Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1995, Page 20
24
ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1995
fþróttir unglinga
Öflugt ungllngastarf hjá sunddeild Armanns:
Markmiðið meðal annars
að kenna keppnissund
- sagði Hafþór Guðmundsson, yfirsundþjálfari félagsins
Hressir Ármenningar á Ármannssundmótinu fyrir skömmu en það fór fram í Sundhöll Reykjavikur. Frá
vinstri: Friðbjörn Pálsson, Sigurgeir Már Sigurðsson, Steinunn Þorsteinsdóttir, Elin Hanna Pétursdóttir og
Berglind Rut Valgeirsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Guðmundur S. Hafþórsson, Halla Guðmundsdóttir og Haf-
þór Guðmundsson, yfirsundþjálfari Ármanns. DV-mynd Hson
Uppbyggingarstarfið hjá Sund-
deild Armanns hefur verið með
miklum krafti undanfarið ár. Nú
eru krakkarnir í Ármanni farnir
að blanda sér í baráttuna um efstu
sætin á sterkum sundmótum og er
það til marks um þá miklu og já-
kvæöu breytingu sem oröin er hjá
félaginu.
Til þess að kynnast betur innra
starfi sunddeildar Ármanns hafði
DV samband við Hafþór Guð-
mundsson, yfirsundþjálfara deild-
arinnar, og spuröi hann nánar út
í starfsemi félagsins.
Starfsemin stóraukin
„Sunddeild Ármanns hefur stór-
aukið starfsemi sína undanfarin ár
og er nú ein fjölmennasta sund-
deild landsins, með um 150 iðkend-
ur, ásamt því aö reka sundskóla
fyrir um 150 þátttakendur. Starf
deildarinnar hefur einkennst af því
að þjóna sem breiðustum hópi al-
mennings í landinu.
Á þennan hátt teljum við að verið
sé að byggja upp sterka keppnis-
sunddeild. Við höfum orðið vör við
að þetta starf skilar sér mjög vel
inn í keppnisdeildina.
Stefnt er að því að byrja með
ýmsar nýjungar í vetur - svo sem
þolfimi í vatni og kvennatíma þar
sem áhersla verður lögð á leikfimi
í vatni og sundkennslu."
Kennsla fyrir vatnshrædda
„Auk þess mun sunddeildin vera
með á dagskrá vatnsleikfimi, ung-
bamasundið vinsæla, barnasund,
sundkennsla fyrir vatnshrædda,
sundkennslu fyrir fullorðna og
kvennatíma með áherslu á fitu-
brennslu.
Að sjálfsögðu er svo hin hefö-
bundna þjálfun fyrir afrekssund-
fólkið."
Vetrarstarfið öflugt
„Meginmarkmið deildarinnar er aö
kynna og kenna keppnissund með
afreksstefnu að leiðarljósi. Þessu
fylgir að sjálfsögðu að kenna tækni
sundsins, byggja upp unglinga,
bæði líkamlega og andlega.
Deildin sér um kennslu og þjálfun
barna og unglinga undir ömggri
leiðsögn færustu íþróttakennara og
þjálfara landsins. í vetur munu
starfa hjá félaginu sex íþróttakenn-
arar auk íþróttafræðings."
Öflugt foreldrastarf
„Foreldrastarfið innan deildarinn-
ar er mjög öflugt og er ljóst að án
aðstoðar þeirra væri starfið mun
erfiöara. Foreldrafélagið hjálpar til
við fjáröflun, aðstoðar á sundmót-
um og einnig er mikill félagslegur
stuðningur af því.“
Sundskólinn
„Við höfum viljað skilja á milli
starfsemi Sundskóla Ármanns og
keppnisdeildarinnar þannig að
hvort um sig geti starfað sjálfstætt
en samt undir sömu stjórn. Vetrar-
starfsemi sundskóla Ármanns
hófst þann 11. september sl. og er
markmið hans að venja börn við
vatnið og fá þau til aö njóta þess
að vera í því. Þegar meginmark-
miðinu er náð þá er hafist handa
við að kenna börnunum í formi
leikja og skemmtunar í lauginni
undir öruggri leiðsögn reyndra
íþróttakennara og þjálfara deildar-
innar.
Sundskólinn starfar í Sundhöll
Reykjavíkur, sundlaug Árbæjar-
skóla og sundlaug Árbæjar," sagði
Hafþór að lokum.
m HaustmótTBRíbadminton:
„Eg bara sprakk hreinlega"
- sagði Magnús Helgason, Víkingi, eftir viðureignina við Bjöm Jónsson, TBR
Vetrardagsmót unglinga í badmin-
ton var haldið í TBR-húsinu um síð-
ustu helgi. Keppendur voru frá
Reykjávík, Hafnarfirði, Mosfellsbæ,
Akranesi, Akureyri, Borgarnesi,
Keflavík, Þorlákshöfn, Hveragerði og
Flúðum, alls um 150 keppendur.
„Ég bara sprakk“
Magnús I. Helgason, Víkingi, 15 ára,
tapaði í einliðaleik pilta en hann er
í drengjaflokki og var því að leika
upp fyrir sig:
„Þetta var mjög erfiður leikur - í
fyrri lotunni átti ég nokkuð góðan
Umsjón
Halldór Halldórsson
leik í lokin en í seinni lotunni hrein-
lega sprakk ég. Ég hef ekki unnið
Björn í keppni en nokkrum sinnum
á æfingum. Jú, ég verð var við mikl-
ar. framfarir hjá mér og er þvi mjög
bjartsýnn á framhaldið í vetur,“
sagði Magnús.
