Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1995, Qupperneq 7
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1995
7
Fréttir
Deilurnar í skólafélagi Iðnskólans:
Skólameist-
arinn fær
bókhaldið
- reyni að leita sátta, segir Ingvar Ásmundsson
„Ég sé ekki á þessari stundu að
hægt sé að hafa uppi ályktanir um
fjárdrátt en það er ljóst að í félaginu
er uppi ágreiningur um hvemig
fjármunum skólafélagins skuli var-
ið,“ segir Ingvar Ásmundsson,
skólameistari Iðnskólans í
Reykjvaík.
Samkomulag er um að bókhaldið
verði lagt fyrir skólameistara. Frá
því í síðustu viku hafa verið upp há-
værar deilur í skólafélaginu vegna
ráðstöfunar á fé þess. Andstæðingar
meirihlutans í stjórninni saka for-
mann og gjaldkera um sóun og telja
að allt að einni milljón vanti í sjóð-
inn. Meirhlutinn telur aftur á móti
að ekkert sé óeðlilegt við fjárreiður
félagins.
Einkum hafa gagnrýnendurnir
verið ósáttir við að einstök deildar-
félög í skólanum hafa ekki fengið
gi'eitt úr sameiginlegum sjóði eins
og lög gera ráð fyrir og einnig að
töluverðum upphæðum hefur verið
varið til að greiða reikningá á veit-
ingahúsum. Yflrdráttur er á ávís-
anareikningi og sem stendur ekkert
fé til ráðstöfúnar. Þá mun og mis-
brestur á að fundir séu haldnir í
skólafélagsstjórninni.
„Minnihlutinn er ekki sáttur við
hvernig fénu hefur verið ráðstafað.
Það þarf að jafna þennan ágreining
og mun ég reyna að stuðla að því.
Meira get ég ekki gert,“ sagði Ingv-
ar.
Borgar Þór Þórisson, formaður
skólafélags Iðnskólans, vísar alger-
lega á bug öllum ásökunum um mis-
ferli í starfsemi skólafélagsins.
„Bókhaldið liggur fyrir og við höf-
um sýnt skólameistara það. Það er
ekkert við það að athuga og eina
ástæða þessa upphlaups er að klíka
í skólanum telur sig hafa misst þar
völd,“ sagði Borgar.
■ -GK
í ; ■ ..
Raðhúsið við Múlasíðu 18. Eins og sjá má eru endaíbúðirnar fullreistar en
einungis gólfplatan þar á milli.
DV-mynd gk
Eftirmál gjaldþrots á Akureyri:
Stungið af frá
hálfbyggöu húsi
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Þetta er talandi dæmi um það
hvemig menn geta hagað sér, þeir
keyra rekstur sinn i gjaldþrot,
skipta síðan um kennitölu og byrja
upp á nýtt og þegar á móti blæs þá
er bara stungið af frá öllu saman,“
segir íbúi við Múlasíðu á Akureyri
um viðskilnað byggingameistara
sem var að byggja þar fjögurra
íbúða raðhús.
Umræddur íbúi segir mikla
gremju meðal fólks í næsta ná-
grenni vegna viðskilnaðar bygg-
ingaverktakans. Hann lauk smíði
endaíbúðanna tveggja og seldi þær,
en framkvæmdir við ibúðimar tvær
í miðjunni eru ekki lengra komnar
en svo að platan hefúr verið steypt
og standa steypuvírar upp úr plöt-
unum og eru slysagildra fyrir börn
sem þarna búa. Byggingameistarinn
mun nú vera fluttur úr landi.
Byggingaverktakinn varð gjald-
þrota fyrir nokkrum áram en hóf
rekstur að nýju mjög fljótlega, und-
ir nafhi annars fyrirtækis. Hrafn
Jónasson, eigandi annarrar endaí-
búðarinnar, segir að hann hafi ekk-
ert undan byggingameistaranum að
klaga, hann hafi staðið við alla hluti
gagnvart sér. Hins vegar segist
Hrafn ekkert vita hvert framhaldið
verði á byggingaframkvæmdunum
og sennilega viti það enginn eins og
staða málsins sé í dag.
Þú velur hvaða úrslitum þú
spáir í þessum leik.
Stuðlamir sýna möguleikann á
hverjum úrshtum (1, X eða 2)
á tölfræðilegan hátt.
Lægsti stuðullinn 1,40 táknar líklegustu úrslitin og eftir því
sem stuðullinn hækkar þykja úrslitin óhkiegri. En nú getur
það margborgað sig að taka séns! Einfaldlega vegna þess að
1, X og 2 tákna alltaf úrslit eftir veujulegan leiktíma, ekki
framlengingu -og stuðlamir margfalda vinninginn ef spá
þín reynist rétt!
Hæsti stuðullinn táknar
ólíklegustu úrslitin
8 Þri. 31/10 19:30 Tindastóll - Þór 1,25 9,60 2,90 Karfa
9 Þri. 31/10 19:30 [R - Grindavík 1,40 '9,00 2,40 Karfa
10 Þrí. 31/10 20:00 Guimares - Barcelona '’sístr
Leikur nr. 9 í Lengjunni: ÍR - Grindavík