Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1995, Side 5
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1995
5
Fréttir
Háskólarektor áhyggjufullur vegna flótta raunvísindamanna:
Viðhorf gömlu atvinnu-
veganna hindrun
- segir framkvæmdastjóri Rannsóknarráðs íslands
„Við hjá Rannsóknarráði höfum
haft áhyggjur af þessu ástandi. Fyr-
ir nokkrum árum gerðum við athug-
un á þessu og fundum út að menn
sem fluttu til útlanda sneru til baka
og þá gjarnan innan tíu ára en lík-
lega hefur sú staða breyst 1 dag. En
við lítum svo á að þetta fólk sé okk-
ur ekki að öllu glatað því við getum
oft leitað til þess og það blundar í
öllum íslendingum að koma aftur,“
segir Vilhjálmur Lúðvíksson, fram-
kvæmdastjóri Rannsóknarráðs ís-
lands, um ræðu Sveinbjöms Björns-
sonar háskólarektors við braut-
skráningu kandídata frá Háskóla ís-
lands síðastliðinn laugardag.
Sveinbjörn benti á að 44 prósent
kandídata læknadeildar á árunum
1979 til 1988 og nær 20 prósent
kandídata úr raunvísindadeild á
sama tíma væru búsettir erlendis og
óvíst hvort þeir sneru heim því þeir
væru líklega komnir í atvinnu er-
lendis. Sagði hann þetta áhyggju-
efni, sérstaklega ef haft væri í huga
að íslendinga skorti kennara i raun-
vísindum í framhaldsskólum lands-
ins.
Vilhjálmur segir líka spumingu í
hvaða mæli menntafólk það sem hér
um ræðir eigi að skapa sér atvinnu
sjálft. Það geti jafnan verið erfitt
með hliðsjón af skorti á aðstöðu og
fjármagni en þó séu menn að fást
við verkefni á sviði erfðatækni,
sameindalíffræði og ekki síst upp-
lýsingatækni hér á landi í dag sem
gætu boðið upp á marga möguleika.
Tölfræðilegar upplýsingar sýni að
þróunin sé í þessa átt en hún sé allt-
of hægfara og takmarkast af við-
horfum gömlu atvinnuveganna sem
ræður ríkjum í mörgum stofnunum
okkar, þar með talið tjármálastofn-
unum.
„Ég hlustaði á þetta og þetta var
fróðlegt áheyrnar. Rektor varpaði
þessu fram sem hugleiðingu og ég er
sammála honum að þetta er mál
sem við þurfum að velta fyrir okkur
hvemig við eigum að taka á og
hvort hægt sé að beina góðum náms-
mönnum inn á aðrar brautir ef það
er nauðsynlegt," segir Björn Bjarna-
son menntamálaráðherra.
Björn segir ljóst að atgervisflótta
kandídata í raunvísindadeild verði
ekki breytt með einföldum ákvörð-
unúm. Þetta sé spurning um þróun
sem menn ng sérstaklega hjá Há-
skólanum muni velta fyrir sér.
-PP
Tengivagninn utan vegar. Tengibeisli gaf sig um samsuðu.
DV-mynd Jón Benediktsson
Tengivagn tættist í sundur
Jón Benediktsson, DV, Suðurlandi:
Tengivagn með fóðurdælubúnaði
losnaði aftan úr fóðurflutningabíl á
Suðurlandsvegi, rétt vestan við
Skeiðavegamót, í rokinu fyrir helg-
ina. Óhappið varð með þeim hætti
að tengibeisli á vagninum brotnaði
um samsuðu. Féll vagninn niður og
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Bæjarráð Akureyrar hefur heim-
ilað bæjarstjóra að selja öll hluta-
bréf í Skinnaiðnaði hf. og verður
leitað samvinnu við Kaupþing
plægði upp úr klæðingu vegarins,
rann síðan um fimmtíu metra á
réttum vegarhelmingi og valt yfir
vegrið þar sem hann tættist gjör-
samlega í sundur. Á vagningum var
dísilvél sem notuð er til að knýja
dælurnar.
Töluverð olía rann á veginn og
kom slökkviliðið ffá Selfossi á stað-
Norðurlands um sölu bréfanna.
Akureyrarbær lagði til um 30%
hlutafjár í Skinnaiðnaði hf. sem
reist var á rústiun islensks skinna- _
iðnaðar hf. sem varð gjaldþrota og
réð mestu um þá ákvörðun bæjar-
inn og hreinsaði upp. Það er mildi
að vagninn lenti ekki á bíl úr gagn-
stæðri átt.
Suðan virðist ekki hafa uppfyllt
þær kröfur sem ætlast er til. Mikil
umferð er með tengivagna á vegum
landsins og ekki vanþörf á að herða
eftirlit með og skoðun á búnaði
þeirra.
ins að starfsemin legðist ekki af í
bænum. Nú þykir ljóst að Skinna-
iðnaður hf. sé kominn á gott skrið,
afurðir fyrirtækisin:; hafa selst vel
erlendis og bærinn h :fur því ákveð-
ið að draga sig út úr 'yrirtækinu.
Garnaspákona á Kárastöðum í Hegranesi:
Spáir fremur mildum vetri
Þórhallur Ásmundss., DV, Sauðárkróki:
Þrátt fyrir að vetur konungur
hafi sýnt mátt sinn undanfarna
daga býst Sigurlaug Jónasdóttir,
garnaspákona á Kárastöðum í
Hegranesi, við fremur mildum
vetri.
„Já, ég er nýbúin að glugga í
garnirnar og sá ekki annað en allt
sæmilegt. Þetta verður gott fram-
an af, alveg fram undir jól. Þá sýn-
ist mér að koma muni einhver ill-
viðrakafli en hann verður ekki
langur. Síðan gæti komið
smákuldakafli í byrjun april en
svo ætti að fara að vora úr því,“
segir Sigurlaug.
„Já, mér sýnist að þetta verði
mildur vetur og lítið um stórviðri.
Það má náttúrlega búast við ein-
hverri vetrarveðráttu en snjórinn
verður samt ekkert í líkingu við
það sem var síðasta vetur. Annars
hef ég heyrt að einhvert annar
hafi verið búinn að spá fyrir mig.
Að það væri haft eftir mér að þó
að síðasti vetur hefði verið harður
væru það smámunir miðað við
þær vetrarhörkur sem í vændum
væru. Þetta er ekki rétt,“ sagði
Sigurlaug.
Stundum hafa spár Sigurlaugar
staðist furðanlega. Hún spáði m.a.
útmánaðarkuldum á liðnum vetri
og komu þeir á daginn. Hins veg-
ar var ekki að finna í spánni þá
hið mikla fannfergi sem varð um
allt land á liðnum vetri.
Þriðjungur í Skinnaiðnaði til sölu
Afgreiðslufólk
á sölustöðum
aðstoðar þig
með mikilli ánægju
ef þú vilt prófa!
Prófaðu Kínó
- þú gcetir unnið
þann stóra!