr að Guðný Margrét, vinkona
Helgu Jónínu, gisti hjá henni um
nóttina og í hennar herbergi. Helga
Jónína og hundamir sváfu aftur á
móti í hjónaherberginu.
„Ég hrökk upp af fastasvefni við
hrikalegan hávaða og ég hugsaði með
mér að þetta væri geðveik vindhviða
en svo kastaöist veggurinn á mig og
----------—--------
V X,
Flateyri:
Hreinsun
langtkomin
Reynir Traustaaan, DV, Flateyri;
„Þetta hefur gengiö alveg ein-
staklega vel,“ segir Sigurður Sig-
urdórsson, sem er einn þeirra
sem unniö hafa við skráningu inn
á flóðasvæðíð á Flateyri.
Sigurður segir að þegar hafi
verið lokið hreinsun flestra
þeirra húsa sem skemmdust eða
eyðilögðust í snjóflóðinu.
Alls skemmdust 23 hús, þar af
stendur ekkert uppi af 12 húsum.
Fjölmargir hafa unniö aö hreins-
unarstarfi. Um 80 björgunar-
sveitarmenn hafa aö staðaldri
unnið við hreinsun í senn auk
heimamanna. Svæðið er girt af
og áformað að gefa fólki færi á
að bjarga persónulegum eigum.
Um 50 kindur frá bænum Syðra-Kolugili í Þorkelshólshreppi i Víöidal í Vestur-Húnavatnssýslu fennti og drápust
í óveðrinu sem gekk yfir landið á dögunum og sést hluti þeirra á myndinni. Bærinn er í baksýn. Einnig fórust 25
kindur frá bænum Litlu-Hlíð, sumar þeirra fennti en hinar hrakti út í á. DV-mynd Eggert Antonsson
Mikið tjón á Ytri-Húsabakka í Seyluhreppi í Skagaíirði:
Helmingur fjárins fórst
Öm Þórarmsson, DV, Fljótum:
„Ég fór að smala fénu saman um
morguninn en kom því ekki heim aö
húsunum enda var ég einn. Þá fór
ég að líta eftir fé annars staðar og
koma því heim aö húsum. Veðriö
versnaði mikiö eftir hádegið, þaö
hvessti og fór að siy óa. Þá komu tveir
nágrannar mínir mér til aðstoðar og
við byijuðum á að brúa skurð sem
viö ætluöum að reka féö yfir í íjár-
húsin. Þegar við fórum að svipast um
eftir fénu var þaö ekki sjáanlegt. Við
leituðum alhengi í afleitu veðri og
litlu skyggni en tókst ekki að finna
fjárhópinn. Þegar veðriö fór að ganga
niöur um morguninn fór ég strax að
huga að fénu og fann stóran hóp sem
haföi hrakið í síki hér í landareign-
inni,“ sagði Gísh Jónsson, bóndi á
Ytri-Húsabakka í Seyluhreppi í
Skagafiröi.
Gísli fékk björgunarsveitina á
Sauðárkróki til að aðstoða sig við að
bjarga fénu úr síkinu. Þeir náöu alls
40 kindum lifandi úr krapinu, þessar
kindur voru flestar efstar í hrúgunni
því hópinn hafi hrakið út í síkið hálf-
fullt af krapi og féð troöist hvað ofan
á annað.
„Það eru nú dauðar 12 af þessum
40 og mér sýnist að alls hafi farist
140-150 kindur hjá mér í þessu fár-
viðri. Þetta er um helmingurinn af
ljárstofninum og flest yngsta féð,“
sagði Gísh. Gísh segist ekki muna
eftir öðru eins hvassviðri og var að-
faranótt fimmtudagsins og aö víða á
bæjum á þessum slóðum hafi fé
hrakið undan veðurofsanum þótt
ekki hafi oröið neitt viðlíka tjón og
hann varð fyrir.
bylurinn stóð inn og þá vissi ég hvað
hefði gerst. Ég öskraði á Möggu en
fékk ekkert svar. Þá talaði ég við
hundana og sagði að við skyldum
koma,“ sagði Helga Jónína.
Hún fór síðan ásamt hundunum
út í öskrandi byhnn á nærklæðunum
einum og braust eftir hjálp.
Talaði stanslaust við hundana
„Hundarnir fylgdu mér fast eftir
og viku ekki frá mér. Ég talaöi stans-
laust við þá og kom að húsi við Unn-
arstíg og barði allt að utan en fékk
ekkert svar. Ég hugsaöi með mér
hvað þetta væri mikill asnaskapur
að fara út í stað þess að bíöa hjálpar.
Ég var farin að halda að ég yrði úti
þarna. Svo ákvað ég að brjótast
áfram og komst að ehiheimihnu og
fór þar inn,“ segir Helga Jónina.
Átta klukkustundum síðar var vin-
konu hennar bjargað úr rústunum.
Hún var köld en htið slösuö.
„Það var mikill léttir þegar henni
var bjargað. Ég var allan tímann viss
um að hún væri dáin. Ég er afskap-
lega þakklát öllum," segir Helga Jón-
ína.
Stuttar fréttir
Samhugur
þingmanna
Þingmenn minntust þeirra sem
létust í snjóflóðinu á Flateyri í
síðustu viku þegar þing kom sam-
an í gær. Ragnar Arnalds þingfor-
seti ávarpaöi þingheim og baö
þingmenn að rísa úr sætum .
Sungiðfyrir
Flateyringa
Kristján Jóhannsson ópera-
söngvari mun halda tvenna tón-
leika með Sinfóníuhljómsveitinni
í vor. Ágóði af öðram þeirra renn-
ur til þeirra sem um sárt eiga að
binda vegna snjóflóösins á Flat-
eyri. Mbl. greindi frá.
StyrkirfráESB
íslensk fyrirtæki og stofhanir
fá á næstu 2 til 3 árum hátt i 400
milljónir króna úr rannsóknar-
og þróunarsjóðum ESB. RÚV
greindi frá.
Lyfjalögumfrestað
Alþingi samþykkti í gær að
fresta gildistöku nýrra lagaá-
kvæðaum aukið frelsi í lyfjasölu.
Ákveðið var að fresta gildistök-
unni í 4 mánuði en upphaflega fór
heilbrigðisráðherra fram á 8
mánaða frestun.
Tárúrsteinitilnefnd
Kvikmyndin Tár úr steini hefur
verið tilnefnd af íslands hálfu til
bandarísku óskarsverðlaunanna
í flokki bestu erlendu kvikmynd-
anna. Tilnefningin var ákveöin á
sameiginlegum fundi kvik-
myndagerðarmanna í vikunni.
Vaxtalækkun likleg
Miklar h'kur eru á að vextir
banka og sparisjóða lækki á
morgun í takt viö aðrar vaxta-
lækkanir að undanfömu. Stöð
tvögreindifráþessu. -kaa