Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1995, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1995, Page 7
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1995 7 Fréttir Deilurnar í skólafélagi Iðnskólans: Skólameist- arinn fær bókhaldið - reyni að leita sátta, segir Ingvar Ásmundsson „Ég sé ekki á þessari stundu að hægt sé að hafa uppi ályktanir um fjárdrátt en það er ljóst að í félaginu er uppi ágreiningur um hvemig fjármunum skólafélagins skuli var- ið,“ segir Ingvar Ásmundsson, skólameistari Iðnskólans í Reykjvaík. Samkomulag er um að bókhaldið verði lagt fyrir skólameistara. Frá því í síðustu viku hafa verið upp há- værar deilur í skólafélaginu vegna ráðstöfunar á fé þess. Andstæðingar meirihlutans í stjórninni saka for- mann og gjaldkera um sóun og telja að allt að einni milljón vanti í sjóð- inn. Meirhlutinn telur aftur á móti að ekkert sé óeðlilegt við fjárreiður félagins. Einkum hafa gagnrýnendurnir verið ósáttir við að einstök deildar- félög í skólanum hafa ekki fengið gi'eitt úr sameiginlegum sjóði eins og lög gera ráð fyrir og einnig að töluverðum upphæðum hefur verið varið til að greiða reikningá á veit- ingahúsum. Yflrdráttur er á ávís- anareikningi og sem stendur ekkert fé til ráðstöfúnar. Þá mun og mis- brestur á að fundir séu haldnir í skólafélagsstjórninni. „Minnihlutinn er ekki sáttur við hvernig fénu hefur verið ráðstafað. Það þarf að jafna þennan ágreining og mun ég reyna að stuðla að því. Meira get ég ekki gert,“ sagði Ingv- ar. Borgar Þór Þórisson, formaður skólafélags Iðnskólans, vísar alger- lega á bug öllum ásökunum um mis- ferli í starfsemi skólafélagsins. „Bókhaldið liggur fyrir og við höf- um sýnt skólameistara það. Það er ekkert við það að athuga og eina ástæða þessa upphlaups er að klíka í skólanum telur sig hafa misst þar völd,“ sagði Borgar. ■ -GK í ; ■ .. Raðhúsið við Múlasíðu 18. Eins og sjá má eru endaíbúðirnar fullreistar en einungis gólfplatan þar á milli. DV-mynd gk Eftirmál gjaldþrots á Akureyri: Stungið af frá hálfbyggöu húsi Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Þetta er talandi dæmi um það hvemig menn geta hagað sér, þeir keyra rekstur sinn i gjaldþrot, skipta síðan um kennitölu og byrja upp á nýtt og þegar á móti blæs þá er bara stungið af frá öllu saman,“ segir íbúi við Múlasíðu á Akureyri um viðskilnað byggingameistara sem var að byggja þar fjögurra íbúða raðhús. Umræddur íbúi segir mikla gremju meðal fólks í næsta ná- grenni vegna viðskilnaðar bygg- ingaverktakans. Hann lauk smíði endaíbúðanna tveggja og seldi þær, en framkvæmdir við ibúðimar tvær í miðjunni eru ekki lengra komnar en svo að platan hefúr verið steypt og standa steypuvírar upp úr plöt- unum og eru slysagildra fyrir börn sem þarna búa. Byggingameistarinn mun nú vera fluttur úr landi. Byggingaverktakinn varð gjald- þrota fyrir nokkrum áram en hóf rekstur að nýju mjög fljótlega, und- ir nafhi annars fyrirtækis. Hrafn Jónasson, eigandi annarrar endaí- búðarinnar, segir að hann hafi ekk- ert undan byggingameistaranum að klaga, hann hafi staðið við alla hluti gagnvart sér. Hins vegar segist Hrafn ekkert vita hvert framhaldið verði á byggingaframkvæmdunum og sennilega viti það enginn eins og staða málsins sé í dag. Þú velur hvaða úrslitum þú spáir í þessum leik. Stuðlamir sýna möguleikann á hverjum úrshtum (1, X eða 2) á tölfræðilegan hátt. Lægsti stuðullinn 1,40 táknar líklegustu úrslitin og eftir því sem stuðullinn hækkar þykja úrslitin óhkiegri. En nú getur það margborgað sig að taka séns! Einfaldlega vegna þess að 1, X og 2 tákna alltaf úrslit eftir veujulegan leiktíma, ekki framlengingu -og stuðlamir margfalda vinninginn ef spá þín reynist rétt! Hæsti stuðullinn táknar ólíklegustu úrslitin 8 Þri. 31/10 19:30 Tindastóll - Þór 1,25 9,60 2,90 Karfa 9 Þri. 31/10 19:30 [R - Grindavík 1,40 '9,00 2,40 Karfa 10 Þrí. 31/10 20:00 Guimares - Barcelona '’sístr Leikur nr. 9 í Lengjunni: ÍR - Grindavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.