Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1995, Síða 15
JJV ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1995
tilveran
Fólk sem situr daglangt við tölvu ætti að prófa setboitann og sjá hvort það
lagast ekki í bakinu.
I
Í:-
■
i
1
Uppskriftir að naglasúpum:
Síðasti skiladagur
- dregið á næstu dögum
Skilafrestur í uppskriftasam-
keppni DV rennur út í dag en
póststimpill dagsins verður þó
tekinn gildur.
Mikill fjöldi sniðugra upp-
skrifta hefur borist og verður á
næstu dögum farið i að flokka og
velja þær uppskriftir sem koma
þykja til greina sem verðlauna-
uppskriftir.
Dregið verður svo úr þeim og
þannig valdir þeir heppnu sem
hreppa fimm matarkörfur frá
Nóatúni, hver að andvirði 10 þús-
und krónur.
Þeir sem vilja senda inn upp-
skriftir í dag geta stílað umslagið
á Naglasúpu DV, Þverholti 11,105
Reykjavík.
Lesendur hafa sýnt þessari
samkeppni mikinn áhuga og því
verður reynt að birta helstu upp-
skriftirnar í Tilverunni á næstu
vikum.
Naglasúpa fyrir fjóra
Frá Margréti Steingrímsdóttur
kemur Naglasúpa fyrir fjóra. I
hana þarf:
500 g nautahakk
tómatsósu
1 kjúklingatening
jurtasalt
aromat
pipar
1 bufflauk
3 hvítlauksrif
1-2 paprikur
3 gulrætur
2 kartöflur
1/2 púrru
1/4 blómkál
1 litla dós ananas
Ólífuolía er sett í pott, hvítlauk-
urinn og laukurinn skorinn,
ásamt grænmetinu, og allt látiö
malla í olíunni. Bætið l dl af vatni
út í og sjóðið eftir smekk. Krydd-
ið með jurtasalti (Herbamare).
Þetta er sett í skál meðan kjötið er
steikt, í sama potti.
Olía er sett í pottinn og hakkið
sett út i. Steikið þar til hakkið er
orðið laust, kryddið. Setjið smá-
vegis af vatni ásamt teningunum
og sjóðið í 1/2 klst. Þetta má jafna
með sósujafnara. Bætið grænmet-
inu út í og rétturinn er tilbúinn.
Setjið ananasinn út í að lokum.
Hráefniskostnaður er 500 krónur.
-sv
Bolti í stað stóls er eitthvað sem
fæst okkar hafa hugsað út í en ef
marka má grein í Jyilands-Posten
nú nýverið er það kannski ekki svo
fáránleg hugmynd.
Karin Spaabæk vinnur sem
hjúkrunarfræðingur á deild fyrir
bakveika og hún sá boltann fyrst
þegar hún heimsótti vinkonu sína á
barnaheimili í Sviss. Öll börnin
sátu á setbolta. Könnun hafði sýnt
að svissnesk börn áttu upp til hópa
við krankleika stríða í baki, m.a.
vegna þess að þau hreyfðu sig of lít-
ið þegar þau byrjuðu í skólanum.
Þegar fólk situr á boltanum réttir
það ósjálfrátt úr lendum og baki til
þess að halda jafnvægi. Það þýðir að
að vöðvarnir í líkamanufn eru stöð-
ugt virkir. Boltinn er því mjög góð-
ur fyrir þá sem vinna einhæfa
vinnu og sitja stöðugt. Það gerir
manni ekkert að sitja og hoppa og
öndunin verður frjálsari þar sem
kviðvöðvarnir fá meira pláss.
Það eina sem hægt er að gera
rangt er að hafa of lítið loft í boltan-
um. Rétt er að byrja rólega og sitja
ekki lengur á honum til að byrja
með en klukkutíma á dag þar sem
vöðvarnir gætu stífnað við lengri
setu. Fólk með baksjúkdóma ætti
ekki að sitja á boltanum nema að
höfðu samráði við lækni.
Forþvegnar buxur slitna hratt
Vinsælar og dýrar gallabuxur
slitna allt of hratt ef þær eru keypt-
ar forþvegnar. í upphafi voru þær
framleiddar fyrir ameriska kúreka
og gullgrafara, menn sem þurftu á
sterkum vinnubuxum að halda. En
gallabuxurnar sem við kaupum í
verslunum í dag eru fjarri því að
vera líkar þeim vinnubuxum. Nú
þurfa þær að líta út fyrir að vera
notaðar allt frá því að þær liggja I
hillum verslana.
í könnun á slitþoli, sem gerð var
í Hollandi, fá mörg gallabuxnamerki
slæma útreið og þar á meðal er hið
sígilda Levi’s 501. Þegar buxurnar
eru steinþvegnar missa þær hið
mikla slitþol sem dökku buxurnar
hafa. Aðeins Esprit Regular, Mu-
stang og Wrangler Texas standast
þær kröfur sem gerðar voru í könn-
uninni.
í könnuninni var útlitið skoðað
sem og vinnan við buxurnar. Ekkert
fannst athugavert þar.
Flestir framleiðendur gallabuxna
gefa upp að þær megi þvo á 30-40
gráðum en samkvæmt þeim sem
unnu að könnuninni í Hollandi er
að buxur úr bómull eigi að þurfa að
þola þvott á 60 gráðum þar sem þær
verði oft frekar skítugar.
Grein úr Jyllands-Posten.
- í umferöarslysum í Reykjavík árin 1993 og 1994 -
H 1993 ö 1994
0-6 ára 7-14 ára
Heimild: Umferöarráö, skv. upplýsingum lögreglu
Allt lyrir baOiö
Poulsen
Suburlandsbraut 10, sími 568 64 99
á frábæm
DVl