Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1995, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1995, Side 20
24 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1995 fþróttir unglinga Öflugt ungllngastarf hjá sunddeild Armanns: Markmiðið meðal annars að kenna keppnissund - sagði Hafþór Guðmundsson, yfirsundþjálfari félagsins Hressir Ármenningar á Ármannssundmótinu fyrir skömmu en það fór fram í Sundhöll Reykjavikur. Frá vinstri: Friðbjörn Pálsson, Sigurgeir Már Sigurðsson, Steinunn Þorsteinsdóttir, Elin Hanna Pétursdóttir og Berglind Rut Valgeirsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Guðmundur S. Hafþórsson, Halla Guðmundsdóttir og Haf- þór Guðmundsson, yfirsundþjálfari Ármanns. DV-mynd Hson Uppbyggingarstarfið hjá Sund- deild Armanns hefur verið með miklum krafti undanfarið ár. Nú eru krakkarnir í Ármanni farnir að blanda sér í baráttuna um efstu sætin á sterkum sundmótum og er það til marks um þá miklu og já- kvæöu breytingu sem oröin er hjá félaginu. Til þess að kynnast betur innra starfi sunddeildar Ármanns hafði DV samband við Hafþór Guð- mundsson, yfirsundþjálfara deild- arinnar, og spuröi hann nánar út í starfsemi félagsins. Starfsemin stóraukin „Sunddeild Ármanns hefur stór- aukið starfsemi sína undanfarin ár og er nú ein fjölmennasta sund- deild landsins, með um 150 iðkend- ur, ásamt því aö reka sundskóla fyrir um 150 þátttakendur. Starf deildarinnar hefur einkennst af því að þjóna sem breiðustum hópi al- mennings í landinu. Á þennan hátt teljum við að verið sé að byggja upp sterka keppnis- sunddeild. Við höfum orðið vör við að þetta starf skilar sér mjög vel inn í keppnisdeildina. Stefnt er að því að byrja með ýmsar nýjungar í vetur - svo sem þolfimi í vatni og kvennatíma þar sem áhersla verður lögð á leikfimi í vatni og sundkennslu." Kennsla fyrir vatnshrædda „Auk þess mun sunddeildin vera með á dagskrá vatnsleikfimi, ung- bamasundið vinsæla, barnasund, sundkennsla fyrir vatnshrædda, sundkennslu fyrir fullorðna og kvennatíma með áherslu á fitu- brennslu. Að sjálfsögðu er svo hin hefö- bundna þjálfun fyrir afrekssund- fólkið." Vetrarstarfið öflugt „Meginmarkmið deildarinnar er aö kynna og kenna keppnissund með afreksstefnu að leiðarljósi. Þessu fylgir að sjálfsögðu að kenna tækni sundsins, byggja upp unglinga, bæði líkamlega og andlega. Deildin sér um kennslu og þjálfun barna og unglinga undir ömggri leiðsögn færustu íþróttakennara og þjálfara landsins. í vetur munu starfa hjá félaginu sex íþróttakenn- arar auk íþróttafræðings." Öflugt foreldrastarf „Foreldrastarfið innan deildarinn- ar er mjög öflugt og er ljóst að án aðstoðar þeirra væri starfið mun erfiöara. Foreldrafélagið hjálpar til við fjáröflun, aðstoðar á sundmót- um og einnig er mikill félagslegur stuðningur af því.“ Sundskólinn „Við höfum viljað skilja á milli starfsemi Sundskóla Ármanns og keppnisdeildarinnar þannig að hvort um sig geti starfað sjálfstætt en samt undir sömu stjórn. Vetrar- starfsemi sundskóla Ármanns hófst þann 11. september sl. og er markmið hans að venja börn við vatnið og fá þau til aö njóta þess að vera í því. Þegar meginmark- miðinu er náð þá er hafist handa við að kenna börnunum í formi leikja og skemmtunar í lauginni undir öruggri leiðsögn reyndra íþróttakennara og þjálfara deildar- innar. Sundskólinn starfar í Sundhöll Reykjavíkur, sundlaug Árbæjar- skóla og sundlaug Árbæjar," sagði Hafþór að lokum. m HaustmótTBRíbadminton: „Eg bara sprakk hreinlega" - sagði Magnús Helgason, Víkingi, eftir viðureignina við Bjöm Jónsson, TBR Vetrardagsmót unglinga í badmin- ton var haldið í TBR-húsinu um síð- ustu helgi. Keppendur voru frá Reykjávík, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Akranesi, Akureyri, Borgarnesi, Keflavík, Þorlákshöfn, Hveragerði og Flúðum, alls um 150 keppendur. „Ég bara