Hun lét mig bara hlaupa
Ágústa Nielsen, TBR, varð að lúta í
lægra haldi fyrir Unni Ylfu Magnús-
iL
Magnús I. Helgason, Vikingi, var
ekki hress með spilið.
dóttur, TBR:
„Þetta var frekar erfitt því Unnur
lét mig hlaupa ansi mikið. Ég mun
reyna að láta hana um hlaupin næst
þegar við spilum," sagði Ágústa.
„Leikurinn var nokkuð erfiður en
þetta er fyrsti meiri háttar titill sem
ég vinn og ég er mjög ánægð með
frammistöðuna.
Sigríður Guðmundsdóttir, BH, sigr-
aði í einliðaleik meyja.
Tvær góðar - til vinstri er Ágústa Nielsen, TBR, og til hægri er Unnur Ylfa
Magnúsdóttir, TBR, en þær áttust viö i einliðaleik telpna. DV-myndir Hson
DV
Badmlnton:
Vetrardagsmót
unglinga-úrslit
Úrslitaleikjum á Vetrardagsmóti
TBR lauk sem hér segir.
Hnokkar/tátur
12-14 ára:
Einliðaleikur: Tinna Helgadóttir,
Víkingi, sigraði Björk Kristjáns-
dóttur, TBR, 11-2,12-10.
Valur Þráinsson, TBR, sigraði
Daníel Reynisson, HSK, 12-11,
12-10:
Tvíliðaleikur: Tinna Helgadótt-
ir og Fjóla Sigurðardóttur, Vík-
ingi, unnu Björk Kristjánsdóttur
og Halldóru Elinu Jóhannsdótt-
ur, TBR, 15-5, 12-15, 15-6.
Arthúr Jósefsson og Valur Þrá-
insson, TBR, sigruðu Daníel
Reynisson og Kára Georgsson,
HSK, 15-9, 3-15,15-9.
Tvenndarleikui': Ólafur Ólafs-
son og Tinna Helgadóttir, Vík-
ingi, sigruðu Val Þráinsson og
Halldóru Elínu Jóhannsdóttur,
TBR, 15-9, 12-15, 15-11.
Sveinar/meyjar
12-14 ára:
Einliðaleikur: Sigríður Guð-
mundsdóttir, BH, sigraði Brynd-
ísi Sighvatsdóttur, BH, 12-10,
11-5.
Margeir Sigurðsson, Víkíngi,
sigraði Baldur Gunnarsson, Vík-
ingi, 11-3,11-5.
Tvíliðaleikur: Oddný Hró-
bjartsdóttir og Sara Jónsdóttir,
TBR, unnu Hrafnhildi Ásgeirs-
dóttur og Rögnu Ingólfsdóttur,
TBR, 15-17,15-4, 15-8.
Margeir Sigurðsson og Baldur
Gunnarsson, Vikingi, unnu Einar
Geir Þórðarson og Daviö Thor
Guðmundsson, 15-2,15-5.
Tvenndarleikur: Helgi Jóhann-
esson og Ragna Ingólfsdóttir,
TBR, sigruðu Davíð Guðmunds-
son og Söru Jónsdóttur, TBR,
15-6, 15-5.
Drengir/telpur
14-16 ára:
Einliðaleikur: Unnur Ylfa Magn-
úsdóttir, TBR, sigraöi Ágústu Ni-
elsen, TBR, 11-7, 11-5.
Bjöm Oddsson, BH, vann
Gunnar Reynisson, Keflavík,
15-8,15-11.
Tviliðaleikur: Eva Petersen og
Ágústa Nielsen, TBR, sigruðu
Ehsu Viðarsdóttur og Þóru
Helgadóttur, BH, 15-8,15-7.
Björn Oddsson, BH og Ingólfur
Ingólfsson sigmðu Pálma Sig-
urðsson og Gísla Guðjónsson,
Víkingi, 16-17,1511,159.
Tvenndarleikur: Agnar Hin-
riksson og Katrín Atladóttir,
TBR, sigrnðu Pálma Sigurösson
og Gísla Guðjónsson, Vikingi,
1517, 1511, 159.
Piltar/stúlkur
1518 ára:
Einliðaleikur: Brynja Pétursdótt-
ir, ÍA, sigraði Erlu Björk Haf-
steinsdóttir, TBR, 11-2,11-4.
Bjöm Jónsson, TBR, vann
Magnús Inga Helgason, Víkingi,
1511,15-6.
Tvöiðaleikur Brypja Péturs-
dóttir og Birna Guðbjartsdóttir,
ÍA, sigruðu Önnu Sigurðardóttur
og Erlu Hafsteinsdóttur, TBR,
15-8,17-14.
Sævar Ström og Björn Jónsson,
TBR, sigruðu Magnús Helgason,
Víkingi og Gunnar Gunnarsson,
Keflavík, 154,15-8.
Tvenndarleikur: Björa Jónsson,
TBR og Brynja Pétursdóttir, ÍA,
unnu Sævar Ström, TBR og Birnu
Guðbjartsdóttur, ÍA, 152, 515,
15-6.
Sund:
Ungliitgameistara-
mótið um næstu
helgi
Helgina 4. og 5. nóvember fer
fram unglingameistaramótiö í
sundi. Mótið fer fram í Sundhöil
Reykjavíkur og er þetta síöasta
mótið fyrir bikarkeppnina. Þama
verða saman komnir sterkustu
unglingar landsins.