sprakk“ Magnús I. Helgason, Víkingi, 15 ára, tapaði í einliðaleik pilta en hann er í drengjaflokki og var því að leika upp fyrir sig: „Þetta var mjög erfiður leikur - í fyrri lotunni átti ég nokkuð góðan Umsjón Halldór Halldórsson leik í lokin en í seinni lotunni hrein- lega sprakk ég. Ég hef ekki unnið Björn í keppni en nokkrum sinnum á æfingum. Jú, ég verð var við mikl- ar. framfarir hjá mér og er þvi mjög bjartsýnn á framhaldið í vetur,“ sagði Magnús. Hun lét mig bara hlaupa Ágústa Nielsen, TBR, varð að lúta í lægra haldi fyrir Unni Ylfu Magnús- iL Magnús I. Helgason, Vikingi, var ekki hress með spilið. dóttur, TBR: „Þetta var frekar erfitt því Unnur lét mig hlaupa ansi mikið. Ég mun reyna að láta hana um hlaupin næst þegar við spilum," sagði Ágústa. „Leikurinn var nokkuð erfiður en þetta er fyrsti meiri háttar titill sem ég vinn og ég er mjög ánægð með frammistöðuna. Sigríður Guðmundsdóttir, BH, sigr- aði í einliðaleik meyja. Tvær góðar - til vinstri er Ágústa Nielsen, TBR, og til hægri er Unnur Ylfa Magnúsdóttir, TBR, en þær áttust viö i einliðaleik telpna. DV-myndir Hson DV Badmlnton: Vetrardagsmót unglinga-úrslit Úrslitaleikjum á Vetrardagsmóti TBR lauk sem hér segir. Hnokkar/tátur 12-14 ára: Einliðaleikur: Tinna Helgadóttir, Víkingi, sigraði Björk Kristjáns- dóttur, TBR, 11-2,12-10. Valur Þráinsson, TBR, sigraði Daníel Reynisson, HSK, 12-11, 12-10: Tvíliðaleikur: Tinna Helgadótt- ir og Fjóla Sigurðardóttur, Vík- ingi, unnu Björk Kristjánsdóttur og Halldóru Elinu Jóhannsdótt- ur, TBR, 15-5, 12-15, 15-6. Arthúr Jósefsson og Valur Þrá- insson, TBR, sigruðu Daníel Reynisson og Kára Georgsson, HSK, 15-9, 3-15,15-9. Tvenndarleikui': Ólafur Ólafs- son og Tinna Helgadóttir, Vík- ingi, sigruðu Val Þráinsson og Halldóru Elínu Jóhannsdóttur, TBR, 15-9, 12-15, 15-11. Sveinar/meyjar 12-14 ára: Einliðaleikur: Sigríður Guð- mundsdóttir, BH, sigraði Brynd- ísi Sighvatsdóttur, BH, 12-10, 11-5. Margeir Sigurðsson, Víkíngi, sigraði Baldur Gunnarsson, Vík- ingi, 11-3,11-5. Tvíliðaleikur: Oddný Hró- bjartsdóttir og Sara Jónsdóttir, TBR, unnu Hrafnhildi Ásgeirs- dóttur og Rögnu Ingólfsdóttur, TBR, 15-17,15-4, 15-8. Margeir Sigurðsson og Baldur Gunnarsson, Vikingi, unnu Einar Geir Þórðarson og Daviö Thor Guðmundsson, 15-2,15-5. Tvenndarleikur: Helgi Jóhann- esson og Ragna Ingólfsdóttir, TBR, sigruðu Davíð Guðmunds- son og Söru Jónsdóttur, TBR, 15-6, 15-5. Drengir/telpur 14-16 ára: Einliðaleikur: Unnur Ylfa Magn- úsdóttir, TBR, sigraöi Ágústu Ni- elsen, TBR, 11-7, 11-5. Bjöm Oddsson, BH, vann Gunnar Reynisson, Keflavík, 15-8,15-11. Tviliðaleikur: Eva Petersen og Ágústa Nielsen, TBR, sigruðu Ehsu Viðarsdóttur og Þóru Helgadóttur, BH, 15-8,15-7. Björn Oddsson, BH og Ingólfur Ingólfsson sigmðu Pálma Sig- urðsson og Gísla Guðjónsson, Víkingi, 16-17,1511,159. Tvenndarleikur: Agnar Hin- riksson og Katrín Atladóttir, TBR, sigrnðu Pálma Sigurösson og Gísla Guðjónsson, Vikingi, 1517, 1511, 159. Piltar/stúlkur 1518 ára: Einliðaleikur: Brynja Pétursdótt- ir, ÍA, sigraði Erlu Björk Haf- steinsdóttir, TBR, 11-2,11-4. Bjöm Jónsson, TBR, vann Magnús Inga Helgason, Víkingi, 1511,15-6. Tvöiðaleikur Brypja Péturs- dóttir og Birna Guðbjartsdóttir, ÍA, sigruðu Önnu Sigurðardóttur og Erlu Hafsteinsdóttur, TBR, 15-8,17-14. Sævar Ström og Björn Jónsson, TBR, sigruðu Magnús Helgason, Víkingi og Gunnar Gunnarsson, Keflavík, 154,15-8. Tvenndarleikur: Björa Jónsson, TBR og Brynja Pétursdóttir, ÍA, unnu Sævar Ström, TBR og Birnu Guðbjartsdóttur, ÍA, 152, 515, 15-6. Sund: Ungliitgameistara- mótið um næstu helgi Helgina 4. og 5. nóvember fer fram unglingameistaramótiö í sundi. Mótið fer fram í Sundhöil Reykjavíkur og er þetta síöasta mótið fyrir bikarkeppnina. Þama verða saman komnir sterkustu unglingar landsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.